Morgunblaðið - 18.12.2019, Blaðsíða 23
DÆGRADVÖL 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2019
„ÉG BÆTTI VIÐ ÞJÓRFÉ.” „ERT ÞETTA ÞÚ? ÞÚ VARST BARA Í BURTU Í FIMM MÍNÚTUR.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vita að þú átt nú
þegar meistaraverk.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
KÆRA „SPYRÐU
HUNDINN” GREFURÐU
BEIN Í BAKGARÐINUM?
EF SVO ER,
ÞÁ HVAR?
MÁTTI REYNA,
HVUTTINN
HENNAR LÁRU!
ÉG GET EKKI BEÐIÐ EFTIR
AÐ KOMAST HEIM! ÉG ER
GLORSOLTINN!!
Æ, NEI!! KVÖLDMATURINN VERÐUR AFTUR SEINN!
Ellen Kristjánsdóttir kom og söng í
afmælinu. Svo ætla ég út að borða
með börnunum mínum og fóstur-
börnum í dag.“
Fjölskylda
Börn Svanhildar með fyrrverandi
sambýlismanni sínum, Sævari Erni
Sigurbjartssyni, eru 1) Ellen Sif
Sævarsdóttir, f. 7. október 1984,
sálfræðingur, búsett í Kópavogi; 2)
Davíð Sævarsson, f. 28. mars 1989,
forritari, búsettur í Kópavogi. Fóst-
urdætur Svanhildar eru Alena
Elísa, f. 27.3. 1996, og Kara Nótt, f.
7.3. 2000.
Systkini Svanhildar eru Mínerva
Margrét Haraldsdóttir, f. 2. júní
1955, tónlistarkennari og músík-
þerapisti, búsett í Reykjavík; Guð-
ríður Haraldsdóttir, 12. ágúst 1958,
blaðamaður og prófarkalesari, bú-
sett á Akranesi; Guðmundur Jónas
Haraldsson, f. 28. janúar 1962, leik-
ari, búsettur í Reykjavík. Hálfsystir
samfeðra er Helga Arnfríður Har-
aldsdóttir, f. 7. nóvember 1967, sál-
fræðingur, búsett í Reykjavík.
Foreldrar Svanhildar: Haraldur
Jónasson, f. 1. desember 1930, d. 9.
júlí 2001, lögfræðingur í Reykjavík,
og Bryndís Jónasdóttir, f. 5. maí
1934, hjúkrunarfræðingur, búsett í
Reykjavík.
Svanhildur Sif
Haraldsdóttir
Elín Jónsdóttir
húsfr. á Helluvaði, f. í
Vestmannaeyjum
Jónas Ingvarsson
bóndi á Helluvaði á Rangárvöllum,
f. á Hóli í V-Landeyjum
Jónas Jónasson
skósmiður í Reykjavík
Bryndís Jónasdóttir
hjúkrunarfræðingur í Reykjavík
Jónas Jósteinsson
yfi rkennari Austurbæjarskóla
Kári Jónasson, formaður
stjórnar RÚV og fv. fréttastjóri
Mínerva
Margrét
Haraldsdóttir
tónlistar-
kennari og
músíkþerapisti
Guðrún Eva
Mínervudóttir
rithöfundur
Mínerva Málfríður Jósteinsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Theódóra Guðmundsdóttir
húsfreyja í Þorgeirsbrekku
á Höfðaströnd og í Rvík, f. á
Felli í Sléttuhlíð
Jósteinn Jónasson
bóndi í Vatnskoti í Hegranesi, faðir hans var Jónas Jónsson bóndi í Hróarsdal,
smáskammtalæknir og yfi rsetumaður og tók á móti yfi r 600 börnum
Svava Jósteinsdóttir
húsfreyja á Akureyri
Jóhann Konráðsson gæslumaður
og söngvari á Akureyri
Kristján Jóhannsson
óperusöngvari
Emilía Guðmundsdóttir
húsfreyja í Útibæ, f. á
Steindyrum á Látraströnd
Jónas Jónsson
verslunarstjóri í Útibæ í Flatey
á Skjálfanda, f. á Finnastöðum
á Látraströnd
Jónas Jónasson
ritstjóri Íslendings á Akureyri,
síðar hreppstjóri og kennari í
Flatey á Skjálfanda
Guðríður Kristjánsdóttir
kennari og húsfreyja lengst af í Flatey á Skjálfanda
Dóróthea Friðrika Stefánsdóttir
húsfreyja á Skeiði, f. í Grímsnesi á Látraströnd
Kristján Sigurðsson
bóndi á Skeiði í Svarfaðardal,
f. í Kollugerði í Eyjafi rði
Úr frændgarði Svanhildar Sifjar Haraldsdóttur
Haraldur Jónasson
lögfræðingur í Reykjavík
Ólafur Stefánsson hefur settþetta skemmtilega og bjart-
sýna ljóð, Nauðþurftarhyggja og
mínimalismi“, á vefinn:
Aldrei framar opna flösku,
ekki væti þurran góm.
Heldur sit í sekk og ösku,
sífrandi’ yfir lekum skóm.
Iðinn ruslið áfram flokka,
ekki snæði meira kjöt,
Hjóla yfir steina’ og stokka,
stoppa þægur sokkagöt.
Hætti við að horfa’ á bolta,
hokinn geng ég stíft á fjöll.
Held svo munni, hvíli skolta,
hugsa’ um lífsins skakkaföll.
Tóbaksnautn svo niðurtrappi,
nægja læt mér vindilstúf.
Netflix forðast, neita appi,
nóg er að hafa gamla Rúv.
Ekki fleiri eiga krakka,
alltof þröngt er hér á jörð.
Nýti snjáðan nankinsjakka,
nota ekki loðskinnsbörð.
Þannig lötra lífsins göngu,
laus við nautn og óhóf mest.
Reyni að gera allt úr öngu,
og enda dauður fyrir rest.
Pétur Stefánsson yrkir á Boðn-
armiði – en er fullhógvær að minni
hyggju:
Margir eru mótgangsbyrir
margt sem byrgir gleðisýn.
Aldrei verð ég frægur fyrir
ferskeytlur og ljóðin mín.
Það styttist í jólin segir Guð-
mundur Arnfinnsson:
Dimm er nótt í desember,
dauft er líf í sveitum,
horfin sumarsólin er,
en sárabót ég veit um:
Hátíð, eins og hún er vön,
hér er nú í vændum,
hrútar fara að fýla grön,
og fiðringur í bændum.
Á dögunum dró Gylfi Þorkelsson
upp þessa vetrarmynd, sem við
þekkjum mörg:
Nú er fönn á Fróni,
freðin jörð.
Klakaklárinn Skjóni
krafsar börð.
Páll Jónsson skáldi orti:
Hnossin geymum þessi þrenn
– það ríður á að muna –
frið við guð og frið við menn
og frið við samviskuna.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Nauðþurftarhyggja
og mínimalismi
Pantaðu borð í síma 483 4700 | hverrestaurant.is
ÞÚ BORÐAR
VEL Á HVER
OPIÐ
11:30–22:00
ALLA DAGA
Fjölbreyttur og spennandi matseðill,
notaleg þjónusta og hagstætt verð.