Morgunblaðið - 27.12.2019, Side 31

Morgunblaðið - 27.12.2019, Side 31
ÍÞRÓTTIR 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 2019 KÖRFUBOLTI Kristján Jónsson kris@mbl.is Martin Hermannsson, landsliðs- maður í körfuknattleik, setur ekki tærnar upp í loft um jól og áramót. Frá 18. desember til 5. janúar leikur lið hans, Alba Berlin, sjö leiki í þýsku deildinni og Euroleague, sterkustu Evrópukeppninni hjá fé- lagsliðum. Hátíðahöldin taka því mið af þessu hjá Martin en leikjafjöldinn hjá Alba er mikill á tímabilinu eins og fram kom í spjalli við Martin í blaðinu í sumar. „Ég hef ekki upplifað jafn mikið álag í körfuboltanum um ævina. Þetta er svolítið nýtt fyrir mér og ég læri því inn á sjálfan mig í leiðinni. Ég hef lent á aðeins stærri veggjum en ég hef þurft að lenda á í atvinnu- mennskunni hingað til. Miðað við allt er ég samt nokkuð vel á mig kominn. Að sjálfsögðu hugsa ég vel um mig varðandi hvíldina og það sem ég læt ofan í mig. Við erum auð- vitað einnig í góðum höndum hjá styrktar- og sjúkraþjálfurum. Ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá eru þetta full margir leikir og fyrir vikið getur verið erfitt að gíra sig upp fyr- ir leiki í þýsku deildinni,“ sagði Martin þegar Morgunblaðið spjall- aði við hann á Þorláksmessu en ís- lenski landsliðsmaðurinn hefur lítið misst úr á tímabilinu. „Ég held að við séum fjórir í leik- mannahópnum sem ekki hafa meiðst á tímabilinu. Ég hef verið nokkuð heppinn og engin stór vandamál eru að pirra mig. Einungis minniháttar óþægindi sem maður getur aldrei sloppið alveg við.“ Lærdómsríkur vetur Hlutverk Martins hjá Alba Berlin hefur breyst en hann skoraði mikið á síðasta tímabili. Nú ber hann meiri ábyrgð á því að koma samherjum sínum í skotfæri og er í 9. sæti yfir þá sem gefið hafa flestar stoðsend- ingar í Euroleague. „Ég væri til í að hitta betur fyrir utan þriggja stiga línuna en ég hef gert í vetur. Það hefur ekki gengið nógu vel. Ég er hins vegar í öðru hlutverki heldur en á síðasta tíma- bili. Ég spila meira stöðu leikstjórn- anda og þar af leiðandi með fleiri stoðsendingar. Ég stjórna leiknum frekra en að taka skot sem er svolít- ið nýtt fyrir mér. Mér var svolítið hent beint út í djúpu laugina í þeim skilningi að ég sé að spila leikstjórn- andastöðuna í fyrsta skipti þegar ég er í fyrsta skipti í Euroleague. Miðað við þetta er ég að gera nokkuð góða hluti. Ég finn að ég á fyllilega heima í þessum gæðaflokki [Euroleague] og ætla mér að vera í þessum gæðaflokki eins lengi og ég get. Ég er enn að læra og þegar ég fæ frítíma næsta sumar þá veit ég hvað ég þarf að bæta.“ útskýrði Martin en þegar fram í sækir á hans ferli munu möguleikarnir aukast enn frekar í ljósi þess að hann geti hvort heldur sem er spilað sem leik- stjórnandi eða skotbakvörður. „Mín uppáhaldsstaða er þegar ég er með boltann í höndunum og þarf að búa eitthvað til. Það skiptir mig ekki öllu máli hvora stöðuna ég spila. Sem leikstjórnandi þarf ég þó að hugsa á annan hátt. Þá þarf ég að hugsa um samherjana og að hjálpa þeim að snerta boltann. Einnig þarf maður þá að velta fyrir sér hverju liðið þarf á að halda á þeim tíma- punkti í leiknum og hverjir eru í stuði og hverjir ekki. Ég þarf að ein- beita mér meira að þessu en áður. Hvað þetta varðar er mikill lærdóm- ur sem felst í þessu keppnistímabili fyrir mig og fínt að gera það þegar maður er ekki eldri en 25 ára.“ Ekkert rölt á Laugaveginum Hátíðahöldin hjá Martin í Berlín markast af mikilli leikjatörn. Alba Berlin spilaði 18., 20. og 22. desem- ber. Þá lék liðið í gærkvöldi og mun spila á gamlársdag. Eftir áramótin eru leikir bæði 3. og 5. janúar. „Jólin eru svolítið öðruvísi í ár og ef ég á að vera heiðarlegur þá er ég ekki í miklu jólaskapi. Ég hefði alveg verið til í að fara í skötu og rölta Laugaveginn í kvöld en þetta velur maður og ég vil frekar vinna við þetta en nokkuð annað,“ sagði Martin. Spurður um hvort félagið setji stífar reglur varðandi veislu- mat, og annað sem tengist hátíða- höldum, í ljósi þess hve margir leikir bíða segir Martin að leikmönnum liðsins sé treyst. „Nei. Það gilda reyndar reglur varðandi áfengisneyslu. En það er ekki fundað sérstaklega um lífernið í kringum hátíðarnar. Menn í þessum gæðaflokki eru ekki í neinu rugli og þeim er treyst til að borða almenni- lega. Kjöt er fínt eins og allt annað enda mega menn ekki léttast of mik- ið í því leikjaálagi sem er og því þurfa menn að borða oft og vel til að hafa orku og kraft. Hér eru menn ekki að byrja í faginu og vita hvað má og hvað má ekki,“ sagði Martin Hermannsson. Stigahæstur í Evrópuleik Í gærkvöldi mætti Alba Berlin liði Saski Baskonia frá Spáni í Euro- league í Berlín. Alba fór illa með spænska liðið og vann stórsigur 81:56. Martin var stigahæstur í þýska liðinu með 18 stig og gaf að auki þrjár stoðsendingar. Alba Berl- ín hefur nú unnið fimm leiki í Euro- league og er í 16. sæti en aðeins ein- um sigri á eftir liðunum í 10.-14. sæti. „Ég á fyllilega heima í þessum gæðaflokki“  Martin Hermannsson hefur rekist á fleiri veggi í atvinnumenskunni í vetur Ljósmynd/Euroleague Í Austurvegi Martin Hermannsson í leik með Alba Berlin gegn BC Khimki í Moskvu í Euroleague. Bandaríski körfuboltamaðurinn Wayne Martin hefur yfirgefið her- búðir Njarðvíkinga og gengið í rað- ir Jämtland í efstu deild Svíþjóðar. Karfan.is greindi frá þessu á jóla- dag en miðherjinn spilaði ellefu leiki með Njarðvík og skoraði 15 stig og tók sjö fráköst að meðaltali. Nokkurt rót hefur verið á leik- mannahópi Njarðvíkur. Evaldas Zabas var látinn fara í október en Chaz Williams kom í hans stað. Hef- ur liðið unnið alla sex leikina sem Williams hefur spilað. Liðið er í fjórða sæti Dominos-deildarinnar. Fór frá Njarðvík til Svíþjóðar Morgunblaðið/Hari Þjálfarinn Hópur Einars Árna Jóhannssonar tekur breytingum. Los Angeles Clippers hafði betur gegn Los Angeles Lakers í nágrannaslag í borg englanna í NBA-körfuboltanum í Bandaríkj- unum. Clippers hefur unnið báða leiki liðanna á leiktíðinni til þessa, en Lakers hefur nú tapað fjórum leikjum í röð eftir að hafa byrjað leiktíðina virkilega vel. Kawhi Leonard átti stórleik fyrir Clippers og skoraði 35 stig og tók 12 fráköst. Kyle Kuzma skoraði 25 stig fyrir Lakers, en Anthony Davis og LeBron James hafa oft spilað betur. johanningi@mbl.is Er Clippers með tak á Lakers? AFP LA LeBron James og Kawhi Leon- ard takast á að kvöldi jóladags.  Norska handknattleikssambandið tilkynnti á jóladag að Bjarte Myrhol, fyrirliði norska landsliðsins, yrði ekki með liðinu á EM í janúar vegna veik- inda. Var hann lagður inn á sjúkrahús á Þorláksmessu og liggur nú fyrir að hann verður ekki búinn að jafna sig fyrir EM. Myrhol mun gangast undir aðgerð 2. janúar en óljóst er hvaða áhrif veikindin hafa á þátttöku hans hjá Skjern sem Patrekur Jóhannesson stýrir og þeir Björgvin Páll Gúst- avsson og Elvar Örn Jónsson leika með.  Enska knattspyrnufélagið Wolver- hampton Wanderers hefur fest kaup á markmanninum efnilega Pálma Rafni Arinbjörnssyni frá Njarðvík. Pálmi er fæddur árið 2003 og hefur leikið með 15, 16 og 17 ára landsliðum Íslands. Pálmi hefur enn ekki leikið fyrir meist- araflokkslið Njarðvíkur, en Wolves hef- ur fylgst með honum í nokkurn tíma og æfði hann með enska liðinu síðasta sumar.  Sky Sports fékk einn stuðnings- mann hvers félags í ensku B-deildinni í knattspyrnu til að velja lið áratugarins hjá sínu liði að eigin mati. Þar kom upp sú staða að Gylfi Þór Sigurðsson er í liði áratugarins hjá tveimur stuðnings- mönnum. Annars vegar stuðnings- manni Reading og hins vegar stuðn- ingsmanni Swansea.  Belgíska tenniskonan Kim Clijsters, sem um tíma var í efsta sæti á heims- listanum, snýr aftur á tennisvöllinn í mars á næsta ári, sjö árum eftir að hafa lagt tennisspaðann á hilluna. Clijsters er 36 ára gömul og hefur á ferli sínum unnið fjögur risamót. Hún fagnaði þrisvar sinnum sigri á opna bandaríska meistaramótinu og einu sinni á opna ástralska mótinu. Hún hætti fyrst árið 2007 eftir að hafa eignast sitt fyrsta af þremur börnum en sneri svo aftur tveimur árum seinna og vann þrjú risamót áður en hún hætti aftur árið 2012 en hún hefur meðal annars starfað í sjónvarpi síðan þá. Hún mun taka þátt á Monterrey Open-mótinu í Mexíkó á næsta ári.  Handknattleiksþjálfarinn Alfreð Gíslason var sá besti í heimi á þeim vettvangi síðasta áratuginn, að mati danska handknattleiksmannsins Ras- mus Boysen. Boysen er leikmaður Ribe-Esbjerg í Danmörku. Daninn heldur uppi vinsælli Twitter-síðu, þar sem hann fer vel yfir mál sem tengjast handbolta og nýtur hann virðingar í handboltaheiminum. Boysen valdi besta lið áratugarins að hans mati og er Alfreð þjálfari liðsins. Boysen valdi Thierry Omeyer, Uwe Gensheimer, Mikkel Hansen, Nikola Karabatic, László Nagy, Lasse Svan, Julen Aguina- galde og Ge- deon Guar- diola í liðið. Alfreð lét af störfum hjá Kiel að eigin ósk eftir síðustu leiktíð, en hann var við stjórn liðs- ins í ellefu ár og var gífurlega sig- ursæll. Hann segir ferli sínum hjá fé- lagsliðum vera lok- ið. Eitt ogannað

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.