Morgunblaðið - 27.12.2019, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 27.12.2019, Qupperneq 19
19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 2019 Um síðustu áramót breytti ég embættistitli mínum í félags- og barnamálaráðherra. Er það í fyrsta sinn á Íslandi sem embættistitill ráðherra vísar til málefna barna. Við Íslendingar gerum mjög margt vel þegar kemur að velferð barna en ég hef, engu að síður, orðið var við brotalamir og glufur í kerfinu. Þá eru sífellt að koma fram nýjar rannsóknir sem sýna fram á að barnæskan og velferð barna skipti sköpum þegar kemur að því að byggja upp sterka ein- staklinga til framtíðar og þar með heilbrigt og virkt samfélag. Sannast með því gamla máltækið um að lengi búi að fyrstu gerð og er ég þeirrar skoðunar að besta fjárfesting sem samfélag getur ráðist í sé að hlúa vel að börnum. Sú fjárfesting er ekki einvörð- ungu góð þegar litið er á bætta líðan og virkni einstaklinga í samfélaginu, heldur einnig á fjárhagslegan mælikvarða. Endurskoðun á þjónustu við börn Á þessu eina ári sem brátt er á enda hefur margt áunnist. Unnið hefur verið að endur- skoðun og samþættingu á allri þjónustu við börn og eru útlínur að nýju velferðarkerfi þeim til handa að verða til. Því er meðal annars ætlað að grípa börn sem á þurfa að halda fyrr en verið hefur og bjóða strax í upphafi fram viðeigandi stuðning og aðstoð. Mikil vinna liggur þarna að baki en einn lykillinn að því að svo stórar breytingar geti orðið að veruleika er sú þverpólitíska samstaða sem hefur myndast um mikilvægi þess að setja börn í forgang. Formlegu samstarfi á milli ráðuneyta sem fara með málefni barna hefur verið komið á fót en auk þess er þverpólitísk þingmannanefnd í málefnum barna að störfum. Þá hafa sérfræð- ingar í málefnum barna úr öllum áttum lagt mikið af mörkum. Stórsókn í barnavernd Þó endurskoðunin fari fram á öllum þjón- ustustigum hefur, eins og gefur að skilja, verið lögð sérstök áhersla á að styrkja barnaverndarkerfið fyrir þau börn sem höllustum fæti standa. Með nýrri framkvæmdaáætlun í barnavernd, sem lögð var fram í vor, var blásið til stórsóknar en markmið hennar er að efla grunnvinnslu barnaverndarmála svo hægt verði að koma að vanda barna eins fljótt og auðið er. Hún gerir ráð fyrir aukinni samvinnu og samstarfi á milli ríkis og sveit- arfélaga og er ætlað að auka framboð gagnreyndra úrræða svo um munar. Sjónarmið barna og ungmenna fá aukið vægi Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna fagnaði 30 ára afmæli í nóvember síðastliðnum. Í tilefni afmælisársins hef ég lagt sér- staka áherslu á að leita leiða til að auka þátttöku barna og ung- menna í stefnumótun og ákvarð- anatöku stjórnvalda. Í því skyni var afar ánægjulegt að vera við- staddur fyrsta Barnaþing umboðsmanns barna sem haldið var í Hörpu í nóvember en niðurstöður þess voru afhentar ríkisstjórn í þinglok og munu hafa bein áhrif á aðgerða- áætlun sem er í undirbúningi í félagsmálaráðu- neytinu um aukna þátttöku barna og ung- menna í stefnumótun og ákvarðanatöku. Hún er byggð á samþykkt ríkisstjórnarinnar frá því í vor um að allar stórar ákvarðanir sem og lagafrumvörp sem varða börn skuli rýnd út frá áhrifum á stöðu og réttindi þeirra. Erum við í þeim efnum komin lengra en margar aðrar þjóðir. Þá hefur á árinu farið fram vinna við hvernig raungera skuli þátttöku barna á mark- vissan hátt í stefnumótun og ákvarðanatöku stjórnvalda og ég hef nýverið undirritað samn- ing við Landssamband ungmennafélaga um formlegt samstarf í þeim efnum. Öll sveitarfélög á Íslandi verði barnvæn Við stöndum á krossgötum hvað varðar þjónustu við börn á Íslandi. Aukinn skilningur er að verða á því að raddir barna og Barnasátt- málinn eigi að liggja til grundvallar allri þjón- ustu og ákvörðunum sem varða líf yngri kyn- slóða. Til að undirstrika það má nefna að nýlega gekk félagsmálaráðuneytið til samn- inga við UNICEF um þátttöku í verkefninu Barnvæn sveitarfélög UNICEF undir for- merkjunum Barnvænt Ísland með það að markmiði að tryggja aðgengi allra sveitarfé- laga að stuðningi við innleiðingu Barnasátt- málans. Mikilvægi þessa er ótvírætt. Börn sækja að stærstum hluta sína nærþjónustu til sveitarfé- laga. Til að tryggja raunverulega barnvænt samfélag þurfa börn að njóta þeirra réttinda sem Barnasáttmálinn kveður á um í sínu nær- umhverfi á degi hverjum og því þarf innleið- ingin ekki hvað síst að fara fram á þeim vett- vangi. Mælaborð um velferð barna Samhliða því að bjóða sveitarfélögum að gerast barnvæn verður þeim boðið að nýta sér svokallað mælaborð um velferð barna. Mæla- borðið er þróunarverkefni á vegum Kópavogs- bæjar, félagsmálaráðuneytisins, Köru Connect og UNICEF á Íslandi. Með notkun mæla- borðsins munu sveitarfélög geta greint með markvissum hætti þau tölfræðigögn sem til eru um velferð barna innan sveitarfélagsins og nýtt við stefnumótun, fjárhagsáætlanagerð og ákvarðanatöku. Markmiðið er að aðgerðir inn- an sveitarfélaga verði markvissari og nýtist þar sem þeirra er raunverulega þörf. Mæla- borðið er nýjung sem eftir er tekið en það hlaut nýverið alþjóðleg verðlaun UNICEF fyrir framúrskarandi lausnir og nýsköpun í nærumhverfi barna. Endurreisn fæðingarorlofskerfisins Eitt helsta áherslumál mitt í embætti hefur frá upphafi verið að endurreisa og efla fæðing- arorlofskerfið. Hámarksgreiðslur hafa þegar verið hækkaðar og samþykkt hefur verið að lengja fæðingarorlof úr níu mánuðum í tólf. Samhliða fer fram heildarendurskoðun lag- anna sem lýkur á næsta ári og mun án efa leiða til frekari umbóta. Á árinu sem er að líða hef ég skynjað mikinn vilja til breytinga og hefur fólk verið tilbúið að leggjast árarnar með mér. Öðruvísi hefðum við ekki áorkað svo miklu. Ástæðan er í mínum huga sú að við getum flest verið sammála um að vilja gera betur fyrir börnin okkar. Eftir Ásmund Einar Daðason » Við stöndum á kross- götum hvað varðar þjónustu við börn og ung- menni á Íslandi. Ásmundur Einar Daðason Höfundur er félags- og barnamálaráðherra. Börn og ungmenni í forgrunni Morgunblaðið/Golli Ávinningur „Unnið hefur verið að endurskoðun og samþættingu á allri þjónustu við börn.“ Í umræðuþætti um úrslit þing- kosninganna í Bretlandi 12. des- ember sagði David Miliband, fyrrv. utanríkisráðherra Verka- mannaflokksins, að frá upphafi hefði kosningabarátta flokksins undir forystu Jeremys Corbyns verið vonlaus. Það ynni enginn kosningar með því að berjast fyrir better yesterday – betri gærdegi – í kosningum yrðu menn að horfa fram á veg og segja kjósendum hvað þeir vildu gera betur. Tímaskekkjan í boðskap Corbyns og fylgis- manna hans er augljós. Þeir vilja hverfa aftur til ríkisforsjár og sósíalisma sem Tony Blair, sigursælasti leiðtogi Verkamannaflokksins, ýtti til hliðar á tíunda áratugnum. Endurreisnar- menn í Verkamannaflokknum segja þess vegna ekki nóg að losna við Corbyn heldur verði einn- ig að uppræta corbynismann, þar á meðal gyð- ingahatur. Corbyn skilaði auðu um hvernig ætti að ljúka fyrsta áfanga brexit-ferðarinnar. Boris John- son, leiðtogi Íhaldsflokksins, tók hins vegar af- dráttarlausa afstöðu. Þjóðin greiddi atkvæði með úrsögn úr ESB í júní 2016 en meirihluti þingmanna stóð gegn henni þar til föstudaginn 20. desember þegar, að loknum þingkosningum, þingmenn sam- þykktu með 358 atkvæðum gegn 284 í neðri málstofu þingsins að staðfesta viðskilnaðar- samning Breta og ESB. Lokaafgreiðsla um málið verður í breska þinginu 9. janúar og ESB-þingið tekur afstöðu til samningsins 13. eða 28. janúar 2020. Eftir það hefst næsti áfanginn, gerð framtíðarsamn- ings milli Breta og ESB. Boris Johnson vill lög- festa að áfanganum ljúki 31. desember 2020, réttum 11 mánuðum eftir úrsögnina 31. janúar 2020. Boris sameinar Íhaldsflokkinn Í kosningabaráttu sinni lofaði Boris Johnson að færa klukkuna til baka samhliða „nýrri dag- renningu“. Hann ætlaði að koma Bretum í svipaða stöðu og þeir voru fyrir 1973 þegar þeir gerð- ust, án þjóðarsáttar, aðilar að Evrópubandalaginu og hann boðaði nýja vegferð án sameig- inlegs markaðar. Eftir að UKIP-sjálfstæðis- sinnar gegn ESB tóku að hafa fylgi af Íhaldsflokknum ákvað David Cameron, þáv. leiðtogi flokksins og forsætisráðherra, að efna til þjóðaratkvæðagreiðsl- unnar um ESB-aðildina í júní 2016. Hann vildi í senn sameina Íhaldsflokkinn og halda áfram í ESB á nýjum forsendum. Hvorugt varð og hann sagði af sér. UKIP breyttist í Brexit-flokkinn sem náði miklu fylgi af Íhaldsflokkum í ESB-þingkosn- ingum í maí 2019. Leiðtogadagar Theresu May voru taldir og Nigel Farage, leiðtogi Brexit- flokksins, færðist allur í aukana eftir því sem brexit-erfiðleikar Íhaldsflokksins jukust. Hann hafði meira að segja í heitingum við Bor- is Johnson síðsumars 2019 en lyppaðist niður og fékk engan mann kjörinn á þing 12. desem- ber. Í þingkosningunum tókst Boris Johnson það sem Cameron ætlaði sér, að sameina Íhalds- flokkinn með því að kæfa sjálfstæðissinna. Brexit-flokkurinn er úr sögunni og Boris John- son krafðist skriflegrar yfirlýsingar af öllum frambjóðendum Íhaldsflokksins um að þeir styddu brexit. Harka vegna fríverslunarsamnings Í ræðu fyrir atkvæðagreiðsluna á þingi 20. desember hvatti Boris Johnson til þess að menn hættu að líta á sig sem úrsagnar- eða að- ildarsinna. Einhuga yrði þjóðin að sækja fram á eigin forsendum í krafti þess frelsis og svig- rúms til að setja sér eigin lög og reglur sem hún fengi með brexit. Í ræðunni sló forsætisráðherrann einnig harðan tón þegar hann ræddi komandi frí- verslunarviðræður við ESB. Hann setti ekki aðeins ströng og þröng tímamörk heldur tók hann allt aðra stefnu varðandi efni og aðferð en talsmenn ESB. Að Bretar og ESB semji á 11 mánuðum er mikil bjartsýni í ljósi þess að það tók ESB tvö og hálft ár að semja um fríverslun við S-Kóreu- menn. Ekki hefur verið samið við aðra þjóð á skemmri tíma. Viðræður ESB um fríverslunar- samning við Kanadamenn stóðu frá 2009 til 2017, í átta ár. Liggur í loftinu að Bretar vilji eigin útgáfu af Kanadasamningnum. Ekkert er þó í hendi. Þegar rætt er um alþjóðamál og samninga um þau er nauðsynlegt að glöggva sig á hvað felst í orðum sem stjórnmálamenn og embætt- ismenn nota. Með aðild að sameiginlega EES-markaðnum skuldbinda ríki sig til að samræma reglur og staðla til að tryggja jafna samkeppni milli að- ildarþjóðanna. Í sumum tilvikum er um tækni- legar kröfur að ræða en í öðrum að fyrirtæki sem starfa í ólíkum löndum búi við sambæri- legt starfsumhverfi. Á ESB-máli er talað um level playing field. Þar er til dæmis átt við að ekki verði mismunað með sköttum, félagsleg- um skilyrðum, kröfum til persónuverndar eða á sviði umhverfismála. Charles Michel, forseti leiðtogaráðs ESB, og Michel Barnier, aðalsamningamaður fram- kvæmdastjórnar ESB við Breta, leggja báðir höfuðáherslu á að fríverslunarsamningur við Breta verði að tryggja sambærilegt starfsum- hverfi. Bretar taki með öðrum orðum mið af lögum og reglum ESB. Boris Johnson er ekki á sama máli. Hann sagði að Bretar færu sína eigin leið það yrði no alignment, engin samstilling með ESB, sem sagt engin trygging fyrir sambærilegu starfs- umhverfi. Sérfræðingar ESB benda á að ekki kunni góðri lukku að stýra að lögfesta annars vegar skýr, óumbreytanleg tímamörk og hins vegar setja fram kröfur sem ganga þvert á væntingar viðsemjandans. Af breskri hálfu er minnt á að talið var fráleitt að Boris Johnson tækist að breyta viðskilnaðarsamningnum sem Theresa May gerði og ESB-menn sögðu óumbreytan- legan. Það hefði honum tekist – hvers vegna ekki þetta? Miklir íslenskir hagsmunir Bretar verða aðilar að EES-samstarfinu út árið 2020. Þeir vilja ekki gera neinn samning sem líkist samningi EES/EFTA-ríkjanna, Ís- lands, Liechtensteins og Noregs, við ESB. Hann er reistur á aðild að sameiginlega mark- aðnum. Bretar vilja fríverslunarsamning. Á þessu tvennu er grundvallarmunur. Miklir íslenskir hagsmunir eru í húfi gagn- vart Bretum, annarri stærstu viðskiptaþjóð Ís- lendinga. Aldrei fyrr hefur þjóð sagt skilið við EES-samstarfið. Brotthvarf Breta af sameig- inlega markaðnum kallar á allt annars konar úrræði en almennt ráða í viðskiptaviðræðum þar sem leitast er við að skapa sem mest sam- ræmi í nafni fríverslunar. Nú verður náið sam- band rofið og sett í nýjan búning þar sem skil eru meiri en áður á milli aðila. Fyrir smáþjóð er mikilvægt að við úrlausn ágreiningsmála sé tryggt jafnræði. Icesave- deilan við Breta var endanlega leyst innan ramma EES-samstarfsins með afskiptum Eft- irlitsstofnunar EFTA (ESA) og EFTA-dóm- stólsins. Fyrir dómstólnum gátu Bretar ekki neytt aflsmunar, þeir stóðu í sömu sporum og smáþjóðin. Það má ekki verða neitt rof í flugsamgöng- um milli Íslands og Bretlands. Samstarf í mennta- og vísindamálum má ekki bresta. Borgaralegt öryggi verður ekki tryggt hér nema í nánu samstarfi við Breta. Vandfundið er brýnna verkefni á sviði ís- lenskra utanríkismála árið 2020 en að treysta tengslin við Breta á nýjum grunni. Eftir Björn Bjarnason » Íslendingar eiga aðild að sameiginlega EES-mark- aðnum. Bretar vilja fríverslun- arsamning. Á þessu tvennu er grundvallarmunur. Björn Bjarnason Höfundur er fv. ráðherra. Samið við Breta á nýjum grunni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.