Morgunblaðið - 29.11.2019, Qupperneq 79
HÁDEGIS-
TILBOÐ
Mánudaga-föstudaga
kl. 11.00-14.30
Borðapantanir í síma 562 3232
Verð frá 990
til 1.990 kr.
Hvar á að gista?
Fyrir fjölskyldufólk má mæla
með Swissôtel Merchant Court-
hótelinu, sér í lagi ef Singapúr er
einn af mörgum viðkomustöðum í
Asíu eins og oft vill verða. Þannig
er nefnilega með hótelið að á
Swissôtel er hægt að komast í
þvottavélar, og því hægt að þvo
óhrein ferðafötin áður en lagt er af
stað til næsta lands. Þá er þess
gætt á Swissôtel að huga vel að
þörfum gesta með börn, með leik-
svæðum og svefnherbergjum sem
hafa verið sérstaklega innréttuð
með börn í huga.
Ef engin börn eru með í för ætti
hins vegar að taka stefnuna á
Raffles-hótelið. Þetta sögufræga
hótel þykir í algjörum sérflokki og
hefur verið kennileiti í mannlífi
borgarinnar allt frá opnun árið
1887. Þar hafa margar frægustu
stjörnur og valdamenn sögunnar
gist, og á hótelbarnum fæddist
ekki ómerkilegri kokkteill en
Singapore Sling. Raffles-merkið
hefur smám saman breitt úr sér á
undanförnum árum, og má finna
Raffles-hótel hér og þar í heim-
inum, en hið upprunalega
lúxus-nýlenduhótel verður þó allt-
af Raffles í Singapúr. Raffles er
núna nýopnað eftir ítarlegar end-
urbætur, þar sem þess var þó
vandlega gætt að viðhalda sjarm-
anum.
Blaðamaður gisti á Swissôtel í
boði Raffles.
Hvernig kemstu til Singapúr?
Á Dohop má finna flug á rúmar
85.000 kr. með langri millilendingu
í Frankfurt á leiðinni út, en stuttu
stoppi í Kaupmannahöfn á leiðinni
til baka, flogið með Icelandair og
Singapore Airlines. Þá er mjög
ódýrt að skjótast til Singapúr frá
helstu áfangastöðum í SA-Asíu, og
lægstu fargjöldin sem finna má á
Skyscanner tæpar 10.000 kr. til
Bangkok fram og til baka, tæpar
14.000. kr. til Manila, og um 12.000
kr. til Ho Chi Minh-borgar.
Íslendingar þurfa ekki áritun til
Singapúr, og rétt að benda ferða-
löngum á að gefa sér ögn meiri
tíma en venjulega til að skoða sig
um á flugvellinum, sem þykir einn
sá besti í heiminum.
Leikur Barnaherbergi Swissôtel eru lífleg og litrík.
Glamúr Raffles-lúxushótelið var
nýlega tekið rækilega í gegn.
Hvíld Setustofan á Swissôtel er notalegur staður.
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Gaman er að sjá á samfélags-
miðlum hvað íslenskar barna-
fjölskyldur eru orðnar duglegar að
ferðast um Asíu. Þar eru jú æv-
intýrin á hverju strái og kostar
ekki mikið að njóta lífsins á stöðum
eins og Balí, Taílandi og Víetnam.
Börnin hafa síðan gott af því að
kynnast framandi menningar-
heimum, og er það veganesti sem
fylgir þeim alla ævi.
Eins gaman og það er að spana
um á túk-túk, skera öldurnar á
brimbretti og gauka nokkrum ban-
anabitum að apaköttum í löngu yf-
irgefnum musterum, þá er samt
ágætt að geta tekið sér smá frí frá
villtum frumskógunum og fábrotnu
strandlífinu og hafa það huggulegt
í snyrtilegri borg þar sem allt er í
röð og reglu. Liggur því beinast við
að taka gott stopp í Singapúr.
Borgríkið Singapúr er merkilegt
fyrir margra hluta sakir, en það
fysta sem aðkomufólk tekur eftir er
hvað allt gengur áreynslulaust fyrir
sig. Íbúar Singapúr kunna að fylgja
reglunum, og mannlífið er eins og
gangverkið í svissnesku úri. Vest-
urlandabúar sem eru nýkomnir úr
kraðakinu í Bangkok eða Ho Chi
Minh-borg finnst oft eins og að sef-
andi ró og slökun hellist yfir þá við
lendingu, því í Singapúr er allt fyr-
irsjáanlegt og skipulagt, og ekki
arða af rusli á götunum.
Fyrir vikið er Singapúr líka stór-
góður áfangastaður fyrir fjöl-
skyldur með börn enda örugg borg
og með alls kyns afþreyingu í boði
fyrir smáfólkið. Ferðalangar þurfa
þó að muna að reglurnar eru
strangar, og t.d. er tyggjó bannað
nema fólk geti framvísað lyfseðli,
stranglega bannað er að borða eða
drekka í neðanjarðarlestinni, og
þeir sem neyta vímuefna ættu að
gæta sín alveg sérstaklega – ef
ekki sneiða alfarið hjá Singapúr –
því óvíða í heiminum má vænta
þyngri refsingar fyrir minniháttar
vímuefnabrot.
Að því sögðu þá er Singapúr
heillandi borg sem ætti að fara vel
með fjölskyldufólk.
Universal Studios
Börnin og unglingarnir vilja
örugglega fyrst af öllu setja stefn-
una á Universal Studios-skemmti-
garðinn, sem er á manngerðri eyju
rétt suður af miðbæ Singapúr.
Skemmtigarðurinn sjálfur er smár
í samanburði við t.d. Universal
Studios í Orlando, en rúmar samt
ágætis úrval rússíbana og skemmti-
tækja. Flest tækin eru sniðin að
þörfum yngstu gestanna, s.s. með
Shrek og dýrunum frá Madagascar,
en inn á milli má finna ögn meiri
æsing, og fyrir adrenalínfíklana er
það Battlestar Galactica rússíban-
inn sem heillar mest. Þar má velja
á milli tveggja rússíbana með sama
þema, þar sem annar er æsilegri en
hinn.
Blaðamaður Morgunblaðsins
heimsótti Universal Studios í miðri
viku á rigningardegi og var samt
töluverður fjöldi gesta í garðinum.
Ef sýnt þykir að biðin í röðunum
verði of löng þá getur borgað sig að
fjárfesta í hrað-miða, sem nota má
eins oft og þarf til að komast
fremst í rússíbana-röðina.
Buslað á ströndinni
Sunnar á sömu eyju má finna
manngerðar strandir þar sem hægt
er að svamla í tiltölulega hreinum
sjónum og taka smá lit. Má t.d.
mæla með því að taka róðrarbretti
(e. paddleboard) á leigu og njóta
þess í góða veðrinu að vera til.
Leiðist fólki róðurinn, eða ef það
verður lúið í handleggjum og maga-
vöðvum, þá má einfaldlega fylgjast
með mannlífinu og reyna að telja
gámaskipin sem bíða undan strönd-
um borgarinnar eftir því að komast
að í höfninni.
Marina Bay Sands og
Gardens by the Bay
Marina Bay Sands er löngu orðið
þekktasta kennileiti Singapúr.
Þessi risastóra hótelbygging gnæf-
ir yfir landslagið en á efstu hæð má
finna langa sundlaug með bæjarins
besta útsýni. Aðeins hótelgestir fá
að nota sundlaugina en ferðamenn
geta, gegn gjaldi, fengið aðgang að
bar á efstu hæðinni og klárað úr
eins og einu kokkteilglasi áður en
þeir halda ferð sinni áfram. Hótelið
er ekki endilega besti staðurinn til
að gista á, því herbergin eru dýr og
Marina Bay Sands ekki í þægilegu
göngufæri við miðbæinn.
Framan við hótelbygginguna má
finna risastóra verslunarmiðstöð og
spilavíti, en aftan við hótelið er
skrúðgarður borgarinnar, Gardens
by the Bay. Í garðinum er fallegt
um að litast, og heimamenn hafa
gaman af að rölta þar um. Finna
má útileiktæki fyrir börnin og alls
kyns furðuverur sem leynast á milli
plantnanna.
Singapúr fyrir
alla fjölskylduna
Með bættum flutengingum við Asíu opnast nýir og
spennandi ferðamöguleikar fyrir Íslendinga. Singa-
púr hentar vel til að skoða SA-Asíu og ódýrt að
fljúga þaðan til staða eins og Taílands eða Balí.
Útsýni Marina Bay Sands er löngu orðið heimsfrægt kennileiti. Borga þarf fyrir aðgang að þakbarnum.
Upplifun Unga fólkið ætti að njóta sín í Universal Studios, þó að smár sé.