Morgunblaðið - 27.12.2019, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 27.12.2019, Blaðsíða 16
Nú er tími til að etja mannbrodda á skóna þína Eigum mikið úrval Við erum hér til að aðstoða þig! - Lækjargata 34a / 220 Hafnarfjörður - 16 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 2019 Vetrarsól er umboðsaðili 40 ár á Íslandi Sláttuvélar Snjóblásarar Sláttutraktorar Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is Gulltryggð gæði Þúsundir komu saman á Péturs- torginu í Róm á jóladag til að hlýða á jólaávarp Frans páfa, Urbi et orbi. Páfi gerði að umtalsefni sínu hlutskipti flóttafólks og þeirra sem yrðu fyrir ofsóknum vegna trúar. „Óréttlæti verður til þess að fólk þarf að ferðast yfir eyðimerkur og sjó, sem síðar verða að grafreit- um,“ sagði Frans páfi. Hann sagði að ekki þyrfti að leita langt yfir skammt til að leiðrétta óréttlæti. Allir gætu haft áhrif í sinni heimabyggð og unnið að því að lina „þjáningar ættingja okkar úr fjölskyldu manna“. Þá bað hann fyrir íbúum hins helga lands, Venesúela, Jemens og fleiri ríkja sem enn biðu friðar, ör- yggis og velmegunar. Ávarp páfa, Urbi et orbi (Til borgarinnar [Rómar] og heimsins), er að jafnaði flutt tvisvar á ári, á jóla- og páskadag, en það á rætur að rekja til Gregors páfa X., á 13. öld. alexander@mbl.is Páfi ávarp- aði heims- byggðina AFP Alexander Kristjánsson alexander@mbl.is Þegar sagnfræðingar framtíðarinn- ar líta um öxl mun árið 2019 standa upp úr sem ár mótmælanna og skipa sér stöðu með ártölum á borð við 1848, 1917 og 1989. Þetta segir Gideon Rachman, blaðamaður og stjórnmálaskýrandi Financial Tim- es. Fjöldamótmæli hafa sett svip sinn á fréttaflutning víða um heim, en óvíða með jafnafgerandi hætti og í Hong Kong. Kveikjan að þeim var frumvarp héraðsstjórnarinnar sem hefði, ef það hefði verið samþykkt, opnað á framsal fanga til megin- lands Kína og Taívans. Þrátt fyrir að hafa dregið frum- varpið til baka í september hefur héraðsstjóranum, Carrie Lam, ekki tekist að lægja öldurnar, en mót- mælendur krefjast þess meðal ann- ars að hún segi af sér embætti. Segja þeir frumvarpið lið í þvinguðu aðlögunarferli Hong Kong að stjórnarkerfi alþýðulýðveldisins sem sé svik við fyrirheit sem gefin voru um að Hong Kong fengi að viðhalda eigin stjórn, og lögum í 50 ár frá því að héraðið komst undir kínverska stjórn árið 1997. Sjálf þykir Lam milli steins og sleggju, mótmælenda í Hong Kong annars vegar og kommúnistastjórn- arinnar í Kína hins vegar. Leiðtogaleysi tímanna tákn Af öðrum þýðingarmiklum mót- mælum má nefna mótmæli gulvest- unga í Frakklandi og sjálfstæðis- sinna í Katalóníu, auk mótmæla í Rússlandi, ýmsum Suður-Ameríku- ríkjum, Alsír, Íran, Líbanon og Súd- an. Að sögn Rachman er það tímanna tákn að þau mótmæli sem um ræðir séu flest án vel skilgreinds leiðtoga. Samfélagsmiðlar hafi reynst öflugt tól til að virkja fólk um heim allan, hjálpa til við skipulagningu og breiða út boðskap, slagorð og kröf- ur. Þannig læri mótmælendur hver af öðrum og nýti sér aðferðir sem hafi virkað annars staðar, segir Rachman og nefnir sem dæmi kata- lónska mótmælendur sem hafi veif- að fána Hong Kong og lagt undir sig flugvelli að þeirra fyrirmynd. Hvatvísi geti þó snúist í höndum mótmælenda, og þótt „hashtögg“ og „meme“ séu vel til þess fallin að fá fólk út á götur, geti mótmæli liðið fyrir skort á skipulagi og leiðtoga. Það kunni að skýra hve fá mótmæli hafi skilað raunverulegum breyting- um, enn sem komið er. Ekki er þó svo að skilja að mót- mæli ársins hafi engan árangur bor- ið. Verkfallsaðgerðir og fjöldamót- mæli í Bólivíu neyddu hinn þaulsetna forseta landsins, Evo Morales, til að segja af sér embætti í síðasta mánuði, og sömu sögu er að segja af forsætisráðherra Líbanon, Saad al-Hariri sem sagði af sér í október. Þá er of snemmt að segja til um áhrif mótmæla í Katalóníu, Hong Kong og víðar. Þótt árið 2019 hafi þegar tryggt sess sinn í sögubókum sé mögulegt að 2020 verði árið sem mótmælin beri áþreifanlegan ávöxt. 2019 var ár mótmælanna  Samfélagsmiðlar breiða út boðskapinn á ógnarhraða  Fá fjöldamótmæli borið áþreifanlegan árangur en ógjörningur að segja til um endanleg áhrif AFP Jólamótmæli Mótmæli hafa verið daglegt brauð í Hong Kong frá í mars. Leiðtogakjör Liduk-flokksins, flokks Benjamíns Netanyahu, for- sætisráðherra Ísraels, fór fram í gær, á öðrum degi jóla. Gideon Saar, fyrrverandi inn- anríkisráðherra Ísrael, bauð sig fram í embættið gegn Netanyahu, sitjandi formanni. Saar þykir eilítið hægrisinnaðri en forsætisráðherrann og hefur hann meðal annars kallað eftir enn harð- ari stefnu í garð Palestínumanna. Úrslit verða tilkynnt í dag en ekki er gert ráð fyrir öðru en að Net- anyahu hljóti örugga kosningu þrátt fyrir að sæta ákærum fyrir spillingu og mútuþægni. Ekkert hefur gengið að mynda ríkisstjórn í landinu þrátt fyrir tvennar þingkosningar á árinu, og hefur þegar verið boðað til þriðju kosninganna 2. mars á nýju ári. Eru vandræðin meðal annars til- komin vegna viljaleysis annarra hægriflokka til að starfa með Liduk- flokknum undir stjórn Netanyahus. Komi til þess að Netanyahu verði sakfelldur verður hann, lögum sam- kvæmt, að segja af sér embætti, en AFP hefur eftir bandamanni Saar að valið standi á milli ríkisstjórnarsetu flokksins undir forystu Saar eða stjórnarandstöðu undir forystu Net- anyahu. alexander@mbl.is Formanns- kjör í flokki Netanyahu Gideon Saar Sautján almennir borgarar, þar af tólf eþíópískir innflytjendur, létu lífið í árás á Al-Raqw-markaðinn í norðurhluta Jemens í gær. Er þetta þriðja mannskæða árásin á mark- aðnum á rúmum mánuði. Sam- kvæmt upplýsingum frá Sameinuðu þjóðunum hafa 89 látið lífið eða slasast í árásum á markaðnum á þessu ári. Norðurhluti Jemens hefur verið á valdi Huthi-uppreisnarmanna frá árinu 2015 og berjast þeir við her- sveitir undir stjórn Sádi-Araba sem reyna að ná völdum á ný. JEMEN AFP Blóðugt Borgarastríð hefur geisað í landinu frá árinu 2015. Sautján drepnir í árás á markað Sextán hið minnsta eru látnir eftir að fellibylur gekk yfir miðhluta Filippseyja á jóladag. Hinir látnu bjuggu í þorpum og bæjum á eyjum Visayas-eyjaklasans. Vindhraði bylsins, sem ber nafnið Phanfone, náði yfir 200 metrum á sekúndu og hreif hann með sér hús- þök og rafmagnsstaura. Um 60.000 manns höfðu verið fluttir á brott áður en fellibylurinn reið yfir en um 15.000 manns urðu eftir við strendur eyjanna eftir að ferjuflutningum var hætt vegna veðurs. Sextán létust í fellibyl á jóladag Phanfone Vindhraði náði 200 m/s. FILIPPSEYJAR AFP

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.