Morgunblaðið - 20.12.2019, Page 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2019
Dekkjaþjónusta
Úrval fólksbíla- og jeppadekkja
SAMEINUÐ GÆÐI
Opið mánudaga til fimmtudaga kl. 7.45-17.00, föstudaga kl. 7.45-16.00
Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Jólin verða með óhefðbundnarasniði en venjulega hjá fjöl-skyldu járnsmiðsins Alex-anders Bridde þetta árið en
hann smíðaði á dögunum jólatré fyrir
fjölskylduna úr járni. Járnjólatréð
prýðir nú stofuna á heimili hans,
hangandi úr loftinu, fullbúið ljósum
og jólaskrauti með járnstjörnu sem
trónir á toppnum.
Lifandi tré í 37 ár
Er þetta í fyrsta sinn í 37 ár sem
fjölskyldan er ekki með lifandi jólatré
en Alexander segir að ofnæmi eig-
inkonu hans, Ingibjargar Sigurðar-
dóttur, fyrir greni hafi verið tilefni til
breytinga. Hún hafi hingað til þurft
að sætta sig við óþægindi vegna of-
næmisins og þurft að reiða sig á of-
næmistöflur yfir hátíðirnar. Alexand-
er segir að Ingibjörg hafi verið
ákaflega ánægð með nýja jólatréð
enda fegin að þurfa ekki að taka of-
næmistöflurnar.
„Hún sætti sig strax við það þeg-
ar ég stakk upp á því að smíða bara
járntré. Það þurfti ekkert að ræða það
meira,“ segir hann og hlær.
Smíðar flestar gjafir sjálfur
Alexander, sem rekur verk-
stæðið Prófílstál, segist hafa mikla
reynslu af því að hanna og smíða hluti
úr járni. Segist hann til að mynda
smíða flestar gjafir sem hann gefur
sjálfur.
„Ég er náttúrulega járnsmiður
og smíða gríðarlega mikið af alla veg-
ana hlutum og gjöfum. Ég er frjór í
þessu, eins og maður segir, og hef
smíðað minni tré með seríum í hundr-
aðavís,“ segir Alexander og bætir við
að flest hafi járntrén verið gefin til
vina og vandamanna. Járnjólatré fjöl-
skyldunnar þetta árið er þó, að sögn
Alexanders, það stærsta sem hann
hefur smíðað en það er rúmlega 180
sentimetrar á hæð og er stærsti og
neðsti járnhringur trésins 90 senti-
metrar.
Segist hann alla tíð hafa langað
að smíða jólatré fjölskyldunnar úr
járni og hafi loks látið vaða í ár en
hann lauk verkinu sl. laugardag. Seg-
ist hann hafa fengið ákveðinn inn-
blástur þegar hann las blaðagrein um
jólahefð frá því seint á miðöldum í
Þýskalandi þar sem jólatré voru
hengd úr loftinu í stað þess að láta
þau standa á gólfi. Alexander ákvað
því að járnjólatréð yrði einnig hengt
upp í loft og segir það njóta sín best
þannig.
Sonurinn smíðaði stjörnuna
Jólastjarnan sem trónir á toppi
trésins er það eina sem Alexander
smíðaði ekki sjálfur en hana gerði
sonur hans, Guðni Bridde, sem einnig
er járnsmiður.
„Ég var búinn að ákveða að setja
gamla toppinn okkar á tréð en hann
vildi það ekki og skaut þessu saman á
engri stundu,“ segir Alexander.
„Hann smíðaði [stjörnuna] í þrívídd.
Hún er þykk og mikil og látin tróna
efst náttúrulega,“ bætir hann við.
Alexander segir að nýja jóla-
trénu hafi fylgt mikill spenningur fyr-
ir barnabörn hans og Ingibjargar.
Segir hann að þeim hafi þótt spenn-
andi að hengja jólatréð upp í loft og
hjálpa ömmu og afa að skreyta tréð.
„Þeim fannst þetta bara fyndið
og flott. Þetta var mest spennandi af
því að tréð hékk í loftinu. Þau skriðu
náttúrulega undir það, inn í það og of-
an á það, eins og krakkar gera. Það
þurfti að reka þau undan því og innan
úr því,“ segir Alexander og hlær.
Aðspurður segir hann að vitan-
lega verði gjafirnar geymdar undir
trénu á jólunum samkvæmt hefðinni.
Öll stórfjölskyldan verður að sögn hjá
þeim hjónum á aðfangadag. Býst Al-
exander við að barnabörnin tvö muni
halda lífi í mannskapnum á aðfanga-
dagskvöld.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jóladýrð Járnjólatréð er baðað ljóma í stofu Alexanders og Ingibjargar.
Flott Jólatréð mun ekki taka mikið pláss í geymslunni eftir jól. Járn Stjörnuna smíðaði Guðni, sonur Alexanders.
Listaverk Járnjólatréð saman-
stendur m.a. af misstórum járn-
hringjum og járnkeðjum.
Smíðaði jólatré úr
járni fyrir eiginkonuna
Járnsmiðurinn Alexander Bridde smíðaði á dögunum
jólatré úr járni fyrir konu sína sem er með hvimleitt of-
næmi fyrir greni. Járnjólatréð prýðir nú heimili þeirra
hjóna og gleður bæði unga sem aldna í fjölskyldunni.