Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.12.2019, Page 15
1.12. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
Að vonum eru teknar ákvarðanir hjá Fang-
elsismálastofnun sem ekki hugnast öllum; síst
þeim sem dæmdir eru.
„Ég hef passað að umgangast það vald sem
Fangelsismálastofnun hefur með auðmýkt.
Ég passa upp á að reglur og verklag sem við
vinnum eftir séu skýrar þannig að sem minnst
svigrúm sé fyrir geðþóttaákvarðanir. Vissu-
lega ber ég sem forstjóri ábyrgð á öllu sem
gert er hérna en ég er búinn að ganga þannig
um hnútana að enginn einn getur tekið veiga-
miklar ákvarðanir. Allar ákvarðanir eru tekn-
ar á fundum og færðar til bókar. Ég get ekki
einn ákveðið neitt; það er teymisvinna í gangi.
Ég er búinn að tempra völd einstaklinga
hérna innan stofnunarinnar og hef þar með
dregið úr líkum á spillingu og klíkuskap,“ seg-
ir hann.
„Það eru ekki mörg ár síðan ýmsir stjórn-
málamenn og áberandi fólk í samfélaginu
hringdi í mig og vildi fá greiða. En það er alveg
búið.“
Nú hefur þú þroskast í starfi með árunum
og séð ýmislegt. Er til vont fólk?
„Já. Það er til vont fólk. Það hefur fólk farið
hér í gegnum kerfið sem ég hef trú á að verði
brotamenn alla tíð. En það eru algjörar undan-
tekningar. Ég hef trú á að flestir geti betrast,
og fái þeir hlýju og væntumþykju og finni að
öllum sé ekki sama um þá, þá geti þeir komist
á fætur. Það er virkilega skemmtilegt að rek-
ast á einstaklinga sem voru lengi inni í fangelsi
og ítrekað, sem eru svo allt í einu bara í röðinni
með þér á Serrano; eru að koma úr vinnunni
og í fínum gír.“
Heilsa þeir þér?
„Já, já! Ég fæ líka bréf annað slagið frá
gömlum skjólstæðingum sem segja mér að
þeir séu á lífi og allt gangi vel og það er
skemmtilegt.“
Myrkur í vinnunni
Hvernig er týpískur dagur fangelsismála-
stjóra?
„Það er allt í fínu lagi í fangelsiskerfinu
þegar ég hef ekkert að gera,“ segir Páll og
hlær.
„Ég fylgist auðvitað vel með öllu og fer yfir
dagbækurnar og skoða hvað hefur gerst síð-
asta sólarhring í öllum fangelsunum. Síðan er
mjög misjafnt hvað ég geri. Það fer talsverður
tími í að svara fyrirspurnum fjölmiðla og svo
er ég mikið á fundum í ráðuneytum vegna ým-
issa stýrihópa eða nefndavinnu. Svo held ég
starfsmannafundi mánaðarlega í stóru fang-
elsunum og þvælist á milli fangelsa og fylgist
með,“ segir Páll og nefnir að í heildina vinni
undir Fangelsismálastofnun 140 manns, þar af
nítján á skrifstofunni.
Hvað er það erfiðasta við starfið þitt?
„Það er að setja skýr skil og taka ekki vinn-
una með mér heim. Þessi heimur getur verið
grimmur og oft verið að fjalla um ljót mál og
ég á það stundum til að taka það með heim.
Það vill svo vel til að ég á maka sem er bros-
mildur og glaður. Það getur verið mikið myrk-
ur í þessari vinnu og oft erfitt að kúpla sig út.
Ég hefði ekki þraukað svona lengi ef ég væri
ekki með svona samheldið og öflugt samstarfs-
fólk.“
Páll er í sambúð með fréttastjóranum Mörtu
Maríu Jónasdóttur og eiga þau samtals fjögur
börn á aldrinum tíu til sautján.
„Við tókum stóra skrefið og fluttum saman í
mars eftir að hafa verið saman í fjögur ár. Það
gengur mjög vel og hún er búin að laga sig að
því að búa með manni sem fer varlega. Og ég
er búinn að laga mig að því að búa með konu
sem hefur gaman af lífinu,“ segir hann og
brosir breitt.
Eruð þið yin og yang?
„Alveg hreint! Það er ótrúlegt hvernig svona
ólíkir aðilar geta laðast að hvor öðrum. Við er-
um eins ólík og mögulegt er en það gengur
prýðilega. Ég segi henni frá ljótu málunum og
hún segir mér frá samkvæmismálunum og
þannig verður hið fullkomna samtal,“ segir
Páll og hlær.
„Það er virkilega skemmtilegt að rekast á
einstaklinga sem voru lengi inni í fangelsi
og ítrekað, sem eru svo allt í einu bara í
röðinni með þér á Serrano; eru að koma
úr vinnunni og í fínum gír,“ segir Páll.
Morgunblaðið/Ásdís
Heyrnartækni | Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Landsbyggðaþjónusta | Sími 568 6880
Prófaðu nýju Opn S heyrnartækin í 7 daga
- Tímabókanir í síma 568 6880
Stærsta áskorun einstaklinga með skerta heyrn er að fylgjast með samtali í fjölmenni og klið. Nýju Opn S heyrnartækin frá Oticon skanna
allt hljóðumhverfið 100 sinnum á sekúndu og framkvæma 56.000 hljóðmælingar á sama tíma! Einstaklega hröð og nákvæm hljóðúrvinnsla
í Opn S heyrnartækjunum skilar þér margfalt betri talskilningi í krefjandi aðstæðum en fyrri kynslóð heyrnartækja. Hægt er að fá Opn S
með endurhlaðanlegum rafhlöðum!
Ertu einangraður
í margmenni og klið?