Morgunblaðið - 27.12.2019, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 2019
laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is
Vinnuþjarkurinn Ankarsrum
Assistent er mættur í Kokku.
Sænsk gæðaframleiðsla í nær 80 ár
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratug
a
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
Urmas Peiker sem settu Funder-
beam á laggirnar: Ruusalepp hafði
áður stýrt Nasdaq-kauphöllinni í
Tallinn og Peiker m.a. starfað um
árabil hjá eistneska fjármálaeftirlit-
inu. Rünno segir vandséð að nokkur
annar hefði getað gert álíka hugmynd
að veruleika enda kom snemma í ljós
að nálgun Funderbeam var svo bylt-
ingarkennd að hún féll ekki alltaf með
góðu móti að reglum um fjármögnun
fyrirtækja. „Funderbeam fékk hins
vegar nægilegt svigrúm til að starfa í
Eistlandi og þar tókst að sýna vel
fram á að þjónustan virkaði vel. Í
framhaldinu fékk fyrirtækið starfs-
leyfi í Bretlandi og með því leyfi til að
starfa um alla Evrópu,“ útskýrir
Rünno og bætir við að það hafi verið
allt annað en létt verk að ryðja braut í
gegnum reglugerðafrumskóginn og
lögfræðingar unnið að því baki brotnu
allt frá fyrsta degi. „Bæði sprotar og
fjárfestar í Eistlandi voru himinlif-
andi með árangurinn þar sem fram-
boð af fjármagni til sprotaverkefna
hafði fram að því verið af mjög skorn-
um skammti.“
Virkja fjöldann
Kalla mætti Funderbeam einfald-
aðan hlutabréfamarkað og fjáröflun-
arloturnar þar á margan hátt svip-
aðar frumútboðum en ferlið ódýrara
og ekki eins þungt í vöfum. Rík
áhersla er lögð á gagnsæi og upplýs-
ingagjöf en á sama tíma er tillit tekið
til þess að um sprotamarkað er að
ræða og fyrirtækin á Funderbeam í
allt annars konar rekstri en fullsköp-
uð hlutafélög í kauphöll. „Það t.d.
ekki skylda að skila ársfjórðungsupp-
gjöri en við hvetjum fyrirtækin til að
gefa fjárfestum reglulega upplýsing-
ar um hvernig gengur,“ segir Rünno
og bætir við að hluthafar taki oft virk-
an þátt í að liðsinna sprotunum: „Í
gegnum Funderbeam er hægt að
virkja kraft fjöldans og með góðri
upplýsingagjöf má kalla fram úr fjár-
festahópnum hugmyndir að nýjum
lausnum eða ábendingum um vannýtt
tækifæri.“
Áhugasamir sprotar gefa sig fram
við Funderbeam sem rýnir í rekst-
urinn og lætur eigin sérfræðinga gera
drög að fjármögnunarherferð. Fund-
erbeam og sprotarnir leiða síðan sam-
an hentuga fjárfesta og sjóði, og í
framhaldinu er almenningi leyft að
taka þátt á sömu kjörum. Allir sem
leggja í púkkið fjárfesta sem ein heild
en einn lykilfjárfestir er valinn sem
tengiliður við sprotann.
Góður stökkpallur
Rünno segir ekki mega líta svo á að
Funderbeam sé í samkeppni við hefð-
bundnar kauphallir eða nýsköpunar-
sjóði. Hann segir nýsköpunarsjóði
þvert á móti geta nýtt Funderbeam
til að efla og bæta gæði fjárfestinga
sinna en að markaður Funderbeam
sé – a.m.k. enn sem komið er – of
smár í sniðum til að geta komið í stað
hefðbundins hlutafjárútboðs. „Þó að
skráning hjá Funderbeam sé á marg-
an hátt þægilegri fyrir stjórnendur
og stofnendur en skráning í kauphöll
þá getum við hreinlega ekki keppt við
getu kauphallanna þegar kemur að
verkefnum sem kalla á fjármögnun
upp á tugi eða hundruð milljóna
evra,“ segir hann. Tekjur sínar fær
Funderbeam í gegnum 1.000 evra
umsóknargjald, og 2.500 evra um-
sjónargjald sem aðeins er rukkað ef
fjármögnun sprotans lukkast, auk 5%
þóknunar sem tekin er af því fé sem
safnast.
Þar er um leið kominn hluti af
svarinu við spurningunni um hvers
konar sprotar eiga erindi við Fund-
erbeam: „Þeir sprotar standa best að
vígi sem eru komnir af hugmynd-
astigi og búnir að fá einhverja upp-
hafsfjármögnun. Jafnvel ef sprotar
eru ekki nógu langt komnir vísum við
þeim ekki frá heldur reynum að veita
þeim gagnlega leiðsögn með það fyrir
augum að þeir leiti fjármögnunar hjá
okkur á síðari stigum. Það boðar gott
fyrir framhaldið ef sprotinn býr að
sterku teymi stofnenda og stjórnenda
og oft er upplagt að nota Funder-
beam til að fjármagna útrás fyrir-
tækja á nýja markaði þegar þau hafa
þegar sýnt sig og sannað á heima-
markaði,“ útskýrir Rünno. „Aftur á
móti fara fyrirtæki að verða of stór
fyrir okkur, a.m.k. miðað við stærð
Funderbeam-hagkerfisins í dag, ef
þau þurfa að afla sér meira en 5 eða
10 milljóna evra í einu lagi.“
Þar sem sprotarnir hafa
rakað inn tugum milljóna
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Möguleikar Rünno segir Funderbeam m.a. henta vel sprotum og smáum
fyrirtækjum sem hafa þegar sannað sig á heimamarkaði og hyggja á útrás.
Stofnendur Funderbeam voru í einstaklega góðri stöðu til að synda á móti
straumnum og setja á laggirnar nýja fjármögnunarleið fyrir sprotafyrirtæki
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Árangur íslenskra sprotafyrirtækja
á fjármögnunarmarkaði Funder-
beam hefur vakið verðskuldaða at-
hygli. Flow, sem framleiðir hug-
leiðsluhugbúnað fyrir sýndar-
veruleika, reið á vaðið og aflaði sér
jafnvirði um 16 milljóna króna
snemma í vor. Næst kom matvæla-
framleiðandinn Lava Cheese sem
fékk fjárfesta til að leggja tæplega
100 milljónir króna að veði. Nú síðast
sótti jurtalyfjafyrirtækið Florealis
hálfa milljón evra, eða tæpar 68
milljónir króna, í gegnum Funder-
beam en áhugi fjárfesta var langt
umfram það mark sem sett hafði
verið.
Heyra má á Rünno Allikivi, sem
stýrir starfsemi Funderbeam í
Skandinavíu, að hann telji fleiri ung
íslensk fyrirtæki eiga erindi við
Funderbeam. Fyrirtækið var upp-
haflega stofnað í Eistlandi en er
núna með höfuðstöðvar sínar í Lond-
on. Funderbeam leiðir saman fag-
fjárfesta, einstaklinga og sprota í
ferli sem kalla mætti bræðing af
hlutafjárútboði og fjárfestingarlotu.
„Í byrjun lýstum við starfseminni
þannig að Funderbeam væri eins og
ef Nasdaq, Bloomberg og [sprota-
kynningarvefurinn] AngelList eign-
uðust afkvæmi,“ segir Rünno. „Í
stuttu máli má segja að Funderbeam
sé vettvangur þar sem hópar ein-
staklinga fjárfesta í óskráðum fé-
lögum með gagnsæjum hætti og með
sömu kjörum og fagfjárfestar.
Funderbeam er líka markaðstorg
þar sem þátttakendur geta keypt og
selt hluti sín á milli.“
Rétt fólk á réttum stað
Funderbeam var stofnað árið 2015
en fyrsta fjármögnunarverkefnið fór
í loftið árið 2017. Síðan þá hefur tek-
ist að ljúka 56 fjáröflunarlotum sem
samtals hafa aflað 21,9 milljóna evra.
Viðskipti með eignarhluti á fjár-
mögnunarmarkaði Funderbeam
nema í dag um 4,2 milljónum evra og
eru skráðir notendur um 13.500 tals-
ins. Það voru Kaidi Ruusalepp og
27. desember 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 121.83 122.41 122.12
Sterlingspund 158.23 158.99 158.61
Kanadadalur 92.61 93.15 92.88
Dönsk króna 18.068 18.174 18.121
Norsk króna 13.594 13.674 13.634
Sænsk króna 12.928 13.004 12.966
Svissn. franki 124.17 124.87 124.52
Japanskt jen 1.1131 1.1197 1.1164
SDR 167.64 168.64 168.14
Evra 135.02 135.78 135.4
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 165.545
Hrávöruverð
Gull 1490.85 ($/únsa)
Ál 1790.0 ($/tonn) LME
Hráolía 66.44 ($/fatið) Brent
● Samkvæmt mælingum Mastercard
tókst bandarískum neytendum að slá
nýtt netverslunarmet þessi jólin. Af allri
jólaverslun þetta árið myndaði sala yfir
netið um 14,6% og er það aukning um
tæplega fimmtung frá síðasta ári. Heilt
á litið jókst jólaverslun, bæði á netinu
og í hefðbundnum búðum, um 3,4%
milli ára miðað við gögn Mastercard.
Var jólaverslunartímabilið þó viku
styttra í ár en í fyrra enda þakkar-
gjörðarhátíðin seint á ferðinni.
Gjöful jólavertíð í ár þykir endur-
spegla gott ástand á bandarískum
vinnumarkaði og hækkun launa þar í
landi. ai@mbl.is
Bandarísk netverslun
sló met þessi jólin
Hátíð Fólk skoðar varninginn í New York.
Travis Kalanick, stofnandi og fyrr-
verandi forstjóri skutlveitunnar
Uber, hefur sagt sig úr stjórn fyrir-
tækisins og selt alla hluti sína. Reu-
ters greinir frá þessu og hefur eftir
talsmanni Kalanicks en áætlað er
að hlutur hans í félaginu hafi verið
um þriggja milljarða dala virði.
Eins og Morgunblaðið fjallaði um
á sínum tíma var Kalanick gert að
segja af sér sem forstjóri árið 2017
vegna ýmissa uppákoma í rekstri
fyrirtækisins. Kalanick þótti mjög
litríkur og djarfur stjórnandi og
var óhræddur við að láta Uber
þeysa inn á markaði í trássi við lög
og reglur um leigubílaþjónustu en
skapaði um leið eitraða menningu á
vinnustaðnum sem leiddi á end-
anum til uppreisnar annarra hlut-
hafa gegn honum.
Hyggst Kalanick núna einbeita
sér að þróun svk. „drauga-eldhúsa“
(e. ghost kitchen) sem matreiða
rétti af öllu mögulegu tagi til heim-
sendingar. Fer sá rekstur fram
undir merkjum CloudKitchens og
hefur félagið þegar tryggt sér um
400 milljóna dala framlag frá rík-
isfjárfestingasjóði Sádi-Arabíu auk
nokkurra hundraða milljóna dala
frá Kalanick sjálfum. ai@mbl.is
Kalanick far-
inn frá Uber
með öllu
Óstöðvandi Travis Kalanick ætlar
að hella sér út í veitingarekstur.