Morgunblaðið - 29.11.2019, Side 14

Morgunblaðið - 29.11.2019, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2019 20 ára 20% afsláttur afmæli af öllum vörum 28. nóv.- 1. des. Kringlan, Reykjavík Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Fjöldi gesta fór niður á höfn á Tálknafirði þegar nýjasta skip flot- ans kom til heimahafnar sl. þriðju- dag. Það er raunar ekki alvöru skip heldur fóðurprammi af nýjustu gerð. Sérstaklega styrktur til að geta staðið af sér storma og fóðrað laxinn í kvíum Arctic Fish við Hvannadal í Tálknafirði, nánast fyrir opnu hafi. Pramminn fékk nafnið Stórahorn eftir kennileiti í Hvannadal. Hann ber 600 tonn af fóðri, er jafn stór og stærstu fóðurprammar við laxeldi landsmanna, en með bátslagi og klýfur því ölduna betur en eldri prammar. Sigurður Pétursson, fram- kvæmdastjóri hjá Arctic Fish, segir að þetta lag sé að ryðja sér til rúms við hönnun fóðurpramma sem not- aðir eru við erfiðar aðstæður. Pramminn er með 8 fóðursíló og er því hægt að fóðra lax í 8 kvíum í einu, rúm 5 tonn á klukkustund. Mánuð á leiðinni Pramminn var dreginn frá Eist- landi þar sem hann var smíðaður hjá Akva Group. Ferðin tók mánuð þar sem bíða þurfti í Færeyjum og sæta lagi fyrir lokaáfangann vegna veð- urs. Starfsmenn Arctic Fish settu laxaseiði í sjókvíar við Hvannadal fyrr í haust. Eldið gengur vel, að sögn Sigurðar, þótt betra hefði verið að setja seiðin út fyrr. Það dróst vegna uppákomu í leyfismálum. Stórahorn verður dregið þangað einhvern næstu daga og tekur til starfa. Þá verður Arctic Fish komið með fóðurpramma í öllum þremur fjörðunum sem fyrirtækið starfar í, Dýrafirði, Tálknafirði og Patreks- firði. Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson Stórahorn Fóðurprammi af nýjustu gerð lagstur að bryggju. Hann klýfur ölduna betur en eldri prammar. Sérstaklega styrktur fóður- prammi til Tálknafjarðar  Getur borið 600 tonn og fóðrað í 8 sjókvíar í einu Meðal gesta í vöfflukaffi við komu Stórahorns til Tálknafjarðar voru gamlir fiskeldismenn með blik í auga. Menn sem unnið hafa við fisk- eldi í tugi ára og undrast yfir tæknibylting- unni. Þar voru einnig tveir fimm ára drengir úr fiskeldisfjölskyldu, tvíburarnir Ísak Elís Sæ- mundsson og Michael Thor Sæmundsson, og leist svo vel á að þeir sóttu um starf hjá fyrir- tækinu á staðnum. Þeir yrðu þá þriðja kynslóð fiskeldismanna í sinni fjölskyldu því móðir þeirra, Nancy Rut Helgadóttir, er yfirmaður rannsóknarstofu seiðastöðvar Arctic Fish í Tálknafirði og afi þeirra, Helgi Gíslason, sér um véla- og tækjamál í stöðinni. Þegar drengirnir sáu stjórntæki prammans spurðu þeir með undrun hvort hægt væri að vinna í tölvuleik við fóðrun fiskanna. Við- staddir tóku eftir þessu en fátt varð um svör. FIMM ÁRA GESTIR SÓTTU UM STARF Á FÓÐURPRAMMANUM Er hægt að vinna í tölvuleik við fóðrun fiska? Framtíðin Bræðurnir Ísak Elís og Michael Thor Sæmundsson nutu veitinga og notuðu tækifærið til að sækja um starf. Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) vinna nú að lausn, í samvinnu við sjúkra- þjálfara, til að nálgast rafræn gögn um sjúklinga sem sóttu meðferð sjúkraþjálfara dagana 12. og 13. nóvember sl. og að endurgreiða þeim. Þetta kemur fram í skriflegu svari Ingibjargar Þorsteinsdóttur, sviðsstjóra sjúkratrygginga, við fyr- irspurn Morgunblaðsins um það hvers vegna ekki væri búið að end- urgreiða skjólstæðingum sjúkra- þjálfara sem fengu þjónustu sjúkra- þjálfara þessa daga. Í svarinu kemur fram að gífurlegt magn reikninga hafi borist SÍ vegna sjúkraþjálfunar á fyrrnefndum dög- um og að handvirkur innsláttur reikninga í tölvukerfi SÍ sé afar tímafrekur og auk þess sé ekki tryggt að allir muni skila reikn- ingum til stofnunarinnar. SÍ vilji þó tryggja að allir sem fengu þjónustu sjúkraþjálfara þessa tvo daga fái sinn rétt og binda vonir við að ljúka endurgreiðslunum fyrir jól. Mbl.is hefur áður greint frá því að skjólstæðingar sem hafi átt von á að fá niðurgreidda sjúkraþjálfun hafi fengið misvísandi svör frá SÍ varð- andi endurgreiðslu en samskipti sjúkraþjálfara hafa verið í uppnámi eftir að SÍ tilkynntu að sjúkraþjálf- arar væru bundnir af ákvæðum rammasamnings næstu sex mánuði þrátt fyrir að samningurinn hefði runnið út 31. janúar sl. rosa@mbl.is Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Sjúkraþjálfun SÍ leita nú leiða til að endurgreiða skjólstæðingum. Vilja end- urgreiða fyrir jól  Tímafrekt að skrá reikninga inn handvirkt Ríflega 700 manns mættu í Hámu, veitingastað Félagsstofnunar stúd- enta á Háskólatorgi, í gær þar sem boðið var upp á kalkún með tilheyr- andi meðlæti. Þetta var á hinum am- eríska þakkargjörðardegi, sem smám saman er að festast í sessi á hinu íslenskra dagatali. Matseldin í gær var líka talsvert fyrirtæki, en Þórður Már Gylfason kokkur og hans fólk elduðu úr alls 140 kílóum af hreinu kjöti, útbjuggu 60 lítra af sósu, brokkolísalatið var samtals 70 kíló og fyllingin í kalkúninn vó alls 40 kíló. Meðlætið var svo sæt- kartöflumús og samanlagt var sá dagskammtur 80 kíló. Einnig var boðið upp á veganrétt, sem gestir gerðu góð skil. „Við erum þakklát fyrir að hafa fengið að umgangast alla þessa stúd- enta og starfsfólk í vetur. Nú er prófatíð fram undan og því má líka segja að við séum í leiðinni að óska þeim góðs gengis með góðum mat,“ segir Rebekka Sigurðardóttir, upp- lýsingafulltrúi Félagsstofnunar stúdenta. sbs@mbl.is Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Háskólatorg Þakkargjörðardagurinn er óðum að festast í sessi á Íslandi. Hámuðu í sig kalkún  Hátíð í Hámu  Þakkargjörð í HÍ  140 kíló af kjöti og kartöflumús
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.