Morgunblaðið - 20.12.2019, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 20.12.2019, Blaðsíða 27
miður yfirleitt ekki satt. En stundum. Einn þeirra fáu sem þetta á við var Helgi Seljan. Aldr- ei man ég eftir því að hann hafi sett sig framan við aðra í pólitísk- um mannjöfnuði. Hann var óvenju vandaður og traustur liðs- félagi. Hann sóttist eftir því að hafa áhrif í þágu málstaðar en ekki eftir upphefðinni; hann var sósí- alisti. Þegar við Guðrún komum heim úr útlegðinni þá var Helgi mættur á samkomum Eldri vinstri grænna þar sem hann sagði sögur, skemmtisögur og þar hlífði hann ekki sjálfum sér ef það lá beint við. Skemmtilegur. Með þessum línum flyt ég þakkir fyrir að hafa átt Helga að félaga. Samúðarkveðjur flyt ég Jó- hönnu og niðjum þeirra öllum fyrir hönd okkar Guðrúnar. Svavar Gestsson. Árið 1983 varð talsverð endur- nýjun í stjórn Öryrkjabandalags Íslands. Jafnframt urðu talsverð- ar breytingar á vinnubrögðum og tóku stjórnarmenn að sér ýmis mál sem þeir sinntu vel. Fljótlega varð ég þess var að einn þingmaður öðrum fremur sendi okkur erindi sem snertu málefni fatlaðra. Það örlaði ögn á pirringi hjá mér yfir því að þing- maðurinn skyldi ekki vinna heimavinnuna sína. Ég varð þess fljótt áskynja að heimavinnan hlyti að lenda á þeim sem stóðu málaflokknum næst. Þetta var Helgi Seljan, atorku- samur þingmaður, vinsæll í öllum flokkum þótt hann væri í Alþýðu- bandalaginu. Stjórn Öryrkja- bandalagsins taldi honum til tekna hvað hann héldi okkur vel við efnið. Á aðalfundi Öryrkjabanda- lagsins árið 1986 tilkynnti for- maður mér í upphafi fundar að hann segði af sér því að undir- búningur Lottósins væri í há- marki og yrði hann að sinna því. Ég varð því formaður mun fyrr en búist hafði verið við. Stjórn Öryrkjabandalagsins var um þetta leyti önnum kafin við stefnumótun og eftir að samn- ingar höfðu náðst um skipti tekn- anna frá Íslenskri getspá milli bandalagsins og hússjóðs var augljóst að bandalagið gæti tekið að sér frekari þjónustu við félög- in. Um svipað leyti varð Helgi á vegi okkar og kom þá í ljós að hann var atvinnulaus. Var ég spurður hvort ég ætlaði ekki að ráða hann til starfa. Eftir að hafa rætt málið í stjórninni var ákveðið að bjóða Helga Seljan stöðu hjá bandalag- inu. Skyldi fylgja henni stofnun tímarits bandalagsins og yrði hann jafnframt upplýsinga- fulltrúi. Samþykkt var að Ólöf Rík- arðsdóttir, vinkona hans og sam- flokksmaður, bæri honum þessi boð. Tók hann því vel og var gengið frá starfssamningi. Starf Helga varð afar farsælt. Hann átti auðvelt með að vinna með fólki, leysti greiðlega úr vanda fjölmargra einstaklinga og kom málum þeirra áfram á ýms- um stöðum. Jafnframt stýrði hann blaði bandalagsins og mótaði þá stefnu sem það fylgdi fram yfir aldamót- in. Árið 2000 var leitað til mín um að ég tæki við framkvæmda- stjórn bandalagsins, en Helgi hugðist hætta þá um áramótin. Kom ég til starfa í desember það ár og naut handleiðslu hans fram til áramóta. Á þessum tíma var talsverð ásókn í að Öryrkjabandalagið styrkti alls konar málefni. Sem dæmi má nefna að maður nokkur hafði fest kaup á gömlu skólahúsi og gat ekki greitt fyrstu útborg- un nema einhver tæki það á leigu og stofnaði til sumardvalar. Kom það í hlut undirritaðs að hafna þessari beiðni. Helgi var mér sammála þegar ég sagði honum frá málinu og hló þegar ég greindi honum frá því hver kveðjuorð skólakaupandans urðu: „Ég sakna innilega forvera þíns, Helga Seljan.“ Helgi var stundum skemmti- lega snöggur og í þetta sinn svar- aði hann: „Andskotans maðurinn! Heldur hann að ég sé einhver gólftuska!“ Nú þegar Helgi er genginn al- mættinu á vald eru honum þökk- uð margvísleg áhrif og öll þau málefni sem hann greiddi fyrir. Eiginkonu hans, börnum og skylduliði votta ég mína dýpstu samúð. Arnþór Helgason. Við viljum í fáeinum orðum minnast Helga Seljan, heiðurs- félaga MS-félagsins. Helgi Seljan var sérstakur vel- unnari félagsins ásamt því að sitja í laganefnd félagins um margra ára skeið. Um hann má segja að hann var einstaklega bóngóður og gott að leita til um stuðning og ráðgjöf í hinum ýmsu málum. Hann var gerður að heiðurs- félaga á afmælishátíð félagsins 27. september 2008. Eftirlifandi konu Helga, Jó- hönnu Þóroddsdóttur, og börn- um þeirra sendum við innilegar samúðarkveðjur og þökkum Helga innilega áratuga sam- vinnu, hjálpsemi og hlýhug í garð félagsins. MS-félag Íslands, Berglind Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri. „Því óneitanlega er það örlítið betra, að unnt sé að segja, að gagn sé gert, að ekki sé til einskis unnið.“ Svo skrifaði þá nýráðinn fé- lagsmálafulltrúi Öryrkjabanda- lagsins, Helgi Seljan, í fyrsta tímarit bandalagsins árið 1988 sem kom út undir heitinu Frétta- bréf Öryrkjabandalags Íslands. Helgi hóf störf hjá bandalaginu í lok árs 1987 sem félagsmála- fulltrúi og ritstjóri fréttablaðsins. Hann varð síðar framkvæmda- stjóri 1998 þar til hann lét af störfum vegna aldurs í lok árs 2000. Helgi var bandalaginu happa- fengur. Var hann sérlega góður í samstarfi og samskiptum. Tók öllum vel sem komu í viðtal til hans á skrifstofu ÖBÍ og vildi allt gera sem mögulegt var, enda baráttumaður með mikla réttlæt- iskennd. Hann var vinamargur og þá skipti engu máli hvar þeir stóðu í stjórnmálum. Aldrei talaði Helgi illa um nokkurn mann en ef hon- um mislíkaði eitthvað hnussaði í honum. Hann var léttur í lund, stutt í grínið en hann gat einnig verið ákveðinn og röggsamur ef því var að skipta. Eitt af fyrstu verkefn- um Helga var að gefa út frétta- bréfið og var það gert af mynd- arskap enda var eitt af lífsgildum hans að ganga í verkin strax og klára þau. Áralöng þingmennska kom sér vel í störfum Helga en sem þing- maður hafði hann látið til sín taka þegar kom að málefnum fatlaðs fólks og öryrkja. Það kom ber- lega í ljós þegar hann tók hús á þingmönnum. Þá hafði hann það til siðs að bera aldrei upp erindið beint. Fyrst þurfti að ræða um sam- eiginlega kunningja og ættir, og svo uppteknir voru flestir að hlusta á Helga að þeir urðu þess vart varir þegar erindið var svo loks borið upp. Hann þótti enda orðheppinn mjög, kastaði reglulega fram stökum og málsnilld hans naut sín einkar vel á síðum fréttabréfs ÖBÍ. Þar skrifaði hann reglulega pistla og greinar og við leyfum okkur að grípa niður í eina slíka. „Það verður ekki rifjað upp hér hvernig misskipting góðæris- gróðans hefur verið, hversu þeir betur settu með aðstöðuna mata krókinn, meðan lítt hefur sést bola á bættum hag þeirra er skarðastan hlut bera frá borði, þegar góðærisflóðið hefur gjarn- an sjatnað nokkuð. Niðurskurð- arhnífnum má og á aldrei að beita þar sem bágast er fyrir.“ Þegar Helgi lét af störfum hjá Öryrkjabandalaginu kvaddi hann fulltrúa á aðalfundi bandalagsins með þessum orðum: Litið yfir liðna tíð lítil eftirtekjan reynist. Erjað mun þó ár og síð, eitthvað bitastætt þar leynist. Ykkar kynni mjög skal mæra, merluð hlýju og sólaryl. Eigið þökk og kveðju kæra, komin eru þáttaskil. Við þau þáttaskil sem nú eru runnin upp viljum við hjá Ör- yrkjabandalaginu snúa þessum orðum upp á höfundinn sjálfan og þakka góð kynni og störf í þágu fatlaðs fólks og öryrkja. Aðstand- endum færum við okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Gagn var gert og ekki var til einskis unnið. Lilja Þorgeirsdóttir, framkvæmdastjóri ÖBÍ, Þuríður Harpa Sigurð- ardóttir, formaður ÖBÍ. Látinn er heiðursmaðurinn og bindindisfrömuðurinn Helgi Selj- an. Þegar IOGT var breytt úr reglu í félag um síðustu aldamót var sjálfgefið að leitað yrði til Helga um formennsku í IOGT á Íslandi fyrstu árin. Helgi og Jóhanna voru félagar í st. Einingunni nr. 14, en þar lágu leiðir okkar saman í áratugi. Helgi var einarður og rökfastur bindindismaður og fylgdi skoðun- um sínum fast eftir í ræðu og riti. Stúkan hefur misst traustan fé- laga og fremsta baráttumann fyr- ir stefnu hreyfingarinnar. Sá var siður stúkunnar að senda þeim félögum sem áttu hátíðleg afmæli ljóð og kom iðulega í hlut Helga að semja, enda átti hann einstak- lega gott með vandaða ljóðagerð. Helgi samdi fjölda gamanljóða og skemmtisögur sem gladdi þá sem hlýddu á, hvort sem hann flutti þau sjálfur, með öðrum eða færði þau öðrum til flutnings. Ég naut þeirrar hæfni hans í ríkum mæli við dagskrárstjórn sparidaga eldri borgara á Hótel Örk. Helgi lagði mörgum góðum málum lið, sat í stjórn félags eldri borgara í Reykjavík og stjórnaði vinsælum söngvökum við undir- leik vinar síns Sigurðar Jónsson- ar tannlæknis. Helgi var í stjórn Skálatúns- heimilisins um árabil þar sem undirritaður starfaði við fram- kvæmdastjórn. Helgi vakti at- hygli fyrir skrif sín í blöð þar sem réttsýni hans hreyfði við fólki, og margar hlýjar minningargreinar sýndu velvild hans til samferða- manna. Helgi lagði gott orð til allra, enda vinmargur og traustur vin- ur sem virti skoðanir, já jafnvel stjórnmálaskoðanir annarra með vinsemd. Helgi var vandaður al- þingismaður og sem starfsmaður Öryrkjabandalagsins leysti hann vanda margra sinna skjólstæð- inga. Skarð er fyrir skildi er Helgi er frá okkur farinn eftir stutta en erfiða sjúkdómslegu. Við stúku- félagar í IOGT þökkum dugnað hans og forystu gegnum tíðina og þökkum framlag hans til starf- semi stúkunnar og dagskrár- gerðar. Fyrr á þessu ári gerði Helgi tillögur um fjárhagsleg framlög stúkunnar til nauðsynlegra verk- efna. Þeim tillögum hans verður fylgt eftir á nýju ári. Við vottum Jóhönnu konu hans, svo og fjölskyldunni allri, innilega samúð og biðjum þeim blessunar. Minningin um góðan mann lif- ir. Gunnar Þorláksson. MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2019 ✝ Runólfur Guð-jónsson at- hafnamaður fædd- ist 13. nóvember 1935 í Reykjavík. Hann lést á heimili sínu í Innri-Njarð- vík 12. desember 2019. Foreldrar hans voru Guðjón Run- ólfsson bókbands- meistari, f. 9. júlí 1907, d. 16. september 1999, og Kristín María Gísladóttir bók- bindari, f. 1. september 1908, d. 31. ágúst 1972. Þau eign- uðust þrjú börn, en systkini Runólfs voru Gísli Hauksteinn Guðjónsson, f. 12. júlí 1931, d. 12. mars 2006, og eftirlifandi systir Margrét Guðjónsdóttir, f. 19. ágúst 1932. Fyrri eiginkona Runólfs var Steinþóra Jóhannsdóttir, f. 10. mars 1939, d. 27. apríl 2004, þau skildu. Runólfur kynntist síðan ástkærri eiginkonu sinni, Inger Grétu Stef- ánsdóttur, árið 1972, f. 6. febrúar 1937 á Siglufirði. Þau hjónin bjuggu lengst af í Vogum á Vatnsleysu- strönd og síðustu árin í Innri-Njarð- vík. Runólfur lætur eftir sig tvö upp- komin börn, Jón Hlíðar Runólfsson, f. 19. febr- úar 1957, og Guðnýju Hildi Runólfsdóttur, f. 29. október 1960. Jón er giftur Eygló Jóns- dóttur og saman eiga þau börnin Eyrúnu Ósk, Stein Hlíð- ar og Sindra Hlíðar. Sambýlis- maður Hildar er Þórður Guð- mundsson og börn hennar eru þau Alistair Jón Brown og Christine Patterson. Langafa- börnin eru átta talsins. Útför hans fer fram frá Innri-Njarðvíkurkirkju, í dag, 20. desember 2019, klukkan 13. Elsku afi, við sitjum hérna systkinin Eyrún, Steinn og Sindri, börn Jóns, barnabörnin þín, ásamt langafabörnunum Óla og Ólavíu og rifjum upp allar góðu stundirnar. Steinn Hlíðar rifjaði upp þeg- ar við vorum lítil og heimsóttum ykkur í sumarbústaðinn í Gríms- nesi, hvernig þú kenndir okkur nöfnin á öllum fjöllunum í kring og lést okkur segja þér svo hvað þau öll hétu og fengum við hundraðkall fyrir rétt svar. Eyrún Ósk minnist þess síðan að við fengum alltaf hundraðkall líka fyrir að hlaupa úr heita pottinum og þvert yfir lóðina uppi í bústað í snjó og kulda á sundfötunum og að grindverkinu hinum megin svo við yrðum nú sterk og hraust. Okkur þótti það svo gaman og spennandi. Sindri Hlíðar rifjar þá upp hvað þú varst sjálfur harður nagli og lést ekkert stoppa þig. Þú gekkst með súrefniskút á þér síðustu tíu árin, því lungun voru léleg, en samt varstu alltaf að smíða eitthvað í bílskúrnum, bát eða hjólhýsi. Þú lést ekkert halda aftur af þér. Og það er ekki mjög langt síðan við stóð- um öll þrjú og horfðum á þig vaða út í Djúpavatn með súrefn- iskútinn í annarri og veiðistöng- ina í hinni og þú veiddir nokkra silunga í veiðiferð fjölskyldunn- ar. Við munum einnig hvað þú varst mikill húmoristi. Ein- hverju sinni þegar Steinn var unglingur bjó hann sér til ristað brauð að morgni, með smjöri og osti, og settist við hliðina á þér. Þá greipstu brauðið, sleiktir það allt og spurðir svo „ætlar þú að borða þetta brauð?“ Þá hlógum við mikið og Steinn eftir lét þér brauðsneiðina. Þú varst mikill dýravinur og munum við ekki eftir þér öðru- vísi en með hund eða hunda þér við hlið. Eri, litli hundurinn ykk- ar ömmu, vék ekki frá þér. Þeg- ar þú lést ætlaði amma aldrei að fá hann til að fara frá þér, hann var svo hryggur, litla dýrið. Hann sem geltir alltaf þegar gestir banka upp á til að láta ykkur vita var alveg þögull og grafkyrr þegar alla þessa ókunnugu gesti bar að garði daginn sem þú féllst frá. Nú huggar hann ömmu og passar hana fyrir þig. Þið amma voruð óaðskiljan- leg. Þið gerðuð allt saman. Og þið ferðuðust svo mikið, út um allan heim og svo komuð þið heim með alls konar dót sem var ekki til á Íslandi í þá daga. Þú varst einn af þeim fyrstu hér á landi til að fá þér ferðasímtæki og gekkst um allt með risatösku með síma á. Óli barnabarnabarnið þitt saknar þín mikið, honum fannst svo gaman að fá alltaf páskaegg frá þér og svo alla þúsundkall- ana sem þú gaukaðir að honum. Þú varst líka svo glaður þegar Sindri kom í heimsókn til ykkar um daginn með myndir af Ólav- íu litlu. Þér þótti svo vænt um öll langafabörnin þín níu, en Christine og Alistair, börn Hild- ar dóttur þinnar eiga auk þess sjö samanlagt. Og voru barna- börnin og langafabörnin þitt ríkidæmi. Við söknum þín svo mikið. Við vorum samt glöð að vita að þú fékkst að deyja heima, í þínu rúmi, við hlið elsku ömmu. Við vitum að það var þér mikilvægt. Takk fyrir allt, elsku afi, þín barnabörn, Eyrún, Steinn og Sindri og langafabörn Óli og Ólavía. Í dag kveð ég góðan og trygg- an vin, vin til margra áratuga. Þá góðu vináttu vil ég þakka. Að lýsa lífshlaupi Runólfs, sem kall- aður var Ronný, í örstuttri minningargrein er ekki auðvelt því með himinskautum þyrfti ég að fara ef koma ætti ævintýra- ferli hans eitthvað til skila. Það sem hér fer á blað er að- eins lítið brot af hans starfsferli og öllum ævintýrum sem hann upplifði í flestum heimsálfum plánetu okkar. Fljótt kom í ljós mikill vinnuvilji. Að skyldunámi loknu fór hann 15 ára á togara, af togurum á fossana. 17 ára eignaðist hann söluturn sem hann rak um tíma. Frá þeim rekstri fór hann í skiparafvirkj- anám, útskrifaðist sem skiparaf- virki. Um leið og aldur leyfði tók hann bílpróf, keypti vörubíl og sótti á honum pússningarsand til Þorlákshafnar fyrir byggendur í Reykjavík. Ámokstur sá hann um sjálfur með eigin handafli með venjulegri malarskóflu. Í tvö ár lét hann sig hafa það á gamalli bíldruslu, án framrúðu, gallaði sig bara vel á vetrum. Í framhaldi gerðist hann verktaki með vörubíla og til- heyrandi mannskap. Kom sér upp malbikunarstöð. Hann und- irvann bílaplanið á Loftleiðum og malbikaði það. Tók að sér að fylla upp í Eyðið í Vestmanna- eyjum með grjóti. Flutti Drápu- hlíðargrjót af Snæfellsnesi til Reykjavíkur. Víða annars staðar bar hann niður. Til Suður-Afríku flutti hann 1967. Fljótt gerðist hann verk- taki þar, með vörubíla og til- heyrandi mannskap. Að tveim árum liðnum hætti hann þeim rekstri. Tók sæng sína og kodda og ók þvert yfir Suður-Afríku til vesturstrandarinnar. Þar var hann ráðinn sem aðstoðarraf- virki á stórt flutningaskip sem var á leið til Lundúna. Skipið lagði af stað norður með vest- urströnd Afríku. Margir hör- undsdökkir menn voru um borð. Þeir gerðu uppreisn á miðri leið sem barin var niður með vopna- valdi, án meiðsla. Öll áhöfnin var sett beint í steininn er til Lund- úna kom. Þetta var stórt mál. Ronný var sleppt daginn eftir enda alsaklaus og var mynd af honum á forsíðu á einu stórblaða Lundúna. Hann gekk af þessu skipi og réði sig sem rafvirkja á stórt skemmtiferðaskip sem sigldi milli Lundúna og Rio de Janeiro. Eftir tvær ferðir til Rio de Janeiro réði hann sig á norskt flutningaskip. Svo ótrú- lega vildi til að þar vantaði að- stoðarrafvirkja og var Ronný ráðinn. Olsen-línan hét þessi skipaútgerð, sem var með mörg stór flutningaskip. Ronný sá fljótt að margt þurfti að lagfæra um borð, þar á meðal matarlyft- una sem hafði verið biluð í tvö ár. Það stóð ekki á útsjónarsemi hans að lagfæra lyftuna. Mikil ánægja um borð. Þetta spurðist fljótt til höfuðstöðvanna í Nor- egi. Eftir nokkra mánuði var honum boðin yfirrafvirkjastaða yfir allan flotann sem hann þáði. Eftir það flaug hann milla landa eftir því hvar skipin voru staðsett hverju sinni. Þessu góða starfi sagði hann upp og flutti alkominn til Íslands. Fór hann þá að framleiða sportbáta úr trefjaplasti og framleiddi á annan hundrað báta. Einum slíkum báti stýrði hann til sigurs við annan mann í hraðbáta- keppni umhverfis Ísland 1978. Með þessum orðum kveð ég góðan vin. Hvíli hann í guðsfriði. Hafsteinn Sveinsson. Runólfur Guðjónsson Minningarvefur á mbl.is Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að andlátum og útförum. Þar eru birtar andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar sem eru að- gengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur lesið minningargreinar á vefnum.         þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber       ætlaðar aðstandendum við fráfall ástvina. www.mbl.is/andlát Minningar og andlát

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.