Morgunblaðið - 15.11.2019, Síða 40
Matthew Broad-
head er með
listamanns-
spjall í dag kl.
12.10 í Skoti
Ljósmynda-
safns Reykja-
víkur vegna
opnunar sýn-
ingar sinnar
Geimhliðs-
stæða: Tunglið á jörðinni. Í verkum
sínum kannar Broadhead tengingar
á milli jarðfræði, mannfræði, sögu
og goðsagna. Sýningin fjallar um
undirbúning fyrir mögulegar lend-
ingar á tunglinu árin 1965 og 1967
þegar tveir vísindaleiðangrar voru
farnir til Íslands á vegum NASA og
Bandarísku jarðvísindastofnunar-
innar.
Listamannsspjall með
Matthew Broadhead
FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 319. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Íslenska kvennalandsliðið í körfu-
knattleik átti erfitt uppdráttar
gegn Búlgaríu í fyrsta leik sínum í
undankeppni EM í Laugardalshöll-
inni í gærkvöldi. Búlgaría vann
sanngjarnan sigur 84:69 og var
með forystuna allan leikinn eftir að
hafa byrjað af krafti og náð tíu
stiga forskoti eftir tæpar fjórar
mínútur. »34
Erfitt hjá Íslandi gegn
Búlgaríu í Höllinni
ÍÞRÓTTIR MENNING
Tónskáldin Bach og Beethoven
verða í aðalhlutverkum á Hádegis-
tónum á Kjarvalsstöðum í dag kl.
12.15. Flytjendur eru Guðný Guð-
mundsdóttir fiðluleikari, sem jafn-
framt er listrænn stjórnandi tón-
leikaraðarinnar, og Richard Simm
píanóleikari. Flytja þau Largo-
þáttinn úr sónötu í c-moll fyrir fiðlu
og hljómborð og Cha-
conne úr partitu í
d-moll fyrir ein-
leiksfiðlu eftir
Bach og sónötu nr.
2 í A-dúr fyrir píanó
og fiðlu eftir
Beethoven. Að-
gangur er
ókeypis.
Bach og Beethoven á
Hádegistónum í dag
var helsta hvatakonan að stofnun
kvenfélagsins Jón Sigurðsson –
kvennadeild IODE (Imperial Order
Daughters of the Empire) 1916 og
formaður fyrstu 17 árin. Jóhanna hef-
ur verið í félaginu í yfir 70 ár og hefur
gegnt formennsku í tvígang auk þess
sem hún hefur lagt sitt af mörkum í
Félagi háskólakvenna í Winnipeg síð-
an 1945, sama ár og hún lauk námi í
heimilisfræði sem hún kenndi síðan
um árabil.
„IODE hélt samkvæmi mér til
heiðurs síðastliðinn laugardag og ný-
lega var ég heiðruð fyrir að vera elsti
félaginn í síðarnefnda félaginu. Þá
hélt ég ræðu og var spurð hvernig ég
færi að því að ná þessum aldri. Ég
sagði það íslenska þorskalýsinu að
þakka.“
Eiginmaður Jóhönnu var Frank
Wilson, sem lést 2001, og eiga þau
þrjú börn. „Við Frank ferðuðumst
mikið, meðal annars til Íslands, Eng-
lands, Kúbu og Hawaii, en lengsta
ferðin var sigling til Nýja-Sjálands og
Ástralíu,“ rifjar hún upp og segir
meðal annars sögu af álaveiðum og
-áti. „Það var óvenjulegt að halda jól-
in með skreyttu jólatré í 30 stiga
hita.“
Hún býr í eigin íbúð og sér um sig
sjálf, spilar reglulega brids og mætir
á samkomur og aðra viðburði. „Allt
hefur gengið mér í hag, ég á ekkert
nema góðar minningar, hef verið um-
vafin góðu fólki, átt gott líf og notið
þess til fulls.“ Hún hefur þegar bakað
þrjár vínartertur og pönnukökur fyr-
ir veisluna á laugardag. „Ekki er ann-
að hægt en að bjóða upp á íslenskt
góðgæti í partíinu,“ segir Jóhanna.
„Þegar íslenskir sjónvarpsmenn
komu til að taka viðtal við mig virtust
þeir einkum hafa áhuga á vínartert-
unum mínum.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Vestur-Íslendingurinn Jóhanna Guð-
rún Skaptason Wilson er 100 ára í dag
og heldur upp á afmælið í samkomu-
sal útfararstofu Neils Bardals í
Winnipeg í Kanada á morgun. „Ég á
von á um 125 gestum víðs vegar að í
Kanada, Bandaríkjunum og á Íslandi
og laugardagur hentar þeim betur en
föstudagur,“ segir hún.
Jóhanna virðist alltaf vera eins,
tekur engin lyf, er hraust og önnum
kafin. Man allt, hefur frá mörgu að
segja, er kát og skemmtileg, og ber
öllu samferðafólki vel söguna. Ekki
síst Íslendingum. „Fólkið er það besta
við Ísland,“ segir hún, en Jóhanna
hefur komið 15 sinnum til landsins
síðan 1964, síðast fyrir fjórum árum,
og auk þess kynnst fjölda Íslendinga
vestra. „Ég elska að tala íslensku, þó
að ég kunni hana ekki eins og þegar
ég var barn, er vonlaus í málfræðinni
og get ekki skrifað málið. Samt hef ég
sent jólakort á íslensku til að láta líta
út fyrir að ég sé tvítyngd en þá hef ég
fengið hjálp við þýðinguna. Ég veit að
fólk fyrirgefur mér það!“
Enginn tími til að skrifa
Foreldrar hennar voru Jóhanna
Guðrún Símonardóttir, fædd á Gimli í
Manitoba 1878, og hálfsystir dr. Val-
týs Guðmundssonar, og Jósef Björn
Skaptason, fæddur í Húnavatnssýslu
1873. Símon Símonarson og Valdís
Guðmundsdóttir, afi og amma hennar
í móðurætt, voru í fyrsta hópnum sem
flutti til Kanada 1874 og Valdís tók á
móti fyrsta íslenska barninu, sem
fæddist á Gimli. Jóhanna Guðrún og
Jósef misstu tvö börn skömmu eftir
að þau gengu í hjónaband. Þau ætt-
leiddu Margréti Hólmfríði Blöndal og
Önnu Guðrúnu Christianson áður en
Jóhanna fæddist. „Mig langar til þess
að skrifa um foreldra mína svo fólk
muni eftir þeim, en ég hef verið svo
upptekin að mér hefur ekki gefist tími
til þess enn,“ segir Jóhanna, sem hef-
ur haldið ýmsu merkilegu til haga.
Mæðgurnar áttu til dæmis stóran
þátt í útgáfu minningarrita íslenskra
hermanna, Jóhanna Guðrún um her-
menn í fyrri heimsstyrjöldinni og Jó-
hanna í þeirri síðari.
Félagsmál hafa verið sem rauður
þráður í lífi Jóhönnu. Móðir hennar
Önnum kafin í ellinni
Vestur-Íslendingurinn Jóhanna Guðrún Skaptason
Wilson þakkar íslenska lýsinu fyrir heilsuna og langlífið
Ljósmynd/Karen Botting
Veisla Jóhanna Wilson setur krem á vínartertu fyrir boðið á morgun.
ReSound LiNX
Quattro
eru framúrskarandi
heyrnartæki
Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur
Sími 534 9600 • heyrn.is
Erum flutt í
Hlíðasmára 19
Fagleg þjónusta hjá
löggiltum heyrnarfræðingi
Með þeim færðu notið minnstu
smáatriða hljóðs sem berst þér til eyrna.
Í þeim er nýr örgjörvi með 100% meiri hraða,
tvöfalt stærra minni og eru sérlega sparneytin.
Tækin eru heyrnartól fyrir þráðlaust streymi úr síma og öðrum
tækjum. Hægt að stjórna allri virkni með appi eða með takka á
tækjum. Eru með rafhlöður, sem hlaðast þráðlaust á einfaldan
hátt, eða með einnota rafhlöður.
Góð heyrn
glæðir samskipti