Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.11.2019, Síða 2
Af hverju er útivist með börnum mikilvæg?
Útivist hefur jákvæð áhrif á alla þroskaþætti barna enda sýna rann-
sóknir að náttúran hefur jákvæð áhrif á tugi ef ekki hundruð þátta
er varða heilsu bæði andlega, líkamlega og félagslega. Það er því
frábært veganesti út í lífið að alast upp við mikla útivist með frá-
bærum fyrirmyndum úti í náttúrunni. Útivist er lífsnauðsynleg
börnum, og fjölskylduáhugamál skiptir máli enda góð forvörn.
Hvernig kviknaði hugmyndin að bókinni Útiveru?
Ég er búin að vera með hana í kollinum í nokkur ár og kannski
síðustu þrjú hef ég fundið fyrir meiri þörf fyrir svona efni. Ég hef
haldið fyrirlestra og námskeið í hundraða tali fyrir foreldra og
starfsfólk leik- og grunnskóla og stundum vantar fólk bara einfald-
ar hugmyndir til að auka útivist með börnum og á sama tíma minnka
kyrrsetu.
Eiga hugmyndirnar eitthvað sameiginlegt?
Þær hafa allar áhrif á þroskaþætti barna á einn eða annan hátt. Ég er
ekki að telja upp hvað hver hugmynd mun þjálfa eða hafa áhrif á heldur
kýs ég einfalda og skemmtilega framsetningu. Hugmyndirnar eru ein-
faldar, krefjast lítils eða einskis tilkostnaðar, auðveldar í framkvæmd
og flestar hugmyndirnar er fjölskyldan kannski 10 mínútur að hefjast
handa við.
Getur þú komið með dæmi um skemmtilega útiveru
í nóvember?
Hver árstíð hefur sinn sjarma og nú erum við að detta í meira myrkur
og því tilvalið að fara í vasaljósagönguferð. Fara út í „nóttina“ er allt-
af pínu sport hjá börnum. Skella sér í náttföt og kuldagallann og lesa
eina sögu á vel völdum stað fyrir svefninn. Það sofa allir betur eftir
að fá ferskt loft í lungun og gæðastund í náttúrunni. Kakó á
brúsa myndi gera upplifunina enn skemmtilegri.
SABÍNA STEINUNN HALLDÓRSDÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
Frábært fjöl-
skylduáhugamál
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.11. 2019
Fyrir meira en tveimur áratugum héldum við sem heyrum til Knatt-spyrnufélagi Magnúsar Finnssonar, sem starfrækt hefur verið hér áMorgunblaðinu í rúm fjörutíu ár, sem leið lá í keppnisferð austur á
Litla-Hraun. Við höfðum frétt að þar væri sprækt knattspyrnulið, FC
Hrottar, og langaði að reyna okkur við það.
Eftir að hafa sent upplýsingar um leikmannahópinn, kennitölur, hreint
sakavottorð og annað slíkt lögðum við í’ann úr Kringlunni með langferða-
bifreið sem pöntuð hafði verið undir hópinn.
Það var norðan suddi þegar okkur bar að garði (segi ég sem þekki engar
áttir í þessu landi nema ég geti miðað við Vaðlaheiðina) og þegar við gengum
inn um hliðið og í átt að íþróttasalnum, þar sem við áttum að fá að skipta um
klæði, var ekki nokkur maður á ferli.
Skyndilega opnaðist gluggi á einni
byggingunni og hrópað var rámri
röddu: „Huuuuuundar!“ Að því búnu
var glugginn lagður aftur. Fullyrða
má að þarna hafi farið um einhverja í
hópnum.
Leikurinn hófst á tilsettum tíma
og var leikið á malarvelli, sem þá
var, við aðalbyggingu fangelsisins.
Nú er þar gervigras. Aðeins spark-
endurnir fengu útivistarleyfi af vist-
mönnum en hinir fjölmenntu út í
glugga og hvöttu sína menn ákaft til
dáða með dynjandi rúðuslætti.
Ekki voru margar mínútur liðnar
af leiknum þegar hreinsað var með slíkum myndarbrag að tuðran sveif yfir
girðinguna við völlinn; sem þó var ekki af minni gerðinni. Við magnúsingar
gláptum á eftir tuðrunni eins og tröll á heiðríkju og óttuðumst að leik væri
lokið. Ekki aldeilis. Einn varamanna gestgjafanna tók umsvifalaust á rás,
renndi sér gegnum holu undir girðinguna og hljóp eins og fætur toguðu niður
veginn til Stokkseyrar eða Eyrarbakka. Man aldrei hvort þorpið er nær. Við
gestirnir litum að vonum í forundran á fangavörðinn sem annaðist dóm-
gæslu. „Hann kemur aftur,“ fullyrti hann án þess að depla auga.
Sannarlega gerði hann það og leikurinn hélt áfram; vart mátti á milli sveit-
anna sjá. Glíman gekk að mestu leyti vel fyrir sig en harkan í einum vist-
manna fór þó svolítið fyrir brjóstið á okkur; hann tæklaði mann og annan upp
í háls og reif stólpakjaft. „Fyrir hvað situr þessi eiginlega inni?“ spurðum við
fangavörðinn forvitnir. Ekki stóð á svari: „Skjalafals!“
Eftir á að hyggja var ég hættast kominn í þessari ferð yfir flatböku á Sel-
fossi eftir leik. Pantaði svo sterka að ég hélt að kvikna myndi í mér.
Krakkar, við þurfum að stefna takkaskónum aftur á Hraunið!
Skjalafalsfréttir
Pistill
Orri Páll
Ormarsson
orri@mbl.is
’Einn varamannagestgjafanna tók umsvifalaust á rás,renndi sér gegnum holu
undir girðinguna og hljóp
eins og fætur toguðu
niður veginn ...
Eyrún Viktorsdóttir
Svona 23. desember.
SPURNING
DAGSINS
Hvenær
hefst jóla-
undirbún-
ingurinn?
Fjalar Vignisson
Ég kaupi jólagjafir í desember og
mæti svo í jólamatinn til mömmu.
Guðrún Kr. Sveinbjörnsdóttir
Alltof seint, um miðjan desember.
Þá set ég upp jólakransinn sem átti
að fara upp 1. des.
Kristján Jónasson
Í desember. Ég geri frekar lítið,
mamma sér um allt.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Eggert Jóhannesson
Sabína Steinunn Halldórsdóttir er höfundur bókarinnar Útivera. Bókin snýst um hugmyndir að útivist
sem fjölskyldan getur stundað saman. Útgáfuhóf bókarinnar er í Grasagarðinum á sunnudag kl. 14.
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma
M
or
gu
nb
la
ði
ð/
Á
rn
i S
æ
be
rg