Morgunblaðið - 15.11.2019, Page 2

Morgunblaðið - 15.11.2019, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2019 Anna Sigríður Einarsdóttir Þórunn Kristjánsdóttir Þór Steinarsson Samningafundi Blaðamannafélags Íslands (BÍ) og Samtaka atvinnulífs- ins (SA) var slitið á áttunda tímanum í gærkvöldi eftir árangurslausar við- ræður sem hófust um hálftvöleytið í gær. Fundurinn var sá lengsti sem hef- ur verið haldinn í kjaraviðræðum BÍ og SA til þessa. Ríkissáttasemjari hefur boðað nýjan fund í kjaradeil- unni í upphafi næstu viku. Óskiljanlegt áhugaleysi SA „Þetta var því miður árangurslaus fundur. Við vildum setjast yfir þetta áfram í kvöld og í nótt og reyna til þrautar ef á þyrfti að halda, en það var ekki áhugi á því hjá okkar við- semjendum okkar sem er óskiljan- legt í ljósi þeirrar alvarlegu stöðu sem er uppi og verkfallsaðgerðanna á morgun,“ sagði Hjálmar Jónsson, formaður BÍ, í samtali við mbl.is í gærkvöldi. „Þeir lögðu fram tilboð og við lögðum fram gagntilboð, en þeir höfðu ekki áhuga á að ræða það,“ bætti hann við og tók fram að deilu- aðilar hefðu ekki færst nær samn- ingi. Gagntilboð BÍ óaðgengilegt Önnur lota vinnustöðvunar BÍ fer því fram í dag samkvæmt áætlun og mun hún standa yfir í átta klukku- stundur, frá klukkan 10 til 18. „Við náðum ekki saman í kvöld því miður. Það ber of mikið í milli,“ sagði Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, í samtali við mbl.is eftir að fundinum lauk í gær- kvöldi. Hann sagði að samtökin hefðu lagt fram tilboð sem hann sagði að hefði samrýmst lífskjarasamningnum líkt og önnur tilboð sem hafa verið lögð fram gagnvart öðrum viðsemjendum SA. „Það barst gagntilboð frá Blaða- mannafélaginu, en það var óaðgengi- legt og getur ekki orðið grundvöllur kjarasamnings við Samtök atvinnu- lífsins,“ sagði Halldór. Engin lausn í kjaradeilu  Hluti blaðamanna leggur niður störf frá kl. 10-18 í dag  Ríkissáttasemjari boðar til fundar í byrjun næstu viku Alls var þinglýst 988 kaupsamn- ingum um fasteignir við sýslu- mannsembættin á höfuðborg- arsvæðinu í seinasta mánuði. Heildarvelta nam 50,8 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 51,4 milljónir króna að því er fram kemur á vef Þjóðskrár. Þegar október síðastlið- inn er borinn saman við mánuðinn á undan má sjá að kaupsamningum fjölgaði um 39,5% og velta jókst um 34,5% milli mánaða. Kaupsamningum fjölgaði um 56,1% frá sama mánuði 2018 Í september sl. var 708 kaup- samningum þinglýst, velta nam 37,7 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 53,3 millj- ónir króna. „Þegar október 2019 er borinn saman við október 2018 fjölg- ar kaupsamningum um 56,1% og velta eykst um 48,5%. Í október 2018 var 633 kaupsamningum þinglýst, velta nam 34,2 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 54 milljónir króna,“ segir í frétt Þjóðskrár. omfr@mbl.is Fasteigna- viðskipti jukust mikið  Veltan í okt. 48,5% meiri en fyrir ári Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Greint var frá því í Morgunblaðinu í gær að vagnstjórar Strætó gætu átt von á sekt frá lögreglu stöðvi þeir vagna sína á stoppistöðvum sem staðsettar eru við hringtorg, en til að hleypa farþegum inn og út þarf að stoppa á akstursbraut torganna. Ástæðan er sú að óheimilt er, sam- kvæmt umferðarlögum, að stöðva ökutæki á hringtorgi. Vegna þessa tók Strætó ákvörðun um að loka þremur stöðvum, við Hagatorg og Hádegismóa í Reykjavík og Vörðu- torg í Hafnarfirði. Jóhannes Svavar Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó, segir Strætó nú bíða eftir því að Reykja- víkurborg bregðist við stöðunni. Í Hafnarfirði hafa menn þegar leyst málið með því að flytja stoppistöðina við Vörðutorg í Áslandi niður í brekkuna við Ásabraut. Spurður hvort Strætó hafi borist einhverjar kvartanir vegna lokunar stoppistöðvanna svarar Jóhannes Svavar: „Við fengum nokkrar hring- ingar út af Hafnarfirði, en þær hættu eftir að biðstöðin var flutt. Ég hef ekki heyrt af öðrum kvörtunum.“ Sigurður Haraldsson, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagsþjónustu í Hafnarfirði, segir sína menn hafa brugðist skjótt við stöðunni. „Strætó var bent á að þeir yrðu sektaðir og við brugðumst við þessari stöðu og leystum verkefnið hratt og vel. Enda viljum við vera þekktir fyrir að veita góða þjónustu hér,“ segir hann. Biðstöðin verður ekki færð Fram hefur komið að Reykjavík- urborg segir Hagatorg ekki vera „hefðbundið“ hringtorg. Þrátt fyrir þá afstöðu borgarinnar má víða finna umferðarmerkingar við torgið sem sýna að um sé að ræða hringtorg. Sömu merkingar er að finna við hringtorg víða um land, þ. á m. hringtorgið við Hádegismóa. Bjarni Brynjólfsson, upplýsinga- stjóri Reykjavíkurborgar, segist ekki eiga von á því að stoppistöðin við Hagatorg verði færð. Unnið sé að því að finna hvaða breytingar þarf að gera á merkingum á svæðinu. „Þetta er ekki hringtorg, heldur akbraut. Þetta er vissulega torg, en ekki endilega hringtorg þó að það liggi í hring,“ sagði Bjarni í samtali við Morgunblaðið í gær. Spurður hvort Reykjavíkurborg líti á hringtorgið við Hádegismóa sem hringtorg eða eitthvað annað svarar hann: „Væntanlega er það nú hringtorg, en ég hef ekki séð það með berum augum.“ Ekki hringtorg þó að ekið sé í hring  Strætó lokaði þremur biðstöðvum sínum á höfuðborgarsvæðinu í gær  Hafnarfjörður brást skjótt við og flutti strætóstöðina annað  Reykjavíkurborg vinnur að því að breyta merkingum við hringtorg Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Málið leyst Í Hafnarfirði færðu menn biðstöðina eftir að ljóst var að strætó má ekki stöðva á hringtorgum. Ekki má búast við sömu lausn í Reykjavík. Brak úr rifnum húsum við gamla Héðinsreitinn svokallaða var fjarlægt af kranabíl í gær. Til stendur að reisa allt að 330 íbúðir og 230 hótel- íbúðir á reitnum sem er kenndur við Héðinshús á Seljavegi 2. Húsið var byggt á árunum 1941 til 1943 undir Vélsmiðjuna Héðin. Samkvæmt deili- skipulagstillögu verður þétt randbyggð byggð á reitnum með þremur innigörðum sem verða öll- um opnir. Héðinsreitur rýmdur fyrir uppbyggingu hótels Morgunblaðið/Hari ÁMANNM.V. 2 FULLORÐNA VERÐ FRÁ 159.900 KR. MARS - MAÍ | VOR 2020 NÁNAR Í SÍMA 585 4000 EÐA Á UU.IS/GOLF ALICANTE Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.