Morgunblaðið - 29.11.2019, Síða 99
Í NJARÐVÍK
Skúli B. Sigurðsson
skulibsig@mbl.is
Njarðvíkingar fengu Hauka í heim-
sókn í Njarðtaksgryfjuna í gær-
kvöld í Domions-deild karla í körfu-
bolta. Deildin í raun í hnút, mörg lið
með svipaðan stigafjölda og því að-
eins í raun heimavöllurinn sem
þessa dagana er forskot liða á and-
stæðinga sína. Svo fór að Njarðvík-
ingar lönduðu sínum fjórða sigri í
röð, 79:65, og eru búnir að koma sér
kirfilega fyrir í þeirri þvögu sem er
að myndast í deildinni..
Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn
hjá liðunum og áhlaup einkenndu
leik beggja liða þar þó svo að Njarð-
víkingar hafi leitt með 5 stigum eftir
20 mínútur. Þessi áhlaup héldu
áfram í raun allt þar til um miðbik
fjórða leikhluta þegar Njarðvík-
ingar náðu yfirhöndinni og lönduðu
sigrinum mikilvæga.
Njarðvíkingar hafa fengið nýtt líf
í sinn leik með tilkomu Chaz Willi-
ams. Sóknarleikur liðsins var hægur
og fyrirsjáanlegur en er allt annar
með hann inn á. Um leið virðist
hann koma með skemmtilega áru
inn í hóp liðsins og virðist vera að
hafa gaman af hlutunum. Ekki
skemmdi að Kyle Williams sem hef-
ur verið meiddur, lofar einnig góðu
fyrir framhaldið hjá grænum.
Haukaliðið framan af virtist vera
nokkuð óútreiknanlegt. Náðu aldrei
að tengja góða kafla saman og
þeirra beittasti maður í sókninni,
Kári Jónsson, var lengi í gang og
reyndist Njarðvíkingum erfiður
þegar hann loksins herjaði á körfu
heimamanna. Það vó þungt að besti
maður Hauka í kvöld, Flenard Whit-
field lenti í villuvandræðum og náði
ekki að spila hinar mikilvægu mín-
útur leiksins þegar allt var undir.
Þór Akureyri vann sinn fyrsta
sigur er liðið heimsótti Val og vann
88:79. Þór var með forskot nánast
allan leikinn og var það mest 21 stig.
Valsmenn neituðu að gefast upp og
minnkuðu muninn í eitt stig, 69:68,
þegar tæpar tíu mínútur voru til
leiksloka. Þórsarar voru hins vegar
sterkari á lokakaflanum og geta þeir
loksins fagnað sigri, eftir að hafa
komist grátlega nálægt gegn Stjörn-
unni í síðustu umferð. Hansel
Atencia skoraði 24 stig fyrir Þór,
eins og Philip Alawoya fyrir Val.
Tindastóll vann sinn fimmta
sigur í röð er liðið vann Þór Þorláks-
höfn á heimavelli, 72:67. Liðin skipt-
ust á að eiga góða leikhluta og voru
Þórsarar yfir fyrir fjórða og síðasta
leikhlutann. Þar voru heimamenn
hins vegar sterkari og unnu að lok-
um góðan sigur. Jaka Brodnik, sem
spilaði með Þór á síðustu leiktíð,
skoraði 24 stig fyrir Tindastól og
Halldór Garðar Hermannsson skor-
aði 17 fyrir Þór.
Grindavík hafði betur gegn ÍR
á útivelli eftir jafnan og æsispenn-
andi leik, 92:90. ÍR var með 52:44-
forskot í hálfleik, en Grindvíkingar
náðu að jafna í seinni hálfleik og
knýja fram sigur á spennandi loka-
sekúndum.
ÍR var með 90:89-forskot þegar
nokkrar sekúndur voru til leiksloka,
en Grindvíkingar tryggðu sér sig-
urinn með þremur síðustu stig-
unum. Ólafur Ólafsson gulltryggði
sigurinn með sniðskoti níu sek-
úndum fyrir leikslok. Evan Singlet-
ary fékk tækifæri til að tryggja ÍR
sigur, en hann klikkaði á þriggja
stiga skoti í blálokin. Singletary var
stigahæstur allra með 30 stig og
skoraði 25 stig fyrir Grindavík og
Sigtryggur Arnar Björnsson gerði
24 stig.
Sigling á Njarðvíkingum
Fjórði sigurinn í röð kom gegn Haukum Nýtt líf með Chaz Williams
Fyrsti sigur Þórs Tindastóll í efsta sæti Grindavík knúði fram sigur
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Seljaskóli ÍR-ingurinn Evan Singletary reynir að komast framhjá Grindvíkingnum Kristófer Breka Gylfasyni.
ÍÞRÓTTIR 99
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2019
Um þetta leyti árs fyrir 38
árum upplifði ég það í fyrsta og
eina skiptið til þessa að vera
sagt upp störfum.
Þá var ég ungur háskólanemi
og hafði verið íþróttafréttamað-
ur á Dagblaðinu í tæplega þrjá
mánuði.
Ég var í skólanum á morgnana
og vann á blaðinu frá hádegi og
fram á kvöld. Þegar ég sat í
strætó á leið frá Háskóla Íslands
í Síðumúlann heyrði ég í há-
degisfréttunum að síðdegis-
blöðin Dagblaðið og Vísir hefðu
verið sameinuð um nóttina.
Vegna skólans hafði ég
misst af morgunhasarnum þegar
starfsfólk blaðanna mætti grun-
laust til vinnu og komst að því að
annaðhvort var það komið til
starfa á nýju blaði eða búið að
missa vinnuna. Ég var í seinni
hópnum.
Þetta var einn erfiðasti dagur
lífs míns fram að þessu. En ég
hélt áfram, var kominn í fullt
starf á öðrum fjölmiðli eftir fimm
vikur og hef skrifað íþróttafréttir
viðstöðulaust síðan.
Gærdagurinn var líklega sá
erfiðasti í starfi í 38 ár. Við á
íþróttadeild Árvakurs sáum á
bak þremur af bestu íþrótta-
fréttamönnum landsins.
Það er ekki aðeins þungbært
að sjá á eftir öflugum starfs-
kröftum, heldur einnig sam-
starfsmönnum og félögum í þrjá-
tíu, tuttugu og tólf ár. Þeir hafa
allir markað djúp spor í sögu ís-
lenskrar íþróttafréttamennsku
og fá vonandi tækifæri til að
halda því áfram annars staðar.
Við sem eftir sitjum munum
að sjálfsögðu leggja hart að okk-
ur til að halda áfram að skila les-
endum Morgunblaðsins og
mbl.is góðu íþróttaefni á hverj-
um degi.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Kjartan Henry Finnbogason skor-
aði mark í þriðja leik sínum í röð
fyrir Vejle þegar lið hans vann góð-
an útisigur á Viborg, 4:3, í toppslag
dönsku B-deildarinnar í knatt-
spyrnu. Þar með skoraði Kjartan
sitt þrettánda mark í 17 leikjum á
tímabilinu og hann er sem fyrr
markahæstur í deildinni. Markið
skoraði hann eftir að hafa leikið á
landa sinn Ingvar Jónsson í marki
Viborg. Vejle komst sigrinum á
toppinn með 38 stig en Fredericia
er með 35 stig og Viborg 33. Aðeins
efsta liðið kemst upp í ár. vs@mbl.is
Kominn með 13
mörk í deildinni
AFP
Skorar Kjartan Henry Finnbogason
skorar reglulega fyrir Vejle.
Martin Hermannsson og félagar í
þýska liðinu Alba Berlín unnu í gær-
kvöld sinn þriðja sigur í síðustu fjór-
um leikjunum í Evrópudeildinni í
körfuknattleik, Euroleague. Þeir
tóku á móti Zalgiris Kaunas frá
Litháen frammi fyrir ríflega 10 þús-
und áhorfendum í Berlín og sigruðu
með góðum endaspretti, 69:62. Þar
með hefur Alba unnið fjóra leiki af
ellefu og fikrað sig upp töfluna eftir
slæma byrjun. Martin spilaði einna
mest í liði Alba, í 29 mínútur, skoraði
11 stig, átti 3 stoðsendingar og tók 2
fráköst. vs@mbl.is
Allt á uppleið hjá
Alba og Martin
Ljósmynd/EuroLeague
Sigur Martin Hermannsson og fé-
lagar eru komnir á sigurbraut.
Njarðtaksgryfjan, Dominos-deild
karla, fimmtudag 28. nóvember
2019.
Gangur leiksins: 3:2, 9:4, 12:8,
20:13, 22:17, 29:25, 34:29, 39:34,
42:40, 46:43, 58:47, 61:55, 67:61,
67:63, 77:68, 89:75.
Njarðvík: Maciek Stanislav Baginski
25, Chaz Calvaron Williams 11/9
stoðsendingar, Kyle Steven Williams
11, Mario Matasovic 10/8 fráköst,
Wayne Ernest Martin Jr. 10/7 frá-
köst/3 varin skot, Kristinn Pálsson
10/4 fráköst, Logi Gunnarsson 8,
NJARÐVÍK – HAUKAR 79:65
Ólafur Helgi Jónsson 4/6 fráköst.
Fráköst: 23 í vörn, 9 í sókn.
Haukar: Flenard Whitfield 21/10
fráköst, Kári Jónsson 17/5 stoð-
sendingar, Gerald Robinson 11/6
fráköst, Gunnar Ingi Harðarson 9,
Emil Barja 7/4 fráköst, Breki Gylfa-
son 6/4 fráköst, Kjartan Helgi
Steinþórsson 4.
Fráköst: 22 í vörn, 5 í sókn.
Dómarar: Kristinn Óskarsson, Jó-
hannes Páll Friðriksson, Bjarni Hlíð-
kvist Kristmarsson.
Áhorfendur: 250.
HANDBOLTI
Grill 66 deild kvenna
Fylkir – ÍBV U...................................... 22:21
Staðan:
Fram U 9 9 0 0 304:212 18
FH 9 7 1 1 247:198 15
Selfoss 9 6 2 1 207:188 14
Grótta 9 6 1 2 224:200 13
ÍR 9 5 0 4 225:221 10
Valur U 9 4 1 4 242:231 9
ÍBV U 10 4 1 5 249:247 9
Stjarnan U 9 3 1 5 228:251 7
Fylkir 10 3 0 7 191:215 6
HK U 9 2 1 6 224:255 5
Fjölnir 9 2 0 7 206:250 4
Víkingur 9 0 0 9 205:284 0
Þýskaland
Lemgo – Balingen ............................... 27:24
Bjarki Már Elísson skoraði 2 mörk fyrir
Lemgo.
Oddur Gretarsson skoraði 3 mörk fyrir
Balingen.
Flensburg – Bergischer...................... 29:23
Ragnar Jóhannsson skoraði 2 mörk fyrir
Bergischer en Arnór Þór Gunnarsson er
frá keppni vegna meiðsla.
Erlangen – Kiel.................................... 27:31
Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Erlangen.
Gísli Þorgeir Kristjánsson hjá Kiel er frá
keppni vegna meiðsla.
Göppingen – Wetzlar .......................... 26:21
Viggó Kristjánsson skoraði eitt mark
fyrir Wetzlar.
Staðan:
Flensburg 24, Kiel 22, Hannover-Burgdorf
20, Füchse Berlín 20, RN Löwen 20,
Magdeburg 20, Melsungen 19, Leipzig 16,
Bergischer 15, Göppingen 13, Wetzlar 12,
Balingen 11, Erlangen 10, Minden 10,
Lemgo 8, Stuttgart 6, Ludwigshafen 6,
Nordhorn 2.
B-deild:
Rimpar – Lübeck-Schwartau ............ 18:18
Sigtryggur Daði Rúnarsson skoraði eitt
mark fyrir Lübeck-Schwartau sem er í 13.
sæti af 18 liðum í deildinni.