Morgunblaðið - 29.11.2019, Qupperneq 34
VIÐTAL
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Útidyrahurðin er vígaleg í meira lagi,
útskorin í dökkan við og ólík flestum
sem prýða einkahíbýli hér á landi.
Helst að hún minni á sjálfa Valþjófs-
staðarhurðina, einn merkasta forn-
grip Íslendinga.
Blaðamaður er kominn að Grund í
Flóahreppi eða Villingaholtshreppi
hinum forna, í fylgd Guðna Ágústs-
sonar, sem sat fyrir hönd Sunnlend-
inga á Alþingi Íslendinga í rúma þrjá
áratugi. Þegar við félagar knýjum
dyra er okkur tekið með hundsgelti
og innan við dyrnar standa stöllur
tvær af labrador- og silkiterríer-kyni.
Áður en langt um líður koma þó hús-
ráðendur í dyragættina. Sigríður
Jóna Kristjánsdóttir og Ómar Breið-
fjörð bjóða aðkomumennina vel-
komna. Þegar inn er komið má sjá að
hurðin fyrrnefnda vitnar um að það
er listamaður sem þarna býr. Út-
skurður á flestum veggjum og af
mörgu tagi. Þar er um höfundarverk
Sigríðar Jónu, eða Siggu á Grund
eins og hún er jafnan kölluð, að ræða.
„Ég hef skorið út í 65 ár. Ég var
byrjuð að fikta við þetta fjögurra eða
fimm ára gömul en ég man að ég var
12 ára þegar ég skar fyrst út eftir
pöntun. Það var hornspænir úr nauts-
horni,“ segir Sigga. Áhugann á út-
skurðinum hefur hún ekki langt að
sækja. Faðir hennar var meira en lið-
tækur á þessu sviði og hið sama átti
við um afa hennar í föðurætt. Þeir
voru báðir þjóðþekktir smiðir um sína
tíð.
Hún segir að allt hafi þetta átt upp-
tök sín í áhuga á teikningu.
„Þriggja ára var ég farin að teikna
upp frostrósirnar í gluggunum. Mér
finnst þær enn í dag alveg undur-
samlega fallegar. Út frá því fór ég svo
að skera út og í allt mögulegt, horn,
bein og við af ýmsu tagi.“ Sigga hefur
komið víða við í útskurðinum á um-
liðnum áratugum og lengi vel stefndi
hún á að efna til sölusýninga á verk-
um sínum en úr því hefur aldrei orðið.
„Ég hef verið svo heppin að verk-
efnin hafa alltaf verið næg og mest-
megnis hef ég verið að sinna pönt-
unum vegna fjölbreyttra verkefna
sem komið hafa inn á borð til mín. Og
af nógu hefur verið að taka og ég hef
getað valið verkefni sem mig langar
til þess að taka að mér,“ segir Sigga.
Hún hefur getað helgað sig listinni og
haft útskurðinn að aðalstarfi allan
sinn starfsferil.
Skákriddarinn
Meðal þeirra verkefna sem hún
hefur getað valið að taka að sér hef-
ur hún nýlega lokið við að móta úr ís-
lensku birki. Það er verðlaunagripur
sem veittur er á móti „heimsmeist-
ara í skák“ sem lýkur á Selfossi í
dag. Mótið er haldið í tilefni þess að
Skákfélag Selfoss og nágrennis er
þrjátíu ára í ár en þar etja m.a. kappi
fjórir Íslendingar sem fagnað hafa
heimsmeistaratitli í skák og í hópi
fjölmenns hóps þátt-
takenda erlendis frá má
finna sjö skákmenn sem hið
sama hafa afrekað. Verðlaunagrip-
urinn, sem er í líki riddara á tafl-
borði, er um 44 sentimetrar á hæð
og renndur úr ævagömlum birki-
klumpi sem Sigga hefur lumað á í
safni sínu í meira en tvo áratugi.
„Hann er mjög sérstakur, nær al-
veg kvistlaus. Ég held að hann komi
úr Hallormsstaðarskógi.“
Viðinn renndi Ólafur Sig-
urjónsson á Forsæti og í kjölfarið
gat Sigga hafist handa við að móta
riddarann. Efst trónir, líkt og nærri
má geta, hrosshaus sem ber aug-
ljósar vísanir til riddara á skákborði,
ekki síst í faxinu. Framan á gripnum
má sjá kóng og drottningu á tafl-
borði og í kring er gripurinn
skreyttur mynstri sem Sigga segir
að telja megi hefðbundið. Ofan við
miðbelginn stendur skrifað „Skák-
riddari Suðurlands“ og fyrir neðan
hann „Skákfélag Selfoss og ná-
grennis“. Verðlaunagripurinn er
gefinn í minningu Hennings Freder-
iksen útgerðarmanns (1939-2007) og
annarra öflugra skákmanna frá
Stokkseyri og eru gefendur eftirlif-
andi eiginkona hans, Ingibjörg
Jónasdóttir, og synir þeirra,
Jónas og Vilhelm.
Mörg handtök að baki
Spurð að því hversu lang-
an tíma það hafi tekið hana
að skera riddarann út, verð-
ur Sigga nokkuð dul á svip.
Í fyrstu er blaðamaður ekki
viss hvort hún gefi leynd-
armálið upp en svo kemur á
daginn að hún er ekki viss.
„Ég get í raun ekki fullyrt
neitt um það en þetta eru vel
yfir 100 tímar.“ Hún hugsar
sig enn frekar um og ljóst
að hún hefur lengi þurft
að liggja yfir verkefninu,
enda smáatriðin mörg og
nákvæmnin mikil.
Á skólabekk á
miðjum aldri
Það er löng útgerð að
skera út í hálfan sjöunda
áratug. Sigga segir að
þegar komið var á fimm-
tugsaldurinn hafi hún fundið
að hún hafi verið farin að
staðna í listsköpun sinni.
Þá brá hún á það ráð að
setjast á skólabekk í
London einn vetur.
Fyrir valinu varð City
& Guilds of London
Art School.
„Þetta var mjög
gott skref og þarna
fékkst ég við ýmis efni,
ekki aðeins útskurðinn
sem slíkan. Þá fékk ég einnig
leiðsögn í módelteikningum og
mörgu öðru sem efldi mig í útskurð-
inum. Ég var langelst í hópnum en
reynslan kom að góðum notum.
Samnemendurnir tóku eftir því að
afköstin voru mikil þegar kom að því
að skera út mynstur af ýmsu tagi.
Þar höfðu þau ekki roð við mér,“
segir Sigga sposk á svipinn. Hún
hefur svo sannarlega ekki lagt verk-
færin á hilluna.
Völundarsmíð Gripurinn skartar m.a. þrívíðri mynd af tafl-
borði, drottningu og kóngi sem standa á svörtum reitum.
Riddarinn úr ævagömlu birki
Heimsmeistari fær gripinn í hendur Hefur skorið út í 65 ár Fór í listnám þegar hún var fimmtug
Morgunblaðið/Stefán E. Stefánsson
Handlagin Sigga mundar vopnin á vinnustofu sinni á Grund og handtökin eru fumlaus með öllu.
34 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2019
Áhuginn á útskurði gengur í bylgjum hér á landi eins
og annað handverk. En tískan lætur ekki að sér
hæða og vegir hennar nokkuð órannsakan-
legir. Því hefur Sigga fengið að kynnast í
tengslum við stóraukna notkun ungs fólks
á munntóbaki.
„Það eru mjög margir ungir menn sem
vilja eignast tóbakshorn. Þá vilja þeir
gjarnan fá nafnið sitt skorið í eða jafnvel
mynd af sér.“
Þeir sem sækjast eftir að eignast grip
af slíku tagi koma ekki að tómum kof-
unum hjá Siggu enda hefur hún í ára-
tugi skorið út horn af þessu tagi.
„Þau eru orðin ótrúlega mörg
hornin sem ég hef skorið. Mér er
t.d. minnisstætt þegar ég gerði
tóbakshorn fyrir Guðna […]og
Össur Skarphéðinsson. Þeir
fengu horn með myndum
af sjálfum sér. Það var
mjög skemmtilegt verk-
efni.“
Tískan og útskurðurinn
TÓBAKSHORN MEÐ NÖFNUM OG ÖÐRUM VÍSUNUM
Handverk Tóbaks-
horn með nafni eig-
andans auk skreytinga.
Ljósmynd/Stefán Einar StefánssonVagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
Ekki bara jeppar
2012
-2017
Kerruöxlar og íhlutir
ALLT TIL
KERRUSMÍÐA