Morgunblaðið - 15.11.2019, Page 8

Morgunblaðið - 15.11.2019, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2019 Andrés Magnússon blaðamaðurvíkur að barnafréttum Ríkis- útvarpsins í fjölmiðlapistli sínum í Viðskiptablaðinu í gær. Þar bendir hann á að vandi sé að segja börn- um fréttir því að hjá þeim megi síður gera ráð fyrir bak- grunnsþekkingu en hjá hinum eldri og „þar er ekki unnt að treysta jafn vel á ályktunarhæfni hlustendanna og svo eru börn auð- vitað næmari fyrir innrætingu, sem kallar á að stíga þarf sérlega varlega til jarðar,“ skrifar hann.    Andrés tekur dæmi af umfjöllunbarnafrétta Ríkisútvarpsins af Berlínarmúrnum, þar sem sagt hafi verið: „… árið 1961 var reist- ur múr til að aðgreina borgarhlut- ana. Það var líka gert til að koma í veg fyrir að fólk flyttist á milli, að- allega frá austri til vesturs.“    Þetta er auðvitað fráleit lýsing ámúrnum og ástæðum þess að hann var reistur og um þetta segir Andrés: „Það er einmitt það. Það var bara reistur múr, svona til að- greiningar, án þess að fram komi hver reisti hann. Og svo hafði hann þessa frábæru aukagetu að koma í veg fyrir óhóflega húsflutn- inga! – Þetta er í besta falli óboð- legt bull. Mögulega eitthvað verra.“    Já, þetta er verra en bull og erf-itt að sjá að eitthvað annað en óhófleg samúð með sósíalismanum sem kvaldi almenning í Austur- Þýskalandi áratugum saman hafi ráðið þessari framsetningu.    Ef ekki þá er um skelfilega van-þekkingu að ræða, sem ekki er boðleg hjá Ríkisútvarpinu, hvort sem er í fréttum fyrir börn eða fullorðna. Vanþekking eða vísvitandi fölsun? STAKSTEINAR Deila Félags sjúkraþjálfara og Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) fer fyrir gerðardóm sem mun úr- skurða um lagalega óvissu um gildistíma ramma- samnings þeirra á milli. Kemur þetta fram í sam- komulagi sem gert var seint í fyrrakvöld. Sjúkratryggingar hafa verið að undirbúa útboð á þjónustu sjúkraþjálfara á höfuðborgarsvæðinu. Sjúkraþjálfarar hafa séð ýmsa meinbugi á því. Rammasamningur við sjúkraþjálfara rann út 31. janúar sl. en Sjúkratryggingar framlengdu hann einhliða, án verðlagsleiðréttinga. Á félagsfundi sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara í byrjun mán- aðarins var ákveðið að sjúkraþjálfarar störfuðu ekki eftir útrunna samningnum frá og með þriðju- deginum í þessari viku. Urðu skjólstæðingar þeirra fyrir vandræðum vegna þess, þurftu að greiða allan kostnaðinn og reyna að fá endur- greiðslu á hlut ríkisins á skrifstofu SÍ. Samkomulagið felur það í sér að sjúkraþjálfarar fallast á að starfa eftir samningnum þar til gerð- ardómurinn skilar niðurstöðu. Samskipti sjúkra- þjálfara og SÍ um endurgreiðslur verða rafræn á meðan. helgi@mbl.is Gerðardómur um gildi samnings  Endurgreiðsla á kostn- aði sjúkraþjálfara í lag Morgunblaðið/Ófeigur Nudd Stór hluti landsmanna nýtur þjónustu sjúkraþjálfara um allt land. Hrókurinn og Kalak, með góðum stuðningi Air Iceland Connect, standa þessa dagana fyrir vetrar- hátíð í Tasiilaq og Kulusuk á Græn- landi. Hátíðin stendur yfir til 20. nóvember nk. Markmiðið með vetrarhátíðinni er að skapa gleðistundir á Austur- Grænlandi en jafnframt munu leið- angursmenn hitta bæjarbúa og ræða leiðir til að auðga mannlífið hjá þessum næstu nágrönnum Ís- lendinga, segir í fréttatilkynningu. Leiðangursmenn eru Hrafn Jökuls- son og Stefán Herbertsson. Hrafn hefur leitt skáklandnám Hróksins á Grænlandi frá upphafi árið 2003 auk þess að vera virkur í starfi Ka- laks, vinafélags Íslands og Græn- lands. Stefán er fv. formaður Ka- laks og upphafsmaður hins árlega sundkrakkaverkefnis en þá er 11 ára börnum frá austurströndinni boðið til Íslands til að læra sund. Vetrarhátíð Hróksins og Kalaks á Grænlandi Ljósmynd/Hrókurinn Grænland Krakkar á Grænlandi glöð í bragði á skákmóti í sumar. Smiðshöfða 9, 110 Rvk. logoflex@logoflex.is 577 7701 www.logoflex.is Fallegir ljósakrossar • Ljósakrossar á leiði og duftreiti • Stór glær akrýlkross með glóandi köntum fyrir leiði • Minni krossar fyrir duftreiti • Engin þörf á innstungu • Íslensk hönnun og framleiðsla • Rafhlöður lifa yfir jólin (seldar sér) • Möguleiki á mynd og texta Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.