Morgunblaðið - 29.11.2019, Side 108
108 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2019
Loftslagsbreytingar
Menn hafa reynt að gera sér
grein fyrir veðurfari fortíðar og
framtíðar. Veður fortíðar má að
hluta til lesa úr sögulegum heim-
ildum, jarðfræðifyrirbærum, ár-
hringum trjáa, jöklaborkjörnum og
14C-hlutfalli í lífrænum efnum.
Veðrið er hluti af vistkerfinu, nátt-
úrunni, talsvert áhrifamikill hluti,
og tengist það andrúmsloftinu, hita
þess, raka og hreyfingu. Orðið veð-
ur vísar til veðurástandsins á
ákveðnum stað á hverju augna-
bliki. Hugtakið loftslag merkir
hins vegar meðalástand lofthjúps-
ins í langan tíma og er þá litið ald-
ir fram eða aftur í tímann. Þess
vegna tölum við um loftslagsbreyt-
ingar en ekki veðurbreytingar. Við
tölum bæði um breytingar og
sveiflur. Breyting er til ákveðinnar
áttar, til dæmis hlýnandi, en alltaf
má búast við sveiflum á milli ára,
óvenju köld eða óvenju hlý ár
verða örugglega áfram af og til …
Loftslagsbreytingar eru að hluta
til náttúrulegar, en augljóst er að
þær breytingar sem nú ganga yfir
jörðina eru að mestu af manna-
völdum. Neikvæð áhrif gróð-
urhúsalofttegunda í andrúmslofti
eru svokölluð gróðurhúsaáhrif sem
leiða til loftslagsbreytinga, hækk-
unar hitastigs á jörðinni og breyt-
inga á úrkomu og veðrakerfum
jarðar. Talið er að þurru svæðin á
jörðinni verði þurrari, röku svæðin
rakari. Meðalhiti jarðar hefur
hækkað um 0,12°C á áratug frá
1951. Sumir neita að viðurkenna að
loftslagsbreytingar eigi sér stað
eða séu af mannavöldum, eða þeir
telja að tæknin muni bjarga mál-
unum. Þessum sáðmönnum efans
fer þó fækkandi. Hlýnuninni fylgir
bráðnun jökla, hækkun sjávar-
borðs, súrnun hafs og aukin tíðni
aftakaveðra. Öfgar í veðri verða
augljósar, fellibyljir verða tíðari og
á eftir tímabili með metúrkomu
getur komið tímabil mikla þurrka
(þetta eru breytingar, loftslags-
breytingar). Á eftir methlýju
sumri getur komið kuldaár (það
eru sveiflur). Sumt af þessu er
þegar farið að koma í ljós. Þetta
mun hafa veruleg áhrif á mat-
vælaframleiðslu heimsins. Því mið-
ur verða áhrifin aðallega neikvæð
umhverfis miðbaug, þar sem
þurrkurinn, og þar af leiðandi ör-
birgðin, er mest. Það snertir okkur
Íslendinga hins vegar að í framtíð-
inni mun hlýna meira á norð-
urslóðum en við miðbaug, vegna
þess að ísinn, sem hefur end-
urkastað miklu orkumagni,
geislum, mun bráðna og sjórinn
gleypir meiri orku. Náttúrulegar
breytingar og sveiflur í veðurfari
eiga sér áreiðanlega margar orsak-
ir. Nefndar eru afstöðubreytingar
á milli sólar og jarðar, sólgos, ferð-
ir jarðar gegnum geimrykský,
sveiflur í sólgeislun, eldgos, óregla
í orkubúskapi lofthjúpsins og
breytingar á hafstraumakerfinu.
Hér hafa verið nefnd helstu loft-
mengunarefnin. Einungis nokkur
þeirra tilheyra svonefndum gróð-
urhúsalofttegundum, en það eru
efni sem hafa hitunaráhrif á loft-
hjúp jarðar, gróðurhúsaáhrif. Sól-
arljósið hitar bæði lofthjúpinn og
yfirborð jarðar. Jarðvegsyfirborðið
hitar svo lofthjúpinn enn frekar.
Andrúmsloftið sleppir inn sólar-
geislunum (stuttbylgjum) en yfir-
borð jarðar endurkastar inn-
rauðum geislum (langbylgjum) til
baka og þeir komast ekki út gegn-
um koltvísýringslagið. Þetta leiðir
til hækkunar hitastigs á jörðinni.
Þetta orkuferli köllum við gróður-
húsaáhrif vegna þess að innrauðir
endurkastsgeislar komast heldur
ekki til baka út í gegnum glerið
eða plastið á gróðurhúsum og loft-
hitinn hækkar. Af 100 einingum
sólarorkunnar sem berast til jarð-
ar gleypir lofthjúpurinn 20 ein-
ingar og yfirborð jarðar gleypir 50
einingar. Samtals 70 einingar fara
því til hitunar en 30 (22+8) ein-
ingar speglast til baka af lofthjúpi
og jörð. Án skýjahulunnar væri yf-
irborðshiti jarðar um fjórum gráð-
um hærri en nú er.
Þegar landnámsmenn settust að
á Íslandi fyrir 1.100 árum var
tiltölulega hlýtt á landinu og land-
nemarnir ræktuðu til dæmis bygg.
Frá byggökrunum stafa staðanöfn
eins og Akranes og Akureyri. Síð-
an kom langt kuldatímabil sem
náði allt að aldamótunum 1900 og
á þeim tíma var byggrækt vonlaus.
Undanfarið hefur hlýnað talsvert á
Íslandi eftir stutt kuldatímabil frá
1970. Nú er svo komið að hitastig á
landinu er að jafnast á við land-
námshitann og menn eru aftur
farnir að rækta bygg. Á Íslandi er
hitinn takmarkandi vaxtarþáttur
við vöxt gróðurs. Augljóslega
munu óumflýjanlegar loftslags-
breytingar fyrst um sinn hafa já-
kvæð áhrif á Íslandi. Með hækkun
hita mun ræktun og matvælafram-
leiðsla ganga betur. Með meiri
hlýnun munu neikvæð áhrif birtast
í veðursveiflum, innflutningi
ágengra tegunda og auknum sjúk-
dómavanda hjá plöntum og dýrum.
Eftirfarandi mun meðal annars
gerast á Íslandi vegna loftslags-
breytinga: Jöklar hopa, jökulár,
sem margar eru nýttar til raf-
orkuframleiðslu, vaxa í fyrstu en
minnka síðan, landið mun grænka
og skógarmörk færast ofar, af-
rakstur ræktarlands mun aukast,
samsetning flökkustofna fugla og
fiska mun breytast, sjávarborð
hækkar og landris verður mæl-
anlegt. Sú veröld sem var, er önn-
ur en sú veröld sem er og hún er
enn ólíkari þeirri veröld sem verð-
ur.
Draga má úr gróðurhúsaáhrif-
unum annaðhvort með því að losa
minna af gróðurhúsalofttegundum
eða binda meira magn af þeim úr
loftinu. Vegna þess að losun koltví-
sýrings er mikilvirkust í myndun
gróðurhúsalofttegunda vinna þjóð-
ir heims að lausn þess vanda með
því að draga úr losun eða auka
bindingu koltvísýrings. Sem ríki
þurfum við Íslendingar að standa
við skuldbindingar á heimsvísu um
að draga úr losun á koltvísýringi.
Losun Íslands jafngildir því að
hver Íslendingur sleppti árlega 14
tonnum af CO2 út í andrúmsloftið.
Losunarkvóti er nú að verða eins
konar verslunarvara, menn og
fyrirtæki geta verslað með los-
unarheimildir. Einnig eru menn að
reyna að draga úr brennslu jarð-
efnaeldsneytis, kola, bensíns og ol-
íu, en það er langstærsti koltvísýr-
ingsgjafinn. Nýir orkugjafar hafa
því miður ekki komið í stað olíu,
gass og kola, heldur einungis mætt
aukinni orkunotkun enn sem kom-
ið er. Eins og áður segir þarf að
skipta yfir í endurnýjanlega orku í
formi vatns, vinds, jarðhita eða
sólarljóss og draga úr mengun frá
stóriðju, auka rafvæðingu í sam-
göngum og ráðast í endurheimt
votlendis, landgræðslu og skóg-
rækt. En auk þess að draga úr los-
un er líka hægt að binda koltvísýr-
ing úr andrúmsloftinu. Skógarnir
eru mikil auðlind og eru mikilvirk-
ustu lofthreinsitækin. Hafa hita-
beltisskógar verið nefndir lungu
jarðar og vísindamenn hafa bent á
að miklum árangri mætti ná með
því að stöðva eyðingu hitabelt-
isskóga. Kolefnisbinding vegna
skógræktar og landgræðslu er frá-
dráttarbær í kolefnisjöfnuði þjóð-
anna. Íslendingar, sem búa í nær
skóglausu landi, ættu að hafa
möguleika á að auka bindingu með
aukinni skógrækt fremur en þau
þjóðlönd sem þegar eru skógi
klædd. Skógrækt hefur því verið
efld á Íslandi, meðal annars undir
merkjum kolefnisbindingar.
Reiknað er með að hver hektari
skóglendis á Íslandi bindi árlega í
kringum 6-10 tonn af koltvísýringi.
Bindingin er hins vegar háð mög-
um þáttum svo sem trjátegund,
landgæðum, veðurfarsskilyrðum
og öðrum þáttum sem hafa áhrif á
vaxtarhraða skógarins. Sem fyrr
segir eru hérlendis gerðar til-
raunir með að dæla koltvísýringi
niður í jarðskorpuna og binda
hann þar í bergi. Eftir á að koma í
ljós hversu mikilvirk sú aðgerð
verður í að laga kolefnisjafnvægi
landsins. Tilraunir hafa sýnt að
niðurdælingin virðist geta valdið
smávægilegum og sennilega
hættulausum titringi í jarðlögum.
Augljóst er að enda þótt mann-
kynið bregðist strax við til að
draga úr loftslagsbreytingum þá
er tregða kerfisins mikil og breyt-
ingin heldur áfram í langan tíma
eftir að gripið hefur verið til að-
gerða. Ekki er hægt að ætlast til
þess að þjóðir heims hætti al-
gjörlega losun gróðurhúsaloftteg-
unda strax og því reyna menn að
draga hóflega og smám saman úr
olíunotkun. Um 87% af orkunotkun
heims er mætt með notkun
jarðefnaeldsneytis. Þar eru kol og
olía ríkjandi. Um 50% af kol-
anotkun heims fara fram í Kína
sem eykur mengun bæði staðbund-
ið þar í landi og einnig á heims-
vísu. Nú er markmiðið að halda
kolefnislosun það lágri að með-
alhiti jarðar hækki ekki nema 2°C
frá því sem það var árið 1990. Að
þessu miðar COP21-samningur 195
þjóðríkja frá 2015, Parísarsam-
komulagið svokallaða. Augljóst er
að í náinni framtíð þarf ekki aðeins
smávægilegar breytingar í lofts-
lagsmálum heldur miklar byltingar
í orkumálum. Parísarsam-
komulagið er mjög metnaðarfullt
og boðar í raun endalok olíu-
aldarinnar. Ríki, sveitarfélög og al-
menningur verða að taka sameig-
inlega á við að draga úr notkun
jarðefnaeldsneytis og jafnframt
finna og þróa aðra orkugjafa. Það
er merkilegt við Parísarsam-
komulagið að þjóðirnar gáfu hver
um sig loforð um aðgerðir heima
fyrir sem endurskoða skal á fimm
ára fresti. Einnig er athyglisvert
að þjóðríkin ætla að veita árlega
100 milljarða dollara til að auð-
velda þróunarríkjum þátttöku. Það
vekur þó ugg að flugsamgöngur,
skipaflutningar og stóriðja eru ut-
an við samkomulagið. Líklega
verður tekið á þeim þáttum hnatt-
rænt en ekki í hverju landi fyrir
sig. Þá er einnig áhyggjuefni ef
stórar þjóðir draga sig út úr Par-
ísarsamkomulaginu líkt og Banda-
ríkin gerðu 2017.
Veröld sem verður
Út er komin bókin
Náttúruþankar eftir
feðginin Bjarna E.
Guðleifsson og Bryn-
hildi Bjarnadóttur.
Bókin fjallar um ýmis
fyrirbæri í náttúru og
umhverfi, stór og smá,
og lýst er áhrifum ým-
issa mannlegra athafna
á náttúruna, svo sem
gróðureyðingu, lofts-
lagsbreytingum og
orkunýtingu.
AFP
Bjarni Eyjólfur
Guðleifsson
Brynhildur
Bjarnadóttir
Loftslagsvá Þjóðarleiðtogar og
sendierindrekar stilla sér upp á
Loftslagsráðstefnunni í París 2015.
laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is
Pronto bolli og undirskál
Verð 1.690 kr. / 1.190 kr.