Morgunblaðið - 20.12.2019, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 2 0. D E S E M B E R 2 0 1 9
Stofnað 1913 299. tölublað 107. árgangur
STÆRSTA
FJÁRFESTING
LANDSBJARGAR
RAPPARAR,
LEYNDARMÁL
OG BRÆKUR
LÉT DRAUMINN
RÆTAST OG FÓR
Í TRÉSMÍÐANÁM
BARNABÆKUR 41 EYJÓLFUR Í AXIS 14-15200 MÍLUR 40 SÍÐUR
Gluggagægir kemur í kvöld
4 dagartil jóla
jolamjolk.is
Betolvex
Fæst án
lyfseðils
1mg (cyanocobalamin) filmuhúðaðar töflur
Betolvex inniheldur 1 mg af cyanocobalamin
(B12-vítamíni). Betolvex er gefið við B12-vítamínskorti
og þegar hætta er á slíkum skorti. Viðhaldsskammtar/
fyrirbyggjandi meðferð: Venjulega 1 tafla á dag.
Töflurnar skal helst taka á fastandi maga. Lesið
vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli
fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfja-
fræðings sé þörf á frekari upplýsingum um
áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upp-
lýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is
B-12
A
c
ta
v
is
9
1
4
0
3
2
Ný skip sem komið hafa til lands-
ins á árinu og eru væntanleg á næstu
vikum kosta alls um 13 milljarða
króna tilbúin á veiðar. Þar vega
þyngst smíðar á sjö systurskipum í
Noregi, en skipin hafa komið hvert
af öðru frá því um miðjan júlí. Síð-
asta skipið í þessu raðsmíðaverkefni
er Þinganes SF sem er væntanlegt
til Hafnar í Hornafirði á morgun.
Í smíðum eru tvö stór uppsjávar-
skip og samið hefur verið um smíði á
frystitogara fyrir Nesfisk í Garði.
Samanlagt kosta þessi þrjú skip um
13 milljarða. Óljóst er hvort nýtt
stórt frystiskip Brims hf. kemur til
Íslands eða verður selt til Græn-
lands.
Samherji áformar að taka nýtt og
fullkomið fiskiðjuver á Dalvík í notk-
un síðari hluta vetrar. Brim hyggst
gera miklar endurbætur á fiskiðju-
veri sínu á Norðurgarði næsta sum-
ar og Skinney-Þinganes heldur
áfram breytingum og endurbótum í
vinnslunni. »200 mílur 28-29
Ljósmynd/Brunes Foto/Vard
Reynslusigling Þinganes er á heimleið.
Miklar fjárfestingar
í sjávarútveginum
Ökumaður bifreiðar ók inn í snjó-
flóð sem hafði fallið þvert á hring-
veginn í Ljósavatnsskarði við
Ljósavatn rétt fyrir klukkan níu í
gærkvöldi. Engin slys urðu á fólki.
Ökumaðurinn ók inn í flóðið að
austanverðu. Samkvæmt upplýs-
ingum frá lögreglu er líklegt að
hann hafi ekki séð flóðið sökum
slæms skyggnis og lélegrar færðar.
Veginum var lokað frá Krossi að
Grenivíkurafleggjara. Að sögn lög-
reglu hefur snjósöfnun verið tals-
verð í gær og undanfarna daga og
snjóflóðahætta víða.
Ók inn í snjóflóð í
Ljósavatnsskarði
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Alexander Bridde, sem rekur járn-
smíðaverkstæðið Prófílstál, smíð-
aði á dögunum einstakt 180 sentí-
metra hátt jólatré úr járni fyrir
eiginkonu sína, Ingibjörgu, sem
þjáist af hvimleiðu ofnæmi fyrir
greni.
Alexander segir Ingibjörgu hafa
verið fljóta að samþykkja nýja tréð
þrátt fyrir að þetta væri í fyrsta
skipti í 37 ár sem fjölskyldan væri
ekki með lifandi jólatré.
Jólatréð prýðir nú heimili þeirra
hjóna, hangandi úr loftinu, barna-
börnunum til mikillar gleði.
Sonur Alexanders, Guðni
Bridde, sem einnig er járnsmiður á
verkstæði föður síns, smíðaði
stjörnuna sem trónir á toppi járn-
trésins.
Alexander er enginn nýgræð-
ingur í hönnun og smíði skraut-
muna en hann segist smíða flestar
gjafir sem hann gefur sjálfur úr
járni.
„Ég er náttúrlega járnsmiður og
smíða gríðarlega mikið af alla
vega hlutum og gjöfum. Ég er
frjór í þessu, eins og maður segir,
og hef smíðað minni tré með serí-
um í hundraðavís,“ segir Alexand-
er í samtali við Morgunblaðið.
Hann fullyrðir þó að nýtt járn-
jólatré fjölskyldunnar sé stærsta
jólatré sem hann hafi smíðað. »12
Smíðaði jólatré úr járni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jólatré Járnjólatré Alexanders er
einstakt og veldur ekki ofnæmi.
Gjöf til eiginkonunnar sem þjáist af greniofnæmi
Skálmöld kveikti í mannskapnum á fyrstu af
þrennum kveðjutónleikum sveitarinnar í Gamla
bíói í gærkvöldi. Meðlimirnir, sem hafa ákveðið
að fara í pásu frá áramótum í óákveðinn tíma,
stóðu við loforðið að kveðja með hvelli. Fólk á
öllum aldri sótti tónleikana, að sögn Orra Páls
Ormarssonar blaðamanns sem var meðal tón-
leikagesta. „Málmhjörtun slá í þéttum takti,“
sagði hann um stemninguna á tónleikunum.
Morgunblaðið/Eggert
Kvöddu með hvelli
Gunnlaugur Snær Ólafsson
Höskuldur Daði Magnússon
Hvorugt skipa Landhelgisgæslunnar
var við eftirlit á sjó hluta þess tíma
sem varðskipið Þór var við bryggju á
Dalvík og sá byggðarlaginu fyrir raf-
magni í kjölfar ofsaveðursins í sein-
ustu viku. Þór var rafstöð Dalvíkinga
í 140 klukkustundir en var aftengdur
síðastliðið miðvikudagskvöld.
Georg Kr. Ólafsson, forstjóri
Landhelgisgæslunnar, segir í viðtali í
200 mílum, sérblaði Morgunblaðsins
um sjávarútvegsmál, að áhöfnin á
Þór og sérfræðingar hafi unnið þrek-
virki þegar tókst að sjá Dalvík og
nærliggjandi byggðarlögum fyrir
rafmagni.
Áhöfnin á Tý var í fríi
Spurður hvort nokkurt skip hafi
sinnt eftirliti á meðan segir Georg:
„Landhelgisgæslan gerir út tvö varð-
skip og tvær áhafnir. Það þýðir að yf-
ir vetrarmánuðina er siglingaáætlun
Landhelgisgæslunnar þannig að ann-
að skipið er þrjár vikur á sjó á meðan
hitt er þrjár vikur í höfn. Æskilegast
væri að hafa þrjár áhafnir til að geta
haft tvö skip á sjó stóran hluta ársins
en það kostar fjármuni sem við eigum
ekki. Fyrstu dagana á meðan varð-
skipið Þór var bundið við bryggju á
Dalvík var fasta áhöfnin á Tý í fríi.
Ráðstafanir voru gerðar til þess að
manna Tý ef mikið hefði legið við.“
Að sögn Georgs gerir þarfagrein-
ing og áhættumat Landhelgisgæsl-
unnar ráð fyrir að ætíð séu tvö varð-
skip á sjó hverju sinni með sambæri-
lega getu og Þór. Eins og staðan er í
dag sé annað varðskipið á sjó hverju
sinni en æskilegast væri að þau væru
tvö á sjó stærstan hluta ársins. „Til
að svo gæti orðið þyrfti að hafa þrjú
varðskip í rekstri auk þriggja
áhafna,“ segir hann. Á næstu árum sé
fyrirséð að endurnýja þurfi varð-
skipaflota Landhelgisgæslunnar.
Ekkert skip var við eftirlit
Þór var rafstöð á Dalvík í 140 klst. „Unnu þrekvirki“ Áhættumat gerir ráð
fyrir að ætíð séu tvö varðskip á sjó „Fyrirséð að endurnýja þurfi varðskipaflota“
M„Árið annasamt …“ »200 mílur, 4