Morgunblaðið - 15.11.2019, Qupperneq 33
ÍÞRÓTTIR 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2019
Guðjón Valur Sigurðsson átti frá-
bæran leik fyrir franska stórliðið Paris
SG er liðið vann fimm marka heima-
sigur á Montpellier í frönsku 1. deild-
inni í handbolta í gærkvöld, 35:30.
Guðjón var markahæstur allra með sjö
mörk og þau gerði hann úr tíu skotum.
Luka Karabatic skoraði fimm mörk og
þeir Sander Sagosen og Syprzak Ka-
mil fjögur. PSG er á toppi deildarinnar
með fullt hús stiga eftir fimm leiki.
Montpellier er eitt fimm liða sem koma
næst með tólf stig.
Rhein-Neckar
Löwen vann
dramatískan
29:28-útisigur á
Leipzig í þýsku 1.
deildinni í hand-
bolta í gær. Alex-
ander Petersson
skoraði sigur-
markið í blálokin,
en Kristján Andrésson er þjálfari Lö-
wen. Alexander skoraði fimm mörk í
leiknum en Viggó Kristjánsson komst
ekki á blað hjá Leipzig. Löwen er í
fjórða sæti deildarinnar með 18 stig og
Leipzig í áttunda sæti með 16 stig.
Andri Þór Björnsson, GR, Bjarki
Pétursson, GKB, og Guðmundur
Ágúst Kristjánsson, GR, eru á meðal
156 kylfinga sem keppa um 25 sæti í
sterkustu atvinnumótaröð Evrópu
næstu daga. Lokaúrtökumót Evrópu-
mótaraðarinnar fer fram á Lumine-
golfsvæðinu við Tarragona á Spáni og
hefst í dag. Þar verða leiknir sex
keppnishringir en keppnisvellirnir eru
tveir, Lakes og Hill. Andri Þór, Bjarki og
Guðmundur Ágúst skrifa nýjan kafla í
golfsögu Íslands. Aldrei áður hefur Ís-
land átt þrjá kylfinga á lokaúrtöku-
mótinu.
Óvíst er hvenær egypski knatt-
spyrnumaðurinn Mo Salah snýr aftur á
völlinn. Salah verður ekki með landsliði
Egyptalands sem mætir Keníu og
Kómoreyjum í undankeppni Afríku-
keppninnar í vikunni. Hann fór meidd-
ur af velli er Liverpool vann 3:1-sigur á
Manchester City síðasta sunnudag og
hefur hann verið að glíma við ökkla-
meiðsli í vetur.
Sænska fótboltastjarnan, Zlatan
Ibrahimovic, hefur staðfest brottför
sína frá bandaríska liðinu Los Angeles
Galaxy en hefur ekki gefið það út hvað
tekur við hjá honum. Zlatan, sem hefur
spilað með LA Galaxy undanfarin tvö
ár, greindi frá þessu í Twitter-færslu.
Zlatan, sem er 38 ára gam-
all, skoraði 53 mörk í 56
leikjum með LA Galaxy.
Hann hefur verið sterklega
orðaður við ítalska liðið AC
Milan sem hann lék
með 2010-2012
og skoraði
42
mörk
í 61
deild-
arleik.
Eitt
ogannaðkvölds í Reykjavík
inn þá og í hugsanlegum úrslitaleik 31. mars Vonin veika um að komast beint
Tyrkland og Frakkland fara á EM Hörður nálægt sigurmarki Frumraun Mikaels
AFP
I Gul spjöld:Ozan Tufan 8. (brot), Arnór
Ingvi Traustason 36. (brot), Senol Gü-
nes 56. (fyrir að heimta spjald), Okay
Yokuslu 82. (brot), Kolbeinn Sigþórs-
son 84. (brot), Zeki Celik 90. (of lengi
að fara af velli), Cengiz Ünder 90. (taf-
ir utan vallar).
I Rauð spjöld: Starfsmaður á bekk Tyrkja 90.
(fyrir að trufla innkast).
M
Hannes Þór Halldórsson
Guðlaugur Victor Pálsson
Kári Árnason
Ragnar Sigurðsson
Gylfi Þór Sigurðsson
Birkir Bjarnason
Kolbeinn Sigþórsson
„Þetta er svekkjandi,“ sagði Gylfi
Þór Sigurðsson, landsliðsmaður í
fótbolta, í samtali við RÚV eftir
jafnteflið við Tyrkland í Istanbúl í
undankeppni EM í gær.
„Við vorum ekki mjög langt frá
þessu. Skipulagið gekk nokkuð vel
og við héldum okkur inni í leiknum.
Við biðum kannski aðeins of lengi
en svona er þetta,“ sagði Gylfi, en
íslenska liðið sótti ekki af miklum
krafti fyrr en í lokin.
„Eftir á að hyggja er auðvelt að
segja það, en ef þetta hefði gengið
upp þá hefði þetta verið rétt
ákvörðun en þetta er mjög svekkj-
andi að hafa beðið fram á 80. mín-
útu og reynt að byrja þá að dæla
löngum boltum inn. Þeir voru í basli
með Jón Daða og Kolbein frammi.“
Hörður Björgvin Magnússon
fékk besta færi Íslands í leiknum en
Tyrkir björguðu á línu er hann
skallaði að marki rétt fyrir leikslok.
„Þetta var einmitt það sem við
vorum að bíða eftir. Við vorum að
bíða eftir föstum leikatriðum og að
koma boltanum inn í boxið því við
vissum að við værum með sterka
menn frammi. Því miður gekk þetta
ekki í þetta skiptið.“
„Ég er stoltur af þessari frammi-
stöðu en vonsvikinn með að við unn-
um ekki,“ sagði Erik Hamrén
landsliðsþjálfari í samtali við RÚV.
Mikael Anderson lék sinn fyrsta
mótsleik fyrir Ísland, í látunum í
Istanbúl, og sagði við RÚV:
„Þetta var risastórt. Ég er mjög
stoltur og ánægður með þetta. Ég
er búinn að bíða lengi eftir þessu og
ég er ánægður með að fá leikinn,“
en Mikael, sem er 21 árs, hefur leik-
ið vel með toppliði Midtjylland í
dönsku úrvalsdeildinni í haust.
„Ég er fæddur á Íslandi en ég
flutti til Danmerkur þegar ég var
níu ára og hef verið í Danmörku
síðan. Ég er búinn að eiga gott
tímabil og vonandi vinnum við
deildina í ár,“ sagði Mikael við RÚV
eftir leik.
„Við biðum kannski
aðeins of lengi“
AFP
Vonsvikinn Gylfi Þór Sigurðsson fórnar höndum í Istanbúl í gærkvöld.
Evrópumeisturum Portúgals dugar
að vinna Lúxemborg á sunnudag til
að tryggja sér sæti á EM 2020, eftir
að þeir rúlluðu yfir Litháen 6:0 í
gær. Cristiano Ronaldo skoraði
þrennu og er kominn með 98 mörk
fyrir portúgalska landsliðið. Portú-
gal er stigi fyrir ofan Serbíu sem
fær Úkraínu í heimsókn í loka-
umferðinni, en Úkraínumenn hafa
þegar tryggt sér efsta sæti B-
riðilsins.
England flaug áfram á EM þegar
liðið vann Svartfjallaland 7:0 í gær,
og Tékkar fylgja Englendingum
eftir 2:1-sigur gegn Kósóvó. Kó-
sóvóar voru reyndar yfir fram á 70.
mínútu í Tékklandi en fengu svo á
sig tvö mörk á tíu mínútum. Þeir
eru á leið í umspil í mars.
Englendingar voru komnir í 5:0 í
fyrri hálfleik á Wembley í gær og
skoraði Harry Kane þrennu á tutt-
ugu mínútna kafla. Alex Oxlade-
Chamberlain, Marcus Rashford og
Tammy Abraham skoruðu einnig í
leiknum, en eitt markanna var
sjálfsmark. Englendingar eru nú
þegar öruggir um efsta sæti síns
riðils. sindris@mbl.is
England og Tékkland
tryggðu sér sæti á EM
AFP
Þrenna Cristiano Ronaldo fagnar einu þriggja marka sinna í gær.
Türk Telekom leikvangurinn, Ist-
anbul. Undankeppni EM, fimmtudag
14. nóvember 2019.
Skilyrði: Sautján stiga hiti og skýjað.
Völlurinn góður en gríðarlega mikill
hávaði í áhorfendum.
Skot: Tyrkland 11 (6) – Ísland 6 (2).
Horn: Tyrkland 2 – Ísland 5.
Tyrkland: (4-3-3) Mark: Mert Gü-
nok. Vörn: Zeki Celik (Ömer Bayram
90), Merih Demiral, Caglar Söyüncü,
Cengiz Umut Meras. Miðja: Okay Yo-
kuslu, Mahmut Tekdemir, Ozan Tuf-
an. Sókn: Hakan Calhanoglu (Kaan
TYRKLAND – ÍSLAND 0:0
Ayhan 87), Burak Yilmaz, Cengiz Ün-
der (Yusuf Yazici 81).
Ísland: (4-4-2) Mark: Hannes Þór
Halldórsson. Vörn: Guðlaugur Victor
Pálsson, Kári Árnason, Ragnar Sig-
urðsson, Ari Freyr Skúlason (Mikael
Anderson 85). Miðja: Jón Daði Böðv-
arsson, Gylfi Þór Sigurðsson, Birkir
Bjarnason, Arnór Ingvi Traustason
(Hörður B. Magnússon 63). Sókn:
Kolbeinn Sigþórsson, Alfreð Finn-
bogason (Arnór Sigurðsson 24).
Dómari: Anthony Taylor – Englandi.
Áhorfendur: Um 52.000.