Morgunblaðið - 08.11.2019, Side 26
26 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2019
✝ Jón Ernst Ing-ólfsson fædd-
ist í Reykjavík 11.
febrúar 1950.
Hann lést á heimili
sínu í Garðabæ 25.
október 2019. For-
eldrar hans voru
hjónin Ingólfur
Ólafsson versl-
unarmaður, f. 24.
mars 1921, d. 17.
nóvember 1966 og
Guðlaug Hulda Guðlaugsdóttir
húsmóðir, f. 28. júlí 1921, d. 25.
febrúar 2005. Systkini Jóns eru
Kolbrún Sigurbjörg, f. 10. mars
1943, Ingveldur, f. 7. mars 1944,
Rósa Guðrún, f. 25. október
1946 og Aðalbjörg Gunnhildur,
Hrannarr viðskiptafræðingur, f.
6. febrúar 1978, maki Harpa Rós
Gísladóttir, f. 1978. Þeirra börn
eru: a) Óliver Andri, f. 29. febr-
úar 2000, b) Alexander Kiljan, f.
5. júlí 2010, c) Kristófer Kjarval,
f. 5. júlí 2010 og d) Hendrikka
Rut, f. 4. janúar 2014. 3. Dagur
Geir viðskiptafræðingur, f. 13.
desember 1989, maki Elísa Rut
Hallgrímsdóttir, f. 1992. Sonur
þeirra er Rúrik Hrafn, f. 11.
ágúst 2017. Einnig átti Jón dótt-
urina Guðbjörgu Aðalheiði, f.
25. febrúar 1967. Maki Guð-
bjargar Aðalheiðar er Juan Car-
los Melgar Rada, f. 1962. Dætur
þeirra eru: a) Elín, f. 17. apríl
1992, sonur hennar er Grettir
Diego, f. 19. ágúst 2018, og b)
Hera, f. 3. september 1993.
Jón ólst upp í Reykjavík og
starfaði við sölustörf og við eig-
in atvinnurekstur.
Jón verður jarðsunginn frá
Garðakirkju í dag, 8. nóvember
2019, kl. 15.
f. 23. mars 1961.
Kona Jóns er
Dagný Guðmunds-
dóttir, f. 29. ágúst
1949. Foreldrar
hennar voru Guð-
mundur Helgi Valdi-
marsson, f. 1926, d.
1951 og Rósa Ein-
arsdóttir, f. 1922, d.
2005. Börn Jóns og
Dagnýjar eru: 1.
Rósa Dögg, graf-
ískur hönnuður, f. 2. nóvember
1971, maki Hannes Már Sigurðs-
son, f. 1971. Þau skildu. Börn
þeirra eru: a) Sara Sól, f. 11.
desember 1997, b) Birta Rós, f.
27, júní 2003 og c) Embla Dögg,
f. 20. febrúar 2007. 2. Helgi
Manstu pabbi eftir öllum
jarðarberjunum í niðursuðudós-
unum sem við hámuðum í okkur
og hlustuðum á Bítlana á með-
an? Manstu eftir sjeiknum sem
ég hellti yfir þig í bílnum þegar
ég stóð á milli sætanna að
syngja fyrir þig og manstu þeg-
ar þú kenndir mér að stela rab-
arbara? Ég man líka eftir snjó-
boltaprikunum og hvað þér
þóttu eyrnasneplasnúningarnir
góðir og ég man handtökin þín
þegar þú tróðst Birtu í
sokkabuxurnar. Manstu eftir
öllum grillveislunum í garðin-
um, slöngunum sem þú reddaðir
alltaf fyrir Skjaldbökubrekk-
una, bústaðaferðunum í Mun-
aðarnes og þegar ég straujaði
felgurnar undan bílnum?
Manstu eftir Æsufellsbrunanum
og Gmunden og manstu eftir
horninu þar sem þú festir alltaf
bílinn í snjónum? Manstu þegar
við gáfum Koleyru brauð út um
svalahurðina og þegar við sát-
um saman á stofugólfinu að
hlusta á tónlist og þú þýddir
alla Bítlatextana fyrir mig?
Þær eru dýrmætar minning-
arnar elsku pabbi, og aldrei
hlýrri og notalegri en akkúrat
núna þessa síðustu daga. Við
höfum hlegið og grátið í sam-
verunni. Minningin um þig er
djásn og dýrmæti sem við eig-
um, og yljum okkur við, og lof-
um að halda á lofti fyrir afa-
skarann þinn.
Góða ferð í Sóllandið, elsku
pabbi minn, og takk fyrir allt.
Rósa Dögg.
Það voru óhemjuþung sporin
inn á æskuheimilið þennan
morgun og að þurfa að tilkynna
systkinum mínum þessar sorg-
arfréttir strax í kjölfarið því
missir okkar allra er mjög mik-
ill.
Fyrstu minningarnar mínar
um okkur saman eru annars
vegar tengdar því að við vorum
að hlusta á músík, þar sem þú
kynntir mig fyrir Stones, Zepp-
elin og Bítlunum og þessum
bestu íslensku. Þegar við fórum
saman á Dylan fengum við að
sjá meistarann sjálfan sem við
héldum báðir mikið upp á.
Minningabrotin eru líka tengd
útivist og gönguferðum um
hraunið, í Kaldárseli og á Heng-
ilssvæðinu en þarna naustu þín
hvað best. Virðingin fyrir um-
hverfinu, náttúrunni og landinu
var alltaf til staðar.
Þú varst í samanburði við
flesta óvenjulegur pabbi, varst
með sítt hár og með engar sér-
stakar reglur sem vinir mínir
öfunduðu mig af. Þú varst til í
að leyfa öllum að leika heima og
dauðlegir hlutir skiptu þig engu
máli. Þú varst pabbinn sem
leyfði manni að kaupa nammi,
drekka kók, keyra bílinn og
fórst í kappakstur þegar við
vorum á ferðinni. Þú varst líka
pabbinn sem sá um venjulegu
hlutina eins og að vekja okkur í
skólann, smyrja nesti og sjá til
þess að allir mættu á réttum
tíma. Þú varst pabbinn sem
leyfð okkur að þróast og dafna
á okkar eigin forsendum.
Stolt þitt af okkur systkinun-
um leyndi sér ekki og þú varst
ánægður að við skyldum öll
halda til náms í Bandaríkjun-
um. Þú fórst frekar seint í þína
fyrstu ferð þangað og þá til að
fagna með mér útskrift. Þetta
voru æðislegir dagar og þar
kunnir þú vel við þig. Ég veit
þú hefðir viljað hafa mömmu
með þér og því var það gleðilegt
þegar Dagur útskrifaðist mörg-
um árum síðar að þið skylduð
hafa farið saman, ég veit að það
var þér ómetanleg ferð. Ég
hefði óskað að ferðirnar hefðu
verið fleiri, en þú vildir frekar
sleppa því að koma með en að
skilja mömmu eftir.
Þegar við Harpa fórum að
vera saman og Óliver kom inn í
líf okkar allra er mér minn-
isstætt hversu vel þið mamma
tókuð honum og hafið gert alla
tíð. Slíkt segir mikið um ykkur
bæði. Alexander, Kristófer og
Hendrikka sakna afa síns mikið
og kvíða aðeins fyrir jarðarför-
inni.
Jólin sem voru heilagur tími
hjá okkur verða erfið. Við mun-
um hins vegar halda í heiðri all-
ar þínar hefðir og halda minn-
ingu þinni á lofti ásamt því að
við verðum dugleg að segja
krökkunum sögur af afa, afan-
um sem vildi allt fyrir alla gera
og aldrei þiggja neitt á móti.
Við munum passa vel upp á
mömmu sem hefur ekki oft ver-
ið án þín þessi rúmlega 50 ár
sem þið hafið verið saman. Ég
fékk ekki að hafa veitingarnar í
þínum anda í erfidrykkjunni af
því að mömmu fannst þær ekki
nóg smart, en þær verða á boð-
stólum þegar við höldum upp á
70 ára afmælið þitt í febrúar.
Elsku pabbi, mikið ofboðs-
lega þótti mér vænt um þig og
mikið mun ég sakna þín. Ég sé
óstjórnlega eftir öllum tímanum
sem við hefðum átt að eiga sam-
an en fáum aldrei. Ef einhver
átti skilið gott ævikvöld þá
varst það þú. Ég veit að þú
munt taka á móti mér síðar
meir með opinn faðminn. Fram
að þeim tíma veit ég að þú vakir
yfir okkur öllum og þá sérstak-
lega mömmu.
Meira: mbl.is/andlat
Helgi Hrannarr Jónsson.
Elsku pabbi, síðustu dagar
hafa verið tómlegir án þín og
það er svo augljóst hversu stórt
og mikilvægt þitt hlutverk var.
Tómið sem þú skildir eftir þig
er vandfyllt.
Vinátta okkar var ómetanleg.
Raunveruleikinn sem blasir við
er kaldur en á sama tíma hefur
hann orðið til þess að við þétt-
um raðir. Samhugurinn sem við
höfum fundið fyrir sl. daga hef-
ur sýnt hversu einstakur þú
varst. Samtöl okkar um veður
og verð á kjöti eru allt í einu
orðin dýrmæt. Öll augnablikin
með þér eru orðin minning, sem
ég mun alla tíð varðveita. Við
vorum svo oft á sömu blaðsíðu,
það er það sem gerði okkar
vinasamband sérstakt. Þú varst
alltaf í mínu liði. Þú varst besti
liðsfélagi sem ég hef átt. Það
vissir þú.
Ég mun reyna að tileinka
mér ítrekanir þínar. „Dagur
minn, ekki láta hlutina bíða til
morguns ef þú getur klárað þá í
dag.“
Ég á svo margar minningar
sem ég gæti rifjað upp. Banda-
ríkin 2014. Þessi ferð, sem var
þín síðasta þrátt fyrir að
dreyma um sól og einn kaldan í
framandi landi, verður aldrei
endurtekin.
Þessi ferð verður lengi í
minnum höfð þar sem við náð-
um að gera svo margt. Að þið
mamma voruð viðstödd var mér
mikils virði og í dag ómetanlegt.
Það koma augnablik í lífinu þar
sem þú hefðir þurft að vera til
staðar. Það verður tómlegt að
sitja ekki í bílnum með þér á
aðfangadag, hafa þig ekki í þrí-
tugsafmælinu mínu né við hlið-
ina á mér þegar ég gifti mig.
Við áttum svo margt ógert.
Þetta verður aldrei eins án þín.
Þú fórst allt of snöggt, alltof
ungur án tækifæris til að
kveðja.
Ég hugsa til samtals okkar
kvöldið áður en þú kvaddir.
Mamma sagði að þú hefðir
bannað henni að ganga frá bíl-
unum hans Rúriks þar sem það
gæti verið að hann kæmi inn
áður en þú skutlaðir okkur út á
flugvöll.
Að fylgjast með þér í afahlut-
verkinu var fallegt. Þú vildir
allt fyrir Rúrik gera. Það var
dýrkun á báða bóga. Ég hafði
gaman af því að gamli orðaforð-
inn þinn, sem þú notaðir á mig
þegar ég var barn, kom aftur.
Orð eins og „hukkali“, „pjassl“
og „gústalavass“ voru mikið
notuð.
Rúrik talar mikið við mynd-
ina af þér, það er stundum eins
og þú svarir honum því hann
heldur ótrauður áfram að tala.
Myndin af þér fær óspart boð
um mat og hann hefur gaman af
því að keyra bíla kringum
myndina. Daginn sem þú
kvaddir kom hann inn heima
hjá ykkur mömmu og kallaði á
þig: „Amma Nonna.“ Rúrik sá
mömmu og spurði: „Hvar afi?“
Svörin sem við gátum gefið
voru í formi tára.
Augnablikið 12. ágúst 2017.
Þú hafðir eignast nýjan vin deg-
inum áður. Vin sem átti eftir að
ylja og gleðja þig næstu árin,
en í alltof skamma stund. Ham-
ingjan leyndi sér ekki í aug-
unum þínum og átti hún ein-
göngu eftir að aukast með
árunum.
Þið voruð búnir að mynda
svo fallegt samband og það er
sárast að hugsa til þess að Rú-
rik muni ekki ná að halda minn-
ingunni gangandi. Ég mun gera
allt til þess að þessi minning
muni lifa.
Pabbi, afi og tengdapabbi.
Þungu sporin okkar koma dag-
lega, spölur okkar er langur og
erfiður. Þú ert kominn á fal-
legan stað, með góðu fólki sem
þykir vænt um þig. Á sama
tíma er söknuðurinn og nýi
raunveruleikinn nokkuð sem við
hin þurfum að læra að lifa við,
og er það kannski stærsta
áskorunin.
Elsku pabbi, takk fyrir allt
sem þú hefur veitt mér og mín-
um. Takk fyrir samfylgdina og
stuðninginn í gegnum árin.
Pabbi, þetta er kveðjan mín,
ég elska þig. Góða nótt.
Þinn
Dagur.
Meira: mbl.is/andlat
Sumir hverfa fljótt úr heimi hér.
Skrítið stundum hvernig lífið er.
Eftir sitja margar minningar,
þakklæti og trú.
(Ingibjörg Gunnardóttir)
Þegar ég var unglingur og
við Helgi farin að skjóta örvum
okkar í milli hitti ég Nonna ekki
mikið. Samskiptin voru aðallega
á milli mín og Dagnýjar. Það
rann fljótt upp fyrir mér að þau
voru ekki eins og flestir aðrir
foreldrar sem ég þekkti, þau
voru öðruvísi, frjálslegri og
mjög töff í mínum huga. Það
var ekki feimninni fyrir að fara
í Hraunhólunum og er mér það
mjög minnisstætt þegar ég kom
þangað eitt sinn og átti nokkurn
veginn fyrsta samtal mitt við
Nonna. Ég var þá að bíða eftir
Helga og ég sat í stofunni með
Nonna, frekar óstyrk. Þá
smellti hann þessari setningu
sem hefur yljað mér um hjarta-
rætur og ég hef getað í gríni
notað mér í hag: „Harpa mín,
ég skil bara ekkert í syni mín-
um hvað hann ætlar að hugsa
það lengi hvort hann ætli að
vera kærastinn þinn eða ekki,
hann hlýtur að vera hálfviti að
geta ekki ákveðið sig!“ Þarna
roðnaði ég algjörlega upp fyrir
haus, langaði að hverfa ofan í
jörðina en vonaði að hann væri
búinn að fara yfir þessi mál
með syninum, sem kom svo á
daginn einhverju seinna. Ég hef
alltaf fundið að Nonna þótti
ósköp vænt um mig og þótti
enn vænna um hversu mikil
fjölskyldumanneskja ég er. Það
var kostur að hans skapi enda
var hann mjög náinn systrum
sínum og ræktaði samband við
þær aðdáunarlega.
Eftir að ég kom í fjölskyld-
una var ég nokkuð viss um að
Nonni hefði eins konar mat-
arást á mér. Allt sem ég bjó til
þótti honum gott og hrósaði
hann mér í hástert, nema þegar
ég bauð honum upp á pasta.
Það var með engu móti matur í
hans huga. Þegar sá matur var
borinn á borð kom einlægni og
hreinskilni Nonna vel í ljós og
ég fékk að heyra það hversu
mikil sóun á hæfileikum mínum
í eldhúsinu það væri að bjóða
upp á þennan mat. Þegar stað-
reyndin er sú að ég muni ekki
fá Nonna aftur í mat er mikil
eftirsjá að hafa ekki verið dug-
legri að bjóða þeim í mat. Það
verður ótrúlega skrítið að eiga
ekki samtölin um rjúpurnar fyr-
ir jólin og finna traustið frá
honum til mín að elda uppá-
haldsmatinn hans án vand-
kvæða. Setningar eins og:
„Harpa mín, hvernig líst þér á
rjúpurnar? Eru þær ekki bara
flottar?“ Mikið á ég eftir að
sakna þessa. Að kveðja er svo
afstætt á þessum tímapunkti,
elsku Nonni. Skyndilegt fráfall
þitt liggur þungt á okkur öllum
og söknuðurinn er mikill. Síð-
ustu stundir sem við áttum
saman segja svo margt um það
hversu vænt þér þótti um okkur
öll og hversu mikilvægt það var
þér að hefðirnar sem þið Dagný
bjugguð til yrðu við lýði. Ég
lofa þér því að ég mun gera allt
sem í mínu valdi stendur að
standa mína plikt í þeim efnum.
Ég lofa því einnig að halda vel
utan um stóru ástina í lífi þínu
sem þú hugsaðir svo ótrúlega
vel og fallega um. Eins mun ég
halda þétt utan um Helga og
börnin og munum við í samein-
ingu halda minningu þinni á
lofti. Ég bið þig til baka og
treysti því að þú vakir yfir okk-
ur öllum. Elsku Nonni – ekki
hafa áhyggjur af jólunum, þau
verða ávallt eins og þau eiga að
vera, í þínum anda.
Þín tengdadóttir,
Harpa.
Meira: mbl.is/andlat
Elsku afi Nonni. Það er ótrú-
lega skrítið að koma til ömmu í
Hraunhólana og það er enginn
afi að taka á móti okkur. Eng-
inn afi til að bjóða upp á súkku-
laðikex og djús, enginn afi til að
lauma kexpakka jafnvel með
heim í nesti. Það verður skrítið
að afi komi ekki við fyrir
páskana með gjafir til okkar
systkinanna sem hann og amma
voru búin að útpæla og virða
reglur mömmu og pabba hvort
ætti að vera súkkulaði í boði
eða ekki. En alltaf kom afi með
páskaglaðninginn tímanlega.
Við munum passa upp á ömmu
eins vel og við getum þó svo að
við komum aldrei til með að
gera það eins vel og þú!
Mikið söknum við þín og vild-
um óska að við hefðum átt
miklu meiri tíma með þér. Við
kveðjum þig elsku afi með bæn-
inni sem þér þótti svo vænt um
og við lærðum snemma, alveg
eins og þér fannst að það ætti
að vera.
Faðir vor, þú, sem ert á himnum.
Helgist þitt nafn, til komi þitt ríki,
verði þinn vilji svo á jörðu sem á
himni.
Gef oss í dag vort daglegt brauð.
Og fyrirgef oss vorar skuldir
svo sem vér og fyrirgefum
vorum skuldunautum.
Eigi leið þú oss í freistni,
heldur frelsa oss frá illu.
Því að þitt er ríkið,
mátturinn og dýrðin
að eilífu. Amen.
Elskum þig!
Þín afabörn,
Óliver Andri, Alexander
Kiljan, Kristófer Kjarval
og Hendrikka Rut.
Mágur minn, Jón Ernst Ing-
ólfsson, lést óvænt föstudaginn
25. október sl. Það var alls ekki
kominn tími á hann og aldrei
hafði ég hugsað til þess að hann
kynni að deyja fljótlega. Það er
þó eitt það fáa örugga í heim-
inum að víst munum við öll
deyja en það er alltaf jafnt sárt
þegar það gerist upp úr þurru
án nokkurs aðdraganda. Jón
var ekki tilbúinn til þess, hlakk-
aði til slátursins hjá systur sinni
Rósu eftir rúma viku og var að
ráðgera ferð til Berlínar, sem
hann átti eftir að sjá, og svo
langaði hann til sólarlanda yfir
vetrarmánuðina. Nú verður
ekki af þessu en hann er þó
þegar kominn til sólarlandsins.
Ég er búinn að þekkja Jón í
hálfa öld, allt frá því að ég og
Kolbrún systir hans kynntumst
og gengum í hjónaband fyrir
margt löngu síðan. Jón var góð-
ur maður og heilsteyptur. Hann
starfaði lengst sem sölumaður
og var góður í því. Hann vann
lengi í Plastos hjá Oddi Sig-
urssyni, en þeir bræður Jón
„milljón“ framkvæmdastjóri og
Sveinbjörn byggingaverktaki
Sigurðssynir voru þekktir menn
á sinni tíð, sem ég kannaðist vel
við. Jón Ernst starfaði síðar í
Plastprenti og eftir að hann
settist í helgan stein hélt hann
áfram að sinna nokkrum við-
skiptavinum áfram og það lýsir
trúmennsku hans og færni.
Kona Jóns, Dagný Guð-
mundsdóttir, var stoð hans og
stytta í áratugi. Þau bjuggu á
fallegu heimili í hrauninu í
Garðabæ þar sem fjölskylda
Dagnýjar hafði búið í margar
kynslóðir. Þau bjuggu við
barnalán og börn þeirra eru
einstaklega duglegir og hæfir
einstaklingar. Barnabörnin eru
mörg og þau sakna afa síns sár-
lega. Jón hafði mikið álit á Bítl-
unum og hélt upp á tónlist
þeirra. Hann safnaði hári á
þeim tíma eins og margir ung-
lingar gerðu þá en hann hélt
hárlokkunum alla tíð og síða
hárið var einkenni hans. Það
sýndi að hann var ekki mikið
fyrir að breyta út af því sem vel
gafst og átti það líka við skoð-
anir hans. Hann var ákveðinn í
viðhorfum sínum og breytti
þeim ekki mikið í tímans rás.
Jón fór um allt land í sölu-
ferðir og þekkti hvern krók og
kima á vegum landsins. Þegar
við vorum á ferð um landið
sagði hann stundum frá því að
bak við næstu beygju mætti bú-
ast til hraðaeftirliti lögreglu og
passaði þetta alltaf. Fjölskyldur
okkur fórum oft í veiði og var
Jón góður veiðifélagi; þótt
áhuginn væri ekki alltaf mikill
bætti hann það upp með því að
vera mjög fiskinn, eiginleiki
sem er ekki allra.
Hann var alltaf ljúfur, var
ráðagóður og hugsaði vel um
fjölskylduna. Jón og systur
hans, en hann átti fjórar systur,
héldu vel hópinn og aldrei var
haldið svo fjölskylduboð að Jón
væri þar ekki fremstur í flokki.
Það er mikið skarð fyrir skildi
við fráfall Jóns Ernst. Megi al-
góður Guð halda verndarhendi
yfir Dagnýju, börnum og barna-
börnum. Hans verður sárt
saknað.
Ágúst Einarsson.
Elsku Nonni frændi.
Enginn veit hvað átt hefur
fyrr en misst hefur. Mér líður
þannig núna.
Ég hugsa til mars þegar við
hittumst fjölskyldan hjá
mömmu og síðustu myndarinn-
ar sem ég á af þér.
Ég hugsa til júní, þegar við
fjölskyldan vorum á leið í sum-
arfrí og ætluðum m.a. að heim-
sækja Hornafjörð, þú sendir
mér tölvupóst og spurðir hvort
ég gæti reddað þér humri. Af
rælni svaraði ég því til að ég
skyldi kanna málið. Í kjölfarið
bárust mér nánast daglega
tölvupóstar, jafnvel fleiri en
einn á dag, þar sem þú spurðir
frétta af stóra humarmálinu. Og
humarinn fékkstu.
Ég hugsa til júlí og dval-
arinnar í bústaðnum í Hvammi
og hvað það hefði verið gaman
ef þú og Dagný hefðuð getað
verið með okkur eins og sumrin
2014, 2009 og 1998.
Ég hugsa til ágúst og sept-
ember þegar þú sendir mér
nokkra tölvupóstana og óskaðir
mér til hamingju með Íslands-
meistaratitil KR.
Ég hugsa til október þegar
þú hringdir til mín eins og þú
yfirleitt gerðir á afmælisdaginn
minn og við áttum stutt en gott
spjall, þegar ég hitti þig í síð-
asta sinn í fiskibollum hjá
mömmu og þegar mamma
hringdi að morgni afmælisdags
síns og sagði að þú værir látinn.
Ég er ennþá að átta mig á
því að þú sért horfinn á braut.
Litli, og eini, bróðir mömmu
sem alltaf hefur verið hluti af
lífi mínu alveg frá því ég fyrst
man eftir mér. Heimsóknir til
ykkar Dagnýjar og Rósu Dagg-
ar í Æsufellið og síðar þegar
Helgi Hrannarr hafði bæst við
fjölskylduna heimsóknir og gist-
ingar til ykkar í Hraunhólana.
Það var ævintýri fyrir ungan
mann, búsettan í kjallaraíbúð í
Vesturbænum, að koma til ykk-
ar í risastóra húsið sem stóð út
af fyrir sig í hraunjaðrinum í
Garðabæ. Minningar um nagla-
spýtur, hurðarlaus dyraop,
stóra stigann úr stofunni upp á
loftið og hálfklárað loftið. Plötu-
Jón Ernst
Ingólfsson