Morgunblaðið - 20.12.2019, Page 17

Morgunblaðið - 20.12.2019, Page 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2019 Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is GOTT VERÐ ALLA DAGA Slá kr. 7.990 Ponjo kr. 8.990 Gerið verðsamanburð Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Mitch McConnell, leiðtogi repúblik- ana í öldungadeild Bandaríkjaþings gagnrýndi demókrata harðlega í gær eftir að þeir samþykktu í fyrrinótt að ákæra Donald Trump Bandaríkja- forseta til embættismissis. Trump er þriðji forsetinn í sögu Bandaríkj- anna sem er ákærður á þennan hátt. Atkvæði í fulltrúadeildinni féllu nær alfarið eftir flokkslínum í deild- inni. Var samþykkt með 230 atkvæð- um gegn 197 að ákæra Trump fyrir að misbeita valdi sínu og með 229 gegn 198 að ákæra hann fyrir að reyna að hindra framgang réttvísinnar. Sagði McConn- ell að það væri skylda öldunga- deildarinnar að leiðrétta mistök fulltrúadeildarinnar, sem hefðu stýrt „snarhastalegustu, minnst ítarlegu og ósanngjörnustu rannsókn“ á af- glöpum forseta í embætti sem farið hefði fram á síðari tímum. Sakaði McConnell demókrata um að hafa verið að leita að tilefni til að ákæra Trump frá því hann tók við embætti og að demókratar væru blindaðir af pólitískri reiði. Chuck Schumer, leiðtogi demó- krata í öldungadeildinni, vísaði í orð McConnells og sagði ljóst að McConnell hefði í hyggju að standa að snarhastalegustu, minnst ítarlegu og ósanngjörnustu réttarhöldum yf- ir forseta sem farið hefðu fram á síð- ari tímum. Þá hefði McConnell forð- ast að svara þeim ásökunum sem bornar væru á Trump. Sakaði Schumer McConnell enn- fremur um að ætla að koma í veg fyr- ir að vitni verði kölluð fyrir öldunga- deildina í réttarhaldinu, sem mun líklega fara fram í næsta mánuði. Nær öruggt er talið að Trump verði sýknaður af ákærunum, líkt og þeir tveir fyrri sem ákærðir hafa verið til embættismissis, Andrew Johnson árið 1868 og Bill Clinton ár- ið 1998. Allt stefndi í að Richard Nix- on yrði ákærður 1974, en hann sagði af sér áður en ákæran var samþykkt. Ákæran „sprottin af reiði“  Trump þriðji sem ákærður er til embættismissis  Atkvæði eftir flokkslínum Mitch McConnell Þessi slökkviliðsþyrla reyndi að hemja skógar- elda sem geisa nú í nágrenni borgarinnar Sydn- ey í Ástralíu. Hitamet, sem sett var í fyrradag, Veðurfræðingar vara við því að hitabylgjan muni halda áfram og að hitastigið muni jafnvel hækka enn meira. var slegið í gær, og lýstu yfirvöld í New South Wales-fylkinu yfir neyðarástandi vegna hita- bylgjunnar og eldanna í gær. AFP Neyðarástandi lýst yfir vegna elda Breska ríkisstjórnin mun leggja allt kapp á að útganga Bretlands úr Evrópusambandinu fari fram 31. janúar 2020, samkvæmt stefnuræðu Elísabetar 2. Englandsdrottningar, sem drottningin las upp við þing- setningu í gær. Að því loknu verður stefnt að frí- verslunarsamningi við Evrópusam- bandið sem muni koma öllu Bret- landi til góða. Af öðrum atriðum sem drottn- ingin kom inn á í ræðu sinni má helst nefna heilbrigðismál, en Boris John- son forsætisráðherra hyggst binda í lög auknar fjárveitingar til breska heilbrigðiskerfisins, fjölga starfs- fólki þess og afnema stöðumæla- greiðslur fyrir þá sjúklinga sem brýnast þurfa á aðstoð að halda. Þá var sérstaklega tekið fram að þingrofsrétturinn yrði færður aftur til forsætisráðherrans og lög frá árinu 2010 sem færðu þinginu sjálfu það vald yrðu numin úr gildi. Þau lög voru sett í tíð samsteypu- stjórnar íhaldsmanna og frjáls- lyndra demókrata og urðu til þess að stjórnarandstaðan gat tafið síðustu kosningar fram í desember. Brexit verði í al- gjörum forgangi AFP Þingsetning Drottningin gengur inn í sal bresku lávarðadeildarinnar. Minni viðhöfn var við þingsetninguna nú, m.a. vegna þess að stutt er í jól. Vladimír Pútín Rússlandsforseti sagði í gær að lík Vladimírs Leníns, leiðtoga Sovétríkjanna, ætti að vera áfram í graf- hvelfingu sinni á Rauða torginu í Moskvu svo lengi sem Rússar hefðu enn minningar um sovéttím- ann. Pútín var spurður á árlegum fréttamannafundi sínum hvort flytja ætti lík Leníns, en um 60% Rússa eru sögð styðja hugmyndina í skoðanakönnunum. Pútín hefur áður sagt að ekki ætti að færa líkið, en viðurkenndi í gær að hugmyndir sínar um Len- ín hefðu breyst frá því að hann var útsendari sovésku leyniþjón- ustunnar KGB. Sagði Pútín ljóst að Lenín hefði verið meiri bylting- armaður en stjórnmálaleiðtogi og gagnrýndi hvernig hann hefði sett upp Sovétríkin. Taldi Pútín meðal annars að ríkið hefði verið gert of nátengt Kommúnistaflokknum, þannig að þegar flokkurinn missti tökin hefðu Sovétríkin hrunið. RÚSSLAND Ekki verði hróflað við líki Leníns Leiðtogar kata- lónskra aðskiln- aðarsinna fögn- uðu í gær, þegar mannrétt- indadómstóll Evrópu úrskurð- aði að spænsk stjórnvöld hefðu átt að sleppa að- skilnaðarsinnanum Oriol Junque- ras úr haldi svo hann gæti tekið sæti sitt á Evrópuþinginu eftir að hann var kjörinn til þingsins í maí síðastliðnum. Junqueras sat þá í haldi og beið þess að réttað yrði yfir sér. Hann var hins veg- ar dæmdur í október til 13 ára fangelsisvistar og krefjast stuðn- ingsmenn hans að sá dómur verði numinn úr gildi. SPÁNN Junqueras hefði átt að njóta þinghelgi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.