Morgunblaðið - 29.11.2019, Síða 10

Morgunblaðið - 29.11.2019, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2019 E N N E M M / S ÍA / N M 9 6 1 9 7 VERIÐ VELKOMIN Í REYNSLUAKSTUR Sheer Driving Pleasure BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 /www.bl.is Nýr og sportlegri framendi með áberandi BMW einkennum í ljósum og grilli. Afturendinn hefur einnig fengið ný afturljós sem setja fallegan svip. Sparneytin 2ja lítra dísilvélin með 8 gíra sjálfskiptingu notar einungis 5,8 l á hverja 100 km samkvæmt nýjum WLTP viðmiðunarreglum. Vertu með þeim fyrstu að koma og upplifa alvöru BMW aksturseiginleika og þægindi með því að reynsluaka nýjum fjórhjóladrifnum BMW X1. BMW X1 xDrive 18d. Verð frá: 6.590.000 kr. NÝR BMW X1 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Meirihluti íbúa Hafnar í Hornafirði fær vatn frá nýrri hitaveitu í lok næsta sumars og lokið verður við að tengja nýja notendur við veituna þar og í sveitinni á fyrri hluta árs- ins 2021. „Þetta er afar jákvætt fyr- ir íbúana. Rask fylgir framkvæmd- unum hjá sumum íbúanna, á meðan á þessu stendur, en til lengri tíma mun þetta borga sig,“ segir Matt- hildur Ásmundardóttir, bæjarstjóri Hornafjarðar. Jarðhitasvæðið í Hoffelli í Horna- firði hefur verið rannsakað í mörg ár. Rarik tók við verkefninu og hef- ur látið bora þar rannsóknar- og vinnsluholur. Nú er komið nægj- anlegt vatn fyrir Höfn. Fram- kvæmdir eru hafnar við að grafa fyrir tæplega 20 kílómetra langri stofnæð til Hafnar og leggja leiðslu. Veita í 600-700 hús Tryggvi Ásgrímsson, fram- kvæmdastjóri tæknisviðs Rarik, segir að búið sé að leggja lagnir að væntanlegum miðlunargeymi í Hof- felli og trésmiðir séu að smíða undirstöður undir hann og dæluhús. Annað dæluhús verður á leiðinni. Veturinn verður notaður í byggingu húsanna og lagningu stofnæðar til Hafnar. „Ég vona að við getum hleypt vatni á stofnæðina í ágúst,“ segir Tryggvi. Stefnt er að því að bjóða út framkvæmdir við innan- bæjarkerfið og heimtaugar á sveitabæi í mars og er vonast til að sú vinna fari langt á árinu. Öll hús á höfn munu eiga kost á að tengjast hitaveitu og 50-70 hús í Nesjum, alls um 600-700 hús. Rarik rekur fjarvarmaveitu á Höfn sem um þrír fjórðu íbúanna þar eru tengdir. Gert er ráð fyrir því að þeir tengist í lok ágúst á næsta ári. Tilkoma hitaveitunnar hefur litlar breytingar í för með sér fyrir þá. Meira mál er fyrir þann fjórðung sem ekki er tengdur fjarvarma- veitu. Þeir íbúar eru með raf- magnsþilofna eða rafmagnshita- kúta. Fram kom á íbúafundi sem Rarik og Sveitarfélagið Hornafjörð- ur efndu til á dögunum að kostn- aður við breytingar á ofnum og lögnum þar sem þilofnar eru væri áætlaður milljón til ein og hálf á hús en um hálf milljón þar sem hitakútar eru. Að auki þurfa nýir notendur að greiða 390 þúsund í heimæðargjald. Á móti kemur ein- greiðsla frá Orkustofnun sem er hluti af niðurgreiðslu hitakostnaðar sem sparast næstu tólf árin. Ein- greiðslan er áætluð um 650 til 700 þúsund á meðalhús. Það þýðir að 700 þúsund til 1.200 þúsund króna kostnaður leggist á heimili þar sem rafmagnsþilofnar eru. Niðurgreiðslur falla niður Niðurgreiðslur rafmagns falla niður þegar fólk á kost á hitaveitu nema það geti sýnt fram á að kostn- aðurinn sé svo mikill að það borgi sig ekki að taka inn veituna. Meginhluti rafmagnsniður- greiðslu ríkisins næstu 12 árin fer til að greiða niður stofnkostnað hitaveitunnar, alls um 750 milljónir, eins og venjan er með nýjar hita- veitur. Það er enda forsenda þess að Rarik fór út í þessa framkvæmd. Heildarkostnaður við verkefnið er áætlaður 2,8 milljarðar króna. Sama gjaldskrá fyrstu árin Fram kom hjá fulltrúum Rarik á íbúafundinum að forsendur rekst- urs fjarvarmaveitunnar væru breyttar, meðal annars vegna hækkunar á verði ótryggðar orku. Ef hún hefði verið rekin áfram hefði þurft að hækka gjaldskrá. Rarik lofar ekki lækkun gjald- skrár í upphafi en þegar frá líður er reiknað með að gjaldskráin verði svipuð og hjá öðrum hagkvæmum hitaveitum. Rask fyrir hluta íbúa í upphafi  Framkvæmdir hafnar við lagningu hitaveitu frá Hoffelli til Hafnar í Hornafirði  Meirihluti íbúanna fær vatn á ofnana í ágúst  Breytingar hjá þeim sem eru með rafmagnsofna geta kostað milljón Ljósmynd/Rarik Hornafjörður Stofnæðin frá Hoffelli til Hafnar er voldug og verður lögð í skurð. Framkvæmdir eru hafnar.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.