Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.12.2019, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.12. 2019
LÍFSSTÍLL
Skóli vonarinnar í Beit Jala áVesturbakkanum ber nafnmeð rentu. Palestínsk ung-
menni sem mörg hver eiga fárra
annarra kosta völ fá þar menntun og
viðspyrnu fyrir framtíðina. Skólinn
hefur veitt fjölda nemenda tækifæri
eftir að þeir náðu ekki settu marki
annars staðar, ýmist vegna fjárhags-
erfiðleika, félagslegra aðstæðna eða
námsörðugleika. Hann er rekinn
fyrir sjálfsaflafé að hluta og reiðir
sig mjög á stuðning. Íslenskir vel-
unnarar hafa lengi styrkt skóla-
starfið og hófst sá stuðningur fyrir
forgöngu Ólafs Jóhannssonar.
Greinarhöfundur og eiginkona
hans heimsóttu Landið helga um síð-
ustu páska og var tækifærið notað til
að heimsækja skólann. Nemendur
voru flestir í páskafríi, en nokkrir
höfðu valið að dvelja á heimavistinni
yfir hátíðina vegna bágra aðstæðna
heima fyrir.
Beit Jala er þorp í Betlehemshér-
aði á Vesturbakkanum, um 10 km
suður af Jerúsalem. Íbúarnir eru
kristnir og múslimar, meirihlutinn
kristinnar trúar og tilheyra margir
grísku rétttrúnaðarkirkjunni.
Var skóli Mennóníta
Khader Saba skólastjóri tók á móti
okkur. Hann er með MA-gráðu í al-
þjóðasamskiptum og starfaði m.a. á
aðalskrifstofu YMCA (KFUM) í
Jerúsalem við að stýra áætlun um að
efla fjárhag fátækra fjölskyldna á
Vesturbakkanum og Gaza. Einnig
starfaði hann hjá SOS barnaþorpum
áður en hann tók við skólastjórninni.
Saba sagði að bandarískir mennó-
nítar hefðu stofnað skólann árið 1962
til að mennta ungmenni frá svæðinu í
kringum Betlehem. Í byrjun var
pláss fyrir 50-60 drengi í 7.-12. bekk.
Strákarnir komu margir frá sundr-
uðum heimilum eða af götunni og
fengu inni á heimavist. Þegar Mennó-
nítakirkjan dró sig út úr rekstrinum
árið 1976 stofnuðu heimamenn Arab-
ísku góðgerðarsamtökin sem tóku við
rekstrinum. Mennónítarnir styrktu
rekstur skólans til ársins 2007. Þá-
verandi skólastjóri lést 2011. Hagur
skólans versnaði hratt í kjölfarið svo
lá við gjaldþroti og var orðið tvísýnt
um reksturinn árið 2013. Skólinn
skuldaði þá um 350.000 bandaríkja-
dali. Starfsmennirnir 23 fengu ekki
kaupið sitt að fullu og sögðu upp einn
af öðrum.
Miklir rekstrarörðugleikar
„Ég vissi af Skóla vonarinnar en
hafði aldrei hugsað mér að vinna
hér,“ sagði Saba. Breskur maður
sem studdi skólann heimsótti Saba
ásamt vini þeirra og spurði hvort til
greina kæmi að Saba kæmi að
rekstrinum í hlutastarfi, ella yrði
honum lokað. Engin laun voru í boði.
„Ég var hikandi fyrst en féllst svo
á að gera þetta þótt ég hefði meira
en nóg að gera,“ sagði Saba. „Ég var
mættur hér klukkan sjö á morgnana
og vann fram undir tíu þegar ég fór í
launuðu vinnuna hjá YMCA þar sem
ég vann til klukkan fimm síðdegis.
Þá kom ég aftur hingað og vann fram
á kvöld.“ Hann sagði að þetta hefði
verið erfiðasti tími lífs síns hvað
vinnu varðar en mjög gefandi að gefa
fátækum börnum nýtt tækifæri.
Þegar Saba kom að skólanum
voru 58 nemendur í 7.-12. bekk.
Skólahúsið var í niðurníðslu og þakið
lak. Skólalóðin varð eitt drullusvað
þegar rigndi. Miðstöðin biluð sem
kom sér illa því skólinn er uppi á
hæð sem kölluð er „Everest“ þar
sem verður kaldast í Beit Jala.
Skólastarfið er byggt á kristi-
legum grunni en óháð öllum kirkju-
Ljósmynd/hopesschoolbeitjala.co
Skóli vonarinnar gefur von
Stúlkur eru um þriðjungur 150 nemenda í Skóla vonarinnar.
Ljósmynd/hopesschoolbeitjala.co
Uppskerutími er alltaf ánægjulegur.
Ljósmynd/hopesschoolbeitjala.co
Palestínsk börn og ungmenni fá menntun og
viðspyrnu fyrir framtíðina í Skóla vonarinnar í
Beit Jala á Vesturbakkanum. Nemendur og
kennarar eru ýmist kristnir eða múslimar.
Guðni Einarsson gudni@mbl.is
Skólinn leggur áherslu á friðar-
fræðslu. Khader Saba skóla-
stjóri er lengst til hægri.