Morgunblaðið - 29.11.2019, Blaðsíða 66
66
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2019
Marta María
mm@mbl.is
Fyrir nokkrum árum ákváðum við
maðurinn minn að sleppa jólagjöf-
unum til hvort annars og fara
frekar í ferðalag saman. Gefa
hvort öðru samveru í nokkra daga
í stað veraldlegra hluta. Það hafa
öll hjón gott af því að fá nokkra
daga í friði þar sem hægt er að
taka 12 tíma trúnó án þess að
verða fyrir ónæði.
Þegar kom að því að velja
áfangastaðinn vandaðist málið og
því leituðum við til fjármálastjór-
ans sem vinnur með manninum
mínum. Sá ágæti maður er ekki
bara góður í að reka ríkisstofnanir
réttum megin við núllið heldur
hefur hann næmt auga fyrir
áhugaverðum stöðum og upplif-
unum. Hann elskar litlu hlutina í
lífinu sem krydda tilveruna og
sendi okkur beint til Madeira.
Þegar við gúggluðum Madeira
vissum við ekki neitt um þennan
forvitnilega stað og bjuggumst því
ekki við neinu. Gallinn við að fara
til Madeira er að það er vesen að
komast þangað og tekur langan
tíma. Ef fólk ætlar að fara í nokk-
urra daga ferð er glatað að taka
tvo daga af heildartímanum í
ferðalög fram og til baka. Þess
vegna hresstist ég töluvert þegar
ég kom auga á það að Úrval Út-
sýn ætlar að vera með tvær ferðir
til Madeira í maí. Í þessum ferð-
um er flogið beint og gist er á
góðum hótelum. Það er nefnilega
ekki alveg nóg að fara bara einu
sinni til Madeira á lífsleiðinni.
Fólki langar yfirleitt þangað aftur
eftir fyrstu ferð.
Lítil glæpatíðni
Funchal heitir höfuðborg Ma-
deira og er glæpatíðni þar lág og
er heimilisleg stemning í for-
grunni. Í miðbænum er fullt af
veitingastöðum sem bjóða upp á
ekta portúgalskan mat, góð kaffi-
hús og er skemmtilegt að labba
þar um. Í miðbænum er mikið af
handverksverslunum og það er
gaman að labba meðfram strönd-
inni og þurfa ekki að spá í það
hvort maður sé að verða of seinn á
fund. Ef fólk langar hinsvegar að
upplifa meiri ævintýri og finnst
gaman í fjallgöngu þá er Madeira
einstakur staður. Pico Ruivo er til
dæmis mögnuð 10,5 km gönguleið
sem tekur fjóra tíma að ganga. Ég
mæli eindregið með því að fólk
fari með farastjóra og er eitt
fyrirtæki, Walking with Emanuel,
sérlega skemmtilegt. Fyrrnefndur
Emanuel er um 70 ára og gengur
alla daga vikunnar nema sunnu-
daga með ferðamenn og getur
sagt endalausar sögur á leiðinni.
Það er ekki dýrt að ferðast með
honum og það hefur þá kosti að
fólk er sótt upp að dyrum um
morguninn og keyrt aftur heim að
göngu lokinni. Það eina sem fólk
þarf að hafa meðferðis eru hnetur,
súkkulaði og nóg af vatni. Svona
ganga tekur á og þarf fólk á öllum
sínum krafti að halda.
En það er ekki bara gaman að
labba í fjöllunum á Madeira. Það
er algert ævintýri að labba um
höfuðborgina Funchal sem er
byggð í hlíð. Það er því svolítið
eins og að labba nokkrar Esjur á
dag að ganga þar um bæinn. Fyrir
nútímafólk sem er allt of mikið í
símanum og tölvunni og allt of
stressað í ofanálag er himneskt að
koma í rólegheit Madeira. Lands-
menn virðast draga andann hægar
og einhvern veginn sogast fólk inn
í þann takt sem þar ríkir. Svo er
eitthvað svo notalegt að geta bara
sprangað um á strigaskóm, stutt-
buxum og með bakpoka og notið
þess að draga andann rólega.
Þarna gerast
töfrarnir
Ekki óraði mig fyrir því að hægt væri að upplifa ævintýraferð lífsins á eyjunni
Madeira sem tilheyrir Portúgal. Þótt eyjan sé ekki stór þá hefur hún upp á að
bjóða allskonar töfra. Ef þig langar hinsvegar bara á sápukúludiskó, í vatns-
rennibrautagarða eða í verslunarferð þá er þetta ekki fríið sem þú átt að fara í.
Ef rýnt er í myndina má sjá fólk á göngu á toppnum.
Gangan á Pico Ruivo tekur um fjóra tíma og er töluvert krefjandi.
Fegurð Madeira
er engri lík.