Morgunblaðið - 15.11.2019, Qupperneq 37
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2019
Bragi Ólafsson er meistarihins óræða tvístígandihiks í íslenskum bók-menntum. Persónur hans
rekur oft aðgerðalitlar gegnum líf-
ið, þær axla ógjarnan ábyrgð á því
sem gerist, taka því bara sem
gefnu, og tilviljanir í hversdagslíf-
inu geta skipt sköpum um það
hvernig fer.
Þetta hikandi
fólk getur farið í
taugarnar á sum-
um þeim fram-
takssömu, sem
vilja að persónur
hafi meira um
örlög sín að
segja – en ég hef
lengi verið aðdá-
andi þess margbrotna en þó hvers-
dagslega fólks sem Bragi skapar.
Og mæðginin Madda og Sigurvin,
sem lengst af þessarar sögu eru,
eins og segir á bókarkápu, „hálf-
fertug ekkja og unglingur með ný-
tilkominn tónlistaráhuga“, eru ein-
hverjar skemmtilegustu og um leið
brjóstumkennanlegustu persónur
sem Bragi hefur skrifað. Og eftir
að hafa farið gegnum nokkuð þvæl-
inn inngang, þá bæði rígheldur og
hrífur vel spunnin sagan um þau
mæðgin.
Sagan gerist að mestu upp úr
miðjum áttunda áratug liðinnar
aldar og fyrir miðju eru þau mæðg-
in, í sárum eftir að eiginmaðurinn
og faðirinn sem einnig hét Sigurvin
en var kallaður Eldri fyrirfór séu
ári áður. Sagan hefst er Madda
tekur að halda dagbók, hikandi og
laumulega, og gegnum hana fáum
við innsýn í líf hennar, minningar
og hugmyndir. Sögunni lýkur síðan
er dagbókin er fullskrifuð. Færsl-
urnar í henni birtast í skáletri en á
milli flæðir jafnframt annarskonar
og óhikaðri fyrstu persónu frásögn
konunnar.
Persónugalleríið er skrautlegt og
vel mótað, flestar persónur dregnar
skýrum og athyglisverðum drátt-
um, og velti rýnir fyrir sér hvort
sjá mætti þar aukna reynslu höf-
undarins af því að skapa persónur
fyrir leiksvið. Eldi var ráðríkur
sósíalisti, blaðamaður á Þjóðvilj-
anum sem nöturleg saga tengd
geimfaranum Júrí Gagarín loddi
við. En hann var ekki allur þar
sem hann var séður. Madda kemst
smám saman að ýmsu sem hann
hefur haldið leyndu fyrir henni og
mögulega skýrir hvers vegna hann
tók líf sitt, og hann var ekki sá eini
sem nærri henni hefur staðið sem
það hefur gert. Við sögu koma líka
ólíkir vinir og vinkonur, ástmenn
og nágrannar – eins og morðinginn
sem selur flugelda í bílskúr við
næsta hús, skrautlegir drukknir
listamenn og sérkennlegir ætt-
ingjar Möddu sem búa á eyju fyrir
Vesturlandi. Eldri hafði átt vin á
Bretlandi og Madda á í sam-
skiptum við hann og hvetur sá þau
mæðgin til að koma í heimsókn og
þótt þau hafi ekki mikið handa á
milli þá þykir þeim það óneitanlega
spennandi hugmynd og taka skref
inn í þá óvissu, skref sem eiga eftir
að hafa afleiðingar fyrir líf þeirra.
Kjarninn í frásögninni er síðan
samskipti mæðginanna. Sigurvin
segir ekki margt en sambandið
þróast með markvissum hætti og
kemur þar við sögu einn megindrif-
kraftur frásagnarinnar en hann
byggist á áhuga persónanna á
ólíkri tónlist. Eldri hafði dáð tónlist
hins sólbrúna trompetleikara Herb
Alperts (sem vinur hans segir að sé
einhverskonar „eftirlíking af músík.
Fyrir gamalmenni.“). En við upp-
haf sögu hvetur Madda unglinginn
sinn til að panta sér plötur frá út-
löndum og tekur hann forvitinn að
feta sig inn í heim dægurtónlistar
þess tíma. Leiðarminni í sögunni
tengist einmitt þessum erlendu
pöntunum en það er flöktandi staða
pundsins sem titill bókarinar er
sóttur í. Og hluti af galdri frásagn-
arinnar er einmitt fjölþættar vís-
anir í og umræður um fréttir,
dægurmenningu og listir þessa
tíma, ekki bara allskonar tónlist
heldur líka kvikmyndir og skáld-
skap, þar sem Dagur Sigurðarson
og fleiri koma við sögu.
Seint í sögunni, þegar komið er
nær okkur í tíma, spyr Madda sig
hvort þau mæðginin hafi lifað
spennandi lífi. „Varla í augum
sögumanns sem tæki að sér að
segja frá ævum okkar. Svara ég.
Og þaðan af síður fyrir lesandann
sem legði á sig að lesa þann texta.“
(232) En eins og áður hefur gerst í
sögunni þá skilur Madda ekki endi-
lega hvað aðrir hugsa, hvað þá les-
andi þessara orða. Því Staða
pundsins, frásögnin af lífi þeirra
Sigurvins, sem henni kann að hafa
þótt óspennandi, er ein af bestu
skáldsögum Braga. Hún er vel stíl-
uð, forvitnileg og heldur betur
bráðskemmtileg.
Flöktandi gengi, dægur-
tónlist, líf og dauði
Skáldsaga
Staða pundsins bbbbm
Eftir Braga Ólafsson.
Bjartur, 2019. Innbundin, 272 bls.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
BÆKUR
Morgunblaðið/Eyþór
Höfundurinn Rýnir segir Stöðu pundsins
vera eina af bestu skáldsögum Braga
Ólafssonar. „Hún er vel stíluð, forvitnileg
og heldur betur bráðskemmtileg.“
Metverð var greitt á uppboði í París
í vikunni fyrir málverk eftir ítalska
barokkmálarann Artemisiu Gentil-
eschi (1593-1653), 4,8 milljónir
punda, um 660 milljónir kr.
Málverkið sýnir rómversku hetj-
una Lúkretíu sem framdi sjálfs-
morð eftir að hafa verið nauðgað
og hafði verkið verið í einkaeigu í
Frakklandi áratugum saman án
þess að eigendurnir áttuðu sig á því
hver væri höfundurinn.
Afar fátítt er að verk eftir Gentil-
eschi komi á uppboð en sívaxandi
áhugi hefur verið á verkum hennar
og ferli en hún var ein örfárra
kvenna sem náðu frama sem list-
málarar á barokktímanum en hún
var undir miklum áhrifum af stíl
Caravaggios, sem var vinur föður
hennar. Flest verka hennar eru í
söfnum á Ítalíu.
Gentileschi var sjálfri nauðgað af
listamanni sem faðir hennar hafði
fengið til að segja henni til og fjalla
mörg verka hennar um konur sem
beittar höfðu verið ofbeldi.
The National Gallery í London
mun setja upp sýningu á verkum
listakonunnar í apríl á næsta ári.
Metfé fyrir Lúkretíu Gentileschi
Lúkretía Málverk Artemisiu Gentileschi.
BORGARLEIKHÚSIÐ
Sex í sveit (Stóra sviðið)
Fös 15/11 kl. 20:00 19.sýn Lau 23/11 kl. 20:00 23.sýn Fös 6/12 kl. 20:00 27. s
Lau 16/11 kl. 20:00 20.sýn Fim 28/11 kl. 20:00 24. s Lau 7/12 kl. 20:00 28. s
Sun 17/11 kl. 20:00 21.sýn Fös 29/11 kl. 20:00 25. s Fim 12/12 kl. 20:00 29. s
Fös 22/11 kl. 20:00 22.sýn Lau 30/11 kl. 20:00 26. s Fös 13/12 kl. 20:00 30. s
Sprenghlægilegur gamanleikur!
Matthildur (Stóra sviðið)
Sun 17/11 kl. 13:00 67. s Sun 1/12 kl. 13:00 71. s Sun 15/12 kl. 13:00 75. s
Lau 23/11 kl. 13:00 68. s Lau 7/12 kl. 13:00 72. s Sun 22/12 kl. 13:00 76. s
Sun 24/11 kl. 13:00 69. s Sun 8/12 kl. 13:00 73. s Fim 26/12 kl. 13:00 77. s
Lau 30/11 kl. 13:00 70. s Lau 14/12 kl. 13:00 74. s Sun 29/12 kl. 13:00 79. s
Sýning ársins á Sögum - Verðlaunahátíð barnanna!
Stórskáldið (Nýja sviðið)
Sun 17/11 kl. 20:00 8.sýn Lau 23/11 kl. 20:00 9. s
Síðustu sýningar.
Eitur (Litla sviðið)
Fös 15/11 kl. 20:00 8. s Sun 24/11 kl. 20:00 13. s Fim 5/12 kl. 20:00 18. s
Lau 16/11 kl. 20:00 9. s Fim 28/11 kl. 20:00 14. s Fös 6/12 kl. 20:00 19. s
Sun 17/11 kl. 20:00 10. s Fös 29/11 kl. 20:00 15. s Fim 12/12 kl. 20:00 20. s
Fim 21/11 kl. 20:00 11. s Sun 1/12 kl. 20:00 16. s
Fös 22/11 kl. 20:00 12. s Mið 4/12 kl. 20:00 17. s
Hvað áttu eftir stærsta missi lífs þíns?
Kvenfólk (Nýja sviðið)
Fös 15/11 kl. 20:00 53. s Fös 29/11 kl. 20:00 54. s
Síðustu sýningar.
Ríkharður III (Stóra sviðið)
Mið 20/11 kl. 20:00 23.sýn Fim 21/11 kl. 20:00
lokasýning
Allra síðustu sýningar!
Club Romantica (Nýja sviðið)
Mið 20/11 kl. 20:00 13. s Mið 27/11 kl. 20:00 16. s Lau 28/12 kl. 20:00 19. s
Fim 21/11 kl. 20:00 14. s Fim 28/11 kl. 20:00 17. s
Sun 24/11 kl. 20:00 15. s Fös 27/12 kl. 20:00 18. s
Allra síðustu sýningar.
Um tímann og vatnið (Stóra sviðið)
Þri 26/11 kl. 20:00 4.sýn
Kvöldstund með listamanni.
Kvöldvaka með Jóni Gnarr (Litla sviðið)
Lau 23/11 kl. 20:00 20. s Lau 30/11 kl. 20:00 21. s Lau 7/12 kl. 20:00 22. s
Skjáskot (Nýja sviðið)
Þri 19/11 kl. 20:00 1. s Þri 3/12 kl. 20:00 2. s Þri 21/1 kl. 20:00 3. s
Kvöldstund með listamanni.
Kynntu þér matseðil Leikhúsbarsins á
borgarleikhus.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Shakespeare verður ástfanginn (stóra sviðið)
Fös 15/11 kl. 19:30 auka Lau 23/11 kl. 19:30 10. sýn Lau 7/12 kl. 19:30 12. sýn
Lau 16/11 kl. 19:30 9. sýn Fös 29/11 kl. 19:30 11. sýn
Hrífandi og skemmtileg stórsýning fyrir áhorfendur á öllum aldri
Stormfuglar (Þjóðleikhúskjallarinn)
Sun 17/11 kl. 19:30 5. sýn Fim 21/11 kl. 19:30 6. sýn Fös 22/11 kl. 19:30 7. sýn
Hinn rómaði sögumaður Einar Kárason stígur á svið
Ör (eða Maðurinn er eina dýrið sem grætur) (Kassinn)
Fös 22/11 kl. 19:30 14. sýn Sun 24/11 kl. 19:30 16. sýn Fös 29/11 kl. 19:30 auka
Lau 23/11 kl. 19:30 auka Fim 28/11 kl. 19:30 17. sýn Fös 6/12 kl. 19:30 18. sýn
Ágengt og tragíkómískt nýtt íslenskt verk sem spyr stórra spurninga
Atómstöðin (Stóra Sviðið)
Fim 21/11 kl. 19:30 6. sýn Lau 30/11 kl. 19:30 7. sýn Sun 8/12 kl. 19:30 8. sýn
Nýtt og framsækið leikverk byggt á skáldsögu Nóbelskáldsins Halldórs Laxness
Engillinn (Kassinn)
Lau 21/12 kl. 19:30 Frums Lau 28/12 kl. 19:30 3. sýn
Fös 27/12 kl. 19:30 2. sýn Sun 12/1 kl. 19:30 4. sýn
Leiksýning byggð á textum og myndlist eftir Þorvald Þorsteinsson
Leitin að jólunum (Brúðuloftið)
Lau 16/11 kl. 11:00 343. sýn Sun 24/11 kl. 14:30 352. sýn Lau 7/12 kl. 13:00 360. sýn
Lau 16/11 kl. 13:00 344. sýn Lau 30/11 kl. 11:00 353. sýn Lau 7/12 kl. 14:30 361. sýn
Sun 17/11 kl. 11:00 345. sýn Lau 30/11 kl. 13:00 354.
sýn
Sun 8/12 kl. 11:00 362. sýn
Lau 23/11 kl. 11:00 347. sýn Lau 30/11 kl. 14:30 355. sýn Sun 8/12 kl. 13:00 363. sýn
Lau 23/11 kl. 13:00 348. sýn Sun 1/12 kl. 11:00 356. sýn Lau 14/12 kl. 11:00 365. sýn
Lau 23/11 kl. 14:30 349. sýn Sun 1/12 kl. 13:00 357. sýn Lau 14/12 kl. 13:00 366. sýn
Sun 24/11 kl. 11:00 350. sýn Sun 1/12 kl. 14:30 358. sýn Sun 15/12 kl. 11:00 368. sýn
Sun 24/11 kl. 13:00 351.
sýn
Lau 7/12 kl. 11:00 359. sýn Sun 15/12 kl. 13:00 369. sýn
Tveir skrýtnir og skemmtilegir náungar taka á móti litlum leikhúsgestum í anddyr
Meistarinn og Margarita (Stóra Sviðið)
Fim 26/12 kl. 19:30 Frums Sun 5/1 kl. 19:30 4. sýn Fim 16/1 kl. 19:30 7. sýn
Fös 27/12 kl. 19:30 2. sýn Fös 10/1 kl. 19:30 5. sýn
Lau 4/1 kl. 19:30 3. sýn Lau 11/1 kl. 19:30 6. sýn
Hnyttin háðsádeila, gædd myrkum töfrum
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Atvinna