Morgunblaðið - 29.11.2019, Page 86
86
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2019
Flóunar-
kanna
9.990
Blandari
24.990
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is
D4 kaffivél
79.990
Ryksuga
26.990
Matvinnsluvél
28.990
Frábært
verð
SVARTUR FÖSTUDAGUR
Ryksuguróbot
114.990
Grunnurinn að góðri heilsu er
góð næring hvort heldur sem
sætindi eiga í hlut eða máltíð.
Þessi gulrótarterta er stútfull af
næringu og virkilega góð. Hér er
uppskrift að gulrótartertu sem er
svo bragðgóð að það er leitun að
öðru eins. Uppskriftin kemur úr
smiðju Kaju eða Karenar Jóns-
dóttur á Akranesi sem er konan
á bak við Kaja Organics, Matbúr
Kaju og Kaffi Kaju. Við full-
vissum lesendur um að eftir að
hafa smakkað kökurnar hennar
verður ekki aftur snúið.
Gulrótaterta
16-20 manna
Tertan er mjög góð glútenlaus en
þá notum við bókhveiti í stað
hveitis
130 g valhnetur, brotnar
300 g pálmasykur
100 g reyrsykur
250 ml ristuð valhnetuolía frá
Vigean
4 egg
133 g eplamauk (lífræn epli sett í
blandara)
1 tsk. vanilludropar
320 g hveiti notið bókhveiti ef
tertan á að vera glútenlaus
1 tsk. matarsódi
1½ tsk. kanill
1 tsk. engifer
¼ múskat
¼ negull
260 g gulrætur
Raspið gulrætur niður frekar
gróft. Reyrsykur, pálmasykur og
egg þeytt saman. Öllum þurr-
efnum og hnetum blandað saman
í skál. Þurrefnum, olíu og epla-
mauki blandað varlega saman við
eggjaþeytuna. Bakist í 50-60
mínútur við 150 gráður. Kælið
áður en kakan er skorin í sund-
ur.
Krem
500 g lífrænn rjómaostur (fáan-
legur fljótlega frá Biobú)
300 g smjör
175 g flórsykur
Þeytið smjör og flórsykur sam-
an þar til blandan verður létt,
bætið rjómaostinum út í, skiptið í
tvennt og setjið á botnana.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gulrótartertan góða
Guðdómleg
gulrótarterta
Tertur Kaju
eru frægar
fyrir fádæma
bragðgæði og
hollustu.
Þóra Kolbrá Sigurðardóttir
thora@mbl.is
Eva Laufey deilir hér uppskrift að
smjörsteiktri hörpuskel með les-
endum Morgunblaðsins en hún seg-
ist alltaf hafa verið óskaplega hrifin
af hörpuskel. „Það besta við hörpu-
skelina er hversu einfalt það er að
töfra fram rétt með mjög lítilli fyr-
irhöfn en útkoman er svolítið eins og
maður hafi varið deginum í að útbúa
hann. Þessi réttur er einmitt svoleið-
is.
Smjörsteikt hörpuskel á blómkáls-
beði með chorizobitum
12 hörpuskeljar
1 msk. steikingarolía
salt og pipar
60 g smjör
1 skallottlaukur
1 hvítlauksrif
1 dl smátt skorin chorizopylsa
1 dl steinselja, smátt skorin
1. Þerrið hörpuskelina mjög vel og
snyrtið.
2. Hitið olíu á pönnu og steikið
hörpuskelina í um það bil mínútu á
hvorri hlið eða þar til hún er fallega
brún að utan. Kryddið að sjálfsögðu
með salti og pipar. Ég læt alltaf smá
smjörklípu alveg í restina og baða
hörpuskelina upp úr smjörinu.
3. Leggið hörpuskelina til hliðar
þegar hún er tilbúin.
4. Hitið smá smjör á sömu pönnu,
skerið niður skallottlauk og steikið
þar til hann er mjúkur í gegn, bætið
hvítlauk og chorizopylsu út á pönn-
una og steikið í eina mínútu. Bætið
því næst 50 grömmum af smjöri út á
pönnuna og leyfið þessu að krauma í
svolitla stund.
5. Setjið blómkálsmauk á diska,
raðið hörpuskelinni yfir maukið og
hellið vel af chorzioblönduunni yfir
og skreytið gjarnan með ferskri
steinselju, smátt skorinni.
Blómkálsmauk
1 blómkálshöfuð
1 tsk. salt
1 dl rjómi + meira ef maukið er of
þykkt
1 msk. smjör
1. Skerið blómkálið og fjarlægið
stilka, sjóðið í vel söltu vatni þar til
mjúkt í gegn.
2. Hellið vatninu frá og annað-
hvort maukið blómkálið ásamt
rjóma og smjöri með töfrasprota eða
notið matvinnsluvél í verkið. Það
tekur örskamma stund að búa til
maukið og um að gera að smakka til
í leiðinni.
Sælkeramatur Það eru sjálf-
sagt flestir sammála Evu
Laufeyju með að hörpudiskur
sé herramannsmatur.
Þriðja bókin komin Aðdáendur
Evu Laufeyjar geta glaðst því þriðja
bók hennar er komin í verslanir.
Eva Laufey
með nýja bók
Það heyrir alltaf til tíðinda þegar bitastæðar mat-
reiðslubækur eru gefnar út. Hin eina sanna Eva
Laufey gleður aðdáendur sína fyrir þessi jól með
dásamlegri bók og slær ekki feilnótu. Bókin er sér-
lega falleg með myndum eftir Heiðdísi Guðbjörgu
Gunnarsdóttur. Bókin er afar fjölbreytt og
skemmtileg og má finna uppskriftir við allra hæfi í
þessari eigulegu bók.
Hráefnið skiptir öllu
Valhnetur og valhnetuolían er ein besta næring sem hægt er að fá
fyrir frumur heilans svo og hjarta- og æðakerfi. Valhnetuolía er einn-
ig talin góð fyrir hormónastarfsemina, bólgur og húðina en olían hef-
ur einnig áhrif til lækkunar á blóðþrýstingi. Ristaða valhentuolían frá
Vigean gefur tertunni einstakt bragð og áferð og er því ómissandi í
þessa uppskrift Olían fæst í Hagkaupum, Melabúinni og Matarbúri
Kaju á Akranesi.
Ógerilsneydd egg eru full af góðri næringu, þau eru góður prótein-
gjafi auk þess sem þau innihalda Vítamín D, B-12 og B-5 sem eru okk-
ur lífsnauðsin.
Gulrætur eru ríkar af Beta-caroten sem lifrin breytir í A vítamín en
það er nauðsyn fyrir sjónina og svo eru gulrætur góður andoxari sem
heldur okkur ungum lengur.
Bókhveiti er ríkt af steinefnum, má þar helst nefna magnesíum.
Epli eru full af pektíni sem er gott við háu kólesteróli að ógleymdu
C-vítamíni.
Allar kryddjurtir eru þekktar sem góðar lækningajurtir, ýmist not-
aðar sem forvörn eða til lækninga við hinum ýmsu kvillum.
Smjörið er ríkt af A-vítamín og gefur okkur mikla orku.
Rjómaostur er orka og próteingjafi.
Óhollustan liggur í sykrinum en þegar góð næring er grunnurinn seg-
ir líkaminn fljótlega stopp, með öðrum orðum það er ekki hægt að
borða mikið af þessari. En í einni sneið eru tæplega 28 til 36 grömm af
viðbættum sykri en það er minna magn en í einum 100 g hlauppoka
sem inniheldur enga næringu.