Morgunblaðið - 27.12.2019, Page 34
Púður ársins: Bare Minerals
Bare Skin Perfecting Veil
Þegar snyrtivara býr einnig yfir
öflugum húðbætandi eigin-
leikum þá sigrar hún hjörtu
snyrtivörusérfræðinga. Þetta
púður býr yfir léttri og gegn-
særri þekju sem festir farða og
fullkomnar húðina. Hún inni-
heldur m.a. C-vítamín sem gerir
húðina bjartari ásýndum og
hýjalúrónsýru sem veitir henni
aukinn raka.
Litað dagkrem
ársins:
Clinique
Moisture Surge
Sheertint
Hydrator SPF 25
Þessi litaða og
gelkennda form-
úla er sérlega
rakagefandi, létt
og veitir húðinni
fullkomlega nátt-
úrulegt yfir-
bragð. Hentar öll-
um húðgerðum
og hefur notið
gífurlegra vin-
sælda á árinu.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 2019
ICQC 2020-2022
Ár hvert velur Smartland 25 bestu snyrti-, húð- og hár-
vörur ársins en listinn er yfirgripsmikill og fjölbreyttur.
Blaðamenn Smartlands prófa yfirleitt flest sem kemur á
snyrtimarkaðinn hérlendis og eru
því í lykilstöðu til að meta
hvað stóð upp úr á árinu.
Kinnalitur ársins:
Bare Minerals Gen Nude
Powder Blush
Það er ekki auðvelt að finna
jafn fallega kinnaliti og þessa.
Fínmalaðar púðuragnirnar
blandast fullkomlega við húðina
og endast vel á henni.
Ljómavara ársins:
Guerlain Terracotta
Skin Highlighting Stick
Sumir segja þessa
snyrtivöru jafnvel vera
Instagram-filter í stift-
formi, svo mögnuð er
hún. Þessi kremaða
formúla verður púður-
kennd við ásetningu
og virðist afmá grófa
áferð húðarinnar og
gerir hana ljómandi
fallega.
Sólarpúður ársins:
Anastasia Beverly Hills Powder Bronzer
Mjög auðvelt í notkun og kemur í 6 mismunandi
litartónum svo allir ættu að finna lit við hæfi.
Púðuragnirnar eru einstaklega fínmalaðar og
blandast húðinni auðveldlega sem gerir ásýndina
náttúrulegri.
Hyljari
ársins: ILIA
True Skin
Serum
Concealer
Einstakur
hyljari sem
veitir miðl-
ungs þekju
og býr yfir
húðbæt-
andi eig-
inleikum
en hann
inniheldur
C-vítamín,
sem lýsir
upp húð-
ina, ásamt
nátt-
úrulegum
extröktum
sem bæta
hana.
Hann er
fullkominn
undir aug-
un þar sem
hann er
ekki of
mattur og
aðlagast
húðinni
vel.
25 bestu
snyrtivörur
ársins 2019
FÖRÐUN
Farði ársins:
Shiseido Synchro Skin Self-
Refreshing Foundation SPF 30
Í haust mætti Shiseido með
tæknilegasta farðann hingað til
og voru allir sammála um þá
töfra sem formúlan færði húð-
inni. Miðlungsþekjan og sat-
ínkennd áferðin hentar öllum
húðgerðum og aldurshópum.