Morgunblaðið - 27.12.2019, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 2019
Sími 534 1500 | kiddi@kambstal.is | Íshellu 1, 221 Hafnarfirði
Klippt & beygt
kambstál
fyrir minni og stærri verk
Reynsla | gæði | þjónusta
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Heildarmagn úrgangs sem borist
hefur SORPU bs. í ár hefur dregist
saman um 12% síðan í fyrra ef
marka má bráðabirgðaáætlun
SORPU fyrir árið. Útlit er fyrir að
um 231 þúsund tonn af úrgangi
hafi borist til SORPU um áramótin
sem er töluvert minna en á sama
tíma í fyrra þegar úrgangurinn var
263 þúsund tonn. Er þetta í fyrsta
sinn sem magn úrgangs til SORPU
hefur dregist saman síðan 2013.
Þetta staðfestir Björn Halldórsson,
framkvæmdastjóri SORPU bs., í
samtali við Morgunblaðið.
Aðspurður segir hann að rekja
megi samdráttinn mestmegnis til
efnahagsástandsins í landinu en
bætir við að einnig sé hluti skýr-
ingarinnar sá að SORPA hafi tekið
við úrgangi frá Suðurlandi í fyrra
en ekki í ár.
Heimsóknum fækkar
Segir Björn samdrátt á endur-
vinnslustöðvum SORPU á fyrstu
11 mánuðum ársins 2019 vera upp
á 3,6% og segir jafnframt að dregið
hafi úr heimsóknum á stöðvarnar
um 0,9% á sama tíma. Þess má
geta að árið 2018 fjölgaði heim-
sóknum um 5% og tekið var á móti
8,4% meira magni en árið 2017
samkvæmt ársskýrslu SORPU
2018.
„Það er almennt efnahags-
ástandið sem ræður mestu um
þetta. Svo er líka heilmikil umfjöll-
un um endurnotkun og endurnýt-
ingu þó að ég hafi minni trú á því
að það hafi einhver afgerandi áhrif.
Ég held að þetta sé meira bara
hvað er að gerast í samfélaginu,“
segir Björn.
Umhverfismálin hafi lítil áhrif
„Það sýnir sig að það er ansi
þétt samband milli vísitölu einka-
neyslu og vísitölumagns á endur-
vinnslustöðvunum. Það er nánast
línulegt samband. Það segir manni
að það er meira veskið sem ræður
heldur en endilega umhverfismálin,
þó að þau hafi einhver áhrif,“ segir
hann.
Björn segir magn úrgangs úr
gráu tunnunum einnig hafa minnk-
að töluvert á árinu þó að enn sé
ekki hægt að staðfesta hversu mik-
ill samdrátturinn þar sé. Segir
hann þetta þó benda til þess að
fólk sé frekar að fara með úrgang
á endurvinnslustöðvar og setja
hann í aðra farvegi.
12% samdráttur í úrgangi
Efnahagsástandið mesti áhrifavald-
urinn, segir framkvæmdastjóri SORPU
Heildarmagn úrgangs til SORPU 2001 til 2019*
Þúsundir tonna
12% er áætlað að magn úrgangs minnki frá 2018
*Áætlun fyrir 2019. Heimild: SORPA.
234
152
143
167
181
210
233
263
231*
2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019
250
200
150
100
50
0
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Jólin í ár eru sannkölluð spilajól hjá
Aroni Heiðari Steinssyni og fjöl-
skyldu en hann og kærasta hans,
Gunndís Eva Baldursdóttir, prent-
uðu út og handmáluðu borðspilið
Landnemana á Catan í þrívídd fyrir
hátíðina.
Spila mikið yfir jólin
„Fjölskyldan er mjög dugleg að
spila. Við spilum mikið yfir jólin og
páskana og þetta spil, Catan, hefur
staðið upp úr í gegnum árin,“ segir
Aron í samtali við Morgunblaðið en
hann fékk grunnspilið af Landnem-
unum á Catan fyrst í jólagjöf árið
2005.
Aron segir að verkið hafa verið
nokkuð tímafrekt en hann prentaði
alla 93 reiti spilsins með þrívíddar-
prentara sem hann á heima og tók
prentunin samtals 372 klukkutíma;
240 klukkutíma í landreitina og 132
klukkutíma í sjávarreitina. Ofan á
það eyddi parið um 48 klukkutímum
í að handmála allt spilið en reitirnir
koma hvítir að lit úr prentaranum.
Tilbúið rétt fyrir aðfangadag
„Gunndís var yfir málningardeild-
inni. Hún er fær með pensilinn þann-
ig að hún sá um að mála. Ég sá bara
um að mála grunnlitina en hún var
með öll smáatriðin. Þar kom hún
mjög sterk inn,“ segir hann.
Aron segir að spilið, sem saman-
stendur af grunnspili Landnemanna
á Catan ásamt tveimur aukapökk-
um, hafi verið tilbúið rétt fyrir að-
fangadag. Fjölskyldan hefur þó ekki
enn fengið tækifæri til að spila spilið
en stefnir á að verja bróðurhluta
dagsins 29. desember í að prufu-
keyra það. Býst Aron við að 6-8
manns muni taka þátt í spilinu þann
daginn og spáir því að spilið muni
taka um þrjá tíma.
„Systur mínar eru mjög spenntar
fyrir þessu. Þær eru mjög þakklátar
fyrir að við séum búin að eyða öllum
þessum tíma í þetta,“ bætir hann við.
Aron segir að fjölskyldan tengi
borðspilamennsku við hátíðardaga.
„Við erum öll dálítið upptekin í
okkar starfi, vinnum duglega svo við
gefum okkur góðan tíma á hátíðar-
dögum og spilum,“ segir hann.
Catan Borðspilið samanstendur af 92 handmáluðum reitum í þrívídd.
Gerðu heimagert
Catan fyrir jólin
Samtals tók 420 tíma að gera spilið
Ljósmynd/Aron Heiðar Steinsson
Spilajól Aron og Gunndís eyddu
miklum tíma í að klára spilið.
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Lögreglan handtók í fyrradag karl-
mann á sextugsaldri vegna gruns um
að hann hefði svipt unga konu frels-
inu og reynt að nauðga henni.
Karl Steinar Valsson, yfirlög-
regluþjónn miðlægrar rannsóknar-
deildar lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu, staðfestir þetta.
Maðurinn var úrskurðaður í
gæsluvarðhald en hann mun sitja í
varðhaldi fram á sunnudag.
RÚV greindi frá því í kvöldfrétt-
um sínum í gærkvöldi að maðurinn
hefði haldið konunni nauðugri í
minnst tíu daga á heimili sínu í
Vesturbænum.
Gaf konunni eiturlyf
Á þeim tíma gaf maðurinn kon-
unni, sem er 25 ára gömul, eiturlyf
og misnotaði hana kynferðislega,
samkvæmt frétt RÚV.
Konan var flutt á bráðamóttöku á
aðfangadag.
Karl Steinar segir að hann haldi
ekki að maðurinn eigi brotaferil að
baki. Karl Steinar vill ekkert segja
um það hvort maðurinn hafi í gegn-
um tíðina gegnt ábyrgðarstöðum
innan stjórnsýslunnar, eins og sagt
var í frétt RÚV.
Svipti unga konu frelsi
Grunaður um frelsissviptingu og tilraun til nauðgunar
Morgunblaðið/Eggert
Lögreglan Maðurinn er í varðhaldi.