Morgunblaðið - 20.12.2019, Blaðsíða 42
42 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2019
Nína óskastjarna og ævintýrið á Álf-
hóli heitir barnabók eftir Helgu
Arnardóttur sem kom út fyrir
stuttu. Í bókinni segir frá telpunni
Nínu sem hefur alltaf verið kölluð
óskastjarna því hún trúir því að ef
maður óskar sér einhvers nógu heitt
og vill það nógu mikið þá getur óskin
ræst. Helga segir að sagan af Nínu
hafi komið áreynslulaust til sín.
„Mér fannst heillandi að skrifa um
stelpu sem gat breytt einhverju og
haft áhrif. Börn eru svo áhrifagjörn,
vilja oft hjálpa og gera heiminn betri
eða þannig var ég þegar ég var
yngri og það var það sem ég reyndi
að beisla við skrifin á þessari sögu.
Svo kom hugmyndin að því að gera
þetta að bók með fallegum myndum
sem Ylfa Rún Jörundsdóttir náin
frænka mín teiknaði svo vel.“
– Þú tileinkar bókina Margréti
Júlíu dóttur þinni, er Nína byggð að
henni að einhverju leyti?
„Dóttir mín hefur svo sannarlega
verið mér innblástur við skrifin því
hún er skemmtilegur karakter en
sagan fæddist engu að síður á undan
henni svo hefur hún þróast með ár-
unum með aðstoð Margrétar Júlíu.“
– Bókin snýst um baráttu gegn
verktökum sem vilja bylta öllu og
eins gráðugri bæjarstjórn – eru um-
hverfismál þér hugleikin?
„Já, ég bjó við Elliðavatn um
nokkurra ára skeið sem er með því
fallegra sem maður hefur séð. Eftir
hrun var landið umhverfis vatnið
ekki svipur hjá sjón, ókláraðir hús-
grunnar og byggingakranar allt um
kring samhliða fallegum eldri bæj-
um og sumarhúsum við vatnið. Það
hafði mikil áhrif á mig. Svo var mik-
ið rætt um byggingarstefnu bæj-
arins á sama tíma og hversu langt
hún ætlaði að ganga þannig að það
fæddist lítil saga í kjölfarið á öllu
þessu.“
– Ertu með frekari skrif í undir-
búningi?
„Ég er búin að skrifa aðrar sögur
af Nínu óskastjörnu sem væri gam-
an að gefa út en svo langar mig að
helga mig skrifum enn frekar. Ég
er að skrifa handrit að barnamynd
og sjónvarpshandrit að sakamála-
þætti þar sem ég hef mikið fengist
við glæpamál á mínum frétta-
mannsferli. Ég vonast til að geta
helgað mig þessum verkefnum á
næstu misserum og fengið að gera
meira af því. Auk þess á ég von á
barni sem er sett á 1. janúar þannig
að ég verð með nóg á minni könnu
næstu misserin.“
arnim@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Umhverfismál Sagan af Nínu óskastjörnu kom áreynslulaust til Helgu.
Langar að helga mig skrifum
Umhverfismál eru áberandi í nýrri
barnabók Helgu Arnardóttur
Sænska tón-
skáldið Karin
Rehnqvist hlaut í
vikunni ein virt-
ustu tónlistar-
verðlaun heima-
lands síns, Järn-
åker-verðlaunin
sem á frummál-
inu heita Järnå-
kerstipendiet,
fyrir verkið Blodhov, sem á ís-
lensku útleggst Blóðhófnir en inn-
blásturinn sótti hún í samnefndan
ljóðabálk Gerðar Kristnýjar sem
hún byggði á fornu Eddukvæði.
Rehnqvist hlýtur að launum
hundrað þúsund sænskar krónur,
jafnvirði um 1,35 milljóna króna.
Eru þetta merkustu verðlaun sem
veitt eru fyrir kammerverk í Sví-
þjóð, að því er fram kemur á frétta-
vefnum mynewsdesk.
Hlaut verðlaun
fyrir Blóðhófni
Karin Rehnqvist
Jóladjass verður fluttur á Kex host-
eli í hádeginu í dag frá kl. 12 til
13.15. Karl Olgeirsson og félagar
hans munu flytja jóladjass af plöt-
unni Svöl jól sem hljómsveitin Jóla-
kettir gaf út fyrir rúmum tuttugu
árum. Segir í tilkynningu að sú
plata sé fyrir löngu orðin „költ“
jólaplata hjá landsmönnum.
Karl leikur á Rhodes píanó og
með honum verða Gunnar Hrafns-
son á kontrabassa og Snorri Sig-
urðarson sem leikur á trompet en
þeir voru allir í fyrrnefndri sveit,
Jólaköttunum. Erik Qvick mun
einnig leika á trommur.
Jólalegt Það verður hugguleg jólastemning í hádeginu í dag á Kex hosteli.
Jóladjass í hádeginu á Kex hosteli
Hólmfríður
Jóhannesdóttir
messósópran,
Victoria Ta-
revskaia selló-
leikari og Julian
Hewlett píanó-
leikari flytja ís-
lensk og amer-
ísk jólalög á
tónleikum sem
hefjast kl. 12 í
dag í Dómkirkjunni í Reykjavík.
Tónleikarnir verða um 35 mín-
útur að lengd og miðaverð er
1.500 kr.
Yfirskrift tónleikanna er
„Glitrandi miðbær“. Þríeykið hef-
ur á síðustu árum haldið fjölda
tónleika hér á landi og þá meðal
annars í Dómkirkjunni í Reykja-
vík.
Flytja íslensk og
amerísk jólalög
Hólmfríður
Jóhannesdóttir
PON Pétur O. Nikulásson ehf.
Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is
skotbómulyftara
AG línan frá Manitou býður meðal
annars upp á nýtt ökumannshús
með góðu aðgengi og útsýni.
HANNAÐUR TIL AÐ
VINNA VERKIN
NÝ KYNSLÓÐ
• DSB stjórntakkar
• JSM stýripinni í fjaðrandi armi
• Stýrð stjórnun og hraði á
öllum glussahreyfingum
• Virk dempun á bómu
ICQC 2020-2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambíó.is
LOKAKAFLINN Í SKYWALKER SÖGUNNI