Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.12.2019, Page 19
1.12. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
Ágústa og Ómar reka ferðaskrif-stofuna IC Iceland og sérhæfasig í einkaferðum í súp-
erjeppum um land allt. Nýjasta verk-
efnaviðbótin er fjallaskálinn Cabin 9,
sem bæði er ætlaður til útleigu og fyrir
fjölskyldu hjónanna að njóta saman.
„Við keyptum einingahús, tókum við
því fokheldu og kláruðum sjálf. Húsið
er 150 fermetrar á tveimur hæðum
með fjórum svefnherbergjum. Það eru
tvö baðherbergi, baðkar og sána,“ út-
skýrir Ágústa, en Hrífunes er frábær-
lega staðsett og stutt í margar af
helstu náttúruperlum landsins. „Það-
an eru tveir tímar í Jökulsárlón á
Breiðamerkursandi, stutt upp á há-
lendið í Landmannalaugar, á Mæli-
fellssand, Langasjó og Lakagíga.“
Spurð hvað hafi heillað fyrst og
fremst við staðsetninguna nefnir
Ágústa fallegt útsýni og friðsælt um-
hverfi.
Stílhreint og skandinavískt
„Við vildum hafa þetta í skandinav-
ískum stíl, vandaður fjallaskáli, ein-
faldur og stílhreinn,“ útskýrir Ágústa
spurð út í stílinn á húsinu.
Hún segir hjónin hafa lagt mikla
áherslu við innréttingu bústaðarins á
að vel færi um alla sem þangað kæmu.
„Eldunaraðstaðan og alrýmið er rúm-
gott og vel útbúið. Rúm, sængur og
sængurver eru fyrsta flokks og aðbún-
aður eins í öllum herbergjum svo jafn
vel fari um alla.“
Ágústa segist hafa verslað víða inn í
bústaðinn en verslanir á borð við Hús-
gagnahöllina, ILVA, Signature,
Söstrene Grene og Heimilistæki eru í
eftirlæti auk þess sem sumt kemur að
utan. Eftirlætishluturinn á heimilinu
sé þó borðstofuboðið. „Fallega eik-
arborðstofuborðið okkar er alveg
uppáhalds. Það er tæpir 4 metrar á
lengd, smíðað af syni okkar Marinó
sem starfar hjá Irmu. Borðfæturna
fengum við í Norr11. Gluggarnir og út-
sýnið toppa svo allt.“
Spurð hver sé eftirlætisstaður fjöl-
skyldunnar í bústaðnum nefnir Ágústa
samverustundirnar í alrýminu. „Loft-
hæðin í alrýminu nær sjö metrum þar
sem það er hæst og gerir það að verk-
um að efri hæðin er varla undir súð.
Það getur farið vel um okkur öll 17 við
matseld, borðhald og leik.“
Spurð að lokum hvort eitthvað sé á
óskalistanum inn á heimið segir hún
mikilvægt að ofhlaða ekki húsið af
hlutum heldur bara njóta, fara í
gönguferðir og skoða umhverfið betur.
„Í Hrífunesi er hægt að fara í hjóla-
ferðir og sleðaferðir og skapa ynd-
islegar minningar með fjölskyldunni.“
Ljósmyndir/Íris Ann
Falleg smáatriði
setja punktinn
yfir i-ið.
Hjónin leggja
áherslu á gæði
og vandað
vinnubragð.
Ágústa leggur áherslu á að
halda bústaðnum stílhreinum.
Útsýnið
toppar allt
Hjónin Ágústa Hreinsdóttir og Sigurður Óm-
ar Sigurðsson tóku við fokheldu einingarhúsi
við Hrífunes og bjuggu þar dásamlegan fjalla-
skála í skandinavískum stíl.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Útsýnið úr stórum stofugluggunum er óborganlegt.
Hlýlegt svefn-
herbergi í fjalla-
skálanum.
EXTRA
AF VÖLDUM VÖRUM
VEFVERSLUN
www.husgagnahollin.is
OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN