Morgunblaðið - 29.11.2019, Síða 112
Reykjavík • Mörkin 3 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900
25.-30. nóvember
Af yfir
1000
vörum
90%
Afslátt
ur
Allt að
LOKADA
GAR
ÚTSÖLU
OPIÐ 10
-18 FÖS
TUDAG
OG LAUG
ARDAG
POKI
Fyrstu 1
00 viðsk
iptvinir
dagsins
fá óvæn
tan
glaðning
;)
GJAFA
112 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2019
Lífið er fótbolti hjá vinkon-unum Gerðu og Ninnu, 12og 13 ára vinkonum íBreiðholtinu. En lífið er
líka áskorun. Sérstaklega þegar árið
er 1980 og þú þráir ekkert heitar en
að æfa fótbolta en einu æfingarnar
sem eru í boði í Breiðholtinu eru
fyrir stráka.
Með þessum hætti mætti lýsa
sögusviðinu í bók Brynhildar Þór-
arinsdóttur, Ungfrú fótbolti. Sagan
gerist á upphafsárum kvennaboltans
og það segir líklega ýmislegt um
stöðuna þegar Gerða og Ninna telja
það trúlegt að á sama tíma og
kvennalandslið Íslands í fótbolta
verði stofnað
muni liðsmenn
þess ferðast með
fljúgandi bílum.
Gerða og
Ninna eru stað-
ráðnar í að láta
drauma sína
rætast. Þær spila
götufótbolta af
miklum móð með
vinum sínum í hverfinu, stelpum og
strákum, milli þess sem þau leggja í
ævintýraför um hálfbyggðu húsin í
þessu nýjasta hverfi borgarinnar.
Ungfrú fótbolti er baráttusaga og
tvinnast barátta vinkvennanna sam-
an við kosningabaráttu Vigdísar
Finnbogadóttur, sem kjörin er for-
seti þetta örlagaríka sumar. Stöll-
urnar þrjár eiga það því sameigin-
legt að fara inn á keppnisvöll
karlanna, líkt og Brynhildur orðaði
það sjálf í viðtali við Morgunblaðið á
dögunum.
Brynhildi tekst að fanga tíðarand-
ann með einstökum hætti og það
leyfir undirrituð sér að fullyrða
þrátt fyrir að hafa ekki verið komin
til sögunnar fyrr en í lok níunda
áratugarins. Kók í gleri drukkið
með lakkrísröri, kúlur sem keyptar
voru fyrir glerið, sjónvarpslaus
fimmtudagskvöld og stressið sem
fylgir því að ýta á „rec“ á kass-
ettutækinu þegar uppáhaldslagið
hljómar loksins í útvarpinu á án efa
eftir að framkalla nostalgíu hjá þeim
sem eldri eru, en Ungfrú fótbolti
nær einmitt til breiðs aldurshóps.
Ungfrú fótbolti er dæmi um
íslenskar barna- og unglingabók-
menntir eins og þær gerast bestar.
Íslenskur veruleiki er teiknaður upp
með einstökum hætti og með því að
fara nær 40 ár aftur í tímann verður
ennþá áhugaverðara að fylgjast með
heimilislífinu í Breiðholtinu þar sem
einungis stelpur geta passað börn
en strákar eru sendir í sveit þar
sem þeir fá að keyra traktora.
Gerða og Ninna átta sig á áskor-
ununum sem þær standa frammi
fyrir en þær láta ekkert stoppa sig,
þó svo að það þýði að þær þurfi að
takast á við stærðarinnar verkefni
líkt og að spila með meistaraflokki,
sem reynist vera stór plús eftir allt
saman.
Fátt kemst að annað en fótbolti í
frásögninni, eðlilega, en frásagnir
Brynhildar eru hver annarri
skemmtilegri og líflegri, hvort sem
um er að ræða fámennan götubolta í
Birkiseli eða keppnisleik á Melavell-
inum. Þess á milli er atburðarásin
hröð og spennan magnast eftir því
sem líður að kjördegi, þrátt fyrir að
niðurstaðan sé öllum ljós. Kosninga-
baráttan og barátta vinkvennanna
fyrir tilverurétti sínum á fótbolta-
vellinum tvinnast saman og það er
dásamlegt að fylgjast með Gerðu og
Ninnu fá kraft og sjálfstraust til að
taka pláss og skora á hefðirnar.
Fyrirmyndir eru mikilvægar í frá-
sögninni og sést það einna best þeg-
ar vinkonurnar eiga erfitt með að
sjá sjálfar sig fyrir sér sem atvinnu-
konur í fótbolta þar sem einu fyrir-
myndir þeirra eru karlar, Ásgeir
Sigurvinsson og félagar. Vigdís hef-
ur sjálf sagt að þegar hún ólst upp
þekktist orðið fyrirmynd ekki en
henni þykir vænt um það í dag þeg-
ar stelpur koma til hennar og segja
henni að hún sé þeim fyrirmynd.
„Úr því að ég gat það þá getur þú
það.“ Nákvæmni Brynhildar er mikil
og vísar hún til að mynda í fréttir
frá sumrinu 1980 og öll ummæli sem
höfð eru um Vigdísi eru sönn.
Gerða og Ninna geta allt, það er
að minnsta kosti tilfinning lesanda.
Bókin yljar manni svo sannarlega
um hjartarætur, minnir á hversu
langt við erum komin í jafnréttisbar-
áttunni, en það er ekki langt síðan
við vorum á byrjunarreit. Á sama
tíma er ekki fullur sigur unninn.
Morgunblaðið/Hari
Best „Ungfrú fótbolti er dæmi um íslenskar barna- og unglingabókmenntir eins og þær gerast bestar,“ segir rýnir.
Ungmennabók
Ungfrú fótbolti bbbbn
Eftir Brynhildi Þórarinsdóttur.
Mál og menning, 2019. Innb., 293 bls.
ERLA MARÍA
MARKÚSDÓTTIR
BÆKUR
Fyrirmyndar-fótboltastelpur
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambíó.is