Morgunblaðið - 18.12.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2019
Fyrsta umræða um fjölmiðla-frumvarp menntamálaráð-
herra, sem ætlað er að styðja við
einkarekna miðla, fór fram á Al-
þingi í fyrrakvöld
og fram á nótt.
Umræðan var ekki
mjög bitastæð en
varð þó til þess að
nú fer frumvarpið í
nefnd þar sem von-
andi verða sniðnir
af því helstu agnú-
ar sé á annað borð ætlunin að
það verði að lögum.
Í máli Bergþórs Ólasonar komfram gagnleg ábending um
að á einkamarkaði í dag væru í
raun aðeins þrjár stórar rit-
stjórnir, hjá Árvakri, Sýn og
Torgi. „Fleirum er ekki til að
dreifa,“ sagði hann og gerði at-
hugasemd við það þak sem er að
finna í frumvarpinu.
Bergþór sagðist vonast til aðnefndin lagaði þetta og
sagði að „ef að þetta þak verður
til staðar, þá held ég að spil-
unum sé býsna ójafnt skipt.“
Hann benti réttilega á að hverfa
þyrfti frá hugmyndinni um þakið
sem er augljóst út frá jafnræð-
issjónarmiðum.
Ef ætlunin er að styðja við al-menna fjölmiðlun hér á
landi og tryggja að út komi
miðlar sem hafa burði til að
halda úti almennum fréttaflutn-
ingi og vera annað en vett-
vangur fyrir starfsmenn þeirra
til að halda til haga helstu
áhugamálum sínum, þá hljóta
burðugir miðlar að fá jafna
sneið af þeirri köku sem til
skipta er.
Þetta er meðal þess sem aug-ljóst er að nefndin verður
laga áður en frumvarpið kemur
til afgreiðslu.
Bergþór Ólason
Býsna ójafnt skipt
STAKSTEINAR
Vesturhús höfuðstöðva Orkuveitu
Reykjavíkur (OR) við Bæjarháls
mun taka talsverðum útlitsbreyting-
um. Stjórn OR hefur ákveðið að
bjóða út framkvæmdir við endur-
byggingu hluta skrifstofuhúsnæðis-
ins.
Útveggir hússins verða réttir af
en þrír af fjórum útveggjum hins
skemmda vesturhúss slúta nú fram
yfir sig. Gólfflötur neðri hæða mun
stækka en efri hæða minnka. Heild-
arflatarmál hússins verður svipað
eftir breytingarnar og það var. Unn-
ið er að lokafrágangi útboðsgagna.
Gert er ráð fyrir að útboðið verði
auglýst í febrúar 2020. Framkvæmd-
um gæti verið lokið 2022.
Miklar rakaskemmdir fundust í
hluta skrifstofuhúsnæðis OR, svo-
nefnds vesturhúss, síðsumars árið
2017. Húsnæðið var strax rýmt og
kostir til úrbóta skoðaðir. Niðurstað-
an varð að endurbyggja útveggi
vesturhússins og nota áfram það
sem heilt er, þ.e. burðarvirki, gólf,
lyftur og loftræstibúnað.
Verkfræðihönnun endurbygging-
arinnar var boðin út haustið 2018.
Verkís annast verkfræðihönnun en
Hornsteinar eru arkitektar hússins.
gudni@mbl.is
Slútandi veggir OR verða beinir
Endurbygging vesturhúss OR við
Bæjarháls boðin út í febrúar 2020
Tölvuteikning/Hornsteinar
OR Vesturhúsið mun líta öðruvísi út
eftir endurbyggingu en nú.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Betur virðist hafa farið en útlit var
fyrir þegar þakið fauk af skála
Ferðafélags Íslands á Valgeirs-
stöðum í Norðurfirði í Ströndum í
óveðrinu í síðustu viku. Þekjan af
viðbyggingu vestan við húsið fór af,
en milliloft er óskemmt. Allt innan-
dyra er óbrotið og snjór og raki hafa
ekki komist inn, en óttast var í
fyrstu að flest í húsinu hefði
skemmst í þessari gjörningahríð.
Ágætlega tryggt
„Okkur er létt að vita að skemmd-
ir séu ekki meiri og að milliloftið hafi
ekki farið. Eigi að síður er þetta
verulegt tjón og þá er bót í máli að
við erum ágætlega tryggð. Núna
hefur aðeins hlýnað fyrir norðan svo
raki nær inn í húsið og því höfum við
áhyggjur af,“ segir Páll Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri FÍ, í samtali
við Morgunblaðið.
„Viðgerðaflokkur er í startholum
og er tilbúinn að fara á svæðið þegar
landleiðin í Árneshrepp, sem nú er
ófær, verður opnuð. Núna erum við
að kanna færar leiðir í stöðunni.
Meðan landleiðin er lokuð kemur til
greina að fara sjóleiðina í Norður-
fjörð frá Hólmavík eða taka flug. Við
erum bara að meta stöðuna,“ segir
Páll og ennfremur:
Í óveðrinu eyðilagðist rafmagns-
taflan í húsinu á Valgeirsstöðum svo
enginn straumur er á því núna. Páll
segir að því þurfi að sameina krafta
margra iðnaðarmanna úr ýmsum
greinum þegar viðgerðarliðið nær á
staðinn. Mikilvægt sé þá ef hægt er
að ljúka fullnaðarviðgerð á bygging-
unni strax.
Þakið fauk en annað
í húsinu óskemmt
Mikilvægt að fara
strax í fullnaðarvið-
gerð í Norðurfirði
Ljósmynd/Halldór Halldórsson
Norðurfjörður Þak fór af viðbygg-
ingu en milliloftið er óskemmt.
Þessir mögnuðu ofnar/grill eru
byggðir á hinni ævafornu „komado“
leirofna eldunaraðferð sem gefur
gæfumuninn í allri eldamennsku.
Þeir sem einu sinni prófa Big Green
Egg grillin skipta aldrei aftur yfir.
Ofnarnir eru til í ýmsum stærðum.
Til sýnis í sýningarsal Draghálsi 4
Sýningarsalur Draghálsi 4 - Sími: 535 1300 - verslun@verslun.is
TA
K
T
IK
5
5
3
8
#
Jólagjöf
fagmannsins
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/