Morgunblaðið - 20.12.2019, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2019
ER BROTIÐ Á ÞÉR?
Slys valda heilsutjóni og þjáningum. En það er ekki síður sárt þegar starfsorkan
skerðist og áætlanir um framtíðina bregðast. Því fylgir óvissa og áhyggjur.
Ef þú hefur orðið fyrir slysi þá skaltu hafa samband við Bótarétt sem fyrst.
Það kostar ekkert að kanna málið. Við metum stöðu þína og skoðum síðan málin
ofan í kjölinn. Þú getur látið þér batna á meðan við sækjum rétt þinn.
HRINGDU Í BÓTARÉTT Í SÍMA 520 5100 OG ÞÚ FÆRÐ ÞITT.
botarettur.is
MIKIÐ ÚRVAL!
Laugavegi 29 - sími 552 4320
www.brynja.is - verslun@brynja.is
Lykilverslun við Laugaveg
síðan 1919
Áratuga þekking og reynsla
VASAHNÍFAR
VERÐ FRÁ
2.190 krSWISS TOOL
VERÐ FRÁ
27.950 kr
Vefverslun
brynja.is
Tilvalin
jólagjöf
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Eftir að hafa lært trésmíðina lít ég
margt í framleiðslunni hér öðrum
augum en var. Tilfinning mín fyrir
faginu verður önnur og betri en var.
Handverkið er mikilvægur þáttur í
allri smíðavinnu, það er að huga að
smáatriðunum og nostra við hlutina,“
segir Eyjólfur Eyjólfsson nýútskrif-
aður úr húsgagnasmíði. Hann braut-
skráðist frá Tækniskólanum – skóla
atvinnulífsins sl. miðvikudag. Námið
tók Eyjólfur á þremur önnum jafn-
hliða starfi sínu sem framkvæmda-
stjóri og annar eigenda trésmiðj-
unnar Axis í Kópavogi.
Fljótur með faggreinarnar
Að læra húsgagnasmíði segir Eyj-
ólfur að hafi verið gamall draumur
sinn. „Ég er nánast alinn upp hér í
trésmiðjunni sem Axel Eyjólfsson afi
minn stofnaði árið 1935. Hér vann ég
á sumrin sem unglingur en þá var
Eyjólfur Axelsson faðir minn tekinn
við rekstrinum. Eftir stúdentspróf
lærði ég lögfræði við Háskóla Ís-
lands og starfaði eftir það í nokkur ár
hjá sýslumanninum á Ísafirði og lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu. Það
var svo árið 2006 sem við Gunnar
bróðir minn keyptum fyrirtækið af
föður okkar og hér hef ég verið síð-
an,“ segir Eyjólfur.
Axis er stórt fyrirtæki og þar eru
framleiddar innréttingar, borð, skáp-
ar, skrifstofuhúsgögn og svo fram-
vegis. Starfsmenn eru í dag 28 tals-
ins, að meirhluta menntaðir smiðir:
„Í svona rekstri þarf maður að
vera vakandi yfir málum allar stund-
ir. Þegar ég svo vissi að tími minn
væri orðinn rýmri og svigrúmið
meira ákvað ég síðan að skella mér í
trésmíðanámið, eins og lengi hafði
staðið til. Byrjaði í Tækniskólanum á
haustönn í fyrra og gat þá strax flýtt
fyrir mér með því að vera búinn með
grunnáfanga bóknámsins og komst
fljótt í gegnum margar faggreinar
með raunfærnimati. Áfanga í fag-
teikningu og verklega námið í hús-
gagnasmíði tók ég hins vegar í skól-
anum og þá var ég – fimmtugur
maðurinn – í tímum hjá kennurum
sem margir voru mér yngri og sam-
nemendurnir gjarnan um tvítugt.
Þetta var samt mjög skemmtilegt.“
Skúrkurinn og sjússinn
Eyjólfur hefur verið á námssamn-
ingi hjá föður sínum. Sveinsprófið
stendur til að taka í vor, en skóla-
náminu er lokið með eftirminnilegu
lokaverkefni.
„Já, þegar ég var unglingur voru
Dallas-þættirnir vinsælasta sjón-
varpsefnið. Úr þeim þáttum var mér
minnisstætt skrifborðið sem J.R.
Ewing hafði og þurfti ekki annað en
Handverkið er mikilvægt í starfinu
Rekur eina stærstu trésmiðju landsins og nam sjálfur húsgagnasmíði Eyjólfur í Axis fór í Tækni-
skólann Leitaði fyrirmynda að lokaverkefni í Dallasþáttunum Viskíborð JR nú í Kópavogi
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Skál! Eyjólfur hér við borðið góða sem hann teiknaði og smíðaði og tekur
mið af gripnum sem var á skifstofu olíufurstans í Texas forðum daga.
Öryggi farþega var ekki stefnt í
hættu þegar slökkva þurfti á öðrum
hreyfli flugvélar Air Iceland Conn-
ect og snúa henni við til lendingar
skömmu eftir flugtak á Reykjavík-
urflugvelli í ágúst í fyrra.
Þetta segir Árni Gunnarsson,
framkvæmdastjóri flugfélagsins.
Rannsóknar-
nefnd samgöngu-
slysa gaf út loka-
skýrslu um
atvikið í gær,
sem flokkað er
sem alvarlegt
flugatvik. Þar er
reynsluleysi flug-
virkja sögð frum-
orsök atviksins,
sem og að yfir-
menn og flugvirkjar á viðhaldssviði
hafi ekki fylgt verklagi.
Flugmenn vélarinnar, sem er af
gerðinni Bombardier DHC-8-402,
lýstu yfir neyðarástandi tveimur
mínútum eftir flugtak frá Reykja-
víkurflugvelli eftir að vélin hafði
misst olíuþrýsting á hægri hreyfli.
Lendingin gekk vel.
„Það er einfaldlega slökkt á
hreyflinum við þennan olíuleka og
það að fljúga á einum hreyfli er ekki
vandamál fyrir þessar vélar þannig
að það er ekki hægt að segja um
þetta atvik að það hafi verið mikil
hætta á ferðum,“ segir Árni.
Verklagi breytt eftir atvikið
Flugvélin var grandskoðuð eftir
lendingu og í ljós kom mikill olíuleki
á hægri hreyflinum. Þrír flugvirkjar
áttu að vera á svokallaðri línuvakt
en aðeins tveir voru á vakt vegna
sumarfría og aðeins annar þeirra
var með tilskilin réttindi á vélina
sem um ræðir. Hann var hins vegar
upptekinn í öðrum verkefnum og
náði ekki að yfirfara vélina.
Air Iceland Connect rannsakaði
einnig atvikið og var vaktakerfi í
viðhaldsstöð breytt í kjölfarið. Árni
segir að breytingarnar tryggi að at-
vik á borð við þetta komi ekki upp
aftur og ávallt séu flugvirkjar á vakt
með tilskilin réttindi á vélar flug-
félagsins. „Við fórum vandlega í
gegnum þetta atvik innanhúss og
það var brugðist við því strax. Við
teljum okkur vera komin með verk-
lag sem kemur í veg fyrir að svona
atvik gerist aftur,“ segir Árni og
ítrekar að breytingarnar séu í sam-
ræmi við niðurstöður skýrslu nefnd-
arinnar.
Öryggi farþega
ekki stefnt í hættu
Reynsluleysi flugvirkja olli flugatviki
Árni
Gunnarsson