Morgunblaðið - 29.11.2019, Page 42

Morgunblaðið - 29.11.2019, Page 42
42 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2019 Bogi Þór Arason Stefán Gunnar Sveinsson Forystumenn Verkamannaflokksins í Bretlandi ætla að breyta baráttuað- ferðum sínum fyrir þingkosningarn- ar í landinu 12. desember vegna mik- illar forystu Íhaldsflokksins í nýlegum skoðanakönnunum. Frétta- vefur breska ríkisútvarpsins hefur þetta eftir heimildarmönnum í Verkamannaflokknum eftir að viða- mikil könnun YouGov benti til þess að Íhaldsflokkurinn fengi 68 sæta meirihluta. Heimildarmennirnir segja að for- ystumenn Verkamannaflokksins hafi ofmetið hættuna sem honum stafi af Frjálslyndum demókrötum í kosningunum en vanmetið vilja brexit-sinna úr röðum kjósenda til að snúa baki við Verkamannaflokkn- um og kjósa íhaldsmenn. Samkvæmt könnun YouGov, sem birt var í fyrrakvöld, myndi Íhalds- flokkurinn ná 44 sætum af Verka- mannaflokknum og fá 68 sæta meiri- hluta í neðri deild þingsins ef kosið væri núna. Verði þetta niðurstaða kosninganna verður það mesti meiri- hluti Íhaldsflokksins í deildinni frá árinu 1987 þegar hann fékk 102 sæta meirihluta, í síðustu kosningunum í valdatíð Margaret Thatcher. Könnun YouGov bendir til þess að Íhaldsflokkurinn fái um 43% fylgi, álíka mikið og í síðustu kosningum árið 2017 undir forystu Theresu May þegar hann fékk 42,4% atkvæðanna. Ef marka má könnunina fjölgar þó þingsætum íhaldsmanna mikið vegna þess að fylgi Verkamanna- flokksins minnkar úr 40% í 32%. Gangi niðurstöður könnunarinnar eftir fær Íhaldsflokkurinn 359 sæti, 42 fleiri en árið 2017, og Verka- mannaflokkurinn missir 51, fær að- eins 211. Frjálslyndum demókrötum er spáð 13 sætum, einu fleiri en í síð- ustu kosningum og enginn þeirra sjö þingmanna sem gengu til liðs við flokkinn á kjörtímabilinu nær endur- kjöri, ef marka má könnunina. Þjóðarflokkurinn bætir við sig Skoska þjóðarflokknum er spáð 43 sætum, átta fleiri en þeir fengu árið 2017, en flokkurinn hefur sett bar- áttu fyrir annarri þjóðaratkvæða- greiðslu um sjálfstæði Skotlands á oddinn. Þá hefur hann lagst hart gegn brexit-áformum íhaldsmanna, en tveir þriðju Skota studdu áfram- haldandi veru Bretlands innan Evr- ópusambandsins. Gangi könnun YouGov eftir mun fylgisaukning skoskra þjóðernis- sinna þó ekki nægja þeim til þess að jafna þeirra besta árangur, en flokk- urinn fékk 56 þingmenn af þeim 59 sem tilheyra Skotlandi árið 2015. Aðrar kannanir sem gerðar hafa ver- ið innan Skotlands benda til þess að Íhaldsflokkurinn muni halda sínu þar, sem þættu tíðindi þar sem skoskir íhaldsmenn hafa barist í bökkum allt frá tímum Thatcher. Tíðindin eru ekki jafngóð fyrir flokk velskra þjóðernissinna, Plaid Cymru, en skoðanakönnun YouGov bendir til þess að þeir muni einungis halda sínum fjórum þingsætum. Spilar þar eflaust inn í, að ólíkt Skot- um vildi meirihluti Wales-verja yfir- gefa Evrópusambandið, en Adam Price, leiðtogi flokksins, lýsti því yfir í vikunni að sjálfstætt Wales myndi sækja um aðild að sambandinu á ný. Þá dró flokkurinn til baka frambjóð- endur sína í fjórum kjördæmum til að auka líkurnar á að frambjóðendur frjálslyndra demókrata og græn- ingja, sem vilja áfram vera innan sambandsins fái þar þingmenn kjörna. Græningjar hafa nú einn þingmann, Caroline Lucas, sem setið hefur á þingi frá árinu 2010 og varið sæti sitt í tvígang síðan þá. Brexit-flokkurinn utan þings Samkvæmt könnun YouGov mælist Brexit-flokkur Nigels Fa- rage einungis með um 3% atkvæða, sem myndi hvergi duga til þess að ná inn fyrsta þingmanni flokksins. Ákvörðun Farage um að bjóða ekki fram þingmenn í þeim kjördæmum þar sem íhaldsmenn verja sæti sín virðist hafa dregið úr stuðningi við flokkinn á landsvísu, en fram að því ríkti ótti meðal íhaldsmanna og stuðningsmanna útgöngunnar að framboð flokksins gæti orðið til þess að koma í veg fyrir að útgöngusinnar fengu hreinan meirihluta í kosning- unum. Sá ótti er að vísu enn til staðar, en Dominic Cummings, einn helsti ráð- gjafi forsætisráðherrans, varaði við því fyrr í vikunni að lítið mætti út af bregða fyrir íhaldsmenn þó að kann- anir bentu til annars. Breyta um baráttuaðferðir  Könnun YouGov bendir til þess að breski Íhaldsflokkurinn muni vinna sinn stærsta meirihluta í ríf- lega þrjátíu ár  Verkamannaflokkurinn hyggst reyna að höfða meira til stuðningsmanna útgöngunnar AFP Kosningabaráttan Allt stefnir í að Boris Johnson vinni stærsta sigur Íhaldsflokksins frá árinu 1987. AFP Í vanda Jeremy Corbyn, formaður Verkamannaflokks- ins, var upplitsdjarfur við upphaf kosningabaráttunnar. Könnun YouGov » Íhaldsflokkurinn fær 43% fylgi og 359 þingsæti, 42 fleiri en hann hefur nú. » Verkamannaflokkurinn fær 32% fylgi og 211 þingsæti, 51 færri en hann hefur nú. » Skoski þjóðarflokkurinn fær 43 þingsæti gangi könnunin eftir, átta fleiri en árið 2017. » Frjálslyndir demókratar fá 13 þingsæti, fimm fleiri en árið 2017. Fylgi flokksins mælist 14% en hann fékk 7,3% 2017.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.