Morgunblaðið - 27.12.2019, Side 4

Morgunblaðið - 27.12.2019, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 2019 Gleðileg ól 577-5757 www.gamafelagid.is Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Endurskoða þarf löggjöf á Íslandi þar sem helstu innviðir samfélagsins eru greindir og staða þeirra tryggð með tilliti til þjóðaröryggis. Vegir, brýr, virkjanir, flugvellir og fjar- skipti gætu fallið undir þessa lög- gjöf og síðast en ekki síst flutn- ingskerfi raforku. Þetta segir Njáll Trausti Frið- bertsson, þing- maður Sjálfstæð- isflokksins í Norðausturkjör- dæmi, sem eftir nýárið ætlar að óska eftir skýrslu frá stjórnvöldum um stöðu þessara mála. Sé ástæða til megi leggja fram lagafrumvarp um málið. „Við Íslendingar erum langt á eft- ir nágrannaþjóðunum varðandi lög- gjöf sem snýr að grunninnviðum og helstu öryggishagsmunum sem tengjast þeim. Ég hef lengi talað fyr- ir því að koma slíkri löggjöf á hér á landi. Eðlilegt væri að skoða slíka löggjöf í samhengi við landskipulag,“ segir Njáll Trausti í samtali við Morgunblaðið. Hagsmunir fjöldans ráði Rafmagnsleysi í byggðum á Norð- urlandi sólarhringum saman í óveðr- inu fyrr í þessum mánuði hefur skap- að umræður um öryggismál. Ljóst þykir að styrkja þarf veika hlekki í kerfinu, en bent hefur verið á að oft gangi slíkt hægt vegna sjónarmiða um umhverfisvernd. Kærur tefji mál og réttur landeigenda sem ekki vilji mannvirki í sínu landi sé býsna sterkur. Þetta segir þingmaðurinn nauðsynlegt að skoða, þannig að hagsmunir fjöldans séu ráðandi þeg- ar koma þarf upp mannvirkjum sem tryggja skulu öryggi og lífsgæði al- mennings. Lúti þetta að raforku- mannvirkjum en ekkert síður gerð nýrra vega, sem eru mikilvægir með tilliti til byggðasjónarmiða, umferð- aröryggis og slíks. „Framkvæmdir við nýja línu milli Fljótsdalsstöðvar og Kröfluvirkjun- ar hófust nýlega. Næst er svo að styrkja Byggðalínuhringinn á milli Kröflu og Blönduvirkjunar. Því fylgir að leggja þarf nýja línu frá Blöndu til Akureyrar, en raforkumál í Eyjafirði hafa í meira en áratug verið í miklum ólestri. Framboð á raforku í Eyjafirði hefur verið mjög takmarkað sem hamlar atvinnuupp- byggingu,“ segir Njáll Trausti. Leggur hann áherslu á að þessum framkvæmdum verði flýtt enda hafi fjármunir til slíks verið tryggðir. Í óveðrinu á dögunum hafi Byggðal- ínan svokallaða laskast, það er bæði á Austurlandi og í Skagafirði. Á tímabili hafi íshlaðin Kröflulína 1 ein tryggt raforkuflutninga til Akureyr- ar og á tímabili hafi staðan verið tví- sýn. Byggðalínan sé styrkt Njáll Trausti bendir á að stefna núverandi ríkisstjórnar sé að nýta með hagkvæmni þá orku sem þegar hefur verið virkjuð. Í þeim tilgangi þurfi að treysta flutnings- og dreifi- kerfin. Hamfarirnar á dögunum og umræða í kjölfar þeirra hafi komið málunum á dagskrá. „Nú þarf að skoða vel hvað hægt sé að gera til að styrkja flutnings- kerfi raforku út frá byggðalínunni. Stjórnendum Landsnets og RARIK kom á óvart hversu illa Dalvíkurl- ínan fór í óveðrinu, enda sterk. Við getum ekki annað en brugðist við þegar stór byggðarlög eins og Dal- vík verða rafmagnslaus í langan tíma. Sama gæti gerst víða um landið svo þetta þarf allt að skoða heild- stætt með öryggi að leiðarljósi,“ seg- ir þingmaðurinn. Þjóðaröryggi í orku- málum verði tryggt  Lög um innviði verði endurskoðuð  Staðan var tvísýn Morgunblaðið/Eggert Hamfarir Háspennulínan til Dalvíkur skemmdist mikið í óveðrinu fyrr í mánuðinum. Rafmagnsleysið hefur kallað á umræðu og aðgerða er krafist. Njáll Trausti Friðbertsson Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Mikið var um að vera á skíðasvæð- um landsins á öðrum degi jóla í gær enda jólahefð hjá mörgum lands- mönnum að renna sér á skíðum yfir hátíðarnar. Um 2.000 manns sóttu skíðasvæð- ið í Bláfjöllum í gær, 750-800 manns skíðuðu í Hlíðarfjalli á Akureyri og yfir 150 í Skarðsdal á Siglufirði. Var veðurblíða allan daginn í Hlíðarfjalli og í Skarðsdal og fyrri part dags í Bláfjöllum en að sögn Einars Bjarnasonar, rekstrarstjóra í Blá- fjöllum, versnaði veðrið verulega eftir klukkan tvö. Þrátt fyrir það segir Einar fólk hafa verið jákvætt og að fáir hafi lát- ið veðrið stoppa sig. „Það er ótrúlegt hvað fólk er búið að vera úti með börnin sín í þessu veðri. Það er magnað að sjá þessi litlu börn, hvað þau eru grimm,“ segir Einar. Margir keyptu vetrarkort Guðmundur Karl Jónsson, for- stöðumaður skíðasvæðisins í Hlíð- arfjalli, segir daginn hafa verið með besta móti. „Það var margt fólk, gott skíða- færi og allir í jólastemningu,“ segir hann. Segir hann að vetrarkortasala hafi gengið sérstaklega vel í gær. „Ég held að fólk sé bjartsýnt á að þetta verði góður vetur þannig að margir eru að kaupa sér vetrar- kort,“ segir hann. Egill Rögnvaldsson, forstöðu- maður skíðasvæðisins í Skarðsdal, tekur undir með Guðmundi og segir daginn hafa verið frábæran. „Það var logn og heiðskírt og tveggja stiga frost. Þurr og flottur snjór,“ segir Egill. Jólastemning á skíðasvæðum  Fjölmargir sóttu helstu skíðasvæði landsins í gær Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Skíðajól Mörg börn fengu að spreyta sig á skíðum í gær. Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Árið 2018 voru skráð fleiri umferðar- lagabrot á höfuðborgarsvæðinu en nokkurn tímann áður, eða frá því að samræmdar skráningar hófust hjá lögreglu árið 1999. Brotin voru samtals 44.878 talsins og fjölgaði þeim um tæp 15 prósent á milli ára. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um afbrot á höfuðborgarsvæð- inu árið 2018. Hraðakstur var orsök langflestra brotanna og voru hraðakstursbrot 35.000 talsins. Metfjöldi umferðar- lagabrota var einnig skráður árið 2017 en þá voru brotin rúmlega 39 þúsund talsins. 23% fjölgun kynferðisbrota Fleiri sérrefsilagabrot hafa sömu- leiðis aldrei verið skráð á höfuðborgar- svæðinu og árið 2018. Um það bil helmingur þeirra var vegna brota á áfengislögum og/eða fíkniefnabrot. 1.630 fíkniefnabrot voru skráð á höfuðborgarsvæðinu árið 2018. Þeim fjölgaði lítillega á milli ára en stór- felldum fíkniefnabrotum fækkaði. Stór hluti brotanna kom upp í tengslum við önnur mál, til dæmis akstur undir áhrifum fíkniefna. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í mars síðastliðnum hefur akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna aukist mikið síðustu ár. Að meðaltali barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu 31 tilkynning mánaðarlega vegna kynferðisbrota ár- ið 2018 en tilkynningarnar voru alls 370 talsins. Þeim fjölgaði um 23% á milli ára og um 42% miðað við meðaltal áranna 2009 til 2017. Tæpur helmingur allra tilkynntra kynferðisbrota var tilkynningar um nauðgun. Afbrotum á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði hlutfallslega mest á milli ára á svæði Mosfellsbæjar, Kjalarness og Kjósar, eða um 10,5%. Brotum fækk- aði einungis í Vesturbæ eða um 3,8%. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Eftirlit Í skýrslunni kemur fram að til þess að bregðast við auknum umferðar- lagabrotum hafi sektir hækkað og önnur viðurlög vegna brotanna verið hert. Aldrei skráð fleiri umferðarlagabrot Innbrotum fjölgar » Lögreglunni bárust 9.597 tilkynningar um hegningar- lagabrot árið 2018. Það jafn- gildir 424 brotum á hverja 10.000 íbúa. » Tæpur helmingur hegning- arlagabrota var auðgunarbrot sem flest voru tilkynnt vegna þjófnaðar. » Skráðum innbrotum fjölgaði um 27% á milli ára en skráð til- vik um þjófnaði hafa þó ekki verið eins fá síðan 2007.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.