Morgunblaðið - 29.11.2019, Page 26
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Rappsenan í Bandaríkjunum er fjöl-
skrúðug. Þar rís einn listamaður
sennilega upp yfir aðra. Jay-Z er tal-
inn í hópi allra áhrifamestu lista-
manna samtímans og áhrif hans ein-
skorðast ekki aðeins við tónlistina.
Mörg fyrirtæki sem hann hefur átt
aðkomu að hafa farið með himin-
skautum og haft hefur verið á orði að
allt verði að gulli sem hann komi ná-
lægt.
Sömuleiðis hefur hann í ríkum
mæli valið sér umgjörð sem vísar til
hins dýra málms. Þar eru drykkjar-
föngin engin undantekning. Í gegn-
um tíðina hefur hann rappað um dá-
læti sitt á kampavíni og hann er
smekkmaður því hann drekkur ekki
hvað sem er í þeim efnum. Um langt
árabil virtist hann aðeins dreypa á
hinu fokdýra Cristal sem kemur úr
smiðju Louis Roederer í Reims.
Það er þó eflaust ekki aðeins hin
silkimjúka áferð og bragð sem ráðið
hefur drykkjarvalinu. Flaskan sem
Roderer selur Cristal í er engu lík.
Hún á sér auk þess sögu sem engin
önnur gæti státað af.
Snögg umskipti
Ekkert benti til annars en að dá-
læti Jay-Z á Cristal myndi halda
áfram að endurspeglast í textum
hans þegar breska blaðið Economist
birti viðtal við Frederic Rouzaud,
forstjóra Louis Roederer, um mitt ár
2006. Þar var hann spurður út í vin-
sældir vínsins meðal rappara. Hann
var skjótur til svars: „Hvað getum
við gert?“ en bætti við: „Við getum
ekki bannað fólki að kaupa það.“
Það var eins og við manninn mælt.
Rouzaud vissi greinilega ekki hvað
hann hafði komið sér út í. En aðdá-
endurnir óvelkomnu gátu ekki skilið
ummælin á annan veg en þann að
fyrirtækinu væri ekkert um athygl-
ina gefið sem rappararnir höfðu af
örlæti veitt vörum þess.
Jay-Z hvatti fólk strax til þess að
sniðganga Cristal og sakaði Louis
Roederer um kynþáttafordóma.
Hann tók vínið einnig úr sölu á sport-
börum sem hann á og nefnast 40/40
Club. Hvatti hann fólk þess í stað til
þess að beina viðskiptum sínum að
framleiðendum Dom Pérignon og
Krug en það eru vín í svipuðum
gæða- og verðflokki og Cristal. Krug
og Moët, sem framleiðir Dom Pér-
ignon, voru þó ekki lengi í paradís.
Spaðaásinn hefur innreið sína
Innan tíðar var Jay-Z farinn að
leggja lag sitt við enn nýja tegund af
kampavíni. Það reyndist vera frá
Armand de Brignac. Flöskurnar fag-
urgylltar og merkið í meira lagi töff.
Spaðaás (e. Ase of Spades). Undir því
nafni gengu þær meðal rappara og
fylgjenda þeirra. Varan var kynnt til
sögunnar sem ný af nálinni og vín-
húsið tilkynnti að það hygði á innreið
á Bandaríkjamarkað eftir að hafa
náð fótfestu sem hágæðavín í Frakk-
landi. Flöskurnar voru þó mjög líkar
fyrri framleiðslu Cattier, framleið-
anda Armand de Brignac, sem fyrir-
tækið hætti að framleiða sama ár.
Þær flöskur höfðu gengið kaupum og
sölum á 60 dollara en hin nýja út-
færsla stóð mun nær Cristal í verði.
Hátt í 300 dollara þarf að reiða af
hendi fyrir þau herlegheit. Síðar hef-
ur komið í ljós að Jay-Z hefur um
árabil verið í eigendahópi Cattier.
Árið 2014 keypti hann fyrirtækið svo
í heild sinni. Allar götur síðan hefur
Spaðaásinn notið mikilla vinsælda
meðal áhangenda Jay-Z en á sama
tíma hefur Louis Roederer ekki
þurft að kvarta undan eftirspurninni
eftir Cristal. Hingað til hefur fyrir-
tækið ekki talið sig eiga flöskur til
sölu á Íslandi sökum lítils framboðs.
Costco hefur bætt úr því og þeir sem
eru með vínveitingaleyfi geta því
nálgast dýrðina hér heima.
Keisarinn, Jay-Z og kampavínið
Lífhræðsla Alexanders II. Rússlandskeisara olli því að sérstæð kampavínsflaska leit dagsins ljós
Rapparinn Jay-Z hafði sama smekk og keisarinn Skipti um skoðun vegna meints rasisma
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2019
3.290,-
140 gramma hreindýrahamborgari
með piparsósu, trönuberja/melónusultu
ruccola, rauðlauk og sætum frönskum kartöflum.
HREINDÝRA
BORGARINN
er kominn!
NÝTT Í DESEMBER
Cristal má nálgast hér á
landi fyrir rúmar 22 þús-
und krónur. Vínið er ár-
gangsvín og aðeins fram-
leitt þegar uppskeran
gefur ríkulegt tilefni til.
Eldri áragangar hafa
margir hverjir orðið
mjög eftirsóttir af söfn-
urum og hafa því
hækkað í verði. Þá
hefur fyrirtækið einn-
ig sent frá sér sér-
útgáfur sem verð-
lagðar eru norðan
megin við milljónina.
Það eru helst ríkir
samlandar Alexand-
ers II. sem geta leyft
sér slíkan munað.
Dýrt og
vandað
HÁGÆÐA ÁRGANGSVÍN
AFP
Áhrifamaður Jay-Z heilsar hér Harry, hertoga af Sussex, yngri syni Karls ríkisarfa í Bretlandi. Eiginkonur
þeirra, Meghan Markle, hertogaynja af Sussex, og Beyoncé Knowles söngkona standa þeim við hlið.
Cristal er eina kampavínsflaskan
sem er úr ljósu gleri og það að-
skilur hana einnig frá öðrum að
botninn er flatur. Það kemur til af
því að Alexander II. Rússlandskeis-
ari krafðist þess af Louis Roederer
að kampavínsflöskurnar sem það-
an komu væru þannig úr garði
gerðar.
Hann vildi hafa flöskurnar gagn-
sæjar og úr kristal svo betur
mætti greina hvort eitri hefði verið
blandað við vínið. Holur botn gæfi
tilræðismönnum færi á að koma
þar fyrir sprengju. Hann ætlaði
ekki að láta óvildarmenn sína
drepa sig með
aðstoð kampa-
vínsins.
Þrátt fyrir það
féll keisarinn fyr-
ir hendi tilræðis-
manna. Það gerð-
ist 13. mars 1881.
Sprengjum var
kastað að honum í St. Pétursborg
en kampavínið var reyndar víðs
fjarri. Síðar ákvað Louis Roederer
að halda í flöskuhefðina og kynnti
Cristal til leiks og flöskurnar með
sama sniði. Þær eru þó ekki úr
kristal en fagrar fyrir því.
Engar sprengjur og eitur
RÚSSAR ELSKUÐU VÍNIÐ FRÁ LOUIS ROEDERER
Alexander II.
Borgarráð hefur samþykkt að aug-
lýsa tillögu að nýju deiliskipulagi
fyrir lóðina númer 1 við Háaleit-
isbraut, þar sem Valhöll, höfuð-
stöðvar Sjálfstæðisflokksins eru til
húsa, auk nokkurra fyrirtækja.
Lóðin er í eigu Sjálfstæðisflokksins.
Tveir nýir byggingarreitir verða
til í kringum Valhöll, nái tillagan
fram að ganga. THG Arkitektar
hafa unnið tillöguna. Auk tveggja
byggingarreita verður heimilt að
stækka hús Veitna sem stendur við
Bolholt 5. Næst Kringlumýrar-
braut verður heimilt að reisa fimm
hæða skrifstofubyggingu með bíla-
kjallara. Á horni Skipholts og Bol-
holts verður heimilt að reisa 4-6
hæða íbúðarhús með bílakjallara og
þjónustu- og verslunarrými á 1.
hæð. Bílastæðum fjölgar á lóðinni
eftir að nýjar byggingar rísa og
verður hluti þeirra í bílakjallara.
Byggingar- og nýtingarhlutfall
hækkar sem þessu nemur, segir í
tilkynningu frá borginni.
Byggingunum á lóðinni er ætlað
að falla að nálægum húsum. Eig-
andi lóðarinnar innir af hendi inn-
viðagreiðslur samkvæmt samningi
vegna aukins byggingarmagns og
breyttrar notkunar á lóðinni.
Tölvuteikning/THG Arkitektar
Valhöll Svona gæti útsýnið orðið að Valhöll frá gatnamótum Kringlumýr-
arbrautar og Háaleitisbrautar. Auk íbúðarhúsa er reiknað með bílakjallara.
Tveir nýir reitir í
kringum Valhöll