Morgunblaðið - 29.11.2019, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2019
Hlutfall unga í rjúpnaveiðinni í
haust virðist vera lágt, samkvæmt
aldursgreiningu Ólafs K. Nielsen,
vistfræðings og rjúpnasérfræðings
hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, á
rjúpnavængjum.
Hann er búinn að aldursgreina
816 vængi af veiddum rjúpum og
sýna þeir að hlutfall unga er lágt í
öllum landshlutum en sérstaklega á
Suðurlandi. Ungahlutfallið er hæst
á Austurlandi eða fimm ungar á
kvenfugl en einungis 1,8 ungar á
kvenfugl á Suðurlandi. Ólafur gerir
ráð fyrir að fá 1.500 til 2.000 vængi
til viðbótar til aldursgreiningar.
Rjúpnaskyttur eru hvattar til að
taka annan vænginn af veiddum
rjúpum og senda Ólafi ásamt upp-
lýsingum um veiðistað og nafn og
tengiliðaupplýsingar veiðimannsins.
Holdafar og vetrarafföll
Ólafur hefur einnig mælt holda-
far veiddra rjúpna í haust. Heil-
brigði rjúpna var rannsakað í viða-
mikilli rannsókn á árunum 2006 til
2018. Niðurstöður sýndu m.a. að
mikill munur var á holdafari rjúpna
eftir árum. Ungfuglar voru að jafn-
aði í lakari holdum en fullorðnir
fuglar. Breytingar á milli ára voru
þær sömu hjá báðum aldurshópum.
Þá virðast vera tengsl á milli
vetraraffalla og ásigkomulags
fuglanna í byrjun vetrar.
Ákveðið var að halda áfram að
meta holdafar rjúpna og nota til
þess fugla frá veiðimönnum. Stefnt
er að því að þetta verði hluti af ár-
legri vöktun rjúpnastofnsins og er
tilgangurinn að auka skilning okkar
á stofnbreytingum rjúpunnar, að
því er Ólafur skrifar í minnisblaði
um mælingarnar. Skoðaðir voru 300
fuglar frá 19 veiðimönnum á yfir-
standandi veiðitímabili. Fuglarnir
voru veiddir á Öxnadalsheiði og í
Þingeyjarsýslum. Að fenginni
reynslu sýnist Ólafi raunhæft að
nota lánsfugla frá veiðimönnum í
þetta verkefni og telur hann væn-
legt til lengri tíma að bæta við mæl-
ingum á rjúpum úr öðrum lands-
hlutum til samanburðar.
gudni@mbl.is
Heimild: Náttúrufræðistofnun Íslands
Landshluti Fullorðnir Ungfuglar Samtals
% ung-
fuglar
Ungar á
kvenfugl
Vesturland 22 31 53 58% 2,8
Vestfi rðir 40 96 136 71% 4,8
Norðvesturland 20 33 53 62% 3,3
Norðausturland 102 220 322 68% 4,3
Austurland 34 85 119 71% 5,0
Suðurland 70 63 133 47% 1,8
Samtals 288 528 816 65% 3,7
Aldursgreining veiddra rjúpna í nóv. 2019
Eftir að alls 816
fuglar hafa verið
aldursgreindir
Lágt ungahlut-
fall í veiðinni
Mikill munur á holdafari milli ára
Nú finnur
þú það sem
þú leitar að
á FINNA.is
SÍÐAN 1969
FLOTTUSTU BÚNINGARNIR
ÞÍNAR SÉR ÓSKIR UM FJÖLBREYTTA
FRAMLEIÐSLU EÐAMERKINGAR
846 BLS BÆKLINGUR Á HEIMASÍÐUNNI HENSON.IS
TIL MERKINGA EÐA EKKI
SENNILEGA FJÖLHÆFASTI FATAFRAMLEIÐSLUFYRIRTÆKI
ÍSLANDS ÞÓVÍÐARVÆRI LEITAÐ!
Brautarholti 24 · 105 Reykjavík · S.: 562 6464 · henson@henson.is
Mörkin 6 - 108 Rvk.
s: 781-5100
Opið: Mán-fös: 11-18
lau: 11-15
Peysudagar!
20%
afsláttur af
öllum peysum,
toppum og
peysukjólum!
Gildir út 2.desember.
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
Netverslun á www.belladonna.is
BLACK FRIDAY - CYBER MONDAY
30-50%afsláttur afvöldum vörumBæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
20%
afsláttur
í dag
af öllum
Kjólum
Túnikum
Peysum
Jökkum
Toppum
Bolum
Str. 36-56
Svartur
föstudagur
Svartur
föstudagur
Gildir líka laugardag
DIMMALIMM
Laugavegi 53 | Sími 552 3737 | Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-18
Skoðið úrvalið á facebook
DimmalimmReykjavik
Allar vörur
20%
afsláttur
Valdar vörur
50%
afsláttur
Eldur kviknaði í fólksbíl á akstri á Granda í Reykjavík um þrjú-
leytið í gær. Tveir menn voru í bílnum og voru þeir komnir út
úr honum þegar slökkviliðið kom á vettvang.
Að sögn varðstjóra var slökkviliðsbíll um 150 metra frá
staðnum þegar tilkynningin barst og var hann mættur á stað-
inn um einni mínútu síðar. Engu að síður varð þó nokkuð tjón á
bílnum.Höfðu farþegar bifreiðarinnar reynt að slökkva eldinn
með slökkvitæki sem þeir fengu lánað áður en slökkviliðið kom.
Ekki er vitað um eldsupptök en atvikið varð fyrir utan The
Northern Lights Center á Granda.
Eldur kviknaði í fólksbíl í akstri
Morgunblaðið/Eggert
Slökkvilið Eldur kviknaði í fólksbíl um þrjúleytið í gær.
Matur
SMARTLAND
MÖRTU MARÍU
Matur