Morgunblaðið - 18.12.2019, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 18.12.2019, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2019 Vetrarsól er umboðsaðili 40 ár á Íslandi Sláttuvélar Snjóblásarar Sláttutraktorar Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is Gulltryggð gæði Nútíminn er nærri í Austri,fyrstu skáldsögu BragaPáls Sigurðarsonarblaðamanns. Bókin segir af bældum hagfræðingi, Eyvindi, þjökuðum af félagsfælni, sem stend- ur á krossgötum eftir að honum er sagt upp í vinnunni. Umfjöllunarefnið er alþýðlegt, laust við alla tilgerð og stíllinn í samræmi við það, með ógrynni sam- tímavísana. Eyvindur hagnast á bitcoin, leitar að konu á Tinder, horfir á Útsvar og iðrast þess að hafa keypt disk með Jóni Jónssyni, svo enginn velkist í vafa um að sag- an gerist nú örugglega á Íslandi árs- ins 2019. Slíkar vísanir geta verið hressandi og verða sagnfræð- ingum framtíð- arinnar vafalaust ómetanleg sam- tímaheimild, en fyrir lesandann verða þær þreyt- andi til lengdar. Dálítið eins og að vera staddur á instagramsíðu áhrifavalds og renna í gegnum kost- aðar umfjallanir hans, svo ég leiki sama leik. Má veitingastaðurinn ekki stundum bara heita veitinga- staður? Því verður þó ekki neitað að lest- urinn er skemmtilegur. Í hverju ölæðinu á fætur öðru kemur sögu- hetjan sér í lygilegar aðstæður og vílar ekki fyrir sér að skipta um starfsvettvang, hvort sem er á sjó eða í sveit, þrátt fyrir að vera að eig- in sögn með „líkamlega dyslexíu“, sjúkdóm sem ég hef nú sjálfgreint mig með. Vanhugsuð ákvarðanatak- an minnir að vissu leyti á hinn aldna Allan Karlsson, hundrað ára elli- heimilisbúann í sögu Jonas Jonas- son, sem ákvað að strjúka að heiman því hann hafði ekkert betra að gera þann daginn. Helsti munurinn er sá að Eyvindur er alltaf í glasi. Innan um grínið leynist þó alvara, og auðvelt er að greina sterkar skoðanir samfélagsrýnisins Braga sem lauma sér inn í frásögnina og gæða hana lífi. Meginstraumsstjórnmála- flokkum, kvótakerfinu, tilgerðarleg- um lögfræðinemum og Morgunblað- inu sjálfu bregður fyrir á hressandi hátt í samræmi við sannfæringu höfundar, og þótt einhverjum kunni að þykja sumar vísanirnar fullþving- aðar skyggja þær ekki á hispurs- lausa frásögnina, hrakfallasögu fyrrverandi hagfræðingsins Eyvind- ar. Bókin er léttmeti, á köflum sprenghlægileg, og tilvalin handa þeim sem vilja gefa raunveruleika- sjónvarpi eða íslenskum grínþáttum kærkomið frí og reyna sig við ígildi þess í bókarformi. Íslenskt sjónvarp í bókarformi Morgunblaðið/Eggert Skáldsaga Austur bbbnn Eftir Braga Pál Sigurðarson. Sögur útgáfa, 2019. Kilja, 212 bls. ALEXANDER GUNNAR KRISTJÁNSSON BÆKUR Á krossgötum Nútíminn eftir Braga Pál Sigurðarson segir af bældum hagfræðingi sem stendur á krossgötum eftir að honum er sagt upp störfum. Jólatónleikar Dómkórsins verða haldnir í Dómkirkjunni í Reykjavík í kvöld kl. 22. Flutt verða hefð- bundin jólalög í bland við ný, erlend sem innlend. Aðgangur að tónleik- unum er ókeypis. Kári Þormar dómorganisti hefur stjórnað kórnum frá árinu 2010 og annast kórinn messusöng í Dóm- kirkjunni en einnig er fastur liður í starfi kórsins að syngja við opin- berar athafnir, m.a. innsetningu forseta Íslands. Kórinn hefur haldið fjölda tón- leika hér á landi sem erlendis og hefur verkefnavalið verið fjöl- breytt, að því er fram kemur á vef- síðu kórsins. Ljósmynd/Pétur Jóhannes Guðlaugsson Dómkórinn Kórinn tók þátt í kórakeppni í Salzburg í sumar. Dómkórinn heldur jólatónleika Myndlistarkonurnar Sigrún Halldóra Gunnarsdóttir og Guðrún Vera Hjartardóttir kynna draumadagbók og ferlið í gegnum hinar þrettán heilögu nætur sem hefst á aðfangadag, í dag kl. 12.15 í Gerðarsafni, listasafni Kópavogs. Þær hefja kynninguna á að tala um verk sín á sýning- unni og hvernig þau urðu til, meðal annars í tengslum við eigin drauma, segir í tilkynningu, og tengja þær inn á kenningar Rudolf Steiners og geðlæknisins umdeilda Carls Gustav Jung og ljúka viðburðinum á því að kynna sínar persónulegu draumadagbækur. Hinar þrettán heilögu nætur Guðrún Vera Hjartardóttir Írska rokksveitin U2 hélt tónleika á D.Y. Patil- leikvanginum í hverfinu Navi í Mumbai sunnudaginn síðastliðinn og var þar mannmergð mikil. Bono og fé- lagar hafa ekki komið þar fram áður og vottuðu merk- um baráttukonum virðingu sína, þeirra á meðal rithöf- undinum Arundhati Roy og blaðakonunni Gauri Lankesh. Tónleikarnir voru liður í hinni löngu tónleikaferð U2 sem kennd er við breiðskífu þeirra The Joshua Tree sem kom út árið 1987 og naut gríðarmikilla vinsælda. Bono, The Edge, Larry Mullen og Adam Clayton hófu leik í Mumbai á einum þekktasta smelli sveitarinnar, „Sunday Bloody Sunday“, og enduðu með myndasyrpu af merkum baráttukonum. Indverski tónlistar- maðurinn A.R. Rahman og dætur hans voru gestir U2 og fluttu með sveitinni lagið „Ahisma“. AFP Skuggamynd Írska rokksveitin U2 á sviði D.Y. Patil-leikvangsins í Mumbai 15. desember síðastliðinn. U2 í jólarauðum bjarma

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.