Morgunblaðið - 18.12.2019, Blaðsíða 16
16 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2019
Nú hefur enn eitt
illviðrið skollið á land-
inu og valdið ýmiss
konar usla og tjóni,
jafnvel hörmulegu
manntjóni. Engum
ætti að koma illviðri af
þessu tagi á óvart. Það
er nánast árvisst.
Dreifikerfi raf-
magns hefur orðið illa
fyrir barðinu á þessu
veðri, aðallega norðanlands þar sem
veðrið var verst. Ljóst má vera að
dreifikerfið, sem aðallega byggist á
loftlínum, er engan veginn í stakk
búið til að þola það álag, er ísing
hleðst á línurnar og sligar þær.
Fyrir þessu er margra ára reynsla
og er óumdeilt.
Það ætti að vera hverjum heilvita
manni ljóst að jarðstrengir eru mun
öruggari til orkudreifingar í því
veðurfari, sem ríkir á landinu. Svo
einkennilegt sem það er hafa tals-
menn orkugeirans verið andsnúnir
jarðstrengjum aðallega með þeim
rökum að jarðstrengir séu dýrari
og tæknilega erfiðari í lagningu og
rekstri. Sé einhver munur hér á er
hann þó næsta óverulegur og eins
víst að jarðstrengir séu hagstæðari
ef allt er talið með svo sem um-
hverfiskostnaður, rekstursöryggi,
óvæntur viðgerðarkostnaður, tafa-
kostnaður og kostnaður við mála-
ferli í því skyni að þvinga loftlínur
upp á landeigendur og sveitarfélög,
sem kæra sig ekkert um þær.
Dæmi hér um er Suðurnesjalína
2 þar sem Landsnet hefur farið með
offorsi, slökum undirbúningi og
ómældum kostnaði gegn landeig-
endum á Suðurnesjum, sem halda
til streitu lögvörðum og stjórn-
arskrárvörðum eignarréttindum
sínum og í krafti þeirra haft sigur
yfir orkugeiranum fyrir dóm-
stólum.
Nú heyrist úr herbúðum orku-
geirans að óskilvirkt leyfisveit-
ingakerfi tefji fyrir því að dreifingu
orkunnar verði komið í lag. Þetta er
auðvitað fjarri sanni og aðeins enn
ein tilraunin til að af-
saka og útskýra slök
vinnubrögð á und-
anförnum árum og
áratugum í þessu efni.
Væri Landsnet
tilbúið að leggja Suð-
urnesjalínu 2 í jörð
meðfram Reykjanes-
brautinni væri hægt að
semja um það mál á
nokkrum klukkutím-
um. Karp um þessa
línu hefur nú staðið í
nokkur ár og ekkert
miðað. Hver lögsóknin hefur tekið
við af annarri. Hér er auðvitað fyrst
og fremst furðulegri þvermóðsku
og þröngsýni Landsnets um að
kenna sem að því er virðist hefur
gengist upp í því að berja hausnum
við steininn í trássi við skyn-
samlegar óskir landeigenda og
sveitarfélaga á svæðinu.
Reyndar hafa talsmenn orkugeir-
ans kallað eftir víðtækari stuðningi
yfirvalda við að leggja raflínur í
jörð. Það hefur litlar undirtektir
fengið enda ætti þess kannski ekki
að þurfa því kostirnir tala fyrir sig
sjálfir. Það segir sig líka sjálft, að
rekstursöryggi skiptir höfuðmáli og
vonandi skilja ráðamenn innan
orkugeirans sem og þjóðkjörnir
handhafar framkvæmdavaldsins
fljótlega að ísing hleðst ekki utan á
jarðstrengi. Menn virðast þó al-
mennt vera komnir á þá skoðun að
raflínur á lægri spennustigum sé
hagkvæmara að hafa neðanjarðar.
Enn er þumbast við um stóriðju-
línur. Þær ættu auðvitað að vera
neðanjarðar líka ekki sízt af um-
hverfis- og öryggisástæðum. Að
rafmagn úr loftlínum hérlendis sé
auðstýranlegra en frá jarð-
strengjum er ekki sérlega trúverð-
ugt. Sé svo þarf að finna lausn ná
því. Jarðstrengir á hærri spennu-
stigum eru reknir vítt um lönd
vandræðalaust.
Furðulegar röksemdarfærslur
heyrast frá talsmönnum orkugeir-
ans sem rök gegn jarðstrengjum
svo sem að jarðstrengir kalli fram
meiri umhverfisáhrif en loftlínur.
Hverjum heilvita og hugsandi
manni ætti að vera ljóst að þetta er
hin mesta fjarstæða. Það grær
fljótt yfir skurðina eftir að mokað
hefur verið ofan í þá og þeir hverfa
ásamt ummerkjum um fram-
kvæmdir. Dæmin sanna það. Jafn-
vel í hraunum er gamburmosinn
fljótur að fela framkvæmdarask.
Svo er heldur ekki hraun alls
staðar.
Það hefur líka heyrzt, að menn
vilji ekki fá jarðstrengi yfir lönd
sín. Einhver slík eintök kunna að
finnast en þau eru áreiðanlega fá.
Með skynsamlegum fortölum ætti
að mega sannfæra þverhausa um
hina augljósu kosti jarðstrengja
umfram loftlínur. Það er að segja ef
það er talsmönnum orkugeirans
þóknanlegt.
En niðurstaðan má ljós vera.
Orkugeirinn hlýtur að bera ábyrgð
á ástandi dreifikerfis raforku á
landinu. Fram hefur komið að ekki
skortir fé til þessa málaflokks held-
ur er ástandið slæmt vegna þver-
móðsku forsvarsmanna, sem haldið
hafa til streitu óraunhæfum lausn-
um í trássi við heilbrigða skynsemi
og vilja hins almenna notanda. Tals-
menn orkugeirans ættu að líta í eig-
in barm, breyta um vinnubrögð og
áherzlur í stað þess að kenna óskil-
virku leyfisveitingakerfi um óboð-
legt ástand í dreifingu orku á lands-
byggðinni. Þjóðkjörnir handhafar
framkvæmdavaldsins ættu síðan að
krefja forsvarsmenn orkugeirans
um bætt og breytt vinnubrögð í
þessu efni og beita síðan öllum til-
tækum aðhaldsráðum til að tryggja
að nauðsynlegum árangri verði náð.
Af rafmagnstruflunum
og raflínum
Eftir Sverri
Ólafsson » Vonandi skilja ráða-
menn innan orku-
geirans sem og þjóð-
kjörnir handhafar
framkvæmdavaldsins
fljótlega að ísing hleðst
ekki utan á jarðstrengi.
Sverrir Ólafsson
Höfundur er viðskiptafræðingur.
sverrirolafs@simnet.is
Fræðingar okkar
finna engan veginn út
ástæðu þess að stórar
hvalavöður synda upp
í fjöru og stranda þar
oft í stórhópum. Nú
síðast voru menn við
björgun á stórri hvala-
vöðu norður af
Reykjanesi og enginn
skilur hvað það er sem
ruglar hvalina svo
hastarlega í ríminu en það eru vissir
þættir sem menn taka eftir. Af
hverju stranda þeir á svona stöðum,
af hverju ekki við suðurströnd
landsins, sem þó er gríðarlega löng
sandströnd og mjúkt undirlag?
Ég undirritaður man ekki eftir
strandi við suðurströnd landsins,
gaman væri ef fræðingar okkar
gætu fundið eitthvað út úr þessum
málum þar sem nálgast má ein-
hvern sannleik um þessi furðulegu
og skrítnu mál. Við sátum nokkrir
félagar við matborðið í eldhúsinu í
hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í
Kópavogi og skemmtum okkur við
alls konar orðaleiki. Ræddi einn
okkar að það væru mörg strönd
(þ.e. skipströnd) þarna við Reykja-
nesið og fann þá annar út að þarna
væri jú löng strönd þannig að það
væri ekki skrítið þótt þarna yrðu
mörg strönd. En gamanlaust þá var
einn okkar að skýra frá því að þarna
hefðu orðið margir skipskaðar og
það hefði verið álit sérfræðinga að
svo mikið járn væri í berginu þarna
að það hefði hugsanlega ruglað átta-
vita þannig að þessir
mörgu skipskaðar
hefðu orðið vegna járns
í berginu.
Þá fór ég undirrit-
aður að velta fyrir mér
hvort þetta mikla járn-
magn sem mun vera
þarna í berginu gæti
hugsanlega haft áhrif á
grindhvalina og ruglað
þá í ríminu þannig að
þeir missi áttaskyn sitt
og strandi þess vegna.
Færeyingar fóru jú fyrr á öldum að
veiða grindhvalina vegna þess að
þeir villtust upp í fjörur og í dag er
það orðið hefð hjá þeim að veiða
grindhvali vegna þess að allavega
fyrr á öldum sóttu þeir svo að landi
og þá var tilvalið að reka þá upp í
fjöruna og ná sér í góðar kjötbirgð-
ir. Er kannski hugsanlegt að mikið
járn sé í berginu í Færeyjum?
Vinsamlega athugið að hjá mér
eru þetta einungis spurningar fá-
fróðs almúgamanns sem akkúrat
ekkert vit hefur á svona málum en
gaman væri þó ef menn með þekk-
ingu á þessum málum gætu rann-
sakað og skoðað hvort þetta gæti
verið hugsanlegt og gert okkur al-
múganum ljóst og þá birt þær upp-
lýsingar í fréttamiðlum landsins.
Af hverju sigla
grindhvalirnir í land?
Eftir Hjálmar
Magnússon
Hjálmar Magnússon
»Er kannski hugsan-
legt að mikið járn sé
í berginu í Færeyjum?
Höfundur er fyrrverandi
framkvæmdastjóri.
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Amerísk heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
Þvottavélar
og þurrkarar
sem taka
10-17 kg
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar alla út-
gáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í samskiptum milli
starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig
eru sendar á aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is.
Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið.
Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Hægt er að senda greinar
allan sólarhringinn.
Nánari uppl. veitir starfsfólk Morgunblaðsins virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18.
Atvinna