Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.12.2019, Blaðsíða 29
„Gott skrímsli“
Dirty God fjallar um unga konu
sem reynir að koma undir sig fót-
unum á ný eftir að hafa orðið fyrir
sýruárás en myndin þykir veita
magnaða sýn inn í heim fólks sem
finnst því vera útskúfað vegna út-
litsins. Karakterinn, Jade, sem
Knight leikur, verður fyrir þeim
ósköpum að dóttir hennar hræðist
hana eftir árásina og sannfæra
þarf hana um að móðir hennar sé
„gott skrímsli“. Gert er grín að
Jade í vinnunni og hún leiðist út í
að fróa sér fyrir framan áhorf-
endur á netinu – ljósið dauft til að
hylja örin.
„Til að byrja mér var mér ekkert
um það gefið,“ segir Knight um
nektarsenurnar. „Ég hafði aldrei
sýnt neinum líkama minn í kynferð-
islegum tilgangi. Svæfi ég hjá, þá
var ég alltaf í ermabol. En mér
finnst þetta koma vel út í myndinni.
Alls ekki dónalegt.“
Hún segir tökurnar á myndinni
hafa reynt á sálarlífið enda var hún
að endurupplifa allt sem hún hafði
gengið í gegnum sjálf. „Ég marg-
brotnaði niður á settinu og skaut
leikstjóranum í tvígang skelk í
bringu.“
Eins erfitt og þetta var þá kveðst
Knight ekki mundu vera hérna án
Dirty God. „Það var ekki fyrr en ég
sá Dirty God í fyrsta sinn að ég sá
einhverja aðra, ekki sjálfa mig,
með örin mín. Myndin bjargaði lífi
mínu. Ég gafst hér um bil upp og
manni eru engir vegir færir inni í
kassanum. Ég átta mig á því nú að
það er ekkert að því að vera öðru-
vísi. Í raun er það betra en að vera
venjulegur. Mig langar að lifa. Vil
ekki deyja. Ég vil lifa lengur en yf-
irgangsseggirnir sem gerðu mér
lífið leitt.“
Vildi vera í
slökkviliðinu
Knight langaði að leggja
slökkvistörf fyrir sig en var tjáð
að hún myndi aldrei ná inn-
tökuprófinu vegna sára sinna.
Undanfarin misseri hefur hún
skipt tíma sínum á milli þess að
vinna sem aðstoðarmanneskja á
sjúkrahúsi í Chelmsford og reyna
fyrir sér í áheyrnarprufum. Ef að
líkum lætur mun hún ekki hafa
mikinn tíma fyrir spítalann á
næstunni en Knight hefur bæði
verið tilnefnd sem besta leikkonan
og besti nýliðinn á Sjálfstæðu
kvikmyndaverðlaununum í Bret-
landi og sem besti nýliðinn á
Bafta.
Spurð hvernig þessi nýfundna
frægð leggist í hana svarar
Knight: „Ég get ekki lengur farið
út með viðhorfið: Hættu að glápa
á mig! Vegna þess að ég veit ekki
hvers vegna fólk er að horfa. Ég
er ekki lengur þekkt sem stúlkan
með örin. Ég er stúlkan í bíó-
myndinni.“
Vicky Knight á rauða
dreglinum fyrir frum-
sýninguna á Dirty God.
AFP
1.12. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
ROKK Sammy Hagar rifjaði upp
fyrstu kynni sín af Van Halen í spjalli í
Grammy-safninu í Los Angeles á dög-
unum, en söngvarinn gekk til liðs við
bandið árið 1985. „Þegar ég gekk inn í
hljóðverið voru gaurarnir eins og rón-
ar – bjórflöskur og sígarettustubbar.
Þetta var eins sóðaleg og mikið rokk
og ról og það gat orðið. Eddie [Van
Halen] hafði sofnað í öllum fötunum,
fór á fætur og byrjaði að vinna án þess
að skipta um föt. Jæja, lagsi, hugsaði
ég með mér, þetta eru alvöru menn –
og lagaði mig að aðstæðum.“
Eins sóðalegt og það gat orðið
Sammy Hagar í Grammy-safninu.
AFP
BÓKSALA 1.-24. NÓVEMBER
Tekið saman af Félagi íslenskra bókaútgefenda
1 Tregasteinn Arnaldur Indriðason
2 Um tímann og vatnið Andri Snær Magnason
3 Þögn Yrsa Sigurðardóttir
4 Þinn eigin tölvuleikur Ævar Þór Benediktsson
5 Leikskólalögin okkar Jón Ólafsson o.fl.
6 Gamlárskvöld með Láru Birgitta Haukdal
7 Lára fer í sveitina Birgitta Haukdal
8 Innflytjandinn Ólafur Jóhann Ólafsson
9 Hvítidauði Ragnar Jónasson
10 Hnífur Jo Nesbø
11 Tilfinningabyltingin Auður Jónsdóttir
12 Útkall – tifandi tímasprengja Óttar Sveinsson
13
Vigdís – bókin um fyrsta
konuforsetann
Rán Flygenring
14
Ekkert að fela – á slóð
Samherja í Afríku
Helgi Seljan
15 Slæmur pabbi David Walliams
16
Björgvin Páll Gústavsson
– án filters
Björgvin Páll Gústavsson og
Sölvi Tryggvason
17 Prjónastund Lene Holme Samsö
18
Orri óstöðvandi – hefnd
glæponanna
Bjarni Fritzson
19 Vængjaþytur vonarinnar Margrét Dagmar Ericsdóttir
20 Kindasögur Guðjón Ragnar Jónasson
Allar bækur
Þessa dagana seilist ég annað veif-
ið í bókina On Writing – A
Memoir of the
Craft eftir meist-
ara Stephen King.
Ég er að bauka ögn
við að skrifa og þá
er gott að eiga
þöglar samræður
við einhvern sem
kann til verka.
King brýnir fyrir
rithöfundum mik-
ilvægi þess að þeir fylgist grannt
með hversdagsleikanum eða taki
eftir því sem þeir taka eftir, eins
og Þorvaldur heitinn Þor-
steinsson, rithöfundurinn og
myndlistarmaðurinn snjalli, gæti
hafa orðað það.
Það er skemmtilegt að verða
áskynja virðingarinnar sem King
auðsýnir öðrum stórmeisturum
heimsbók-
menntanna. Hann
sagði t.d. einhverju
sinni eitthvað í þá
veru að sér væri
fyrirmunað að rita
nokkuð jafngott og
besta verk John
Steinbeck, Þrúgur
reiðinnar, jafnvel þó að hann
streðaði við það í þúsund ár.
Kannski nýtir King sér það vísvit-
andi að auðmýktin lýkur upp dyr-
um nýrrar þekkingar, sem er öll-
um skapandi listamönnum
nauðsyn.
Allt um það þá verður þessi til-
vitnun auðvitað til þess að ég dreg
fram bókina The Grapes of Wrath
úr bókaskápnum og hlakka til að
lesa hana á ný. Sögusviðið er
kreppan mikla í Bandaríkjunum
sem skall á haustið 1929 og olli því
að heilu bændasamfélögin flosn-
uðu upp, fjölmargar fjölskyldur
neyddust til að bregða búi og
leggja upp í óvissuför til fyrir-
heitna landsins í vestri, Kaliforníu.
Það er engin tilviljun að Steinbeck
hlaut Nóbelsverðlaunin fyrir þessa
bók, þvílík nærfærni og snilld sem
einkennir lýsingar hans á mönn-
um, dýrum, umhverfi og að-
stæðum í bókinni.
Grunnstefið er
reiðin, sem getur
verið sumum
sjálfseyðandi elds-
neyti en veitt öðr-
um þrótt til að lifa
af erfiðar að-
stæður.
Aðrar bækur
sem eru innan seilingar frá skrif-
borðinu mínu í þessum rituðum
orðum eru Greek Mythology – A
Traveller‘s Guide
from Mount
Olympus to Troy
eftir David Stutt-
ard, The Social
Organism eftir Ís-
landsvininn Oliver
Luckett og Mich-
ael J. Casey og
meistaraverkið sí-
gilda Hundrað ára
einsemd eftir
Gabriel Garcia
Marquez. Meðal
nýútkominna
góðra bóka sem
ég hef áhuga á að
lesa má nefna
Nornina eftir Hildi
Knúts, sem hlýtur mikið lof.
JÓN ÞORVALDSSON ER AÐ LESA
Streðað í þúsund ár
Jón Þorvalds-
son er eigandi
og fram-
kvæmdastjóri
Eflis almanna-
tengsla.
SKILLBIKE er nýtt byltingarkenntæfingarhjól frá Technogym, búið gírskiptingum eins og í venjulegu
götuhjóli sem byggt er á nýrri tækni Multidrive™. SKILLBIKE er hannað til líkja semmest eftir raun-
verulegumhjólreiðum en hjólið hefur hlotið fjölda alþjóðlegra verðlauna fyrir hönnun og nýsköpun.
Skoðaðu hjólið í sýningarsal okkar, hjá Holmris Síðumúla 35
NÝTT BYLTINGARKENNT
ÆFINGAHJÓL
Síðumúli 35 | 108 Reykjavík | S. 568 2828 | www.holmris.is