Morgunblaðið - 29.11.2019, Blaðsíða 84
84
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2019
Við erum að sjálfsögðu að tala um
Berglindi Hreiðarsdóttur á Gotteri-
.is og bókin heitir því viðeigandi
nafni Veislubókin.
Hugmyndin á bak við bókina er
fremur einföld, segir Berglind. „Ég
hef í mörg herrans ár haft mikið
gaman af því að halda veislur, deilt
ýmsum ráðum með fylgjendum
mínum á gotteri.is og aðstoðað vini
og vandamenn við sínar veislur. Ég
veit ekki hversu margar fyrir-
spurnir ég fæ reglulega með hitt og
þetta tengt veislum og greinilegt er
að þessar upplýsingar er erfitt að
finna. Það er hægt að finna ýmsar
upplýsingar hér og þar á veraldar-
vefnum en sumar bara alls ekki.
Hugmyndin var því sú að ná öllu
skipulagi fyrir veislur saman á einn
stað til þess að auðvelda fólki undir-
búning þeirra.“
Hentar öllum
Berglind segir að bókin ætti að
henta öllum þeim sem halda veislur
og vilja auðvelda sér lífið. „Svo er
alltaf gaman að fá skemmtilegar
hugmyndir þegar kemur að skipu-
lagi,“ segir hún en í bókinni er að
finna ítarlega gátlista fyrir veislur
og viðburði enda í mörg horn að
líta, þá ekki síst þegar halda á stóra
veislu eins og brúðkaup. Reynt var
að hafa uppskriftirnar við allra hæfi
og með góðum leiðbeiningum þann-
ig að allir ættu að ráða við hana,
segir Berglind spurð hvort bókin sé
á allra færi.
Sex ólíkir kaflar
Bókin er jafnframt sett upp á af-
ar snjallan hátt. „Ég skipti henni
niður í sex mismunandi veislukafla
með ólíku þema og uppskriftum
sem þó er hægt að nota allt í kross
að sjálfsögðu. Veislukaflarnir
skiptast niður í brúðkaup, útskrift,
fermingu, skírn/nafngjafarathöfn,
barnaafmæli og fullorðinsafmæli. Í
hverjum kafla er svo gátlisti, ýmis
hollráð sem tengjast undirbún-
ingnum og ráðleggingar um magn
af mat og drykk þegar kemur að
veisluhöldum,“ segir Berglind, en
það getur einmitt verið þrautin
þyngri að áætla það magn sem þarf
fyrir stóra veislu.
Ljóst er að bókin er mikill hval-
reki fyrir þá sem hyggja á veislu-
höld á næstunni enda getur það vaf-
ist fyrir fólki sem stendur ekki í
slíkum stórræðum reglulega. Berg-
lind segir að lykill sé fólginn í góðu
skipulagi og þar komi gátlistarnir
og hollráðin að góðum notum. „Ég
tók í raun saman allt það sem ég
hef lært og setti í bókina til að auð-
velda fólki lífið. Þarna eru hug-
myndir að alls konar veislum og
veitingum og svo er hægt að blanda
öllu saman að vild.“
Hægt að spara stórfé
Það segir sig sjálft að það getur
verið gríðarlega kostnaðarsamt að
halda veislu. Oft heldur fólk veisl-
urnar í heimahúsi eða leigir sal.
Sumir fara auðvitað þá leið að
kaupa allar veitingar en það er
samt sem áður í mörg horn að líta,
sérstaklega þegar um stærri veislur
á borð við brúðkaup og fermingu er
að ræða. Ef fólk vill útbúa veiting-
arnar sjálft þarf að ákveða hvers
kyns veitingar skuli vera á boð-
stólum, hvort blanda eigi saman
keyptum og heimalöguðum veit-
ingum, hvaða drykki eigi að bjóða
upp á og þar fram eftir götunum. Í
þessu er Berglind flinkari en flestir
og hafa veislur sem hún hefur birt
myndir af á bloggsíðunni sinni vak-
ið mikla athygli.
Ekkert mál að halda veislu
Aðspurð segir Berglind hlæjandi
að það sé ekkert mál að halda
veislu. „Veisla er bara verkefni eins
og hvað annað í lífinu sem þarf að
skipuleggja og undirbúa í tíma,
ákveða fyrirkomulag, átta sig á
hver kostnaður má vera, skipta nið-
ur í smærri verkefni, fá með sér
liðsmenn til aðstoðar þegar þarf og
þá verður framkvæmdin og útkom-
an dásamleg hvort sem um íburðar-
minni eða meiri veislu er að ræða,“
segir hún og viðurkennir að sér
finnist fátt skemmtilegra en að út-
búa gómsætar veitingar og bjóða
fólki heim. „Æfingin skapar meist-
arann í þessu eins og öllu öðru en
auðvitað skemmir ekki fyrir að hafa
svona ofboðslega gaman að því. Ég
vona bara að bókin nýtist fólki sem
er í veisluhugleiðingum. Ef svo er
þá er takmarkinu náð.“
Bókin sem mun bjarga lífi þínu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Augnakonfekt Bókin þykir mikil
heimilisprýði enda er hún sneisafull
af guðdómlegum myndum sem
Berglind tók sjálf.
Hún er þekkt fyrir að
baka kökur á heims-
mælikvarða og halda
veislur sem fá fólk til að
fölna af aðdáun. Hún
þykir jafnframt yfirmáta
smekkleg og sniðug og
nýjasta rósin í hnappa-
gat hennar er bók um
veisluhald þar sem hún
ráðleggur fólki um að
halda veislu án þess að
verða galið eða gjald-
þrota.
Veisludrottningin Berglind
Hreiðarsdóttir gefur út fyrstu
bók sína, en þar fer hún gaum-
gæfilega yfir það hvernig halda
skal veislu án þess að tapa glór-
unni í leiðinni.
LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646
Opið virka daga kl. 10-18, lokað laugardaga
Faxafeni 14, 108 Reykjavík | Sími 551 6646 | Laura Ashley á Íslandi
20% afsláttur af öllum
sængurfatnaði og púðum