Morgunblaðið - 29.11.2019, Síða 98
98 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2019
Evrópudeild UEFA
C-RIÐILL:
Krasnodar – Basel ................................... 1:0
Jón Guðni Fjóluson var ekki í leik-
mannahópi Krasnodar.
Trabzonspor – Getafe .............................. 0:1
Basel 10, Krasnodar 9, Getafe 9, Trab-
zonspor 1.
G-RIÐILL:
Feyenoord – Rangers .............................. 2:2
Young Boys – Porto ................................. 1:2
Rangers 8, Porto 7, Young Boys 7,
Feyenoord 5.
H-RIÐILL:
CSKA Moskva – Ludogorets .................. 1:1
Hörður Björgvin Magnússon lék allan
leikinn með CSKA og Arnór Sigurðsson
fyrstu 64 mínúturnar.
Ferencváros – Espanyol.......................... 2:2
Espanyol 11, Ludogorets 7, Ferencváros
6, CSKA Moskva 2.
I-RIÐILL:
Oleksandriya – Wolfsburg....................... 0:1
Saint-Étienne – Gent ............................... 0:0
Gent 9, Wolfsburg 8, Saint-Étienne 4,
Oleksandria 3.
J-RIÐILL:
Istanbul Basaksehir – Roma................... 0:3
Wolfsberger – Mönchengladbach........... 0:1
Mönchengladbach 8, Roma 8, Basaksehir
7, Wolfsberger 4.
K-RIÐILL:
Besiktas – Slovan Bratislava................... 2:1
Braga – Wolves......................................... 3:3
Braga 11, Wolves 10, Slovan Bratislava
4, Besiktas 3.
L-RIÐILL:
Astana – Manchester United.................. 2:1
Rúnar Már Sigurjónsson lék allan leik-
inn með Astana.
AZ Alkmaar – Partizan Belgrad ........... 2:2
Albert Guðmundsson hjá AZ er frá
keppni vegna meiðsla.
Manchester United 10, AZ Alkmaar 9,
Partizan 5, Astana 3.
Feitletruð lið í stöðum eru komin áfram.
Leikjum í A-, B-, D-, E- og F-riðlum var
ekki lokið þegar blaðið fór í prentun í gær-
kvöld. Arnór Ingvi Traustason var í byrj-
unarliði Malmö sem tók á móti Dynamo
Kiev. Sjá mbl.is/sport/fotbolti.
Danmörk
B-deild:
Viborg – Vejle .......................................... 3:4
Ingvar Jónsson varði mark Viborg.
Kjartan Henry Finnbogason lék allan
leikinn með Vejle og skoraði eitt markanna.
Katar
Deildabikarinn, B-riðill:
Al-Gharafa – Al-Arabi ............................ 1:1
Birkir Bjarnason lék allan leikinn með
Al-Arabi en Aron Einar Gunnarsson er frá
vegna meiðsla. Heimir Hallgrímsson þjálf-
ar liðið.
KNATTSPYRNA
Dominos-deild karla
Njarðvík – Haukar ............................... 89:75
Tindastóll – Þór Þ................................. 72:67
Valur – Þór Ak ...................................... 79:88
ÍR – Grindavík ...................................... 90:92
Staðan:
Tindastóll 9 7 2 787:731 14
Keflavík 8 6 2 697:656 12
Stjarnan 8 6 2 727:689 12
Njarðvík 9 5 4 743:654 10
KR 8 5 3 672:630 10
Haukar 9 5 4 804:773 10
ÍR 9 5 4 753:770 10
Þór Þ. 9 4 5 710:733 8
Grindavik 9 4 5 768:777 8
Valur 9 3 6 728:776 6
Fjölnir 8 1 7 678:736 2
Þór Ak. 9 1 8 707:849 2
1. deild karla
Skallagrímur – Álftanes..................... 88:102
Staðan:
Höttur 9 8 1 786:714 16
Hamar 8 7 1 764:675 14
Breiðablik 8 7 1 783:647 14
Vestri 8 4 4 707:636 8
Álftanes 9 4 5 713:751 8
Selfoss 8 3 5 603:636 6
Skallagrimur 9 2 7 731:825 4
Sindri 7 1 6 567:630 2
Snæfell 8 1 7 597:737 2
Þýskaland
Alba Berlín – Zalgiris Kaunas ........... 69:62
Martin Hermannsson skoraði 11 stig
fyrir Alba, átti 3 stoðsendingar og tók 2 frá-
köst.
NBA-deildin
Cleveland – Orlando......................... 104:116
Indiana – Utah.................................. 121:102
Boston – Brooklyn............................ 121:110
Philadelphia – Sacramento.................. 97:91
Charlotte – Detroit........................... 102:101
Toronto – New York .......................... 126:98
Milwaukee – Atlanta ........................ 111:102
Memphis – LA Clippers................... 119:121
Houston – Miami .............................. 117:108
San Antonio – Minnesota................. 101:113
Phoenix – Washington ..................... 132:140
New Orleans – LA Lakers............... 110:114
Portland – Oklahoma City............... 136:119
Golden State – Chicago...................... 104:90
KÖRFUBOLTI
FRJÁLSAR
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
„Ég er ánægð með keppnisárið sem
er að baki,“ segir Guðbjörg Jóna
Bjarnadóttir sem á dögunum var út-
nefnd frjálsíþróttakona ársins á
uppskeruhátíð Frjálsíþrótta-
sambands Íslands.
Guðbjörg Jóna er aðeins 17 ára
gömul, verður átján ára á að-
fangadag jóla, en hefur þegar skipað
sér í flokk með efnilegustu sprett-
hlaupurum Evrópu og náði m.a. þeim
glæsilega árangri að hafna í fjórða
sæti í 200 m hlaupi á Evrópumeist-
aramóti ungmenna utanhúss á liðnu
sumri.
Hún bætti Íslandsmet í 100 og 200
m hlaupi fullorðinna, met sem höfðu
staðið lengi, auk þess að jafna Ís-
landsmetið í 60 m hlaupi innanhúss
snemma árs. Einnig var Guðbjörg
Jóna í boðhlaupssveitum sem bættu
Íslandsmet á árinu og átti sinn hlut í
að íslenska landsliðið færðist upp um
deild í Evrópubikarkeppni landsliða í
upphafi sumars.
„Eftir metið í 60 metra hlaupinu þá
bætti ég metin í 100 og 200 m hlaup-
um sem var mikill áfangi. Síðan rak
hvað annað sem gekk vel hjá mér.
Fjórða sætið á EM undir 20 ára var
frábært og síðan var gaman að taka
þátt með landsliðinu í að fara upp um
deild. Árið hefur verið mjög fínt en
um leið mjög annasamt. Af þeim sök-
um ætlum við þjálfari minn að velja
betur þau mót sem ég tek þátt í,“
segir Guðbjörg Jóna sem heldur
ótrauð sínu striki. Nú um stundir
stendur yfir undirbúningur fyrir
næsta keppnisár þar sem hún ætlar
að gera atlögu að þátttöku á Ólymp-
íuleikunum sem fram fara í Japan.
Sér fram á bætingar
„Æfingar hafa gengið frábærlega
síðustu vikur og þess vegna hef ég
fulla trú á að ég haldi áfram að bæta
mig á næsta keppnisári,“ segir Guð-
björg sem hefur unnið mikið í að
bæta snerpu en einnig styrkinn. „Í
sumar gafst lítill tími til þess og af
þeim sökum hef ég einbeitt mér að
því að bæta eitt og annað. Ég hlakka
því til vorsins og sumarsins. Ég sé
fram á bætingar,“ segir Guðbjörg
Jóna ennfremur en hún stefnir hátt
en hún æfir undir stjórn Brynjars
Gunnarssonar og Óðins Björns Þor-
steinssonar. Sá síðarnefndi sér um
lyftingaæfingarnar.
„Aðalmarkmiðið er að gera atlögu
að þátttöku á Ólympíuleikunum. Til
þess þarf ég að safna stigum til að
komast eins ofarlega á heimslistann
og mögulegt er áður en fresturinn
rennur út í júní. Af þeim sökum byrja
ég keppnistímabilið snemma innan-
húss og einbeiti mér þá að keppni í
200 metra hlaupi og held áfram í
þeirri grein þegar keppnistímabilið
hefst utandyra. Ef ég næ ekki inn á
Ólympíuleikana þá get ég farið á
heimsmeistaramót ungmenna, 20 ára
og yngri, sem fram fer í Kenía síð-
sumars.
Ég hef fulla trú á að ég komist á
Ólympíuleikana en síðan verður að
koma í ljós hvort það gangi eftir,“
sagði Guðbjörg Jóna. „Ég er ekki að
setja pressu á mig að komast á leik-
ana en þetta er gott markmið fyrir
árið sem er framundan.“
Guðbjörg segist ennfremur hafa
sett sér það takmark að tryggja sér
keppnisrétt á Evrópumeistaramóti
fullorðinna sem haldið verður í ágúst.
Til þess þarf hún að hlaupa 200 metr-
ana á 23,35 sekúndum. „Metið mitt er
23,45 svo ég er ekki langt frá lág-
markinu.“
Ég sé þar af leiðandi fram á spenn-
andi og annasamt ár hvort sem ég
kemst inn á Ólympíuleikana eða
ekki,“ sagði Guðbjörg Jóna sem líkar
best við 200 m hlaupið og segir að það
sé sú grein sem hún ætli sér að ein-
beita sér að næstu misserin hið
minnsta.
Auk stífra æfinga fimm daga vik-
unnar stundar Guðbjörg Jóna nám
við Menntaskólann við Hamrahlíð á
félagsfræðibraut þar sem hún lýkur
stúdentsprófi í vor. Hún hefur sett
stefnuna á nám í sálfræði þegar
framhaldsskóla lýkur.
Ætlar að gera
atlögu að
ólympíusæti
Guðbjörg Jóna er 17 ára en þegar
komin í fremstu röð í heiminum
Morgunblaðið/Eggert
Efnileg Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir er í fremstu röð í heiminum í 100 og
200 metra hlaupum í sínum aldursflokki og ætlar sér stóra hluti á næsta ári.
Þegar Ísland og Rúmenía voru
dregin saman í umspilinu fyrir EM
karla í fótbolta 2020 í síðustu viku
voru Rúmenar ellefu sætum fyrir
ofan Íslendinga á heimslista FIFA.
Nýr listi var birtur í gær og nú
munar aðeins tveimur sætum á lið-
unum. Rúmenar falla úr 29. sæti
niður í 37. sæti en Íslendingar
hækka sig úr 40. sætinu í það 39.
Belgía, Frakkland, Brasilía, Eng-
land og Úrúgvæ skipa áfram fimm
efstu sæti listans en Króatar fara
uppfyrir Portúgala og eru komnir í
sjötta sætið. vs@mbl.is
Rúmenar tveimur
sætum ofar
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
FIFA Ísland hækkar sig um eitt sæti
á heimslistanum frá því í október.
Eyjamenn fengu í gær til liðs við sig
einn reyndasta knattspyrnumann
landsins þegar Valsmaðurinn Bjarni
Ólafur Eiríksson samdi við þá fyrir
næsta tímabil. ÍBV féll úr úrvals-
deildinni í haust. Bjarni er 37 ára
gamall varnarmaður og hefur leikið
með meistaraflokki Vals frá árinu
2000, að undanskildum fimm árum
með Silkeborg í Danmörku og Sta-
bæk í Noregi. Bjarni sló leikjamet
Vals í efstu deild í ár, hefur þar leik-
ið 244 leiki fyrir félagið, og hann á
alls að baki 411 deildaleiki á ferl-
inum, heima og erlendis. vs@mbl.is
Methafi Vals
til Eyjamanna
Morgunblaðið/Hari
Eyjamaður Bjarni Ólafur Eiríksson
klæðist hvítum búningi ÍBV.
Rúnar Már Sigurjónsson og félagar
í Astana, meistaraliði Kasakstan,
fengu í gær sín fyrstu stig í riðla-
keppni Evrópudeildarinnar í fót-
bolta þegar þeir lögðu Manchester
United að velli, 2:1, á heimavelli.
Rúnar lék þarna sinn fyrsta leik
frá því hann meiddist í landsleik Ís-
lands og Frakklands 11. október og
spilaði allan leikinn. United tefldi
fram varaliði, enda þegar komið
áfram í keppninni, og komst yfir
strax á 10. mínútu þegar Jesse Ling-
ard skoraði. Auk Lingards var Luke
Shaw eini leikmaður United með
teljandi reynslu, ásamt hinum 36 ára
gamla markverði Lee Grant sem lék
sinn fyrsta Evrópuleik.
Dmitriy Shomko jafnaði fyrir Ast-
ana snemma í seinni hálfleik og ný-
liðinn Di’Shon Bernard gerði sjálfs-
mark rétt á eftir þegar Antonio
Rukavina, landsliðsmaður Serbíu,
sendi boltann fyrir mark United.
Hörður Björgvin Magnússon og
Arnór Sigurðsson komast ekki
áfram úr riðlakeppninni með CSKA
frá Moskvu. Þeir gerðu 1:1 jafntefli
við Ludogorets á heimavelli í gær-
kvöld og þar með voru vonir CSKA
endanlega úr sögunni.
AZ, án Alberts Guðmundssonar
sem er meiddur, komst áfram á æv-
intýralegan hátt. Liðið skoraði tvö
mörk í lokin gegn Partizan Belgrad
og jafnaði, 2:2. Krasnodar, lið Jóns
Guðna Fjólusonar, er enn í barátt-
unni um að komast áfram í 32ja liða
úrslit eftir 1:0 heimasigur á Basel.
vs@mbl.is
AFP
Moskva Hörður Björgvin Magnússon, miðvörður CSKA, í baráttu við
Marcelinho, leikmann Ludogorets frá Búlgaríu, í viðureign liðanna í gær.
Rúnar lagði strák-
ana frá Manchester
CSKA kemst ekki áfram úr riðlinum