Morgunblaðið - 20.12.2019, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 20.12.2019, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2019 Dekkjaþjónusta Úrval fólksbíla- og jeppadekkja SAMEINUÐ GÆÐI Opið mánudaga til fimmtudaga kl. 7.45-17.00, föstudaga kl. 7.45-16.00 Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Jólin verða með óhefðbundnarasniði en venjulega hjá fjöl-skyldu járnsmiðsins Alex-anders Bridde þetta árið en hann smíðaði á dögunum jólatré fyrir fjölskylduna úr járni. Járnjólatréð prýðir nú stofuna á heimili hans, hangandi úr loftinu, fullbúið ljósum og jólaskrauti með járnstjörnu sem trónir á toppnum. Lifandi tré í 37 ár Er þetta í fyrsta sinn í 37 ár sem fjölskyldan er ekki með lifandi jólatré en Alexander segir að ofnæmi eig- inkonu hans, Ingibjargar Sigurðar- dóttur, fyrir greni hafi verið tilefni til breytinga. Hún hafi hingað til þurft að sætta sig við óþægindi vegna of- næmisins og þurft að reiða sig á of- næmistöflur yfir hátíðirnar. Alexand- er segir að Ingibjörg hafi verið ákaflega ánægð með nýja jólatréð enda fegin að þurfa ekki að taka of- næmistöflurnar. „Hún sætti sig strax við það þeg- ar ég stakk upp á því að smíða bara járntré. Það þurfti ekkert að ræða það meira,“ segir hann og hlær. Smíðar flestar gjafir sjálfur Alexander, sem rekur verk- stæðið Prófílstál, segist hafa mikla reynslu af því að hanna og smíða hluti úr járni. Segist hann til að mynda smíða flestar gjafir sem hann gefur sjálfur. „Ég er náttúrulega járnsmiður og smíða gríðarlega mikið af alla veg- ana hlutum og gjöfum. Ég er frjór í þessu, eins og maður segir, og hef smíðað minni tré með seríum í hundr- aðavís,“ segir Alexander og bætir við að flest hafi járntrén verið gefin til vina og vandamanna. Járnjólatré fjöl- skyldunnar þetta árið er þó, að sögn Alexanders, það stærsta sem hann hefur smíðað en það er rúmlega 180 sentimetrar á hæð og er stærsti og neðsti járnhringur trésins 90 senti- metrar. Segist hann alla tíð hafa langað að smíða jólatré fjölskyldunnar úr járni og hafi loks látið vaða í ár en hann lauk verkinu sl. laugardag. Seg- ist hann hafa fengið ákveðinn inn- blástur þegar hann las blaðagrein um jólahefð frá því seint á miðöldum í Þýskalandi þar sem jólatré voru hengd úr loftinu í stað þess að láta þau standa á gólfi. Alexander ákvað því að járnjólatréð yrði einnig hengt upp í loft og segir það njóta sín best þannig. Sonurinn smíðaði stjörnuna Jólastjarnan sem trónir á toppi trésins er það eina sem Alexander smíðaði ekki sjálfur en hana gerði sonur hans, Guðni Bridde, sem einnig er járnsmiður. „Ég var búinn að ákveða að setja gamla toppinn okkar á tréð en hann vildi það ekki og skaut þessu saman á engri stundu,“ segir Alexander. „Hann smíðaði [stjörnuna] í þrívídd. Hún er þykk og mikil og látin tróna efst náttúrulega,“ bætir hann við. Alexander segir að nýja jóla- trénu hafi fylgt mikill spenningur fyr- ir barnabörn hans og Ingibjargar. Segir hann að þeim hafi þótt spenn- andi að hengja jólatréð upp í loft og hjálpa ömmu og afa að skreyta tréð. „Þeim fannst þetta bara fyndið og flott. Þetta var mest spennandi af því að tréð hékk í loftinu. Þau skriðu náttúrulega undir það, inn í það og of- an á það, eins og krakkar gera. Það þurfti að reka þau undan því og innan úr því,“ segir Alexander og hlær. Aðspurður segir hann að vitan- lega verði gjafirnar geymdar undir trénu á jólunum samkvæmt hefðinni. Öll stórfjölskyldan verður að sögn hjá þeim hjónum á aðfangadag. Býst Al- exander við að barnabörnin tvö muni halda lífi í mannskapnum á aðfanga- dagskvöld. Morgunblaðið/Árni Sæberg Jóladýrð Járnjólatréð er baðað ljóma í stofu Alexanders og Ingibjargar. Flott Jólatréð mun ekki taka mikið pláss í geymslunni eftir jól. Járn Stjörnuna smíðaði Guðni, sonur Alexanders. Listaverk Járnjólatréð saman- stendur m.a. af misstórum járn- hringjum og járnkeðjum. Smíðaði jólatré úr járni fyrir eiginkonuna Járnsmiðurinn Alexander Bridde smíðaði á dögunum jólatré úr járni fyrir konu sína sem er með hvimleitt of- næmi fyrir greni. Járnjólatréð prýðir nú heimili þeirra hjóna og gleður bæði unga sem aldna í fjölskyldunni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.