Morgunblaðið - 27.12.2019, Síða 11

Morgunblaðið - 27.12.2019, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 2019 Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is n hefst á mántsala uda Óskum viðskiptavinum okkar GLEÐILEGS ÁRS og þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða. Söfnum í neyðarmatar- sjóð fyrir jólin til matarkaupa hjá Fjölskylduhjálp Íslands fyrir þá fjölmörgu sem lægstu framfærsluna hafa. Þeim sem geta lagt okkur lið er bent á bankareikning 0546-26-6609, kt. 660903-2590. Fjölskylduhjálp Íslands, Iðufelli 14 Breiðholti og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ. Neyðarsöfnun í matarsjóðinn Guð blessi ykkur öll Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Umhverfisstofnun hefur kynnt til- lögu að friðlýsingarskilmálum fyrir Búrfell, Búrfellsgjá og Selgjá í Garðabæ ásamt tillögu að mörkum svæðisins. Umhverfis- og auðlind- aráðherra hefur ákveðið að tillögu Garðabæjar og Umhverfisstofnunar að friðlýsa þetta svæði sem nátt- úruvætti. Svæðið hefur verið vinsælt til útivistar. Hið friðlýsta svæði er 3,4 ferkílómetrar að stærð. Samstarfshópur, skipaður fulltrú- um frá Garðabæ, Umhverfisstofnun, umhverfis- og auðlindaráðuneyti, Ríkiseignum, Minjastofnun Íslands og landeigendum hefur undanfarið unnið að undirbúningi friðlýsing- arinnar. Markmið hennar er að vernda jarðmyndanir, eldhraun, eldstöð og hraunhella sem myndast hafa eftir að jökull hvarf af landinu á síðjökultíma. Einnig að varðveita náttúrulegt gróð- ur- og dýralíf svæðisins. Loks að auð- velda almenningi aðgengi og kynni af náttúruminjum þar sem svæðið er að- gengilegt og tilvalið til fræðslu og úti- vistar vegna nálægðar við höfuðborgarsvæðið. Verndargildið er hátt Verndargildi svæðisins felst fyrst og fremst í jarðfræðinni og jarð- myndunum þess, segir í frétt á heimasíðu Umhverfisstofnunar. Svæðið er mjög gott dæmi um jarðmyndanir sem eru sérstakar á landsvísu og hafa hátt vísinda- og fræðslugildi. Búrfell og hrauntraðir frá gígnum, gjárnar og misgengi eru mjög áberandi í landi. Búrfell er stak- ur gjall- og klepragígur sem tilheyrir eldstöðvakerfi Krýsuvíkur. Snemma á nútíma, fyrir um 8.100 árum, rann úr Búrfelli Búrfellshraun sem hefur breytilega ásýnd eftir svæðum. Næst upptökunum í Búrfelli er hraunið slétt helluhraun með hrauntröðum eða hraunrásum með hellum. Fjær upptökunum er það klumpahraun. Helstu vistgerðir innan svæðisins eru birkiskógur. Þar er einnig að finna hraunlendi þar sem er fyrst og fremst um að ræða mosahraunavist, en einnig lynghraunavist á milli og á stöku stað eyðihraunavist. Á skjól- góðum svæðum, sem liggja lægra í landi, er að finna lyngmóavist og grasmóavist. Innan svæðisins er talsvert af menningarminjum s.s. fjárskjól og seljarústir sem telja má einstakar í sinni röð, byggðar við gjárbarmana með baðstofum, eldhúsi, kvíum og stekkjum. Undirbúningur friðlýsingar svæð- isins er liður í stjórnarsáttmála rík- isstjórnarinnar um átak í friðlýs- ingum. Tillagan er komin til kynningar á heimasíðu Umhverfisstofnunar, www.ust.is. Frestur til að gera at- hugasemdir við tillöguna er til og með 23. mars 2020. Jarðmyndanir sérstakar á landsvísu verða friðlýstar  Búrfell og nágrenni þess varðveitt  Vinsælt útivistarsvæði í Garðabæ Ljósmynd/Umhverfisstofnun Friðlýsing Búrfell og hrauntraðir frá gígnum, gjárnar og misgengi eru mjög áberandi í landi, segir í kynningunni. Búrfell, Búrfellsgjá og Selgjá Tillaga að friðlýsingu Kortagrunnur: OpenStreetMap Mörk friðlýsingar Alls 3,4 km2 Búrfell Urriðavöllur HAFNARFJÖRÐUR Urriðaholt GARÐABÆR KÓPAVOGUR Urriðavatn Hvaleyrarvatn Vatnsendi Heiðmörk Búrfellsgjá Selgjá Víghóll Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu heilbrigðisráðherra um undirbúning tilraunaverkefnis um notkun sjúkra- þyrlu til að styrkja sjúkraflutninga í landinu og veita þannig bráðveikum og slösuðum sérhæfða þjónustu með sem skjótustum leiðum. Þetta kemur fram á vef stjórnarráðs Íslands en mbl.is greindi frá þessu í gær. Lagt er til að þyrlan verði staðsett á suðvesturhorni landsins þar sem útköll vegna slysa og bráðra veik- inda eru tíð og hafi fjölgað mikið á síðustu árum á svæðinu, sérstaklega á Suðurlandi þar sem straumur ferðamanna hefur verið vaxandi. Horft er til þess að með þyrlunni og áhöfn hennar megi stytta viðbragðs- tíma í útköllun umtalsvert og draga út fjarveru sjúkrabíla og lækna úr héraði. Auk þessi myndi þyrlan bæta sjúkraflutninga til Vestmannaeyja. Tilraunaverkefni um sjúkraþyrlu samþykkt Morgunblaðið/Hari Sjúkraþyrla Þyrlan og áhöfn hennar myndi bæta viðbragðstíma í útköllun umtalsvert. Lögreglan rannsakar stuld á flug- eldum frá Hjálparsveit skáta í Kópavogi nú um jólin, þar sem lásar á gám sem stóð fyrir utan bækistöð sveitarinnar á Kársnesi voru skornir upp með slípirokk. Aðalsteinn Maack, formaður sveit- arinnar, áætlar í samtali við Morgunblaðið að skaðann megi virða á um tvær milljónir króna, en tekið var eitt bretti af flug- eldum og sennilega notaður sendi- bíll til að flytja þýfið á brott. Skotkökur með 50 ára afmælis merki hjálparsveitarinnar voru meðal þess sem stolið var, en inn- brotið uppgötvaðist fyrst í gær- morgun. Á Þorláksmessu hafði fólk verið á staðnum við að koma flugeldunum fyrir í gámum fyrir söluna sem hefst á laugardaginn. „Fyrst og fremst er þetta sorg- legt,“ segir Aðalsteinn um málið og bætir við að flugeldasalan sé afar mikilvæg tekjulind fyrir hjálparsveitina og alla starfsemi hennar. sbs@mbl.is Flugeldum var stolið Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Innbrot Hengilásar skornir í sundur. Brotist var inn í bílaþvottastöð- ina Löður við Fiskislóð í Reykja- vík nokkrum dögum fyrir jól og úr peningaskáp þar meðal annars stolið nokkrum 12 skipta klippi- kortum sem gilda fyrir bíla í þrif. Kortin hafa nú verið gerð óvirk. Löður getur fylgst með öllum útgefnum kortum sínum sem jafnframt eru númeruð. Í til- kynningu varar lögreglan fólk við að kaupa þessi þvottakort og óskar upplýsinga frá þeim sem kunna að hafa verið boðin þau til kaups. Brotist inn á bíla- þvottastöð Löðurs

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.