Morgunblaðið - 29.11.2019, Blaðsíða 74

Morgunblaðið - 29.11.2019, Blaðsíða 74
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2019 Ferðalög á Hvar á að gista? Allir sem heimsækja Japan ættu að prufa að gista a.m.k. eina nótt á svk. capsule-hóteli. Húsnæði er ekki ódýrt í Tókýó og verðlagið á hótelherbergjum eftir því, en hægt að fá huggulegt fleti og ágætis næði fyrir sanngjarnt verð á kapsúl-hótelunum þar sem gestir hafa sitt litla hólf til að sofa í. First-Cabin (first-cabin.jp) tekur básaupplifunina upp á næsta stig með básum sem eru ögn rúmbetri en hjá öðrum hótelum af sama toga. Minni her- bergin (business class) eru ekkert nema einbreið dýnan en þau stærri (first class) hafa eins og einn fermetra af auka gólfplássi þar sem gestir geta klætt klætt sig úr fötunum og geymt eina litla ferða- tösku. Hjá First-Cabin eru hæðirnar kynjaskiptar og hef- ur hver hæð sín salerni og sturtuherbergi til að fara í almennilegt japanskt bað. Má alla jafna finna huggulegan en lítinn bar við innganginn og matar- sjálfsala ef maginn er tómur. Fylgja þarf nokkrum reglum á First-Cabin, rétt eins og á öðrum básahótelum: hótelið skaffar sand- ala sem gestir verða að klæðast og á svefnsvæðunum má ekki heyrast neitt hljóð – ekki einu sinni lágvært samtal. Ekki er hægt að læsa básunum en í hverjum bás má finna box með lás þar sem geyma má verð- mæti meðan skotist er frá. Börn undir 12 ára eru ekki velkomin, farangur er geymdur í töskuskápum eða farangursgeymslu við innritun, og oft má ekki vera í básunum yfir daginn á meðan þrifið er. Hvernig kemstu til Japans? Helsinki þykir góður tengiflugvöllur milli Kefla- víkur og Tókýó og tekur flugið að meðaltali um 17,5 tíma með einni millilendingu. Algengt verð er um 135.000 kr. fram og til baka. Finna má ódýrara flug, en þá með fleiri millilendingum og mun lengri flug- tíma. Þannig finnur Skyscanner t.d. flug með Finna- ir og Wizzair, með millilendingu í Varsjá og Hels- inki, á tæplega 92.000 kr. og tekur ferðalagið þá nærri sólarhring aðra leið. Íslendingar geta dvalið í Japan í allt að þrjá mán- uði án vegabréfsáritunar. Ljósmynd/First-Cabin Hólf First-Cabin er með útibú viða í Tókýó. Þar er meiri íburður en á flestum öðrum básahótelum. Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Það er synd hve fáir Íslendingar hafa heimsótt Tókýó, en er samt ekki skrít- ið – Japan virðist jú svo óralangt í burtu. Þeir sem kynnst hafa japönsku höfuðborginni vita að þegar kemur að ævintýrum og upplifunum er hún eng- inn eftirbátur stórborga sem svo margir halda upp á, á borð við New York, London, París og Róm. Það er eins og möguleikarnir séu óþrjótandi og að í hverju húsasundi og skúma- skoti leynist mergjuð búð, fram- úrskarandi veitingastaður, eða stór- merkilegt musteri. Á einu sviði kemst þó engin önnur borg kemst með tærnar þar sem Tók- ýó hefur hælana, og það er í leikjasöl- um og skemmtigörðum. Japanar virð- ast vera óforbetranlegir spennufíklar og leggja ómældan metnað í að smíða rússíbana og leiki fyrir sýndarveru- leika, svo að leitun er að öðru eins úr- vali skemmtigarða af öllum mögu- legum gerðum. Fuji-Q Highland Allt áhugafólk um rússíbana ætti að fara, a.m.k. einu sinni á lífsleiðinni, í pílagrímsför til Fuji-Q Highland. Skemmtigarðurinn er við rætur Fuji- fjalls, og tekur um tvo tíma að komast þangað með lest frá Tókýó. Er snið- ugast að ferðast til Fuji daginn áður, gista yfir nótt og halda svo í rússíban- ana strax að morgni dags, því stund- um er Fuji-Q lokað snemma – jafnvel strax kl. 17. Ástæða er til að vara lesendur við að rússíbanar Fuji-Q eru í algjörum sérflokki og ekki ólíklegt að þeir teld- ust ólöglegir í Bandaríkjunum eða Evrópu, því svo mikill er hraðinn, koll- steypurnar og álagið á líkama og sál að fólk sem er veikt fyrir verður að taka fullt mark á viðvörunarskiltum og reglum garðsins. Eins er ástæða til að vara við því að eftir nokkrar salíbunur í Fuji-Q munu aðrir skemmtigarðar virðast eins og róluvöllur í samanburði. Rússíban- arnir þar eru ekki bara kvikindislega hannaðir heldur líka nokkuð langir svo að þegar stigið er upp úr sætunum að ferðinni lokinni er hver fruma í lík- amanum gegnsósa af adrenalíni. Þeir sem vilja reyna að róa taugarnar á leið upp á efsta punkt ógnvekjandi rússíbana geta reynt að dreifa hug- anum með því að njóta einstaklega fagurs útsýnisins yfir Fuji-fjall og ná- grenni. Tókýó Disneyland Ef yngri heimshornaflakkarar eru með í för verður að heimsækja Mikka og Andrés. Garðurinn skiptist í tvo aðskilda en samliggjandi skemmti- garða: Disneyland og DisneySea. Í Disneylandi er bandaríski sjarminn allsráðandi og tækin höfða meira til yngstu gestanna, á meðan DisneySea er ögn fullorðins með draugahúsi og nokkrum drungalegum rússíbönum. Sumum gæti þótt það skrítið að ferðast alla leið til SA-Asíu til að heimsækja bandarískan skemmti- garð en dagpartur í Disney-garði veld- ur aldrei vonbrigðum og gaman að sjá hvernig Japanarnir njóta Disney- heimsins með sínum hætti. Þannig má reikna með að sjá nokkra forfallna aðdáendur sem klæða sig sérstaklega upp fyrir heimsóknina og skreyta sig hátt og lágt með varningi tengdum sinni uppáhalds Disney-sögupersónu. Þeir sem hafa heimsótt bandarísku Disney-garðanna ættu að kannast við mörg skemmtitækin, s.s. Pirates of the Caribbean, Splash Mountain og Space Mountain, en önnur tæki finn- ast hvergi annars staðar. Einn af há- punktum garðsins er í DisneySea, um ævintýri Sinbaðs: um er að ræða ró- lega bátsferð þar sem syngjandi dúkk- ur segja sögu sæfarans frækna og gæti virst frekar lítt spennandi upp- lifun á blaði, en Sinbað býr yfir ein- hverjum töfrum sem margir geta ekki staðist. Ævintýri í sýndarveruleika Sýndarveruleika-skemmtigarðar hafa sprottið upp hér og þar í Tókýó. Þar er erfitt að láta sér leiðast, og hægt að spila jafnt rólega leiki (s.s. fluguveiðihermi) yfir í taugatrekkj- andi hrylling sem framkallar skelfingu lengst niður í dýpstu kima sálarinnar. Sá sem þetta skrifar heimsótti á sín- um tíma VR Zone Shinjuku, sem starfrækt var á vegum leikjaframleið- andans Bandai. Því miður hefur VR Zone Shinjuku núna hætt starfsemi, en er þó enn með útibú í Osaka. Er óhætt að mæla með ferð til Osaka (þar er m.a. Universal Studios skemmti- garður), og þá ómissandi að kíkja á VR Zone, en þeir sem halda sig við Tókýó ættu að skoða VR Park og Joy- polis í Shinjuku-hverfi, og nýopnaða ninja-„skólann“ VR Ninja Dojo í Chiyoda. Leikjaborgin Tókýó AFP Upplifun Ferðamenn skoða Tókýó í go-kart bifreiðum, klæddir í skrautlega búninga. Japanar kunna að gera sér glaðan dag og alltaf hægt að finna eitthvað skemmtilegt að gera í Tókýó. Ljósmynd / Flickr – Othree (CC) Klassík Miki og Andrés valda aldrei vonbrigðum, sama hvar í heiminum maður finnur þá. Skemmtigarðar Disney í Tókýó eru vel þess virði að heimsækja. Walt vakir yfir garðinum. Ljósmynd/Flickr – Nick Turner (CC) Tryllingur Það verður að vara adrenalínfíkla sérstaklega við því að rússí- banarnir í Fuji-Q eru miklu harkalegri en rússíbanar á Vesturlöndum. Ljósmynd/Pixabay – Dongpung (FFCU) Innlifun Sýndarveruleikaskemmtigarðar eins og VR Zone bjóða upp á tölvuleikjaupplifun sem ristir mun dýpra en það sem fólk á að venjast. Rússíbanar, sýndarveru- leikja-salir og alls kyns fjör er á hverju strái í höfuðborg Japans. Nú er tími til að etja mannbrodda á skóna þína Eigum mikið úrval Við erum hér til að aðstoða þig! - Lækjargata 34a / 220 Hafnarfjörður -
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.