Morgunblaðið - 20.12.2019, Síða 4

Morgunblaðið - 20.12.2019, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2019 Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995 Fljót, örugg og persónuleg þjónusta Allar almennar bílaviðgerðir Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það er ekki sjálfgefið að skip geti gert þetta. Rafmagnstöflur og annað þurfa að vera upp settar til að þetta sé mögulegt auk þess sem ýmislegt bryggjumegin þarf að vera til stað- ar,“ segir Ásgrímur L. Ásgrímsson, framkvæmdastjóri aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar. Varðskipið Þór fékk óvænt hlutverk í kjölfar óveðursins í síðustu viku þegar skip- ið þurfti að sinna hlutverki raf- stöðvar á Dalvík. Þór var aftengdur á Dalvík klukk- an 21.30 á miðvikudagskvöld og hafði þá veitt Dalvíkingum rafmagn síðan klukkan tvö aðfaranótt síðasta föstudags, alls tæpar 140 klukku- stundir. 250 lítrar af olíu á klukkustund Umtalsverður olíukostnaður hlaust af þessu. Aðspurður segir Ás- grímur að eigin olíunotkun skipsins meðan það lá við bryggju hafi numið um 70 lítrum á klukkustund. Hins vegar hafi farið á bilinu 200-250 lítr- ar á klukkustund að meðaltali í það að sjá bænum fyrir raforku. Ef miðað er við að meðaltals- olíunotkun hafi verið 225 lítrar á klukkustund og klukkustundirnar alls 139,5 kemur í ljós að hver klukkustund kostaði um 35.600 krónur. Miðað er við að lítraverð skipagasolíu með vsk. sé 158,2 krón- ur samkvæmt verðskrá Skeljungs í desember. Alls nam því olíukostn- aðurinn rétt tæpum fimm milljónum króna auk 1,5 í olíukostnað skipsins sjálfs. „Varðskipið var í túr þegar þetta kom upp, þriggja vikna túr sem framlengist um tvo daga út af þessu öllu saman,“ segir Ásgrímur. Hann segir að olíueyðsla skipsins á sigl- ingu sé um 300-350 lítrar að meðal- tali á klukkustund. Ásgrímur segist aðspurður búast við að kostnaður við þetta verkefni falli á Gæsluna. „Eins og staðan er núna þá vitum við ekki annað. Það er eitt af hlutverkum Landhelgisgæsl- unnar samkvæmt lögum að veita að- stoð til byggðarlaganna í landinu. Við spyrjum ekkert frekar að því og höfum ekki gert neinar ráðstafanir til að biðja um endurgreiðslu.“ Af þessu tilefni hefur verið rifjað upp að þetta er ekki í fyrsta sinn sem skip fá slíkt hlutverk. Árið 1977 var varðskipið Týr fenginn til að sjá Eyjamönnum fyrir rafmagni, Bjarni Sæmundsson var látinn keyra á Hornafirði í rafmagnsleysi árið 1973 og Ásgrímur kveðst telja að gamli Þór, forveri nýjasta Þórs, hafi sömu- leiðis verið nýttur sem rafstöð þegar á þurfti að halda. Varðskipin eru enda vel búin fyrir verkefni sem þetta, Þór getur til að mynda flutt yfir milljón lítra af olíu. Segir Ásgrímur að talað sé um að skipið geti veitt allt að tvö þúsund kílóvött á klukkustund. Meðaltalið á Dalvík var um 750 kílóvött á klukku- stund. „Raforkunotkunin var mis- jöfn eftir tímum dags, hún rokkaði til. Mest var hún þegar verið var að elda kvöldmat. Það var tekið eftir því,“ segir Ásgrímur. Sambandið við Dalvík kostaði sitt  Varðskipið Þór var rafstöð Dalvíkinga í 140 tíma  Eldsneytiskostnaður Landhelgisgæslunnar vegna þessa nam um fimm milljónum  Fellur á Gæsluna  Mest álag þegar eldað var á kvöldin Ljósmynd/Ásgrímur L. Ásgrímsson Þór Rafmagninu stýrt úr brúnni. Stjórnborðsvélin framleiðir 754 kW. Morgunblaðið/Eggert Í sambandi Varðskipið Þór sá Dalvíkingum fyrir rafmagni í tæpa viku. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Við þurfum öll að leggjast á árar og finna farsæla lausn á þessum málum,“ segir Svavar Atli Birgis- son, slökkviliðsstjóri í Skagafirði og fulltrúi í almannavarnanefnd sveit- arfélagsins. Almannavarnanefnd Skagafjarð- ar sendi frá sér harðorða ályktun í kjölfar ofsaveðursins sem gekk yfir í síðustu viku. Er þar krafist að far- ið verði í bráðaaðgerðir til að tryggja almannaöryggi í Skagafirði; tengingu Gönguskarðsárvirkjunar við rafmagnskerfi Sauðárkróks, Tetra-sendir verði settur upp í Hegranesi og á þaki sjúkrahússins á Sauðárkróki auk þess sem tvær varaaflsstöðvar verði settar upp að nýju. Í ályktuninni kemur fram að ekki hafi mátt miklu muna að illa færi í óveðrinu mikla: „Það var eingöngu tilviljun ein og í raun mikil mildi að ekki varð manntjón í óveðrinu þeg- ar senda þurfti björgunarsveitar- menn upp á Tindastól til að slá Tetrasendinum þar inn á meðan veðrið hér stóð sem hæst.“ Svavar Atli segir í samtali við Morgunblaðið að tveir menn hafi verið sendir upp á Tindastól á vél- sleðum auk þess sem snjóbíll fór aðra leið upp. Tindastóll er 989 metrar á hæð. „Það var gufubrjálað veður og virkilega mikill vindhraði. Sleða- mennirnir týndu hvor öðrum á tímabili og snjóbíllinn var ekkert nálægt. Það var engin staðsetning á þeim og stöð annars þeirra var að verða batteríslaus, hún var komin á rautt en hékk þó inni. Þetta bjarg- aðist en hefði getað orðið verra á stuttum tíma,“ segir hann. Gripið var til þess ráðs að skilja annan sleðann eftir uppi á fjallinu. Svavar segir að þessi uppákoma sýni vel að úrbóta sé þörf. Hann segir að Neyðarlínan hafi viljað leggja ljósleiðara upp á fjallið sem myndi tryggja öruggara samband við sendinn en hafi ekki náð saman við landeiganda. Svavar segir að auk truflana á Tetra-kerfi í óveðr- inu hafi fjarskiptakerfi við skip skaddast í óveðrinu á Tindastóli. „Við vorum búin að funda með Neyðarlínunni í ágúst síðastliðnum þar sem við viðruðum áhyggjur af Tetra-sambandinu í firðinum. Það var reifað á þessum fundi að við þyrftum nýja senda og Neyðarlínan var sammála því að fara þyrfti í þá vinnu. Við teljum til dæmis að auka- sendi vanti á Þverárfjalli og sendum bréf þess efnis á Fjarskiptasjóð fyr- ir fjórum mánuðum. Við höfum ekki fengið nein svör við því bréfi.“ „Tilviljun ein“ að ekki varð manntjón í óveðrinu  Viðgerðarmenn á vélsleðum urðu viðskila á Tindastóli Ljósmynd/Birgir Bragason Óveður Slökkviliðið á Sauðárkróki aðstoðaði starfsmenn Rarik við að afísa rafspenna með heitu vatni í óveðrinu sem gekk yfir landið í síðustu viku. Fjölmargir viðbragðsaðilar á Norðurlandi vestra sendu frá sér yfirlýsingu þar sem þeir mótmæltu málflutningi fram- kvæmdastjóra Neyðarlínunnar í Kastljósi á mánudag. Segir í yfirlýsingunni að „ekki hafi verið hægt að treysta á Tetra-kerfið“ meðan aftaka- veður gekk yfir landið. Upplifun þeirra af virkni kerf- isins og uppitíma hafi verið önnur en framkvæmdastjórinn hafi gefið upp í umræddum þætti. Mótmæla yfirlýsingum ÓÁNÆGJA FYRIR NORÐAN Afleiðingar ofsaveðurs

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.