Morgunblaðið - 29.11.2019, Blaðsíða 79

Morgunblaðið - 29.11.2019, Blaðsíða 79
HÁDEGIS- TILBOÐ Mánudaga-föstudaga kl. 11.00-14.30 Borðapantanir í síma 562 3232 Verð frá 990 til 1.990 kr. Hvar á að gista? Fyrir fjölskyldufólk má mæla með Swissôtel Merchant Court- hótelinu, sér í lagi ef Singapúr er einn af mörgum viðkomustöðum í Asíu eins og oft vill verða. Þannig er nefnilega með hótelið að á Swissôtel er hægt að komast í þvottavélar, og því hægt að þvo óhrein ferðafötin áður en lagt er af stað til næsta lands. Þá er þess gætt á Swissôtel að huga vel að þörfum gesta með börn, með leik- svæðum og svefnherbergjum sem hafa verið sérstaklega innréttuð með börn í huga. Ef engin börn eru með í för ætti hins vegar að taka stefnuna á Raffles-hótelið. Þetta sögufræga hótel þykir í algjörum sérflokki og hefur verið kennileiti í mannlífi borgarinnar allt frá opnun árið 1887. Þar hafa margar frægustu stjörnur og valdamenn sögunnar gist, og á hótelbarnum fæddist ekki ómerkilegri kokkteill en Singapore Sling. Raffles-merkið hefur smám saman breitt úr sér á undanförnum árum, og má finna Raffles-hótel hér og þar í heim- inum, en hið upprunalega lúxus-nýlenduhótel verður þó allt- af Raffles í Singapúr. Raffles er núna nýopnað eftir ítarlegar end- urbætur, þar sem þess var þó vandlega gætt að viðhalda sjarm- anum. Blaðamaður gisti á Swissôtel í boði Raffles. Hvernig kemstu til Singapúr? Á Dohop má finna flug á rúmar 85.000 kr. með langri millilendingu í Frankfurt á leiðinni út, en stuttu stoppi í Kaupmannahöfn á leiðinni til baka, flogið með Icelandair og Singapore Airlines. Þá er mjög ódýrt að skjótast til Singapúr frá helstu áfangastöðum í SA-Asíu, og lægstu fargjöldin sem finna má á Skyscanner tæpar 10.000 kr. til Bangkok fram og til baka, tæpar 14.000. kr. til Manila, og um 12.000 kr. til Ho Chi Minh-borgar. Íslendingar þurfa ekki áritun til Singapúr, og rétt að benda ferða- löngum á að gefa sér ögn meiri tíma en venjulega til að skoða sig um á flugvellinum, sem þykir einn sá besti í heiminum. Leikur Barnaherbergi Swissôtel eru lífleg og litrík. Glamúr Raffles-lúxushótelið var nýlega tekið rækilega í gegn. Hvíld Setustofan á Swissôtel er notalegur staður. Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Gaman er að sjá á samfélags- miðlum hvað íslenskar barna- fjölskyldur eru orðnar duglegar að ferðast um Asíu. Þar eru jú æv- intýrin á hverju strái og kostar ekki mikið að njóta lífsins á stöðum eins og Balí, Taílandi og Víetnam. Börnin hafa síðan gott af því að kynnast framandi menningar- heimum, og er það veganesti sem fylgir þeim alla ævi. Eins gaman og það er að spana um á túk-túk, skera öldurnar á brimbretti og gauka nokkrum ban- anabitum að apaköttum í löngu yf- irgefnum musterum, þá er samt ágætt að geta tekið sér smá frí frá villtum frumskógunum og fábrotnu strandlífinu og hafa það huggulegt í snyrtilegri borg þar sem allt er í röð og reglu. Liggur því beinast við að taka gott stopp í Singapúr. Borgríkið Singapúr er merkilegt fyrir margra hluta sakir, en það fysta sem aðkomufólk tekur eftir er hvað allt gengur áreynslulaust fyrir sig. Íbúar Singapúr kunna að fylgja reglunum, og mannlífið er eins og gangverkið í svissnesku úri. Vest- urlandabúar sem eru nýkomnir úr kraðakinu í Bangkok eða Ho Chi Minh-borg finnst oft eins og að sef- andi ró og slökun hellist yfir þá við lendingu, því í Singapúr er allt fyr- irsjáanlegt og skipulagt, og ekki arða af rusli á götunum. Fyrir vikið er Singapúr líka stór- góður áfangastaður fyrir fjöl- skyldur með börn enda örugg borg og með alls kyns afþreyingu í boði fyrir smáfólkið. Ferðalangar þurfa þó að muna að reglurnar eru strangar, og t.d. er tyggjó bannað nema fólk geti framvísað lyfseðli, stranglega bannað er að borða eða drekka í neðanjarðarlestinni, og þeir sem neyta vímuefna ættu að gæta sín alveg sérstaklega – ef ekki sneiða alfarið hjá Singapúr – því óvíða í heiminum má vænta þyngri refsingar fyrir minniháttar vímuefnabrot. Að því sögðu þá er Singapúr heillandi borg sem ætti að fara vel með fjölskyldufólk. Universal Studios Börnin og unglingarnir vilja örugglega fyrst af öllu setja stefn- una á Universal Studios-skemmti- garðinn, sem er á manngerðri eyju rétt suður af miðbæ Singapúr. Skemmtigarðurinn sjálfur er smár í samanburði við t.d. Universal Studios í Orlando, en rúmar samt ágætis úrval rússíbana og skemmti- tækja. Flest tækin eru sniðin að þörfum yngstu gestanna, s.s. með Shrek og dýrunum frá Madagascar, en inn á milli má finna ögn meiri æsing, og fyrir adrenalínfíklana er það Battlestar Galactica rússíban- inn sem heillar mest. Þar má velja á milli tveggja rússíbana með sama þema, þar sem annar er æsilegri en hinn. Blaðamaður Morgunblaðsins heimsótti Universal Studios í miðri viku á rigningardegi og var samt töluverður fjöldi gesta í garðinum. Ef sýnt þykir að biðin í röðunum verði of löng þá getur borgað sig að fjárfesta í hrað-miða, sem nota má eins oft og þarf til að komast fremst í rússíbana-röðina. Buslað á ströndinni Sunnar á sömu eyju má finna manngerðar strandir þar sem hægt er að svamla í tiltölulega hreinum sjónum og taka smá lit. Má t.d. mæla með því að taka róðrarbretti (e. paddleboard) á leigu og njóta þess í góða veðrinu að vera til. Leiðist fólki róðurinn, eða ef það verður lúið í handleggjum og maga- vöðvum, þá má einfaldlega fylgjast með mannlífinu og reyna að telja gámaskipin sem bíða undan strönd- um borgarinnar eftir því að komast að í höfninni. Marina Bay Sands og Gardens by the Bay Marina Bay Sands er löngu orðið þekktasta kennileiti Singapúr. Þessi risastóra hótelbygging gnæf- ir yfir landslagið en á efstu hæð má finna langa sundlaug með bæjarins besta útsýni. Aðeins hótelgestir fá að nota sundlaugina en ferðamenn geta, gegn gjaldi, fengið aðgang að bar á efstu hæðinni og klárað úr eins og einu kokkteilglasi áður en þeir halda ferð sinni áfram. Hótelið er ekki endilega besti staðurinn til að gista á, því herbergin eru dýr og Marina Bay Sands ekki í þægilegu göngufæri við miðbæinn. Framan við hótelbygginguna má finna risastóra verslunarmiðstöð og spilavíti, en aftan við hótelið er skrúðgarður borgarinnar, Gardens by the Bay. Í garðinum er fallegt um að litast, og heimamenn hafa gaman af að rölta þar um. Finna má útileiktæki fyrir börnin og alls kyns furðuverur sem leynast á milli plantnanna. Singapúr fyrir alla fjölskylduna Með bættum flutengingum við Asíu opnast nýir og spennandi ferðamöguleikar fyrir Íslendinga. Singa- púr hentar vel til að skoða SA-Asíu og ódýrt að fljúga þaðan til staða eins og Taílands eða Balí. Útsýni Marina Bay Sands er löngu orðið heimsfrægt kennileiti. Borga þarf fyrir aðgang að þakbarnum. Upplifun Unga fólkið ætti að njóta sín í Universal Studios, þó að smár sé.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.