Morgunblaðið - 20.12.2019, Side 16

Morgunblaðið - 20.12.2019, Side 16
BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Ístak hefur orðið hlutskarpast í út- boði um uppbyggingu nýs grunn- skóla í Nuuk, höfuðstað Grænlands. Tilboð Ístaks hljóðaði upp á 615 milljónir danskra króna, jafnvirði 11,3 milljarða króna. Karl Andreas- sen, forstjóri Ís- taks, er að vonum ánægður með nið- urstöðuna en í lokahluta útboðs- ins atti fyrirtækið kappi við verk- takafyrirtækið MT Højgaard. Athygli vekur að tilboð Ístaks var fimm milljónum DKK hærra en keppinautarins en varð þó fyrir val- inu. „Við unnum samkeppnina á stig- um þótt verðið hafi verið eilítið hærra. Útfærslan hjá okkur þótti henta betur, m.a. hvernig byggingin mætir þörfum skólans og þeirrar starfsemi sem þarna mun fara fram,“ segir Karl. Viðhaldskostnaður skoðaður Hann bendir á að í útboðinu hafi m.a. verið gerð krafa um að þátttak- endur gerðu grein fyrir því hvernig rekstrarkostnaður hússins yrði til næstu 30 ára. „Þar skiptir miklu að sýna fram á að verið sé að nota viðhaldslétt og slitsterkt byggingarefni. Einnig er mikilvægt að útlista með hvaða hætti umhirðu og öllum rekstri hússins skuli háttað á þessu tímabili til þess að lágmarka viðhalds- og rekstrar- kostnað hússins.“ Segir Karl að þessi þáttur tilboðs- ins hafi verið unninn í samstarfi við danska ráðgjafarfyrirtækið OBH sem sérhæfir sig í rekstri bygginga. Tilboðið vann Ístak í samstarfi við Verkís og KHR. Fyrirtækin eru alls ekki ókunnug þegar kemur að verk- legum framkvæmdum á þessu svæði. Ístak vann m.a. að uppbyggingu nýrrar stórskipahafnar í Nuuk sem tekin var í gagnið í fyrra og hefur komið að uppbyggingu nær allra vatnsaflsvirkjana á Grænlandi. Þá unnu Ístak og KHR saman að ann- arri skólabyggingu í bænum fyrir nokkrum árum þegar Hans Lynge- grunnskólinn var reistur. Karl segir að nýja grunnskólabyggingin muni gegna mikilvægu hlutverki í bæjar- félaginu. Þannig mun hún ekki að- eins hýsa 1.200 grunnskólanemend- ur og 120 börn á dagheimili og í leikskóla. Menningarmiðstöð í Nuuk „Skólinn verður einnig nýttur sem félagsmiðstöð eða menningarhús á kvöldin. Þannig er í raun verið að byggja yfir unga sem aldna. Stór hluti skólans, þ.e. íþróttahúsið og samkomusalurinn verða nýtt með þessum hætti og eru nefnd hjarta- rýmið (d. hjerterum).“ Segir Karl að þessi nálgun geri það að verkum að skólinn verði einskonar miðpunktur í bæjarlífinu og að hann tengi sömu- leiðis við miðbæinn sem endastöð svæðis sem nefnt er Kulturaksen. Íslendingar sem ferðast hafa til Nuuk hafa margir hverjir dvalið á Hans Egede-hótelinu en byggingar- svæðið er við hliðina á því. „Byggingin verður í heildina um 16.000 fermetrar og hún er fremur lágreist. Okkur fannst upplagt að láta hana falla vel inn í umhverfið en á sama tíma má hún ekki vera of ein- föld í útliti. Dagheimilið og leikskól- inn verða í öðrum endanum og á einni hæð en eftir því sem ofar dreg- ur á skólastiginu eru hæðir hússins fleiri. Byggingin verður því einskon- ar tröppugangur.“ Karl segist spenntur fyrir þessu verkefni og að það sé gaman að vinna að uppbyggingu í Grænlandi. „Við gerum ráð fyrir að verktím- inn verði um þrjú ár. Núna höldum við áfram með hönnunarvinnuna og við byrjum að flytja búnað og mann- skap til Nuuk í mars eða apríl.“ Erfitt að fá starfsfólk í Nuuk Gerir hann ráð fyrir að um 60 manns muni vinna að byggingunni frá Ístaki þegar mest lætur en að með undirverktökum telji hópurinn vel yfir 100. „Við viljum fá sem flesta heima- menn að verkinu en það er erfitt að fá starfsfólk því það er mikill upp- gangur í Nuuk.“ Spurður út í framkvæmdakostn- aðinn segir Karl að hann sé að mörgu leyti sambærilegur við þann kostnað sem við sjáum hér á landi. „Það verður þó að taka tillit til þess að öll aðföng eru mjög dýr á Grænlandi og við þurfum að gera miklar ráðstafanir, t.d. að flytja öll tækin okkar á staðinn ásamt því að hýsa og fæða mannskap okkar.“ Hann segir einnig að það geti valdið misskilningi í samanburði við framkvæmdakostnað hér á landi að í tölunum á Grænlandi er ekki að finna neinn virðisaukaskatt. „Það kemur einfaldlega til af því að það er enginn virðisaukaskattur innheimtur á Grænlandi. Væri hann svipaður og á Íslandi myndi verk- kostnaðurinn hækka töluvert.“ Fékk 11 milljarða verkefni í Nuuk Nuuk Nýja skólabyggingin mun falla vel að umhverfinu en þó mun hún vekja athygli vegfarenda.  Ístak reisir nýjan grunnskóla í Nuuk  Mun hýsa 1.200 skólabörn og 120 leikskólabörn  16.000 fer- metrar og verktíminn verður þrjú ár  Verkið unnið í samstarfi við Verkís og arkitektastofuna KHR Karl Andreassen Hjartað Í skólanum verður líf og fjör, bæði yfir daginn og á kvöldin. Tölvuteikning/KHR Arkitektar 16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2019 20. desember 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 122.74 123.32 123.03 Sterlingspund 160.83 161.61 161.22 Kanadadalur 93.28 93.82 93.55 Dönsk króna 18.283 18.389 18.336 Norsk króna 13.584 13.664 13.624 Sænsk króna 13.057 13.133 13.095 Svissn. franki 125.23 125.93 125.58 Japanskt jen 1.1207 1.1273 1.124 SDR 169.27 170.27 169.77 Evra 136.62 137.38 137.0 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.2968 Hrávöruverð Gull 1478.9 ($/únsa) Ál 1753.0 ($/tonn) LME Hráolía 65.84 ($/fatið) Brent ● Vísitala neysluverðs miðað við verð- lag í desember hækkar um 0,11% frá fyrri mánuði samkvæmt tölum Hagstof- unnar. Á 12 mánaða tímabili hefur vísi- tala neysluverðs hækkað um 2% í sam- anburði við 2,7% í nóvember, og er því undir 2,5% verðbólgumarkmiðum Seðlabankans. Fram kemur í Hagsjá Landsbankans að tölurnar komi veru- lega á óvart þar sem opinberar spár voru á bilinu 0,4% til 0,5%. Munurinn skýrist af minni hækkun á flugfar- gjöldum, sem hækkuðu um 9,6% á milli mánaða en þau eru jafnframt 9,2% lægri en í desember í fyrra. Auk þess lækkaði matarkarfan og reiknuð húsaleiga á milli mánaða en búist var við hækkun í þeim liðum. Lítil hækkun flugfar- gjalda kemur á óvart STUTT ● Sænski seðla- bankinn hækkaði í gær stýrivexti bankans sem eru nú í fyrsta sinn í fimm ár ekki nei- kvæðir. Stýrivextir voru hækkaðir úr -0,25 prósentu- stigum í 0. Ástæð- an er sögð vera auknar áhyggjur af áhrifum neikvæðra stýrivaxta á hag- kerfi landsins, fyrirtæki og fjárfesta, að því er segir í Financial Times. Í leiðsögn bankans kom fram að stýrivextir yrðu við núllið á næstu árum en peninga- stefnunefnd bankans bætti þó við að hún gæti þurft að lækka þá fari efna- hagshorfur versnandi. Peningastefna sænska seðlabankans, sem er sá elsti í heimi, hefur verið gagnrýnd allt frá fjár- málahruninu árið 2008. Bankinn hækk- aði stýrivexti árin 2010 2011 og var fyrir það harðlega gagnrýndur af nóbels- verðlaunahafanum Paul Krugman, sem lýsti peningastefnu bankans sem „sjálfskvalarpeningastefnu“. Stýrivext- irnir fóru lægst niður í -0,5%, frá 2016 til byrjunar þessa árs. Bankinn hélt vöxtum svo lágum þetta lengi í þeirri viðleitni að ná fram 2% verðbólgumark- miðum eftir að hafa nálgast stig verð- hjöðnunar. Hækkunin hefur þegar verið gagnrýnd af hagfræðingum þar sem hún er sögð auka taumhald peninga- stefnunnar á sama tíma og sænskur efnahagur gefur eftir. Elsti seðlabanki í heimi hækkar stýrivexti í 0% Stefan Ingves bankastjóri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.