Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.11.2019, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.11.2019, Blaðsíða 17
byrjun. Ráðherrann sá varð að biðjast afsökunar í bak og fyrir á særandi ummælum sínum og láta sig því næst hverfa í skammarkrók fram yfir kosningar. Næst barst tilkynning um að annar ráðherra úr aðalkjarna ríkisstjórnarinnar væri grunaður um að hafa stuðlað að eða hafa vitað um tilburði til að hylma yfir staðreyndir sem tengdust nauðgunarmáli sem væri í meðferð í dómskerfinu. Sá sendi í ofboði bréf til Borisar og tilkynnti afsögn sína sem stæði að minnsta kosti á meðan fyrrgreindar meintar ávirðingar væru rannsakaðar sem ráðherrann tók fram að hann væri alsaklaus af. Fleiri mál með neikvæðum formerkjum tóku að hrella forsætisráðherrann og flokk hans þennan fyrripart fyrsta dags kosningabaráttunnar og of langt upp að telja. Stuðningsmönnum Borisar brá í brún og fannst sem myrkur hefði skollið á um miðjan dag og kross- festing fyrirliðans hafin og sæi ekki fyrir neinn enda. Hjálpræði úr óvæntri átt En þá barst skyndilega önnur frétt af allt öðrum toga: „Varaleiðtogi breska Verkamannaflokksins, Tom Watson, hefur sagt af sér og jafnframt tilkynnt að hann verði ekki í framboði í kjördæmi sínu í kosn- ingunum og hefur flokkurinn aðeins örfáa daga til að finna frambjóðanda fyrir lok framboðsfrests.“ Í einni svipan sópuðust öll vandræði Borisar undir þykkt teppi og laghentir menn munduðu hamrana til að krossfesta Corbyn. Þekkt örlög í Verkamannaflokki Hver var að japla á að vika væri langur tími í pólitík? Hálftími eða minna er augljóslega hellingur. Tom Watson var ekki einungis varaformaður flokksins síns svo notuð sé íslensk skilgreining. Hann var þungavigtarmaður þar og með lykilspil á hendi. Og þar skipti mestu að hann var leiðtogi þeirra sem komust næst því að flokkast sem borgaraleg öfl innan Verkamannaflokksins. Fólkið sem var tilfinningalega tengt Blair og horfir enn í hillingum til ótrúlegra sigra hans í þrennum kosningum frá 1997 og síðar og horfir um leið til með hryllingi til Corbyns og þykir hann vera langt handan við þau mörk að teljast tæk- ur sem leiðtogi. Corbyn er sagður vinstrisinnaðasti leiðtogi í nú- tímasögu Verkamannaflokksins og er þá Michael Foot talinn með. Árið 1981, í formennskutíð Foots, var miðjan í Verkamannaflokknum búin að fá upp í kok og braut sig út og stofnaði krataflokk með fullu viti. Var sá flokkur undir forystu David Owen, Roy Jenkins og Shirley Williams sem töldust áður til framvarðarsveitar Verkamannaflokksins. Náði nýi flokkurinn verulegu fylgi í könnunum en það stóð fremur stutt. En Foot var talinn með einstrengings- hætti sínum hafa lagt grundvöllinn að sigurgöngu Íhaldsflokksins undir forystu sigursælasta foringja hans, Margrétar Thatcher. Áhrifavaldur Tom Watson hefur verið helsti talsmaður „lýðræð- isarms Verkamannaflokksins“ og sagt er að hann hafi talið drjúgan hluta þingflokksins á að umbera yrði harðsósíalistann Jeremy Corbyn og bíða hann hreinlega af sér. Ekki löngu eftir að sprengjufréttin barst héldu tveir fyrrverandi þingmenn Verka- mannaflokksins opinn blaðamannafund þar sem þeir skoruðu á flokkssystkini sín að styðja forsætisráð- herrann Boris Johnson í þessum kosningum því að Jeremy Corbyn væri, sem leiðtogi, verri en óhæfur. Hann væri, að þeirra mati, beinlínis hættulegur. Þegar fréttir bárust af þeirri viðbót við brottför Watsons úr flokknum sögðu fjölmiðlar, hlynntir Verkamannaflokknum, að þarna glitti óneitanlega í saman tekin ráð og að upplýsa yrði hverjir hefðu kostað hinn opna fund og þau auglýsingaspjöld sem voru bakgrunnur á fundinum. Slíkt þurfi tíma og fé til að hanna og útbúa. En skaðinn var skeður, hvað sem þessum vangaveltum leið. Fréttaskýrendur af öllum köntum voru sammála um að þeir þekktu ekki til dæma úr nýlegri sögu landsins um að háttsettur ráðherra segði sig úr rík- isstjórninni í upphafi kosninga og að samdægurs bærust fréttir úr herbúðum andstæðinganna sem næðu að toppa þau ósköp og gera gott betur. Aðstoðarritstjóri Daily Mail sagði að þeir íhalds- menn sem væru yfirlýstir guðleysingjar þyrftu held- ur betur að skoða sín mál á ný því að varla hefði nokkur annar en guð almáttugur verið í færum um að senda þeim Tom Watson svo hratt og óvænt á stund neyðar og örvæntingar. Niðurstaða að hætti hússins Skoðanakannanir sýna Íhaldsflokkinn enn í álitlegri stöðu þótt nokkuð hafi dregið saman með stóru flokk- unum tveimur síðustu daga. En ítrekað er bent á að kannanir um fylgi á landsvísu segja fjarri því alla söguna vegna breska kosningakerfisins sem flokkar nýti sér nú eða misnoti í ríkari mæli en áður til að gera bandalag í kjördæmum til að nýta til fulls at- kvæði þeirra sem vilja vera áfram í ESB, hvað sem tautar eða raular. Og eins sé enn á huldu hversu mik- ið fylgi Nigel Farage kann að hafa af stóru flokk- unum og þá einkum af flokki Borisar sem hefur fram að þessu algjörlega afþakkað allt samkrull við flokk Farage, hvað sem ráðleggingum Trumps vinar hans líður. Á sambærilegu augnabliki orðaði stjórnmálafræð- ingurinn dr. Ragnar Reykás, cand. sjúr, þetta svona: „Staðan er sem sagt mjög flókin og óljós, þótt hún sé að öðru leyti gagnsæ og útkoman blasi við hverjum manni, nema glöggt sé skoðað.“ Bréfritari heldur að þetta kunni að vera rétt hjá Ragnari nema síður sé, sem Ragnar er augljóslega ekki. Morgunblaðið/RAX 10.11. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.