Morgunblaðið - 08.11.2019, Side 30
30 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2019
50 ára Pálmi fæddist á
Akureyri en flutti til
Reykjavíkur tveggja ára
og býr þar. Hann er raf-
magnsverkfræðingur
frá HÍ og er sérfræð-
ingur í viðskiptagreind
hjá Orkuveitu Reykja-
víkur. Hann stýrði í 20 ár bardaga-
listafélaginu Aikikai Reykjavík.
Maki: Sólbjört Guðmundsdóttir, f. 1969,
jógakennari og forstöðukona Ljósheima.
Foreldrar: Símon Steingrímsson, f.
1949, verkfræðingur og vann á Ríkis-
spítölunum, og Sigrún Höskuldsdóttir, f.
1950, landfræðingur og vann m.a. hjá
Handprjónasambandi Íslands og Skóg-
rækt ríkisins. Þau eru bús. í Reykjavík.
Pálmi
Símonarson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það skiptir öllu máli að hafa
þannig áhrif á fólk að það taki þig trúan-
lega/n og fáist til þess að fela þér ábyrgð.
Stígðu fyrsta skrefið í átt að frelsi þínu.
20. apríl - 20. maí
Naut Ekki falla í þá freistni að kaupa hluti
bara af því að. Líttu á það sem tækifæri
til að læra ef þú ert beðin/n að stjórna
verki.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú munt eyða tíma á erlendri
grundu sem reynist þér síður en svo auð-
velt. Ekki láta gylliboð rugla þig í ríminu.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Vegna vaxandi vinsælda þinna
þarftu að eyða meiri peningum á næst-
unni. Taktu hrifningu einhvers með fyr-
irvara.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er allt í lagi að baða sig í vel-
gengninni, en gleymdu því ekki að þú
varst ekki ein/n að verki. Ekki eyða orku í
að reyna að sannfæra einhvern sem ekki
er þér sammála.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú munt eiga ánægjuleg samskipti
við hitt kynið í dag. Láttu það ekki trufla
þig þótt möguleikarnir séu margir.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ert aufúsugestur en þarft þó að
gæta þess að misbjóða ekki gestrisni
fólks. Ekkert jafnast á við vellíðanina sem
fylgir því að trúa á sjálfa/n sig.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Vendu þig á að segja færra
og gera meira. Einhver vill gera vel við þig
en veit ekki hvernig. Það er í lagi að segja
hvers maður óskar.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Samtal við einhvern þér
ókunnugan fær þig til að sjá eitt og annað
í öðru ljósi. Allt tal um skuldbindingar fer
inn um annað eyrað og út um hitt.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú stendur á tímamótum og
þarft að gera upp hug þinn. Einhver skýt-
ur þig með ástarörvum í hjartað.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það eru þessir mörgu smáu
hlutir sem á endanum skapa frið og ró.
Mundu líka að hver er sinnar gæfu smið-
ur.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Margt er þess eðlis að það væri
gaman að upplifa það að minnsta kosti
einu sinni. Þér gengur vel að dreifa
ábyrgð á fleiri.
Alvar Aalto-safnið, nútíma-
listasafnið í Helsinki og National-
museet í Stokkhólmi.
Jóhanna hefur unnið að ýmsum
samvinnuverkefnum, t.d. í fram-
kvæmdastjórn Umverfis 8́0 sem
haldið var í Breiðfirðingabúð í sam-
vinnu við Listahátíð 1980 þar sem
ur einnig haldið sýningar í Banda-
ríkjunum, t.a.m. í San Francisco og
New York.
Verk eftir Jóhönnu er að finna á
mörgum opinberum stöðum og
stofnunum, bæði á Íslandi og erlend-
is. Þar má nefna listasöfn, t.d.
Museum of Modern Art í New York,
J
óhanna Sigríður Bogadóttir
er fædd 8. nóvember 1944
í Hlíðarhúsi í Vest-
mannaeyjum og ólst þar
upp. Hlíðarhús var eitt af
elstu húsum bæjarins, inni í miðjum
miðbæjarrúntinum með kart-
öflugarða og hús ættingja allt um
kring.
„Njólabreiður voru frumskóg-
arnir og litlir afgirtir blómagarðar
lífguðu upp á tilveruna, með bryggj-
ur rétt hjá og Heimaklettur og
Helgafell trónandi yfir öllu. Fugla-
lífið hafði einnig sín áhrif og hafið,
oft tryllt og ógnandi. Á sumrin á
æskuárum dvaldi ég hjá móðurfor-
eldrum mínum á Siglufirði, sem
hafði einnig mikil mótunaráhrif, með
nálægð við fjöll og dali ásamt hafi og
sjómennsku.“
Að loknu stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akureyri stund-
aði Jóhanna fyrst myndlistarnám í
Frakklandi en síðar í Stokkhólmi við
listaháskólann þar.
Í verkum Jóhönnu er myndheim-
urinn með rætur í náttúru og menn-
ingarheimi uppvaxtaráranna þar
sem undur, sköpunarverkin og átök-
in í samspili manns og náttúru verða
sem myndlíking um heiminn og til-
veru jarðarbúa núna. Fljótlega þró-
uðust hjá henni ýmis tákn og form
sem minntu á ógn firringar og
neyslusamfélags; maðurinn á ystu
nöf í brothættri veröld, fuglar í gler-
garði. Einnig koma friðarbarátta og
jafnréttisbarátta kvenna við sögu í
verkum hennar og nú á síðustu árum
ógn loftslagsbreytinga. Fuglarnir
sjást einnig oft í verkum hennar og
hafið með sína fegurð og ógnir.
Jóhanna á að baki um 100 einka-
sýningar, þar af um 30 erlendis, og
hefur hún sýnt mikið í Finnlandi og
á fleiri Norðurlöndum. M.a. var hún
með einkasýningu 1978 á listahátíð í
Helsinki og síðar í listasafninu í
Tampere og aðra í Helsinki og í Sví-
þjóð í Sveagalleriet í Stokkhólmi, í
Gävle konsthall og í listasafni
Sundsvall. Hún hefur tekið þátt í
fjölmörgum samsýningum, m.a. með
norræna listahópnum Riimfaxe í
Kaupmannahöfn, í sýningu um nor-
rænt málverk á Charlottenborg og í
Luleå Konsthall í Svíþjóð. Hún hef-
markmiðið var að vekja áhuga á um-
hverfismálum. Hún var einnig í
framkvæmdastjórn fyrir Friðarvik-
una sem haldin var í Norræna hús-
inu 1984 þar sem þemað var barátta
gegn kjarnorkuvá og hernaðar-
hyggju með samvinnu um tíu frið-
arhreyfinga. Hún hefur dvalið víða
erlendis við listsköpun. „Það hefur
verið hvatning í voninni um einn
heim okkar allra.“
Fjölskylda
Fyrrverandi eiginmaður Jóhönnu
er Brynjar Viborg, f. 20.3. 1943,
kennari og leiðsögumaður, búsett á
Ísafirði.
Dóttir Jóhönnu og Brynjars er
Eyja Margrét Brynjarsdóttir, f.
5.12. 1969, prófessor í heimspeki við
Háskóla Íslands, búsett í Reykjavík.
Eiginmaður hennar er Arngrímur
Vídalín, aðjunkt í íslenskum bók-
menntum á menntavísindasviði Há-
skóla Íslands.
Barnabörn Jóhönnu eru Sólrún
Jóhanna Bogadóttir myndlistarmaður – 75 ára
Myndlistarmaðurinn Verkið til vinstri er hluti af verkinu Á strönd tímans og til hægri er Saga frá Vonarhafi.
Hin brothætta veröld okkar allra
Á vinnustofunni Ný verk Jóhönnu, til vinstri er Spurning bláfuglanna –
hvert skal halda? og til hægri Fuglar á mosató.
40 ára Íris er Reyk-
víkingur, hún er með
BA-gráðu í sálfræði og
viðskiptafræði frá HÍ
og meistaragráðu í
markaðsfræði frá Há-
skólanum í Árósum.
Hún er kynningar- og
markaðsstjóri menningarmála í Kópa-
vogi. Íris starfaði í mörg ár sem dansari.
Maki: Hrafnkell Markússon, f. 1977, dúk-
ari með eigið fyrirtæki, Öll gólf ehf.
Börn: Katla Kristín, f. 2009, Ari, f. 2013,
og Eva Rún, f. 2016.
Foreldrar: Guðmundur Stefán Marías-
son, f. 1954, deildarstjóri véladeildar hjá
Samhentum, og Kristín Jónsdóttir, f.
1955, vinnur hjá Ási styrktarfélagi.
Íris María
Stefánsdóttir
Til hamingju með daginn
Akranes Marín Lea
Alexandersdóttir fæddist
31. mars 2019. Hún var 53
cm að lengd og 4.134 g að
þyngd. Foreldrar hennar eru
Alexander Maron Þorleifs-
son og Rut Hallgrímsdóttir.
Nýr borgari
skoðið úrvalið á facebook
Þú getur pantað í gegnum Facebook síðu
okkar og fengið sent hvert á land sem er.
Opið: laugardag frá 10-18 – sunnudag frá 11-17
Vetrarfatnaður á a
lla fjölskylduna
Breytt og
bætt búð
Allir velkomnir
SKÓR, FATNAÐUR, ,LEIKFÖNG, HANDKLÆÐI, YOGA DÝNUR, BAKPOKAR, GÖNGUSTAFIR, ÍSBRODDAR, GLERAUGU, LOPI,
PRJÓNAR, NÁLAR, NEON VETTLNINGAR, GUMMITÚTTUR, SUNDGLERAUGU, SPIL, HÁRBURSTI, BENDLABÖND, VETTLINGAR,
HÚFUR, GJAFAPOKAR, KORT, NAGLAKLIPPUR, DÚKKUR, TÖSKUR, TÓBAKSKLÚTAR, NÆLONSOKKAR, SKÓHORN, INNLEGG,
BOLTAR, SÁPUKÚLUR, HLAUPASOKKAR, GJAFAVARA O.M.FL.
á frábæru verði